Morgunblaðið - 18.07.1993, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.07.1993, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 1993 6 FRETTIR/IIMIMLEIMT Magnús Ver Magnússon vann öflugustu kraftakeppni ársins í vikunni Tryggði sér krafta- sigur á Látrabjargi MAGNÚS Ver Magnússon vann öflugustu kraftakepni ársins í vikunni, sem fram fór víðs vegar á Vestfjörðum og endaði á Látrabjargi. Eftir sigurinn hélt hann til keppni í Finnlandi, þar sem hann keppir á alþjóðlegu kraftamóti. Andrés Guðmundsson varð annar eftir góðan endasprett. Hann vann flestar greinar á mótinu, þrjár af átta, skaust framúr Guðna Siguijónssyni að stig- um í lokagreininni. „Mér gekk misjafnlega í mót- inu, en til að vinna svona mót þarf að vera jafn í mörgum grein- um, í stað þess að skara framúr í nokkrum. Þátttakan í mótinu er liður í undirbúningi mínum fyrir aflraunamótið Sterkasti maður heims í ágúst, en ég þarf að laga nokkur atriði fyrir það mót,“ sagði Magnús í samtali við Morgunblaðið. „Erfíðasta greinin í þessu móti fannst mér rétt- stöðulyftan um borð í ferjunni Baldri, sem sigldi á fullri ferð á meðan við lyftum." Magnús vann tvær greinar á mótinu, axlalyftu og bónda- göngu, en Andrés, sem byijaði keppnina illa, vann þrjár greinar. Hann fór hamförum seinasta daginn og vann tvær greinar af þremur, trukkadrátt og kapp- hlaup með 130 kg stein. Guðni vann í réttstöðulyftu, en Hjalti Úrsus var sprækastur í staurak- asti og tryggði sér annað til fjórða sætið. Magnús hlaut 54 stig, Andrés 47, Guðni 45 og Hjalti 44. Magnús Ver keppir í dag á stórmóti í Finnlandi, en hann náði öðru sæti í fyrra á sama móti. „Mér gekk mjög vel í keppni í fyrra, vann flest mót sem ég tók þátt í og keppi mikið erlendis í sumar. Ég fer m.a. á Hálanda- leika í Skotlandi auk fleiri afl- raunamóta á Bretlandseyjum," sagði Magnús. „Mótið í Finnlandi verður erfitt, en þar verður keppt í sex greinum. Finninn Riku Kuri verður örugglega mjög erf- iður við að eiga. I raun er slæmt að vera búinn að taka það fín- asta úr kroppnum á Vestfjarða- mótinu rétt fyrir þessa keppni. Ég verð samt að taka duglega á því,“ sagði Magnús. Verksamningnr undirritaður INGIMUNDUR Sigurpálsson bæjarsljóri og Páll Siguijónsson, for- stjóri Istaks hf., undirrita verksamning um byggingu Hofsstaðaskóla. Nýr grunnskóli, Hofsstaðaskóli, í Garðabæ Samið við ístak um bygginguna UNDIRRITAÐUR hefur verið verksamningur milli Garðabæjar og ístaks hf. um byggingu nýs grunnskóla, Hofsstaðaskóla, í Garðabæ. Samið var um 237,6 milljónir króna en áætlaður heildarkostnaður er 350 milljónir. í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir 13 kennslustofum en 19 í fullbyggðum skóla og á ístak hf. að skila skólanum fullbúnum að utan ásamt níu fullbúnum skólastofum 1. ágúst 1944 og fjórum skóla- stofum ári síðar. Nemendur verða um 300 og skólinn verður starfrækt- ur sem heilsdagsskóli, þ.e. boðið verður upp á gæslu og félagsstarf að loknum hefðbundnum skólatíma. Gert er ráð fyrir tveimur bekkjar- deildum í hveijum árgangi sex til ellefu ára nemenda. í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir sjö almennum kennslustofum og að bekkjardeildir verði 12 til 13. Verður skólinn því tvísetinn í byijun. í öðrum áfanga er gert ráð fyrir fjölgun almennra kennslustofa um sex og verða þær þá alls 13 og skólinn einsetinn. Heilsdagsskóli Skólinn verður heilsdagsskóli, þ.e. boðið verður upp á gæslu eftir hefð- bundinn skólatíma, og hafa bæjaiyf- irvöld samþykkt lengingu á skóla- degi yngstu nemendanna um eina kennslustund á dag. Allan kostnað vegna lengingarinnar greiðir Garða- bær. Gæsla verður í boði bæði fyrir og eftir skólatima allt eftir þörfum og óskum foreldra. I gæslu verður að- staða fyrir nemendur til að borða nesti að heiman. Gert er ráð fyrir að heimanám verði skipulagt fyrir þá sem verða allan daginn auk þess sem boðið verður upp á föndur. Umferðarmál Skólahúsið er 3.944 fermetrar að stærð á tveimur hæðum og er óráð- stafað rými í kjallara en gert er ráð fyrir möguleika á 720 fermetra stækkun síðar. Hönnuðir eru teikni- stofan Úti og inni, Baldur Ó. Svav- arsson og Jón Þór arkitektar, verk- fræðiþjónusta Guðmundar Óskars- sonar sá um verkfræðilega hönnun og Tómas Kaaber rafiðnfræðingur hannaði raflagnir. Skólinn er við nýtt skóla- og íþróttasvæði í Hofs- staðamýri við Arnameslæk. Ágreining-ur um viðhald á gamla Stýrimannaskólnum Þóroddur Th. Sigurðsson Vatnsveitu- stjóri lætur af störfum ÞÓRODDUR Th. Sigurðsson, vatnsveitustjóri Vatnsveitu Reylqavíkur, lætur af störfum 1. nóvember nk. og hefur staðan verið auglýst laus til umsóknar frá þeim tíma. Þóroddur hefur gegnt embætti vatnveitustjóra frá 1. nóvember 1958 eða í 35 ár. Hann lætur af störfum fyrir aldurs sakir en hann verður 71 árs í október. