Morgunblaðið - 18.07.1993, Side 21

Morgunblaðið - 18.07.1993, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 1993 21 eftir Árna Matthíasson FÁTT fer meira í taugarn- ar á listamönnum en að vera metnir á mælikvarða vinsælda; að vera í sífelldri íþróttakeppni um hver kemst hæst, selur mest og heillar flesta. Ekki verður þó litið fram hjá því að listamenn lifa ekki í tóma- rúmi; það hlýtur að skipta þá miklu máli hvernig þeim tekst að ná til almennings og þegar frami erlendis er annars vegar sperra Is- lendingar eyrun af eðlilegu þjóðarstolti. Þannig vakti gríðarlega athygli þegar plata Bjarkar Guðmunds- dóttur, Debut, komst inn á topp tíu á breska breið- skífulistanum í einu stökki á dögunum. I ljósi þess er ástæða til að velta eilítið fyrir sér hvað þessi vel- gengni þýðir. oppfræðingar og tónlistar- áhugamenn vissu að plata Bjarkar hafði vakið mikla athygli löngu áður en hún kom út. Blöð um allan heim kepptust um að birta við hana viðtöl og tónlistarsjón- varpsstöðin MTV í Evrópu tók lagið Human Behaviour og Björk sérstaklega upp á arma sína og hefur sýnt myndbandið við lagið í sí- fellu síðasta mánuð. Hér á landi var Debut líka vel tek- ið, komst í annað sæti breið- skífulistans, og lagið Hum- an Behaviour fór í efsta sæti vinsældalista Bylgj- unnar og DV. Smáskífunni með Human Behaviour gekk aftur á móti ekki eins vel ytra af ýmsum sökum, þeirri helstri að lagið komst ekki á spilunarlista útvarps- stöðva og lítil vinna var lögð í að koma því þangað eins og síðar verður rakið. Það kom því mörgum í opna skjöldu þegar Debut komst í þriðja sætið. Gallup-listi Breiðskífulistinn breski er tekinn saman af Gallup-fyr- irtækinu, sem annast hefur skoðanakannanir um allan heim í áraraðir. Listinn þótti óáreiðanlegur á árum áður, því ekki var mikið mál að svindla á honum, en fyrir- tæki og hljómsveitir stund- uðu það að fara í búðir sem voru í úrtakinu og kaupa plötustafla, sem síðan var skilað daginn eftir að könn- unin hafði farið fram. Einn- ig voru dæmi þess að versl- unarrekendum var mútað til að gefa upp hærri sölutölur, eða þá að verslanir sem út- gáfurnar sjálfar áttu krítuðu liðugt. Fyrir nokkrum árum tóku Gallup-menn málið föstum tökum og eyddu töluverðu fé í að gera listann marktækan. Liður í því var að koma fyrir tölvubúnaði í fjölda verslana sem las strika- merki á plötunum. Þessi búnaður var tengdur bókhaldi verslananna, sem gerði illmögulegt að svindla. Því til við- bótar eru sölutölur sí- fellt bornar saman frá verslununum og frávik koma samstundis í þurfi. Því hafi verið ákveðið að veita engin viðtöl við breska fjolmiðla að sinni, sem mikið er sótt í, og reyna frekar að skammta fjölmiðl- um annarra landa tíma. Þannig er Björk á förum til Ítalíu í myndatöku og viðtal fyrir Vogue, og síðan er ferðinni heitið til New York í álíka meðhöndlun hjá Roll- ing Stone, sem ætlar að leggja þijár síður undir. Allir út að kaupa Gallupspá sem birt var í gær, spáir að Debut falli niður í tíunda sæti, sem ætti ekki að koma á óvart. Vert er þó að geta þess að ég hef heimildir fyrir því að sárafáum eintökum muni á plötunum í 5. til 10. sæti og því getur flest gerst. Líkt og var með Sykurmolana og er með aðrar hljómsveitir sem ná eyrum takmarkaðs hóps hlustenda, þó fjöl- mennur sé, hefur stærstur hluti þess hóps sem var bú- inn að ákveða að kaupa plöt- una áður en hún kom út keypt hana fyrstu vikuna. Þannig er alvanalegt að hljómsveitir og listamenn sem hafa sterkan vinsælda- kjarna skjótist inn á topp tíu og detti svo jafnvel niður í kjallara. Ef sú spá rætist að Björk haldist enn inni á topp tíu, þó í tíunda sætinu sé, þýðir það að staða henn- ar sé sterkari en stökkið í þriðja sætið gaf ástæðu til að ætla. Það að vera á topp tíu gefur henni gott færi til frekari sóknar og heldur henni í sviðsljósi fjölmiðla þangað til næsta smáskífa kemur út og næsta kynning- arátak fer af stað af hálfu One Little Indian. Derek Birkett, sem hefur sagst ætla að selja 300.000 eintök af plötunni í Bretlandi, sem væri þá þreföld gullsala, segist hæstánægður með stöðu plötunnar á listanum, því fyrirtækið hafi ekki svig- rúm og tíma til að halda henni inni á listanum, en þegar næsta smáskífa kem- ur út í ágúst verður þráður- inn tekinn upp að nýju. Athygli vekur að Björk gefur í raun sjálf út Debut, þ.e. hún kostar hana sjálf og hefur í hendi sér allan höfundar- og útgáfurétt undir nafninu Bapsi Ltd. Hún semur síðan við One Little Indian, sem Syk- urmolarnir áttu þátt í að stofna á sínum tíma, um fram- kvæmd útgáfunnar og dreifingu. Fyrir slíku samstarfi eru fjölmörg dæmi og nægir að nefna samstarf Smekk- leysu ogJapís hér á landi, nú síðast í útgáfu