Morgunblaðið - 18.07.1993, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 1993
Sagan um Bruce Lee
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
Drekinn („Dragon: The Bruce
Lee Story“). Sýnd í Bíóborginni.
Leikstjóri: Rob Cohen. Framleið-
andi: Raffaella De Laurentiis.
Aðalhlutverk:-Jason Scott Lee,
Lauren Holly, Robert Wagner,
Michael Leamed.
Það kemur fram í ævisögulegu
myndinni Drekanum, sem fjallar um
líf og feril kvikmyndastjörnunnar
Bruce Lee er lést aðeins 32 ára
gamall, að ill álög hafí fylgt honum
alla tíð og fjölskyldu hans aftur í
ættir. I myndinni birtast þau sem
fom og ósigrandi stríðsmaður og
þegar maður hugsar til örlaga sonar
Bruce, leikarans Brandons Lee, sem
lést af voðaskoti um það leyti sem
þessi mynd var frumsýnd vestra, er
erfitt að komast hjá því að reikna
með illum öndum í sögu feðganna.
Drekinn er ágæt mynd eins iangt
og hún nær. Það er ákveðin ein-
lægni og hæfíl^gur skammtur af
einfeldni í frásö^ninni sem oft virkar
eins og enn ein karatemyndin því
slagsmálaatriðin, uppsett af leik-
stjóranum Rob Cohen í stíl venju-
legra karatemynda, bijóta hana upp
með reglulegu millibili. Bruce flýr
frá Hong Kong eftir slagsmál, kem-
ur undir sig fótunum í San Frans-
isco eftir að vera rekinn fyrir slags-
mál, verður sjálfstæður kennari eft-
ir slagsmál og kemst að sem Kato
í þekktum sjónvarpsmyndaflokki
eftir slagsmál.
í millitíðinni kynnist hann banda-
rískri stúlku og kvænist. En hann
á ekki eftir að njóta frægðar í Holly-
wood. Hugmynd hans um vestra-
þætti er stolið því menn eru ekki
tilbúnir til að láta Austurlandabúa
fá aðalhlutverk í sjónvarpi (David
Carradine er ráðinn) en þegar hann
kemur til Hong Kong að vera við
útför föður síns hefur hróður hans
sem Kato borist þangað og kvik-
myndaframieiðendur fá hann til að
leika í ódýrum karatemyndum þar,
sem við sáum svo seinna í Hafnar-
bíói ef ég man rétt. Heimsfrægðin
kom með „Enter the Dragon“ en
Bruce Lee entist ekki aldur til að
njóta hennar.
Frásögnin er býsna hröð og þeir
sem þekkja „Enter the Dragon" vel
kannast við mörg atriðin úr slags-
málunum. Jason Scott Lee (skyld-
leikinn er enginn) fer ágætlega með
hlutverk nafna síns Bruce og hefur
allar hreyfíngar hans og takta á
hreinu en um leið og myndin segir
söguna um stjörnuna dáðu reynir
hún að bregðast ekki aðdáendum
hans, sem komnir eru til að sjá góð
slagsmálaatriði. Drekinn er saga um
mann sem vissi hvað hann viidi og
náði að lokum markmiðum sínum.
Hún er sveipuð þeim ljóma sem
umlykur þá sem guðimir elska og
dauði Brandons gefur hinni ógnar-
legu lýsingu á ættarfylgjunni aukna
vikt og alvarleika svo maður verður
að spyija sig að lokinni sýningu
hvort það geti verið að ill öfl hafi
verið að verki.
Stökkbreyttur Kurosawa
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Skjaldbökurnar („Teenage
Mutant Ninja Turtles“). Sýnd
í Bíóhöllinni og Bíóborginni.
Leiksljóri: Stuart Gillard.
Aðalhlutverk: Elias Koteas,
Page Turco, Stuart Wilson,
Sab Shimono.
Þriðja barnamyndin um stökk-
breyttu ninja skjaldbökurnar,
sem byijað er að sýna í Sambíó-
unum, segir af tímaferðalagi
ninjavinanna fjögurra til Japans
á lénstímanum. Þar geisar stríð
eitt ferlegt og ósjálfrátt tekur
maður að hugsa til Kurosawa-
myndanna líkt og þær hafi stökk-
beyst í þetta undarlega fram-
haldsmyndagums.
