Morgunblaðið - 11.08.1993, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.08.1993, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1993 Viljaend- urskoða smíði Jas 39 Gripen SÆNSKIR jafnaðarmenn hvöttu til þess í gær að smíði Jas 39 Gripen orrustuþotunnar yrði endurskoðuð í framhaldi af flugslysinu í Stokkhólmi á sunnudag. Þota þessarar teg- undar hrapaði þá niður í mið- borgina fyrir augum hálfrar milljónar manna sem fýlgdust með listflugi hennar yfir borg- inni. „Það er tilgangslaust að smíða eitthvað sem ekki verður til gagns,“ sagði Sture Eric- son, talsmaður Jafnaðar- mannaflokksins í vamarmál- um. Fellini að braggast LÆKNAR ítalska leikstjórans Federicos Fellinis sögðu í gær að hann væri úr allri hættu. Fellini er 73 ára en hann fékk heilablóðfall í síðustu viku og lamaðist vinstra megin. Hann þarf enn um sinn að sæta miklu eftirliti lækna. Flugrán með sýru að vopni KÍNVERSKRI farþegaþotu af gerðinni Boeing-767 var rænt í gær og snúið til Tævans þar sem ræninginn gaf sig fram við lögreglu. Hann var sagður vopnaður sýru. Flugræninginn er þrítugur og fyrrum götusali frá héraðinu Hebei í norður- hluta Kína. Skjálftar á Nýja Sjálandi TVEIR jarðskjálftar sem báðir mældust 6,3 stig á richter, skóku nyrðri eyju Nýja Sjá- lands með níu stunda millibili í gær. Nokkuð tjón varð á mannvirkjum, aðallega í bæj- unum Gisbome og Wairoa, og símasamband rofnaði. Loka flugvelli í Sómalíu STJÓRNENDUR hersveita SÞ í Sómalíu sögðust í gær hafa lokað flugvelli 50 km norður af Mogadishu en sveitir Farah Aideeds skæraliðaforingja era granaðar um að hafa notað hann til að smygla vopnum til landsins. Andvígir sunnudags- verslun SAMTÖK þýskra verslunar- manna og verslunareigenda lögðust í gær gegn því að regl- ur um opnunartíma verslana yrðu tymkaðar svo hægt væri að hafa verslanir lengur opnar á daginn og um helgar. Tals- menn stjórnarflokkanna boð- uðu að framvarp um rýmkun verslunarreglna yrði lagt fram á þingi í september. Demjanjuk ákærður á ný? HÆSTIRÉTTUR ísraels sker úr um það í dag hvort efnt verði til nýrra réttarhalda yfír John Demjanjuk, 10 dögum eftir að hann var sýknaður af ákæru um að vera „ívan grimmi“, hinn illræmdi vörður í útrýmingarbúðum nasista í Treblinka. Fjölmiðlar segja vestrænar ríkissljórnir reyna að dreifa athygli fólks Reynt að bjarga lífi Bosníustúlku London, Sarajevo, Dublin. Reuter. FIMM ára gömul stúlka frá Bosníu, Irma Hadzimuratovic, var skor- in upp á bresku sjúkrahúsi í fyrrinótt en hún særðist alvarlega í Sarajevo fyrir skömmu. Læknar segja að hún sé með heilahimnu- bólgu en telja ólíklegt að hún hafi orðið fyrir verulegum heila- skaða, eins og óttast var. Breskir fjölmiðlar gefa i skyn að með því að bjarga Irmu séu stjórnvöld að beina athyglinni frá misheppnuðum afskiptum af Bosníudeilunni, aðrir benda einnig á að fjöldi særðra barna í Bosníu sé í lífshættu vegna skorts á læknishjálp. * Irma særðist í sprengjuárás Serba í lok júlí og þrítug móðir hennar lést. Reynt var að hlynna að stúlkunni í einu af sjúkrahúsum borgarinnar en þar var hvorki renn- andi vatn, rafmagn eða nægileg hjálpargögn. Læknar hennar hvöttu til þess að Irma fengi hjálp erlendis og fréttaritarar i Sarajevo komu beiðni þeirra á framfæri. Á mánudag ákváðu bresk stjón- völd að sjá til þess að flogið yrði með stúlkuna, föður hennar og þriggja ára systur til London með viðkomu á Ítalíu. Er komið var með þau á Great Ormond Street-bama- sjúkrahúsið í London hófust læknar þegar handa við að reyna að bjarga lífi Irmu. Læknar henn'ar í Sarajevo voru sumir á því að of seint hefði verið bragðist við, hún ætti jafnvel aðeins nokkrar stundir eftir. Lítil hætta á heilaskaða William Harkness, læknir á breska sjúkrahúsinu, sagði í gær að könnun hefði leitt í ljós að stúlk- an væri með heilahimnubólgu. Gerð hefði verið þriggja tíma löng aðgerð á henni til að fjarlægja vökva úr heilanum og sprengjubrot úr mæn- unni en ljóst væri nú að Irma hefði ekki hlotið alvarlegan heilaskaða. Hins vegar myndu líða nokkrar vik- ur áður en hægt yrði að sjá hvort hún biði varanlegan skaða af slæmu sári á baki sem illt hefði hlaupið í. Þá gæti farið svo að hún myndi eiga erfítt með gang. Reynt að dreifa athygli? Mál stúlkunnar hefur vakið mikla athygli en’bent hefur verið á að um 40 manns, börn og fullorðnir, að auki séu alvarlega slösuð í Bosn- íu og þyrftu á aðstoð erlendis að halda. Sumir íjölmiðlar í Bretlandi fullyrtu að stjómvöld vestrænna ríkja gripu fegins hendi tækifærið til að beina athygli fólks frá fjöl- mörgum misheppnuðum tilraunum þeirra til að stöðva átökin í Bosníu. Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna hafa verið sakaðir um að hindra brottflutning slasaðra frá Bosníu með skriffínnsku en þeir svara því til að aðeins fá lönd hafí boðist til að hjálpa. Breskur spítali bauð í gær afnot af 10 sjúkrarúmum handa Bosníubörnum og Irar buð- ust til að taka við fímm bömum. Reuter í sviðsljósinu RAWI Hadzimuratovic, faðir hinar fimm ára gömlu Irmu, ásamt þriggja ára gamalli dóttur sinni, Medinu, en þau fylgdu Irmu til London. Móðirin féll í árás Serba í júlí. Reuter, Páfinn á Jamaica NUNNUR á Góðgerðastofnun trúboðsheimilis, er kennt er við Móður Theresu á Jamaica, fagna Jóhannesi Páli II páfa í höfuðborginni, Kingston, á mánudag. Páfi er i þriggja daga heimsókn á eyjunni sem aðallega er byggð blökkumönnum. Var CIA-maður myrtur í Tbilisi? Tbilisi, Moskvu, Reuter. Daily Telegraph. STARFSMAÐUR bandaríska sendiráðsins í Tbilisi, Fred Woodruff, sem var myrtur i Georgíu í fyrradag, var starfsmaður bandarísku leyni- þjónustunnar CIA, samkvæmt frétt New York Times í gær. Talsmað- ur bandaríska utanríkisráðuneytisins neitaði að svara spurningum hvort Woodruff hefði verið sendur frá Moskvu til Tbilisi til þess að efla öryggisvörð Edúards Shevardnadze, leiðtoga Georgíu. Woodraff var í bifreið Eldars bifreið öryggisþjónustu She- Guguladze, yfirmanns öryggisþjón- ustu stjómarinnar í Tbilisi og óku þeir í gegnum þorpið Natakhtari sem er 17 km frá höfuðborginni er skot- ið var á bifreiðina. Guguladze slapp ómeiddur en ein byssukúla hæfði Woodruff í höfuðið. Óljóst er hvort árásin var gerð í pólitískum til- gangi, ætlunin var að ræna mennina eða aðrar ástæður lágu að baki. Að sögn bandaríska sendiráðsins í Tbilisi var Woodruff þar í tíma- bundnum erindagjörðum. Að hann skuli hafa mætt örlögum sínum í vardnadze þykir renna stoðum undir orðróm þess efnis að bandarískar sérsveitir séu í lífverði Georgíuleið- togans. ERLENT Samið um einvígi Polgar og Fischers Einvígið stendur og fellur með því að fjármögnun takist Boston. Reuter. UNDIRBÚNINGUR er hafinn að skákeinvígi ungversku stúlk- unnar Judit Polgar og Bobby Fischers, fyrrum heimsmeistara, að því er faðir Polgar, Lazlo Polgar, skýrði frá er þau komu til Boston í Bandaríkjunum í fyrrakvöld. „Við erum að leita að styrktar- aðila sem er reiðubúinn að leggja fram fímm milljónir dollara (rúmlega 350 milljónir króna) til einvígisins," sagði Lazlo Polgar. „Við höfum átt viðræður við Fischer um einvígi og samkomu- lag varð um að láta af því verða ef tilskilin fjármögnun tekst. Tímasetning og staðsetning ein- vígisins er alveg óráðin,“ sagði Polgar. „Við erum leið yfir þeim vand- kvæðum sem eru í samskiptum Fischers og bandarískra stjórn- valda. Honum fínnst sem hann eigi ekki afturkvæmt, sé nánast landlaus. Það er óréttlátt því hann er stórkostlegur skákmað- ur,“ sagði Polgar. Klara Polgar, móðir Judit, bar Fischer vel söguna og sagði: „Hann er indæll maður og alls ekki bijálaður.“ Eldri systir skákstjömunnar ungu, Zsuzsa, sagði að fjölskyldan harmaði að Judit Polgar Bobby Fischer stjómmálum og skák væri bland- að saman eins og BandaríkjaT stjórn gerði gagnvart Fischer. Eftir að Fischer vann heims- meistaratitilinn í skák 1972 bjó hann í einsemd í 20 ár en rauf einangrunina í fyrra og háði ein- vígi við Borís Spasskíj, fyrrum heimsmeistara, í Júgóslavíu. Fischer virti að vettugi aðvaran- ir bandaríska utanríkisráðuneyt- isins um að för hans til Júgó- slavíu væri brot á viðskiptabanni Sameinuðu þjóðanna (SÞ) gegn Serbíu. Lazlo Polgar sagði einnig við komuna til Boston að auk þess sem hann reyndi að fjármagna einvígi dóttur sinnar og Fischers væri hann að leita að stuðn- ingsaðila fyrir einvígi á vegum PCA, nýrra samtaka skákmanna sem Garríj Kasparov heims- meistari hefur stofnað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.