Morgunblaðið - 11.08.1993, Side 28

Morgunblaðið - 11.08.1993, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1993 Bjami Péturs- son - Minning Fæddur 16. febrúar 1919 Dáinn 5. ágúst 1993 Af lítilli getu en góðum vilja lang- ar mig til að festa örfáar línur á blað sem hinstu kveðju til sveitunga míns og frænda Bjarna Pétursson- ar, en lífsstrengur hans slitnaði að morgni 5. þessa mánaðar eftir all- langt stríð við sláttumanninn mikla. Honum var ljóst að hverju stefndi 4þeirri baráttu, og tók hann því sem öllu öðru í sínu lífshlaupi, með æðruleysi. Já, tímans klukka verður ei stöðvuð og enginn veit sína ævina fyrr en öll er, og menn heilsast og kveðjast. Bjarni Pétursson fæddist 16. febrúar 1919 að Grund í Haganes- vík norður. Foreldrar hans voru: Faðir, Pétur Jónsson, Jónssonar Ólafssonar bónda á Sléttu. Föður- amma var Kristín Eiríksdóttir, Ás- mundssonar bónda á Ulugastöðum í Flókadal. Móðir Bjama var Einars- ína Jónasdóttir, Stefánssonar bónda í Minni-Brekku í sömu sveit. Móður- amma Bjama var Anna Sigríður Jónsdóttir bónda á Ysta-Hóli. ; ' Bjarni var eitt bama þeirra hjóna sem upp komust, hann eignaðist albróður sem dó í æsku. Pétur, faðir Bjama var ekkju- maður er hann giftist Einarsínu. Og af átta bömum sem hann átti frá fyrra hjónabandi komust sex upp, var Bjarni því ríkur af systkin- um, en þau vom: 1. Guðbjörg Hall- dóra, gift Jósef Friðrikssyni, bjuggu í Eyjafirði; 2. Jón, kvæntur Ingu Halldórsdóttur, lengi búsettur í Borgamesi; 3. Guðrún, gift Stein- grími Þórðarsyni, búsett í Reykja- vík; 4. Jóhanna, búsett í Reykjavík; 5. Pétur Axel, kvæntur Petru Rögn- valdsdóttur, búsettur í Ólafsfirði; 6. Skarphéðinn, kvæntur Kristrúnu Finnsdóttur frá Ytri-Á í Ólafsfírði. Bjami ólst upp í foreldrahúsum en missti móður sína er hann var rúmlega 10 ára. Á þessu tímaskeiði var þjóð vor í kreppu og víðast hvar bjuggu menn við þröngan kost miðað við það sem síðar varð, en þrátt .fyrir það undi fólk við sitt og naut sinnar tilvem. Það var leið flestra að ganga til almennra starfa er til féllu á búum foreldra sinna um leið og aldur og þroski leyfði. Upp úr fermingu má segja að Bjarni hafí unnið fyrir sér og verið að mestu sjálfum sér nógur. Er hann fór úr föðurhúsum lá leið hans að Móafelli í sömu sveit og var þar í allmörg ár. Þá var hann um tíma á æskuheimili undirritaðs. Við vor- um jafnaldrar og fermingarbræður. Bjarni var harðduglegur og mikill keppnismaður hvort heldur var í leik eða starfi, söngmaður góður og hefði áreiðanlega getað náð langt í þeirri list hefði hann fengið leiðsögn í henni. Ég minnist þess enn, þótt langt sé um liðið, er við komum að Hólum í Hjaltadal haust- ið 1939. Sú hefð hafði skapast að eldrideildungar skoruðu á busana (þ.e. yngrideildunga) í knattspyrnu. Við vomm víðsvegar að af landinu og þekktum nánast lítið sem ekkert hver til annars, en undan þessu varð ekki vikist. Ekki var langt á leikinn liðið er andstæðingar okkar fóm að hrópa hver til annars með aðvaranir um að passa „djöfulinn" í rauðu peysunni. Þeim fannst Bjami harðsækinn og skotharður. Þessum leik lauk með sigri busanna, sem ekki hafði skeð áður og átti