Hugmyndin um skjaldbökurn-
ar var aldrei nema einnar mynd-
ar virði en vinsældirnar urðu svo
óskaplegar að þegar var ráðist í
gerð númer tvo og svo þijú og
sjálfsagt eiga fleiri eftir að koma
í kjölfarið. Sú gamansemi sem
fylgdi skjaldbökunum fjórum er
orðin ansi útþynnt í þriðju mynd-
inni. Sömu taktarnir eru látnir
ganga sér til húðar án þess að
gerð sé tilraun til að brydda uppá
einhveiju nýju nema hvað reynt
er að hafa umhverfið framandi.
Og þó ekki því allir Japanir tala
engilsaxneskuna reiprennandi.
Það er ekki auðvelt að botna
í söguþræðinum enda lögð minni
áhersla á hann en einstaka slags-
málaatriði. Lénsherra á í stríði
sem sonur hans er mótfallinn en
sá hverfur inn í! nútímann um
leið og skjaldbökurnar halda til
gamla Japans. Þar er líka vopna-
sölumaður (þeir eru ansi grimm
kvikindi orðin í bíómyndum) og
fátækir bændur sem virðast í
uppreisn gegn lénsherranum.
Skjaldbökurnar taka brátt völdin
og færa hlutina til betri vegar.
Helsti gallinn er sá að þótt allir
tali ensku fengust engar pítsur
í Japan til forna.
Sá eini sem sýnir einhver leik-
ræn tilþrif (reyndar mjög yfir-
drifin) er breski leikarinn Stuart
Wilson sem leikur vopnasölu-
manninn en var áður illmennið í
„Lethal Weapon 3“ og þar áður
illmennið í Nonna_ og Manna,
sjónvarpsþáttum Ágústs Guð-
mundssonar. En það er sama
hversu illileg illmennin eru í
skjaldbökumyndunum (og hasar-
myndum yfirleitt). Þau verða allt-
af að lúta í gras á endanum. Það
gera skjaldbökumyndirnar einnig
um síðir.
2027 í c-dúr
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Laugarásbíó:
I hefndarhug - Nemesis
Leikstjóri Albert Pyun. Aðal-
leikendur Olivier Gruner, Tim
Thomerson, Brion James.
Bandarísk. 1993.
Efnisþráður í hefndarhug er
svo rýr í roðinu og ámáttlegur
að það stendur ekki steinn yfir
steini í huga manns annað en
andlegur sljóleiki og hlustaverk-
ur eftir að hafa setið undir þriðja
flokks brellum, leik og mynd með
linnulausu vélbyssugelti og
sprengingum í hálfan annan
tíma. En handritshöfundur vill
meina að myndin gerist árið
2027, reyndar bendir fátt til þess
frá hendi hönnunardeildarinnar
því myndin gerist að mestu leyti
á lítt framtíðarlegum ruslahaug-
um og hálfhrundum húskum-
böldum, sem hæfá svosem anda-
gift kvikmyndasmiðanna. Þó
rámar mig í að söguhetjan
(Gruner), sem er mennskur lög-
reglumaður að upplagi, en orðið
hálfgert vélmenni eftir tugi við-
gerða, hafi verið í hálfgerðu
einkastríði við róbota sem taka
vildu yfir Móður Jörð.
En allt púðrið fer í einlitar
brellurnar, sem vissulega hefðu
vakið athygli fyrir aldarfjórð-
ungi. En eftir myndir á borð við
Tortímandann, Robocop (I), er
hún ekkert annað og meira en
þriðja flokks eftiröpun. Og ekki
nóg með það heldur er Gruner,
„stjarna11 þessa framtíðarvestra,
auglýstur sem hinn nýi Van
Damme, semsagt stæling á stæl- •
ingu af Schwartzenegger. Og
ekki annað að sjá en leikhópurinn
hafi verið valinn á næsta dans-
stúdíói. Útkoman eftir því. Þarna
eru tveir B-myndaleikarar, þeir
Thomerson og James (sem
reyndar gerði það gott í Leik-
manninum, sinni nánast einu,
umtalsverðu kvikmyndarullu).
Jafnvel þeim er vorkunn að þurfa
að taka slíkum hlutverkum. Pyun
leikstjóri á að baki fjölda afleitra
hasarmynda og bætir hér einni
við í sarpinn.
