Morgunblaðið - 18.07.1993, Side 39

Morgunblaðið - 18.07.1993, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 1993 39 BRASILÍA: Tekjur: 74 milljarðar Kostnaður: 74 milljarðar Hagnaður: 0 íþróttamannvirki: Standast Ólympíukröfur: 0 Þarfnast lagfæringar: 12 í byggingu: 0 Rök með: - Lítil mengun og gott umhverfi. - Samgöngur á vegum mjög góðar. - Nálægð, 21 íþróttagrein í inn- an við 15 mínútna íjarlægð frá Ólympíuþorpi. Rök gegn: - Almennur aðbúnaður fyrir neð- an alþjóðlegar kröfur. - Ekkert íþróttamannvirki sem nú stenst Olympíukröfur. - Tækninefndin efast um að fjár- hagsáætlunin sé raunhæf. - Olympíunefnd Brasilíu skortir íþróttasérfræðinga. - Tungumáiaerfiðleikar yrðu talsverðir. - Hótelaðbúnaður er fyrir neðan alþjóðlegar kröfur. - Pólitísk sjónarmið hafa ráðið miklu varðandi umsóknina. - Heimsókn Tækninefndarinnar ijla skipulögð af brasilísku Ólympíunefndinni. ISTANBÚL: Tekjur: 87 milljarðar Kostnaður: 73 milljarðar Hagnaður: 15 milljarðar íþróttamannvirki: Standast Ólympíukröfur: 1 Þarfnast lagfæringa: 2 í byggingu: 4 Rök með: - Mikil sérfræðiþekking á íþrótt- um og aðbúnaði, sveigjanleiki mikill. - Stuðningur stjórnvalda mikill, almennur stuðningur almenn- ings. . - Hótelrými gott. - Eitt Ólympíuþorp er jákvætt. - Umbætur í umhverfismálum þegar hafnar. - Ferðakostnaður íþróttamanna og aðstoðarfólks greiddur. -15 íþróttagreinar í tíu mínútna fjarlægð frá Ólympíuþorpi og aðstöðu fréttamanna. - Fjárhagsáætlanir traustar og raunhæfar. Rök gegn: - Umferðarþrengsli eru mikið áhyggjuefni. - Aðeins eitt íþróttamannvirki stenst Ólympíukröfur (en bygg- ingaráætlanir virðast raunhæf- -^Ófullnægjandi símaþjónusta (ætti að vera búið að endurnýja fyrir aldamótin). MANCHESTER: Tekjur: 103 milljarðar 1 Kostnaður: 96 milljarðar Hagnaður: 7 milljarðar Iþróttamannvirki: * Standast Ólympíukröfur: 5 Þarfnast lagfæringa: 10 í byggingu: 2 Rök með: - Víðtækur stuðningur frá stjórnvöldum og einkaaðilum. - Borgin hefur reynslu af skipu- lagningu stórra viðburða þar sem mikillar öryggisgæslu er krafist. - Hugmyndin um Ólympíuleika í miðborginni er stór kostur. 21 íþróttagrein er í innan við 20 mínútna fjarlægð frá Ólympíu- þorpinu, þar af tíu í göngufjar- lægð. - Einstaklingsherbergi skipu- lögð fyrir alla íþróttamenn og aðstoðarmenn í ólympíuþorp- • inu. - Samgöngur eru ágætar. - Fjárhagsáætlanir eru traustar ( og trúverðugar. Rök gegn: - Af fimmtán íþróttamannvirkj- um þarfnast tíu lagfæringar. - Hótel víðs vegar um borgina. IÞROTTIR FATLAÐRA Heimsleikar heyrnarlausra: íslendingar í erfiðum riðli í handknattleik Dagana 24. júlítil 2. ágúst verða heimsleikar heyrnarlausra haldnir í 17. sinn, íBúigaríu, í höfuðborginni Sofiu. Á heimsleik- ana eru skráðir 2.105 íþróttamenn ásamt 728 aðstoðarmönn- um frá 46 löndum. Gert er ráð fyrir mörgum ferðamönnum f tengslum við heimsleikana. Heimsleikar voru haldnir siðast á Nýja Sjálandi íjanúar 1989, en þeir eru haldnir á fjögurra ára fresti. Nú í sumar mun ísland taka þátt í heimsleikunum í fyrsta skipti. íslenskir keppendur munu taka þátt í sundi og fhand- bolta. Heimsleikar heyrnarlausra eru oft nefndir “Ólympíuleikar fyrir heyrnarlausa", því keppnin er háð á fjögurra ára fresti eins og Ólympíuleikarnir. Vetrarheimsleik- ar heyrnarlausra voru haldnir í Kanada í febrúar 1991. Þar er keppt á skíðum, skautum og í fleiri vetrar- íþróttagreinum. Sumarheimsleikar heyrnarlausra eru stærsti íþrótta- viðburður fyrir heymarlausa. Keppt er í fijálsum íþróttum, badminton, hjólreiðum, skotfimi, sundi, borð- tennis, tennis, glímu, körfubolta, fótbolta, handbolta, blaki og vatnapóló eða í 13 íþróttagreinum alls. Þess má geta að forseti Al- þjóða Ólympíusambandsins verður viðstaddur, sömuleiðis forseti Búlg- aríu og ásamt fleiri góðum gestum. Sterk lið í riðli með handbolta- liðinu Ellefu þjóðir taka þátt í handbolta- keppninni á heimsleikunum. Keppt er í tveimur riðlum, en íslendingar eru i A-riðli, sem er mjög sterkur riðill. í riðlinum eru auk íslendinga lið frá Svíþjóð, Þýskalandi, Tævan