Morgunblaðið - 11.08.1993, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 11.08.1993, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1993 Tveir bjóða sig fram til formanns Sambands ungra sjálfstæðismanna á þingi þess 13.-15. Verðum að við- halda öflugu upp- byggingarstarfi - segir Guðlaugur Þór Þórðarson GUÐLAUGUR Þór Þórðarson tók við formennsku í Sambandi ungra sjálfstæðismanna 19. mars síðastliðinn af Davíð Stefánssyni og býð- ur sig nú fram til endurkjörs. Hann hefur setið í stjórn SUS frá 1987 og miðstjórn Sjálfstæðisflokksins, verið varabæjarfuiltrúi í Borgarnesi en hefur jafnframt gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir SUS og Sjálfstæðisflokkinn. Guðlaugur leggur áherslu á að við- halda öflugu uppbyggingar- og málefnastarfi með þátttöku aðildar- félaga um land allt. Hann segir brýnasta verkefni hreyfingarinnar að stilla saman strengi sína og kynna stefnumál sín með öflugum hætti fyrir komandi sveitarstjórnar- og alþingiskosningar. Stefni að því að opna hreyf- inguna meira - segir Jónas Fr. Jónsson JÓNAS Friðrik Jónsson héraðsdómslögmaður býður sig fram gegn sitjandi formanni Sambands ungra sjálfstæðismanna en hann hefur setið í stjórn frá 1991. Hann var virkur í háskólapólitík hjá Vöku og formaður Stúdentaráðs. Hann segist vilja efla starf SUS, gera hreyfinguna opnari og virkja einstaka félagsmenn betur. Jónas segir mikilvægt að auka áhrif ungliðahreyfingarinnar á almennt flokksstarf sjálfstæðismanna en í því skyni þurfi kynning stefnu- mála ungra sjálfstæðismanna að vera markvissari jafnt innan flokks sem utan. „Við höfum eflt mjög innra starf sambandsins síðustu misseri og ár,“ sagði Guðlaugur. „Á örfáum árum höfum við fjölgað aðildarfé- lögum okkar úr 27 í 38 og stofnuð hafa verið kjördæmissambönd í hvetju kjördæmi. Á ‘síðustu mánuð- um hefur öflugu málefnastarfi ver- ið haldið uppi og það starf mun án efa skila sér á komandi þingi og á landsfundi þegar kynnt verður stefna ungra flokksmanna. Við þurfum að viðhalda þessari upp- byggingu og fyrir því mun ég beita mér nái ég endurkjöri," sagði hann. „Um leið og við stefnum hærra tel ég brýnt að hlúa enn frekar að landsbyggðinni og einstökum aðild- arfélögum og þjálfa okkar fólk þar,“ sagði hann og bendir á að SUS sem heild geti ekki haldið uppi öllu starfinu. „Það verða alltaf heimamenn í hverju félagi, sem standa undir starfínu. Stjórnar- menn SUS geta aftur á móti miðl- að af reynslu sinni og þjálfað upp félagsmenn og forystumenn ein- stakra félaga. Þetta hefur tekist með ágætum með námskeiðahaldi víða um land. Ef SUS á að vera trúverðug stjórnmálahreyfing þá verður að nýta kraftinn í hreyfing- unni og hvetja sem flesta að taka þátt í starfi sambandsins og stefnu- mótun.“ Samstilling strengja „Á tímum þrenginga geta SUS félagar bent á raunhæfar hug- myndir og skynsamlegar leiðir til að framkvæma þær,“ sagði Guð- laugur. „Það verður því fyrsta verk formanns og nýrrar stjórnar, sama hvernig kosningar á SUS þinginu fara, að stilla saman strengi hreyf- ingarinnar og vinna að framgangi sjálfstæðisstefnunnar. Næsta for- ysta sambandsins hlýtur að taka saman hugmyndavinnu síðustu tveggja ára, sem lýkur á komandi þingi, og fylgja eftir stefnu ungra sjálfstæðismanna, sem kynnt yrði á landsfundi og meðal almennings. í nánd eru tvennar kosningar, sveitarstjórnar- og alþingiskosn- ingar, og má víst telja að kosninga- baráttan verður hörð. Fylgi sjálf- stæðismanna hefur mælst lítið og því verður með samstæðu átaki að vinna fylgið upp. Félagsmenn SUS munu einbeita sér að markhópi Guðlaugur Þór Þórðarson skipuðum ungu fólki á aldrinum 18-35 ára en mikilvægt er að mínu mati halda utan um þann hóp. Sem betur fer höfum við komið vel út úr könnunum meðal yngsta aldurs- hóps og er það vel. Við lifum í breyttu fjölmiðlaumhverfi og ég hvet unga sjálfstæðismenn að starfa saman innan félaga og í samstarfi þeirra og kynna sjálf- stæðisstefnuna." Hörð kosningabarátta Guðlaugur segir kosningabar- áttu frambjóðendanna tveggja að stórum hluta hafa verið málefna- lega en hann neitar því ekki