Morgunblaðið - 18.07.1993, Side 4
4 FRÉTTIR/YFIRUT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ' 1993
ERLEINIT
INIMLENT
Milljarður
skapar 300-
400 ný störf
Búið er að ákveða skiptingu á
milljarði til atvinnuskapandi verk-
efna og var haft til hliðsjónar að
sem flestir fengju atvinnu. Gert
er ráð fyrir milli 300 til 400 nýjum
störfum. Mest fer til viðhalds op-
inberra bygginga. 140 milljónir
renna til framkvæmda í Þjóðar-
bókhlöðunni og 60 milljónir til
atvinnumála kvenna.
Bruggverksmiðjum lokað
Lögreglan í Grindavík og Breið-
holtslögreglan lokuðu næst-
stærstu bruggverksmiðju sem
fundist hefur hér á landi á þriðju-
dag. Verksmiðjan fannst utan við
Grindavík. Tveir menn voru hand-
teknir og 1.200 lítrum af gambra
var hellt niður auk 50 lítra af
spíra. Undir Austur- Eyjafjöllum
voru bruggtæki gerð upptæk og
Kópavogs- og Hafnarfjarðarlög-
regla gerðu upptæka bruggverk-
smiðju í austurhluta Kópavogs.
Loks var bruggverksmiðju lokað
í iðnaðarhúsnæði í Garðabæ á
föstudagskvöld.
Lítil spretta á Norðulandi
Óvenjulágt hitastig og miklar
rigningar á Norðurlandi hafa gert
það að verkum að lítil spretta er
í túnum og heyskapur hefur geng-
ið illa. Heyskapur hefur gengið
þokkalega á Suður- og Vestur-
landi það sem af er sumri.
Ávöxtunarkrafa lækkar
Ávöxtun í viðskiptum með
ERLENT
Blóðsút-
hellingar í
Mogadishu
Talið er að allt að 40 manns
hafi beðið bana á mánudag þegar
bandarískar herþotur gerðu árás
á aðalstöðvar sómalska stríðsherr-
ans Mohameds Aideeds í Mogadis-
hu, höfuðborg Sómalíu. Reiðir
Sómalir hefndu árásarinnar með
því að myrða íjóra starfsmenn
vestrænna fréttastofa. ítalir
kröfðust þess að hemaðaraðgerð-
um friðargæsluliða Sameinuðu
þjóðanna yrði hætt og brugðust
ókvæða við þegar embættismenn
samtakanna tilkynntu á miðviku-
dag að umdeildur yfírmaður ít-
ölsku hermannanna í Sómalíu yrði
sendur heim. Hann hafði verið
sakaður um að virða yfirstjórn
Sameinuðu þjóðanna að vettugi
og hlýða aðeins skipunum frá
Róm. Carlo Azeglio Ciampi, for-
sætisráðherra Ítalíu, gaf til kynna
að stjóm sín væri að íhuga að
kalla ítölsku hermennina heim.
Landskjálfti í Japan
Snarpir landskjálftar, 7,8 og
5,4 stig á Richers-kvarða, riðu
yfir norðurhluta Japans á mánu-
dag og ollu miklum flóðbylgjum
og eldsvoðum. Dánartalan var
komin upp í 142 á fóstudag en
124 manna var enn saknað.
Lausn sögð í sjónmáli í deilu
ísraela og araba
Simon Peres, utanríkisráð-
herra ísraels, hefur lagt til við
samningamenn ísraela og araba
í viðræðunum um frið í Miðaustur-
löndum að þeir hefji viðræður um
framtíðarskipan hernumdu svæð-
anna, þar sem gengið verði út frá
því að þau verði palestínsk svæði
í nánum stjórnsýslulegum tengsl-
spariskírteini ríkissjóðs hefur að
meðaltali verið 0,5 prósentustig-
um lægri á Verðbréfaþingi íslands
í júlí miðað við júní. Meðalávöxt-
unarkrafa í viðskiptunum var
7,14% en það sem af er mánaðar-
ins 6,68%.
Erfitt atvinnuástand
Atvinnuleysi mælist nú 3,7%
af áætluðum mannafla og minnk-
aði í heild milli mánaðanna maí
og júní. Mun meira atvinnuleysi
er þó í Reykjavík miðað við sama
tíma í fyrra og hefur ekki verið
meira meðal múrara og smiða í
áratug en það hefur varla þekkst
áður á þessum árstíma. Á ráðn-
ingarstofu Reykjavíkur eru 60%
fleiri á skrá miðað við sama tíma
í fyrra.
Greiðslur í lífeyrissjóði
skoðaðar
Skyldugreiðslur í lífeyrissjóði
þarf að endurskoða í kjölfar úr-
skurðar Mannréttindadómstóls
Evrópu um skylduaðild að verka-
lýðsfélögum að mati Jónasar Fr.
