Morgunblaðið - 18.07.1993, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 18.07.1993, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 18. JÓLÍ 1993 OLYMPIULEIKAR Sydney kemur best út ALLS standast átta íþróttamannvirki í Sydney kröfur IOC, þrjú þarfnast lagfæringa og þrjú eru í byggingu. Myndin er af fótboltavellinum í Sydney; Moore Park. Ólympíuborgin árið 2000 valin í september: Kapphlaupinu um Ólympíu- leikana árið 2000 ekki lokið Sydney kemur vel út í skýrslu tækninefndar, en Berlín, Peking og Manchester eru líka inni í myndinni SYDIMEY, stærsta borg Ástralíu, er líkleg til að verða fyrir valinu sem gestgjafi Ólympíuleikana árið 2000. Sérstök tækni- nefnd hjá Alþjóða Ólympíunefndinni, IOC, tók út þær sex borgir sem sótt hafa um að halda leikana, og kom Sydney óneitanlega best út í skýrslu sem nefndin skilaði IOC. Borgirn- ar Peking, Berlín og Manchester og jafnvel Istanbul eru þó líka inni í myndinni, en Brasilía verður örugglega ekki fyrir valinu. Alþjóða Ólympíunefndin fundar 23. september nk. og þá verður tekin ákvörðun um hvaða borg hreppir hnossið. Samkvæmt skýrslu tækni- nefndarinnar er Sydney besti kosturinn. I athugunum nefndarinnar er litið til rúmlega tuttugu tæknilegra atriða, og ef litið er á þessa þætti í Sidney er hún nánast fullkomin, eins og haft er eftir fulltrúum hjá Alþjóða Ólympíunefndinni. Peking er talin helsti keppinautur Sydney um leik- ana, en ekki er farið nærri eins fallegum orðum um aðstæður þar í skýrsíunni. Skýrslan er samin af 12 manna nefnd sem heimsótti borgirnar í mars og apríl sl. í henni eru að- stæður vegnar og metnar út frá 23 tæknilegum atriðum, en borg- unum á engan hátt raðað í röð. Auk þess eru fjölmörg önnur at- riði en þau tæknilegu sem nefndar- mennirnir, 91 að tölu, í IOC hafa í huga þegar gestgjafar leikanna árið 2000 verða valdir 23. septem- ber. Eigum góða möguleika á enda- sprettinum Viðbrögf fulltrúa borganna við skýrslunni hafa verið misjöfn. Fulltrúar Berlínar telja að þeir eigi góða möguleika á því að verða fyrir valinu, þar sem útkoma þeirra hafi verið góð í skýrslunni þó svo aðrir hafi jafnvel komið betur út. „Við erum eins og hlaup- ari í 800 metra hlaupi sem er í þriðja sæti þegar lítið er eftir. Við eigum enn góða möguleika á að sigra á endasprettinum," sagði Axel Nawrocki, formaður fram- kvæmdanefndar Berlínarleikanna. Kálið ekki sopið þó í ausuna sé komið „Við erum ánægðir með útkom- una en ég held að við verðum að halda baráttunni áfram. Ekki er sopið kálið þó í ausuna sé komið,“ sagði Bruce Baird, varaforseti framkvæmdanefndar Sydneyleik- anna. Hann benti á að þrátt fyrir að Barcelona, sem hélt leikana 1992, og Atlanta, sem heldur leik- ana 1996, hafi komið best út tæknilega séð á sínum tíma, þá hafi japanska borgin Nagoya orðið fyrir valinu sem gestgjafi vetrar- ólympíuleikanna 1998, þrátt fyrir að Salt Lake City hafi komið betur út tæknilega. Baird taldi að Peking væri enn helsti keppinautur Syd- neyjar, þrátt fyrir að Manchester hafi komið betur út en kínverska borgin. Kínverjar og Englendingar kátir „Við sjáum ekkert í skýrslunni sem kemur okkur illa,“ sagði Wu Zhongyuan, talsmaður fram- kvæmdanefndar Pekingleikanna. Hann sagði að skýrslan benti á kosti og galla, og þeir gerðu sér grein fyrir göllunum og hefðu gert nákvæmar áætlanir til að bæta úr þeim. Fulltrúar Manchesterborgar voru líka kátir með