á plötu Bogom- ils Fonts. Síðan semur One Little Indian fyrir hönd Bapsi um út- gáfu víða um heim, m.a. við Polygram um ljós. Þessum upplýsingum er svo safnað alla vikuna og svo sett saman miðvik- uspá, sem gefin er út á fimmtudögum. Önnur spá er svo tekin saman á föstu- dagskvöldi og svo er lok- aniðurstaðan birt á sunnu- dagskvöldi. Miðvikuspárnar hafa reynst mis áreiðanleg- ar og þannig var því til að mynda spáð að plata Sykur- molanna, Stick Around for Joy, myndi ná í fimmta sæti breiðskífulistans, en það fór á annan veg. Spáin fyrir Debut í þarsíðustu viku var aftur á móti sú að plat- an myndi lenda í öðru sæti listans, sem var allnærri lagi, en 23 eintök vantaði upp á að það næðist, eins og komið hefur fram. tónlistarsögu, því íslensk hljómsveit hefur ekki áður komist inn á topp tíu í Bret- landi og ekki nema ein, Syk- urmolamir, inn á topp tutt- ugu. Vinsældir fyrstu smá- skífunnar af Debut, Human Behaviour, virtust ekki benda til þess að mikil sala væri framundan, því lagið fór í 24. sæti í fyrstu viku, féll þá í það 40. og síðan út í ystu myrkur. Sá vinsælda- listi er og valinn á óvísinda- legri hátt og hefur alla tíð verið umdeildur, ekki síður en sá grúi sem saman er tekinn yfir „vinsælustu“ lög á íslandi. Björk lét þau orð falla í fjölmiðlum að líkleg skýring á ólíku gengi plötu og smáskífu væri að platan væri eitthvað sem menn vildu eiga sem heild, frekar en að lagið yrði al- mennt vinsælt. Björk hefur annars viljað gera sem minnst úr vinsæld- unum sínum ytra og Derek Birkett, frammámaður One Little Indian, segir að það sé ein af ástæðunum fyrir því hvers vegna smáskífan hafi ekki gengið betur en raun varð á. Hann segir Björk lítið gefna fyrir fjöl- miðlahark og vilja síður leggja mikla vinnu í kynn- ingar á smáskífum; hún seg- ist breiðskífulistamaður og smáskífur eigi að mæta af- gangi. Derek segir að helsta vandamál út- gáfunnar sé að ekki séu nema 24 tímar í sól- arhringnum og Björk hafi því ekki tíma til að sinna öllu sinna Engin tordæmi Þetta gríðarstökk Bjarkarinn á breska breið- skifulistann á lenski sér engin for- dæmi í ís- 'útgáfu í Evrópu og Elektra- útgáfuna i Norður-Ameríku. Þessi tilhögun þýðir líklega að sala á plötunni verður minni en ef t.a.m. eitthvert stórfyrirtækið héfði gefið hana út um heim allan, en skilar litlu minna fé til Bjarkar, því eins og áður sagði á hún útgáfuréttinn og þegar búið er að borga útgáfukostnað er hún á grænni grein. Þetta þýðir einnig að Björk lýkur við allt sem viðkemur plötunni, umslag meðtalið, og síðan bjóða þeir sem vilja gefa hana út í verkið eins og það er. Þar kom Björk að góðum notum veran í Sykurmolun- um og segja má að þessi tilhögun sé rökrétt framhald af því sem Sykurmolarnir höfðu áður gert. Örfáar vin- sælar hljómsveitir hafa þó farið þessa leið, sem kallar á meiri vinnu og áhættu þó hún gefi fullkomið frelsi, en nefna má að breska hljóm- sveitin Cure háttar málum á þennan veg. Mikill áhúgi vestan hafs Eins og áður segir er Björk á förum til Bandaríkj- anna til viðtals við Rolling Stone, en Debut kom út þar í landi í síðustu viku. Að sögn þeirra sem til þekkja var laginu Human Behavio- ur afar vel tekið á útvarps- stöðvum þar í landi, en það hefur ekki verið gefið þar út og verður ekki gefið út almennt fyrr en eftir ein- hverjar vikur. Myndbandið við lagið hefur líka vakið athygli og komst í úrvals- flokk myndbanda hjá MTV, sem tryggir tíðar sýningar. Derek Birkett segir áhug- ann fyrir sjálfri breiðskíf- unni mikinn í Bandaríkjun- um ekki síður en í Bret- landi, þó ekki eigi hann von á öðru eins hástökki á Bill- board-listanum bandaríska, en þar í landi fara plötur almennt hægar upp lista en í Bretlandi og um leið hæg- ar niður. Að sögn Dereks hefur One Little Indian sent um 80.000 eintök af Debut til Bandaríkjanna, en fram- leiðsla hefst þar ánæstunni. Á bak við hástökkið á breska listanum var um 40.000 eintaka sala sem þýðir að fyrir plötuna hafi komið inn um 48 milljónir króna brúttó. Ekki rennur nærri því allt það fé í vasa Bjarkar eða One Littie Indi- an og því fráleitt að gera því skóna að Björk sé orðin milljónessa. Kostnaður við útgáfu plötunnar hefur ekki verið gefinn upp, en hann er líklega allhár, enda mikið í upptökurnar lagt og um- slagið, eitthvað hefur kostað að gera myndbandið við Human Behaviour og öll kynning, þar með talin tíð ferðalög milli heimsálfa, kostar skildinginn. Það er því ekki ljóst hvort fjárfest- ingin hefur borgað sig, en fljúgandi start Debut gefur von um að dæmið gangi þægilega upp og — það sem meira er um vert — að Björk geti gert aðra plötu á sömu forsendum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.