Jónssonar, lögfræðings Verslun-
arráðs íslands. Friðrik Sophusson
fjármálaráðherra telur að gefa
þurfí fólki meira frelsi til að velja
á milli sjóða til þess að ýta undir
samkeppni og draga úr rekstrar-
kostnaði sjóðanna.
Aiþýðuflokkurinn
Rannveig Guðmundsdóttir,
þingflokksformaður Alþýðu-
flokksins, hefur ákveðið að gefa
kost á sér sem varaformaður
flokksins í stað Jóhönnu Sigurðar-
dóttir. Rannveigu bárust á föstu-
dag undirskriftalistar frá tæplega
200 körlum og konum í Alþýðu-
flokknum.
um við Jórdaníu. „í fyrsta sinn
eftir aldarlangar deilur virðist
viðunandi lausn í augsýn,“ sagði
Yossi Beilin, aðstoðarutanríkis-
ráðherra ísraels, á fimmtudag um
tillöguna.
Hætta á stríði í Króatíu
Serbar gerðu stórskotaárásir á
flugvöll í Zadar í Króatíu á
fimmtudag og föstudag eftir að
Króatar höfðu ákveðið að opna
flugvöllinn á morgun, mánudag,
þrátt fyrir mótmæli Sameinuðu
þjóðanna og Serba, sem höfðu
hvorirtveggju hótað að beita her-
valdi til að koma í veg fyrir þau
áform. Cedric Thornberry, að-
stoðaryfirmaður friðargæsluliðs
Sameinuðu þjóðanna í Bosníu,
sagði á miðvikudag að veruleg
hætta væri nú á því að stríð bryt-
ist út á ný milli Króata og Serba
sem búsettir eru á króatísku land-
svæði en vilja segja sig úr lögum
við lýðveldið.
Lávarðar hafna tillögu
Thatcher um þjóðaratkvæði
Lávarðadeild breska þingsins
felldi á miðvikudag með yfirgnæf-
andi meirihluta breytingartillögu
lafði Thatcher, fyrrverandi for-
sætisráðherra, við frumvarp
stjórnarinnar um staðfestingu
Maastricht-samkomulagsins.
Thatcher vildi að efnt yrði til þjóð-
aratkvæðis um samkomulagið en
tillagan var felld með 445 atkvæð-
um gegn 176.
Drög Jeltsíns samþykkt
Sérstakt þing fulllrúa frá 88
lýðveldum og sjálfstjórnarhér-
uðum Rússlands samþykkti á
mánudag drög Borísar Jeltsíns
forseta að nýrri stjómarskrá með
433 atkvæðum af 585 alls og var
það nægilegur meirihluti. Jeltsín
viðurkenndi þó að enn væri mikil
barátta eftir þar sem þingin í
hverju héraði þurfa nú að fjalla
um drögin.
*
Vísindamenn velta fyrir sér tilgátum um myndun alheimsins
Einsteín kann að hafa
haft á réttu að standa
Lundúnum. The Daily Telegraph.
EIN af kenningum Alberts Einsteins, sem hann hafnaði síðar sem
mestu mistökum lífs síns, kann að reynast rétt þrátt fyrir allt,
að sögn vísindamanna í Lundúnum.
Þegar Einstein reyndi að útskýra
útþenslu alheimsins árið 1930
varpaði hann fram tilgátu um „afl
sem hrindir frá sér“ og fær stjömu-
þokumar til að fjarlægjast hvetja
aðra. Hann hafnaði þessari tilgátu
síðar þegar frumsprengingarkenn-
ingin kom fram, þ.e. sú kenning
að allt efni og geislun í alheiminum
eigi upptök sín í sprengingu.
Á ráðstefnu vísindamanna í
Lundúnum sl. fimmtudag kom þó
fram að upp hefur komið vandamál
í tengslum við mat manna á aldri
alheimsins og kenning Einsteins
um fráhrindingaraflið kynni að
vera eina lausnin á því.
„Vandamálið er að alheimurinn
virðist yngri en nokkrir af hlutum
hans,“ sagði Rowan Robinson, pró-
fessor við Queen Mary and West-
field College í Lundúnum. Þessir
hlutar em „hnattlaga þyrpingar"
af stjörnum umhverfís Vetrar-
brautina, stjörnuþokupa sem sól-
kerfi okkar tilheyrir. Áætlað hefur
verið að þær séu um það bil 16
milljarða ára gamlar, en alheimur-
inn virðist aðéins um 12 milljarða
ára gamall, samkvæmt mati vís-
indamanna byggðu á áætluðum
þensluhraða hans.
„Þama emm við komnir í afar
erfiða stöðu,“ sagði Robinson.