Bjami stóran hlut þar að máli. Hann var hrókur alls fagnaðar á gleðistund og var því eftirsóttur bæði til starfs og leiks. Hann kunni ógrynni af vísum og kvæðum og aðdraganda að þeim, ekki er ég gmnlaus um að hann hafí verið þeim kostum búinn að setja saman bundið mál þótt ekki hefði hann það í hámæli. Eins og getið var hér að framan þótti hann sækinn og skotharður í knattspyrnunni forðum, auk þess var hann í spretthlaupi og lang- stökki og þótti liðtækur þar vel og var hann því einn af burðarásum Ungmannafélagsins Vonar í íþrótt- unum um margra ára skeið. Allt fram undir það síðasta hafði hann mikla ánægju af að fylgjast með knattspymuleikjum sem sýndir voru í sjónvarpinu og spá í hveijir hefðu mesta sigurmöguleika. Eitt tómstundagaman hjá Bjama var að spila brids og gerði talsvert af því er stund var milli stríða, hann íifði sig svo inn í þessa íþrótt að t Faðir okkar, KRISTJÁN ÞORSTEINSSON frá Miðfossum i Andakíl, Seljavegi 23, lést á heimili sínu 9. ágúst. Fyrir hönd vandamanna, Synir hins látna. t Elskulegur eiginmaður minn, INGÓLFUR ÁRNASON, Hátröð 2, varð bráðkvaddur á heimili sonar okkar í Bandaríkjunum laugar- daginn 7. ágúst. Þóranna Þórarinsdóttir. t Stjúpfaðir okkar, ÓLAFUR KRISTJÁNSSON, Skálholti 15, Ólafsvfk, er lést 6. ágúst, verður jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju þann 14. ágúst kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Ólafsvíkurkirkju. Börnin. hann var sem tölva og gat rakið næstum hvert spil sem spilað var allt kvöldið, þannig var minni hans með ólíkindum. Árið 1945, 23. maí, verða þátta- skil í lífi Bjarna er hann gengur að eiga mæta og góða konu, Guðnýju Hallgrímsdóttur frá Knappstöðum í sömu sveit. Var hún honum trúr og traustur lífsföra- nautur í sorg og gleði, blíðu og stríðu. Árið 1953 flytjast þau bú- ferlum til Reykjavíkur. Áður höfðu þau lengst af búið í Tungu í Stíflu. Auk þess landbúnaðar er hann stundaði þá vann hann ýmis störf er til féllu, meðal annars var hann við störf hjá Kaupfélagi sveitarinn- ar um nokkum tíma. I sveitarstjórn starfaði hann um tvö kjörtímabil. Haustið eftir að þau hjón flytja hér suður hóf hann störf hjá Áburðar- verksmiðju ríkisins og starfaði þar, þar til hann varð 70 ára en þá telj- ast menn ekki lengur starfshæfír í ríkisins þágu. Af kynnum mínum af þessum frænda mínum þá veit ég að hann hefur verið trúr til verka og traust- ur í starfi og enginn augnaþjónn. Af því sem sagt er hér að framan má Ijóst vera að Bjami var mörgum kostum búinn, en tækifærin á upp- vaxtaráram hans vora fá til að glæða og þroska þann neista sem til staðar var því mestur tíminn fór í að afla til hnífs og skeiðar. Bjarni var alvöramaður, enginn flysjung- ur, fremur dulur og seintekinn, en var traustur félagi og vinur vina sinna. Nokkru eftir að fjölskyldan flutti til Reykjavíkur byggði hún í félagi við aðra húsið Eskihlíð 22, þar eign- uðust þau hlýlegt og fallegt heimili sem þau bjuggu í þar til fyrir tveim- ur áram að hjónin fluttu í þjónustu- íbúð aldraðra að Hraunbæ 103. Þau hjón eignuðust einn son, Sævin að nafni, en svo hét albróðir Bjama sem dó í æsku. Sævin er kvæntur