Það eru miklar breytingar í
aðsigi í Laugarásbíói, verið að
setja upp THX-hljóðkerfi, eins
verður hresst uppá útlitið og
myndavalið. Það er nánast sama
hvað verður gert, allt hlýtur að
verða til bóta. Og A-salurinn er
alltaf jafn notalegur, eins hafa
þeir minni lukkast nokkuð vel.
auglýsingar
FERÐAFÉLAC
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533
Fjölbreyttar sumarleyf-
isferðir Ferðafélagsins
Næstu ferðir:
1. 30/7-4/8: Flateyjardalur-
Fjörður-Látraströnd. Bakpoka-
ferð að hluta. Tjaldgisting.
2. Flateyjardalur-f Fjörðum.
Tjaldgisting.
3. 31/7-6/8: Þjórsárver-Kerl-
ingarfjöll. Bakpokaferð.
4. 4-11/8: Lónsöræfi (Dvöl í
Múlaskála). Gönguferðir.
5. 5-11/8: Snæfell-Lónsöræfi.
Bakpokaferð.
6. 8-17/8: Hornstrandir:
Hlöðuvfk-Hesteyri. Ferðina má
stytta.
7. 8-17/8: Bakpokaferð. Horn-
vík-Fljótavík-Hesteyri.
8. 12-15/8: Núpsstaðar-
skógar-Lómagnúpar. Tjaldferð.
9. 18-22/8: Litla hálendisferð-
in. Leppistungur-Hveravellir-
Ingólfsskáli-Vonarskarð-Nýi-
dalur.
10. Grænlandsferð 16.-23/8
Spennandi ferð eingöngu fyrir
félaga í Ferðafélaginu. Ferð um
Suður-Grænland sem margir
hafa beðið eftir. Pantið strax
því piáass er takmarkað. Einnig
er í boði 10 daga fjallaferð um
Jötunheima í Noregi 21.-30.
ágúst.
5 og 6 gönguferðir mllli Land-
mannalauga og Þórsmerkur í
júli og ágúst. Uppselt er i marg-
ar ferðanna. Minnum einnig á
ferðir i ágúst um gönguleiðina
milli Hvítárness og Hveravalla.
Ódýra sumardvölin í Þórsmörk
er alltaf vinsæl. Ferðir á föstu-
dagskvöldum, sunnudags- og
miðvikudagsmorgnum.
Kynnið ykkur ferðirnar um
verslunarmannahelgina: Land-
mannalaugar-Eldgjá; Þórs-
mörk; Yfir Fimmvörðuháls;
Lakagígar-Siðumannaafréttur
(á slóðum Þorvaldar Thorodd-
sen); Núpsstaðarskógar. Leitiö
upplýsinga á skrifstofunni,
Mörkinni 6, s. 682533.
Ferðafélag íslands.
UTIVIST
Hallveigarstíg 1 • sími 614330
Dagsferðir sunnud. 18/7
Kl. 8.00 Básar við Þórsmörk.
Kl. 10.30 Síldarmannagötur.
Kvöldferð fimmtud. 22/7
Kl. 20.00 Mosfell.
Dagsferðir sunnud. 25/7
Kl. 8.00. Básar við Þórsmörk.
Kl. 8.00Ok. 7. áfangifjallasyrpu.
Brottför í ferðirnar frá BSÍ, bens-
ínsölu. Miðar við rútu. Frítt f.
börn 15 ára og yngri í fylgd m.
fullorðnum.
Helgarferðir um næstu
helgi
23. -25. júlí Básar við Þórsmörk.
Gist í skála eða tjaldi. Skipulagð-
ar gönguferðir. Fararstjóri Björn
Finnsson.
24. -25. júlí Fimmvörðuháls.
Gengið frá Skógum á laugardag
upp í Fimmvörðuskála og gist
þar. Næsta dag gengið niður í
Bása. Fararstjóri Hörður Har-
aldsson. Nánari uppl. og miða-
sala á skrifstofu Útivistar.
Útivist.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn Samkoma í kvöld
kl. 20.00.
tt4
l JTIVIST
Hallveigarstig 1 • simi 614330
Sumarleyfisferðir
22.-25. júlj Snæfellsnes - fjall-
garður. Óvenjuleg gönguferð
eftir endilöngum Snæfellsnes-
fjallgarði. Gengið með allan við-
legubúnað. Fararstjóri: Óli Þór
Hilmarsson. Undirbúningsfund-
ur mánud. 19. júlí kl. 20.00
26. - 30. júlf Landmannalaugar
- Básar. Fullbókað og er í ferð-
ina biðlisti. Undirbúningsfundur
mánud. 19. júlí kl. 18.00. Farar-
stjóri: Hörður Haraldsson.