útkomuna í skýrslunni. „Skýrslan kemur frá- bærlega út fyrir Manchester og við erum yfir okkur ánægðir með útkomuna, sem réttlætir full- komlega umsókn okkar,“ sagði Bob Scott, formaður fram- kvæmdanefndar Manchesterleik- anna. Tyrkir ekki hrifnir Tyrkir eru ekki eins hrifnir, en reiði þeirra beinist gegn þeim aðil- um sem láku innihaldi skýrslunnar út til fjölmiðla, og hefur orðið sam- særi jafnvel verið nefnt af Tyrkjunum. Þeir ætla að láta kanna málið nánar. Spurningar hafa vaknað hvort IOC ætti að fara fram á það að Brasilía drægi umsókn sína til baka, þar sem mikið skortir að borgin fullnægi skilyrðum IOC. Samaranch, forseti IOC, sagði að þeir hefðu ekkert vald til að þvinga þá til að draga umsóknina til baka, það væri alfarið á þeirra valdi að gera það. SYDNEY: Tekjur: 69 milljarðar Kostnaður: 68 milljarðar Hagnaður: 1 milljarður íþróttamannvirki: Standast Ólympíukröfur: 8 Þarfnast lagfæringa: 3 í byggingu: 3 Rök með: - Alla aðstæður fyrir ofan kröfur Alþjóða Ólympíunefndarinnar. - Oruggt umhverfi. - Víðtækur stuðningur frá inn- lendum og erlendum stjórnvöld- um, fyrirtækjum og umhverfis- verndarsinnum. - Nálægð. Keppendur í 14 íþróttagreinum geta gengið til keppni. - Keppendur fá næði, sérstak- lega þar sem fyrirhugað er að hafa eitt Ólympíuþorp. - Mismunandi tungumál ættu ekki að valda erfiðleikum. 40.000 sjálfboðaliðar undirstrik- ar mikinn stuðning almennings. -' Ferðakostnaður íþróttafólks og aðstoðarmanna greiddur, sem og flutningskostnaður af hestum og tækjum. - Frábær hótelaðstaða. - Mjög góðar samgöngur. Rök gegn: - Setja þarf hesta í sóttkví eftir áströlskum reglum og gæti það skapað nokkur óþægindi fyrir nokkrar þjóðir (en tækninefndin sér engin stór vandamál). PEKIIMG: Tekjun 81 milljarður Kostnaður: 72 milljarðar Hagnaður: 9 milljarðar Iþróttamannvirki: Standast Ólympíukröfur: 0 Þarfnast lagfæringa: 17 í byggingu: 0 Rök með: - Umsóknin er traust og hefur fullan stuðning stjórnvalda. - Fjárhagsáætlanir eru raun- hæfar og traustar. - Nálægð Ólympíuþorps við íþróttamannvirki, fyrir utan siglingar, er mjög jákvæð. Með- al ferðatími er 15 mínútur. - Ein sterkustu rökin með er möguleikinn til að hýsa alla meðlimi Alþjóða Ólympiunefnd- arinnar og aðra skipuleggjendur á einu hóteli. - Ferðakostnaður íþróttamanna og fararstjóra greiddur. Rök gegn: Sautján íþróttamannvirki þurfa endurbóta. Búningsað- staða íþróttamanna og önnur þjónusta er vel fyrir neðan al- þjóðlegar kröfur, (endurbótum er þó lofað). - Öfullnægjandi símaþjónusta (ætti að vera búið að endumýja fyrir árið 2000. - Umhverfisvernd í Kína er nokkuð fyrir neðan alþjóðlegar kröfur. - í Ólympíuþorpinu verða 16 háhýsi, það hæsta 22 hæðir. Tækninefndin telur háhýsi ekki henta í Ólympíuþorpi. BERLÍN: Tekjur: 150 milljarðar Kostnaður: 142 milljarðar Hagnaður: 8 milljarðar Iþróttamannvirki: Standast Ólympíukröfur: 5 Þarfnast lagfæringa: 6 í byggingu: 8 Rök með: - Þjóðveijar hafa mikla reynslu af því halda stórmót. - Mikill stuðningur stjórnvalda. - Hugmyndin um Ólympíuleika í miðborginni er stór kostur. - Mikil öryggisgæsla. - Samgöngur mjög góðar. - Fjárhagsáætlun virðist traust. Rök gegn: - Almenningur er á móti um- sókninni (mikill minnihluti enn sem komið er). - Rúmlega helmingur núverandi íþróttamannvirkja þarfnast lag- færinga. - Hótel víðs vegar um borgina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.