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Víkingur vestfjarða MAGNÚS Ver Magnússon með forláta hjálm sem hann hlaut fyr- ir sigur í kraftamóti á Vestfjörð- um. A innfelldu myndinni má sjá Andrés Guðmundsson fara ham- förum seinasta daginn og burðast með 130 kg stein. Húsafriðunarnefnd vill ekki tvöfalt gler FRAMKVÆMDIR og viðhald við gamla Stýrimannaskólann við Oldugötu 23 hafa legið niðri siðan í maí. Húsið er í umsjá mennta- málaráðuneytisins og í vor var það mat manna að ekki væri hægt að fresta mikið lengur allra nauð- synlegustu viðhaldsframkvæmd- um. Húsafriðunarnefnd ríkisins telur framkvæmdir ráðuneytisins bijóta þá friðhelgi sem ytra útlit húsins njóti. Gamli Stýrimannaskólinn við Öldugötu 23, var reistur árið 1898. Stýrimannaskólinn starfaði þar fram til ársins 1945. Þá var Gagnfræða- skóli Vesturbæjar þar starfandi fram til ársins 1958. Síðar var þarna grunnskóli, Vesturbæjarskólinn. Vesturbæjarskóli fluttist í ný húsa- kynni 1988. Það hefur lengi verið ljóst að gamli Stýrimannaskólinn þarfnaðist viðgerðar. Ymsir hafa varað við því að þessi sögufræga og merkilega bygging væri látin „grotna niður“. Síðan 1988 hefur húsið verið í um- sjá menntamálaráðuneytis. í vor gekkst ráðuneytið fyrir því að við- haldsframkvæmdir voru hafnar. Þá voru settir upp vinnupallar en síðan varð ekkert úr framkvæmdum. Pall- ar hafa staðið uppi en vinna legið niðri. Nauðsynlegasta viðhald í samtali við Morgunblaðið sagði Hákon Torfason deildarstjóri bygg- ingardeildar menntamálaráðuneytis að ráðuneytið hefði ekki haft úr miklum íjármunum að spila til að gera við þetta hús, um 3 milljónir króna, því hefði verið fyrirhugað að vinna nauðsynlegustu viðhaldsverk á útveggjum hússins, m.a. hefði ver- ið ráðgert að setja tvöfalt gler í glugga og einnig hefði verið ætlunin að skipta um jám og einangra húsið að utan, þ.e. ytra byrði. Hákon sagði að eftir að vinnupall- ar hefðu verið settir upp í maímán- uði hefðu borist tilmæli frá Húsafrið- unarnefnd ríkisins um að þetta mál yrði athugað betur. Að óbreyttu gæti nefndin ekki fallist á þessar Morgunblaðið/Þorkell Gamli Stýrimannaskólinn PALLAR standa uppi, en vinna liggur niðri meðan framhaldið er rætt. framkvæmdir. Húsafriðunarnefnd teldi þær breyta ytra útlit hússins, einnig væri nefndin því mótfallin að setja tvöfalt gler í gluggana. Hákon sagði málið nú vera í biðstöðu. Menn hlytu að koma saman og reyna að ná samkomulagi. Skylt að veija friðhelgi Guðmundur L. Hafsteinsson fram- kvæmdastjóri Húsafriðunarnefndar ríkisins taldi ekki tímabært að segja mikið um þetta mál á þessu stigi. Unnið væri að þessu máli í samvinnu við menntamálaráðuneyti. Hann benti á að ytra útlit Gamla Stýri- mannaskólans hefði verið friðað síð- an 1991. En Guðmundur staðfesti að Húsafriðunarnefnd hefði gert at- hugasemdir við framkvæmdir menntamálaráðuneytis. Meðal þess sem Húsafriðunarnefnd vildi, væri að þess væri gætt að gluggar húss-. ins yrðu óbreyttir, þ.e. með einföldu gleri. Guðmundur sagði að hægt væri að setja svokölluð „innri fög“ í gluggana; önnur gluggagrind innan á karminn. E.t.v. mætti lýsa þessu sem tvöföldum glugga þar sem innri glugginn opnaðist inn. Guðmundur sagði það einnig rétt að Húsafriðunarnefnd gæti ekki fall- ist á þá framkvæmd að setja lista- grind utan á húsið svo hægt-væri að koma þar fyrir einangrun. Slíkt breytti útliti hússins. Veggirnir yrðu þykkari. Gluggarnir sætu innar í veggnum og þakskeggið myndi virka styttra en áður. Húsafriðunarnefnd hefði tjáð byggingardeildinni að hún gæti ekki fallist á þessar fram- kvæmdir og vildi að húsið yrði að utan í upphaflegu formi. Guðmundur sagði að kanna yrði aðrar leiðir til að einangra húsið. Hvort ekki væri hægt að einangra í húsgrindinni sjálfri. Athuga yrði hvað væri eftir af eldri einangrun og hann lét þess getið að í nokkrum eldri húsum hefðu menn reynt að blása steinull inn í grindina. Einnig yrði athuga hve vel einangrunar- pappinn virkaði til að þétta húsið. 4 milljónir til viðbótar í fyrradag var tilkynnt um sérstök franilög ríkissjóðs 1993 til atvinnu- skapandi aðgerða. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins verður 4 millj- ónum króna til viðbótar varið til við- halds á gamla Stýrimannaskólanum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.