„Annaðhvort er mat okkar á
þensluhraða alheimsins rangt eða
þá að hnattþyrpingarnar em yngri
en þær virðast. Reynist hins vegar
mat okkar á hvom tveggja rétt
verðum við að snúa okkur aftur
að tilgátu Einsteins um aflið sem
hrindir frá sér.“
„Aflið sem hrindir hlutum frá
sér - sé slíkt afl til - myndi vera
svo lítið að ógjömingur væri að
greina það á rannsóknarstofum á
jörðinni. En á milljarða ára tíma-
bili gæti það hafa ýtt stjömuþok-
unum í sundur og unnið þannig
gegn aðdráttaraflinu," sagði Rob-
inson.
Slíkt afl myndi ekki hafa orsak-
ast af frumsprengingunni og reyn-
ist tilgátan rétt er alheimurinn eldri
en nú er talið þannig að það kæmi
heim og saman við aldur hnattþyrp-
inganna.
„Tilgáta Einsteins um fráhrind-
ingaraflið, ef við þurfum að leita
til hennar, myndi vera síðasta
hálmstráið. Það er engin ástæða
til þess enn sem komið er þar sem
við emm enn að fága mat okkar á
aldri alheimsins. En ef allt annað
bregst gætum við þurft að reiða
okkur á þessa tilgátu,“ sagði Mart-
in Rees, prófessor við Stjömufræði-
stofnuna í Cambridge.
Aristide mun tilnefna
nýjan forsætisráðherra
Sameinuöu þjóðunum. Reuter.
HELSTU andstæðingar í stjórn-
málalífi Haíti skrifuðu á aðfara-
nótt laugardags undir samkomu-
Iag sem gerir útlægum forseta
landsins, Jean-Bertrand Aristide,
kleift að nefna til nýjan forsætis-
ráðherra. Sá mun væntanlega
taka við embætti í lok vikunnar,
og verður þá aflétt þeim höftum
- þar á meðal banni við oliusölu
- sem hafa lamað efnahagslíf
landsins.
Meginatriði samkomulagsins er,
að þeir þingfulltrúar sem hafa verið
kosnir eftir valdaránið 1991, féllust
á að víkja af þingi á meðan sérstök
nefnd rannsakar hvort þeir hafi
verið löglega kjörnir, og á meðan
þingið kýs nýja leiðtoga. Þar með
getur þingið lagt blessun sína yfír
þann forsætisráðherra sem Aristide
tilnefnir.
Sjö fylgismenn forsetans höfn-
uðu samkomulaginu á þeim for-
sendum að þar væri of mikið tillit
tekið til stuðningsmanna Raoul
Cedras hershöfðingja, forsprakka
valdaránsins. En sáttasemjari Sam-
einuðu þjóðanna, Dante Caputo, var
ekki sammála þeim og sagði sam-
komulagið mjög jákvætt skref í lýð-
ræðisátt, í landi sem í 200 ára sögu
sinni hefði einungis þekkt lýðræði
í sjö mánuði. Hann sagði sjömenn-
ingana ekki hafa skrifað undir
vegna þess að „eftir þetta mörg ár
án lýðræðisskipunar er erfítt fyrir
stjómmálamenn að trúa því að stað-
ið verði við orð sem eru skrifuð á
blað“.
Caputo sagði alla aðila í haítísk-
um stjórnmálum hafa sæst á sam-
komulagið. Það er fyrsti liður af
10, í sáttmála Aristides og Cedras
frá 3. júlí, þess efnis að útlægur
forsetinn geti snúið heim þann 30.
október næstkomandi.
Kona útnefnd forsæt-
isráðherra í Rúanda
Kigali. Reuter.
AGATHE Uwilingiyimana, fertug fimm barna móðir og efnafræðing-
ur að mennt, var útnefnd forsætisráðherra Rúanda í gær og fékk
þriggja daga frest til að mynda ríkisstjórn.
Uwilingiyimana tók við starfí
menntamálaráðherra í fráfarandi
stjóm Dismas Nsengiyaremye sem
tók við völdum 16. apríl sl. til bráða-
birgða þegar flokksræði flokks Ju-
venals Habyarimana forseta
(MRND) lauk í Rúanda. Hún er úr
Lýðræðis- og lýðveldisflokknum
(MDR) sem barðist mest gegn
gamla stjómarflokknum.
Á fimmtudag var frestað fjórða
sinni á nokkrum vikum að ganga
frá formlegu friðarsamkomulagi við
Þjóðernisfylkingu Rúanda (RPF),
sem gerði innrás frá Úganda 1990,
og aðild samtakanna að ríkisstjórn.
Reuler
Saddam varar við bjartsýni á byltingarafmæli
SADDAM íraksforseti ávarpaði þjóð sína í gær í refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna yrðu áfram við
sjónvarpi í tilefni þess að 25 ár voru þá liðin frá lýði. Á myndinni fylgjast kaffíhúsagestir í höfuð-
því Baath-flokkurinn braust til valda í írak. í ávarp- borginni Bagdad með ávarpi forsetans.
inu sagði Saddam að þjóðin mætti búast við því að
i
\
>
i
>
>
\
>
>
>
i