og Noregi. í B-riðli leika Ítalía, Bandaríkin, Alsír, Danmörk, Rúm- enía og Króatía. í riðlinum með íslendingum eru Þjóðveijar sem eru Evrópumeistar- ar og Svíar sem eru núverandi heimsmeistarar. Á heimsleiknum á Nýja Sjálandi árið 1989 tóku fjórar þjóðir þátt í handboltanum, Svíþjóð hlaut gullið, Ítalía silfur, Bandaríkin brons og Danmörk vermdi botnsæt- ið. Svíar hafa áður verið Norður- landameistarar og líka Evrópu- meistarar. Norðmenn hafa verið Norðurlandameistara, en aldrei Evrópumeistarar eða heimsmeistar- ar. Þjóðveijar urðu Evrópumeistar- ar tvisvar í röð, 1987 og 1991. ís- land er Norðurlandameistari og varð í öðru sæti á Evrópumótinu 1991. Jón Bjarki Ásgeirsson keppir í sundi Jón Bjarki Ásgeirsson keppir í sundi á heimsleikunum. Hann keppir í þremur greinum, 200m skriðsund, 400m skriðsund og 200m fjórsund. Bestu tímar hans í þeim greinum eru 2:31,70 mín. í 200m skrið- sundi, 5:24,60 mín. í 400m skrið- sundi og 2:58,70 mín. í 200m fjór- sundi. Jón Bjarki er aðeins 17 ára gamall og á örugglega eftir að bæta sig mikið í sundgreinunum, en spennandi verður að vita hvernig hann stendur sig í Búlgaríu. Hann hefur aldrei keppt á stórmótum, en hann tók þátt í Norðurlandamóti heyrnarlausra í sundi ’92 og hlaut eitt silfur og tvö brons. Hópurinn sem fer til Búlgaríu á heimsleikana: Keppendur: Sund: Jón Bjarki Ásgeirsson Handbolti: Bernharð Guðmundsson, BÖðvar Már Böðvarsson, Georg Bragi Einarsson, Guðmundur Ingason, Hjálmar Orn Pétursson, Jóel E. Einarsson, Jóhann R. Ágústs- son, Kristján Friðgeirsson, Matthías Rúnarsson, Olgeir Jó- hannesson, Tadeusz Jón Baran, Trausti Jóhannesson, Þröstur Friðþjófsson. Fararstjórar: Fararstjóri: Kristinn Jón Bjarna- son Aðstoðarfararstjóri: Ragnheiður Þorgilsdóttir Handboltaþjálfari: Guðmundur Magnússon Sundþjáifari: Ingi Þór Einarsson Sjúkraþjálfari: Guðrún ísberg Aðstoðarmenn: Baldur Hauks- son, Jónas Jóhannesson, Marek Wolanzyk, Ólafur Siggeirsson, Rafn Einarsson. Á leid til Búlgaríu ÍSLENSKI hópurinn sem keppir á heimsleikum heyrnarlausra í Búlgaríu. HRAÐLESTRARNAMSKEIÐ Sumarnámskeið í hraðlestri hefst þriðjudaginn 20. júlí nk. Vilt þú lesa meira, en hefur ekki nægan tíma? Vilt þú vera vel undirbúin(n) undir námið í haust? Nú er tækifærið fyrir þá, sem vilja margfalda lestrarhraða sinn, en hafa ekki tíma til þess á veturna. Lestrarhraði nemenda fjórfaldast að jafnaði. Við ábyrgjumst að þú nærð mjög góðum árangri! Skráningalladagaísíma 641091. __ H RAÐLESTRARSKOLIN N ...við ábyrgjumst að þú nærð árangri! S 1978 - 1993 - Frá Skipulagi ríkisins varðandi leiðréttingu á reglugerð Með reglugerð nr. 72 frá 23. febrúar 1993 var breytt þremur greinum í byggingarreglu- gerð. Það voru gr. 2.4.7 og gr. 4.1 um viður- kenningu meistara og gr. 3.5.1 um rétt til að gera aðaluppdrætti. Nú eru tilbúnar leiðréttingar - límmiðar sem fást afhentir á afgreiðslu Skipulags ríkisins, Laugavegi 166, eða sendir samkvæmt með- fylgjandi pöntunarseðli. Sendið: Nafn:....................................... Heimilisfang:............................... Póstnúmer:.................................. □ Breytingar á reglugerð nr. 72/93 □ Allar breytingar og leiðréttingar frá út- gáfudegi 1992. - Ferðist frjálst og óltáð, flug og bíll. Danmerkurferðir Örfá sæti laus til Billund ^ á Brottfarardagar miðvikudagar ___________28.200,-*____________ Kaupmannahöfn Flug og bíll í A flokki 39.810,**____________ Amsterdam Flug og bíll ÍB flokki 35.355,-***__________ Lúxemborg Flug og bíll ÍB flokki ______% 34.910,-*** W . Baltimore Flug og bíll í C flokki 57.080,-*** * Verð miðað við staðgreiðslu. Innifalið flug og öll flugvallargjöld. ** Verð miðað við 14 daga fyrirvara í brottfarirá miðvikudögum og tveirferðist saman íbíl. Innifalin öll flugvallargjöld. * * * Verð miðað við að tveir ferðist saman í bíl og bókað með 7 daga fyrirvara. Innifalið er flug, btll, ótakmarkaður akstur og öll flugvallargjöld. jr FEROASKRIFSTOFAN AUS SÍMI652266 ferðaskrifstofa fjölskyldunnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.