29. júli - 5. ágúst Hornvík.
Bækistöð í tjöldum í Hornvik og
farið þaðan í dagsferðir m.a. út
á Hornbjarg, í Látravik og Reka-
vík. Fararstjóri: Helga Jörgensen.
29. júlí - 5. ágúst. Hornvík -
Jökulfirðir - Snæfellsströnd.
Bakpokaferð þar sem gengið er
frá Hornvík um Rangalaskarð og
yfir í Lónafjörð, síðan um Hrafns-
fjörð og Leirufjörð til Grunnavík-
ur og að Bæjum á Snæfells-
strönd, Gist í tjöldum. Farar-
stjóri: Gísli Hjartarson.
Nánari uppl. og miðasala á skrif-
stofu Útivistar.
Útivist.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Hjálpræðissamkoma kl. 20.00.
Majórarnir Anne Gurine og
Daníel Óskarsson stjórna og
tala. Verið velkomin!
Ungt fólik
Iföyj meðíiutverk
tfM YWAM - ísland
Biblíulestur
i Breiðholtskirkju í kvöld kl.
20.30.
Þorsteinn Kristiansen fjallar um
efnið „Að viðhaldast og vaxa í
trúnni".
Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533
Dagsferðir
sunnudag 18 júlí
Kl. 10.30 Vatnshlíðarhoui
- Kistufell - Grindarskörð.
Ekin Krýsuvíkurleið. Gengið frá
Vatnshlíðarhorni og komiö niður
Grindarskörð. Verð kr. 1.100.
Kl. 13.00 Heiðmörk - Rjúpna-
dyngjur. Gengið um Rjúpna-
dyngjur, forvitnilegt svæði. Verð
kr. 1.000. Frítt fyrir börn í fylgd
fullorðinna.
Brottför frá Umferðarmiðstöö-
inni, austanmegin, (komið við i
Mörkinni 6).
Dagsferðir
miðvikudaginn 21. júlí:
1) Kl. 8.00 Þórsmörk, dagsferð.
Verð kr. 2.500.
2) Kl. 20.00 Seljadalur-Nessel.
Ferðafélag Islands.
Hvítasunnukirkjan
- Vegurinn
Hafnargötu 84, Keflavfk.
Samkoma kl. 11.00 árdegis.
Jesús Kristur er svarið.
Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Brauðsbrotning kl. 11.00.
Ræðumaður: Einar J. Gíslason.
Síðasta raðsamkoman í vakning-
arherferðinni verður í kvöld kl.
20.00. Við höldum áfram að lyfta
upp nafni Jesú Krists með lifandi
tónlist og vitnisburðum. Ræðu-
maður: Hafliði Kristinsson.
Barnagæsla.
Allir hjartanlega velkomnir.
Sunnudagur:
Almenn samkoma kl. 16.30.
Þriðjudagur:
Biblíulestur kl. 20.30.
Laugardagur:
Unglingasamkoma kl. 20.30.
Árbæjarsafn og Borgar-
skipulag Reykjavíkur
Ganga um Öskjuhlíð í kvöld kl.
20. Lagt verður af stað frá Perl-
unni. Kynntar verða náttúru- og
söguminjar.
Ojrð lífsins,
Grensásvegi 8
Almenn samkoma í dag kl. 11.
Allir hjartanlega velkomnir!
Sjónvarpsútsending á OMEGA
kl. 14.30.
fnmhjólp
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.00.
Mikill söngur. Samhjálparkórinn
tekur lagið. Vitnisburðir. Barna-
gæsla. Ræðumaður Brynjólfur
Ólason. Kaffi að lokinni sam-
komu. Allir velkomnir.
Samhjálp.
VEGURINN
Kristið samfétag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Lofgjörð, predikun orðs-
ins og fyrirbænir.
Allir hjartanlega velkomnir.
Ath. Fimmtudaginn 22. júlí nk.
verður lækningasamkoma kl.
20.00. Kennt verður um bænir
og guðlega lækningu.
„Þeir sem vona á Drottinn fá
nýjan kraft.“