að ýmsir atburðir hafí sett blett á hana. „Ég viðurkenni það að ég er ekki fullkomlega sáttur við kosn- ingabaráttuna. Hún hefur þó veitt mér mikla ánægju að því leyti að ég hef kynnst ijölda ungs sjálf- stæðs fólks um allt land,“ sagði hann. „bað verður móta að skýrari reglur um úthlutun þingsæta á SUS þinginu. Við verðum að læra af reynslunni og innanflokksátök á borð við þau, sem átt hafa sér stað mega ekki endurtaka sig,“ sagði Guðlaugur að lokum. „í stuttu máli er það þrennt sem ég mun beita mér fyrir nái ég kosn- ingu,“ sagði Jónas. „I fyrsta lagi vil ég opna hreyfinguna meira, í annan stað verður auka áhrif ungra sjálfstæðismanna í almennu flokks- starfi og loks þarf strax að huga að tvennum kosningum, sem ganga í garð á kjörtímabili formanns og berjast fyrir því að ungt fólk verði í baráttusætum í kosningunum um allt land.“ Jónas segir að einstök aðildarfé- lög og forystumenn þeirra hafi of lítil áhrif á starf sambandsins. „Eg tel að auka þurfi samskipti milli stjómar og aðildarfélaganna. Það vil ég gera til dæmis með því að opna stjómarfundi SUS fyrir hinum almennu félagsmönnum. Ég vil einnig færa þriðja hvem stjórnar- fund út fyrir Reykjavík og loks teldi ég ráðlegt að komið yrði á reglulegum samráðsfundi forystu- manna aðildarfélaganna með stjóm sambandsins tvisvar á ári. Með því að dreifa valdi tel ég að stjórn SUS fengi eðlilegt og heilbrigt aðhald.“ Vill auka áhrifamátt SUS „Að mínu mati er hreyfíng ungs sjálfstæðisfólks ekki nógu áhrifa- mikil í þjóðmálaumræðunni," sagði Jónas og lýsti yfir því að þessu vilji hann breyta. „Hreyfingin verð- ur að taka sér tak í kynningarmál- um og ég mun beita mér fyrir því að sett verði á laggirnar áróðurs- nefnd, sem sjái um faglega kynn- ingu stefnumála SUS jafnt innan flokksins sem á opinberum vett- vangi. Ég tel skorta á það að félags- menn séu nægilega virkir. Starfíð fer allt of mikið fram innan fá- menns hóps. Ég stefni að því að vinna reglulega málefnabæklinga þar sem flokksfólk úr atvinnulífínu er til að mynda fengið til aðstoðar við tillögugerð og stefnumótum. Við eigum að vera uppspretta nýrra hugmynda um leið og við veitum hefðbundnum stefnumálum flokks- ins brautargengi," sagði hann. Jónas bendir á að tvennar kosn- ingar fari í hönd á kjörtímabili verð- andi formanns „Ég mun leggja á það mikla áherslu að ungir sjálf- stæðismenn noti tímann vel fram að sveitarstjórnarkosningum á næsta ári og kynni hugmyndir sín- ar. Það ætti loks að vera markmið Skipulagðar fastar ferðir til Engeyjar EINAR Egilsson formaður Nátt- úruverndarfélags Suðvestur- lands vill að Engey verði friðuð fyrir framkvæmdum en menn fái að ganga þar troðnar slóðir. Nú í sumar hefur Náttúrverndarfé- lagið í samvinnu við Viðeyjar- ferðir boðið fastar ferðir til Eng- eyjar svo fremi að sjóveður hamla ekki för og lendingu í eynni. Engey, næststaérsta eyja á Kolla- fírði er rétt utan við hafnarmynni Reykjavíkur. í Engey bjó löngum merkisfólk, annálaðir búhöldar og bátasmiðir. Margir nafntogaðir Is- lendingar eiga ættir að rekja til Engeyjar, má m.a. nefna sr. Bjama Jónsson dómkirkjuprest og Bjama Benediktsson forsætisráðherra. Síð- ustu áratugina hefur verið hljótt um Engey en hún hefur verið í eyði síð- an um miðja þessa öld og bæjarhús- in sem þar stóðu voru brennd til grunna árið 1966. Árið 1978 var eyjan lögð undir lögsögu Reykjavík- ur. Alla langar í eyna Þótt Engey sé við bæjardyr Reyk- víkinga og flestir íslendingar hafa borið eyju þessa augum em þeir mm mm Náttúruskoðun EINAR Egilsson við Miðvarar- tjörn. færri sem þangað hafa komið. Nú í sumar hefur Náttúmverndarfélag Suðvesturlands og fyrirtækið Við- eyjarferðir boðið fólki upp á ferðir í Engey en þessi ferðatilboð hafa verið nokkuð tilviljanakennd. Einar Egilsson formaður Nátt- úruvemdarfélags Suðvesturlands sagði Morgunblaðinu að vegna æðarvarps sem væri í eynni hefði ekki mátt fara út í hana í maí og v V Morgunblaðið/Kristinn Alfaborg NORÐAN til í eynni er Byrgið eða Álfaborgin, þar biðu kýr eftir því að vera sóttar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.