Svölu Haraldsdóttur og eiga þau fjögur börn, svo segja má að fjölskylda Bjarna sé all stór. Sævin er fulltrúi hjá Ríkistollstjóra- embættinu. Um leið og ég kveð þennan frænda minn, óska ég þess að hann fái góða lendingu á hinni ókunnu strönd, þá færi ég öllum aðstand- endum samúðarkveðju og sér í lagi eiginkonu, syni og bamabörnum. Farðu vel og lifðu í guðsfriði. Guðmundur Jóhannsson. í dag, miðvikudaginn 11. ágúst, verður borinn til hinstu hvílu vinur minn, Bjarni Pétursson, Hraunbæ 103. Oafvitandi kemur í huga minn Eskihlíð 22, þegar ég sest niður að skrifa nokkur þakkarorð á skilnað- arstund, en þar bjuggu þau Guðný mestan hluta ævi sinnar eftir að þau brugðu búi og fluttu úr Fljótun- um. Ég sagði það stundum við Helgu konuna mína, að í raun fyndist mér allaf ég vera heima hjá mér í Eski- hlíð 22, hjá Bjarna og Guðnýju frænku minni. Þeirra elskulega hlýja viðmót og glaðvær og ferskur heimilisbragur, höfðaði svo sterkt til mín. Þeim get ég seint fullþakkað alla þá vin- semd, sem þau hafa ætíð sýnt mér og minni fjölskyldu. í nokkurn tíma var ljóst að hverju stefndi, vegna þess illkynja sjúk- dóms sem heijaði á, og svo margan hefur lagt að velli, en þegar ég kom í heimsókn á Landspítalann daginn áður en hann dó, gerði ég mér grein fyrir að stutt væri í kveðjustundina, og nú er hún runnin upp. Þannig er lífið, að eitt sinn skal hver deyja. I þessari stuttu kveðju verður ekki rakinn æviferill né lífshlaup þessa vinar míns, það veit ég að aðrir gera, heldur aðeins örfá augnablik minninga fest á blað. Bjarni var vörpulegur maður á velli, traustur, viljasterkur og skarpgreindur. Það segir sína sögu, hversu traustur og ábyggilegur maður Bjarni var, að alla tíð frá því að hann flutti til Reykjavíkur árið 1953 vann hann hjá einum og sama vinnuveitanda, sem var Aburðar- verksmiðja ríkisins. Þar naut hann alla tíð trausts og virðingar sem góður starfsmað- ur. Þeir sem þekktu hann vissu að samvinnuhugsjónin átti djúpar ræt- ur í huga hans og réttlætiskenndin var mjög rík með honum. Keppnisskap Bjarna var aðdáun- arvert og sannur íþróttaandi var honum í blóð borinn enda mikill áhugamaður um hvers konar íþrótt- ir, spilaði knattspyrnu á sínum yngri áram og var þá með allra fljótustu framheijum og mjög erfíð- ur mótheijum sínum, vegna hrað- ans og góðrar boltameðferðar. Eins og margir keppnismenn gera sneri hann sér að hugaríþrótt- inni, þegar á leið ævina, og var þá jafnvígur bæði í skák og bridsíþrótt- inni. Þá reyndum við okkur stundum við laxinn í Fljótaánni. Margar ógleymanlegar minning- ar koma upp í huga minn frá ferð- um á knattspymuvöllinn, þar sem við börðumst á áhorfendabekkjun- um með okkar liði, Skagamönnum. Ógleymanleg er sú ógnar bar- átta, sem oft var háð á eldhúsborð- inu í Eskihlíðinni, þar sem tveir baráttujaxlar sátu yfír skákinni, og Guðný kölluð til í tíma og ótíma, frá okkur sitt á hvað, til þess að sjá þær snilldar leikfléttur og fal- legu fórnir, sem við töldum okkur hafa laðað fram á skákborðinu. Þá var græna borðinu ekki ósjaldan stillt upp í stofunni og spilin dregin fram, en Bjami var góður bridsspilari og spilaði keppn- isbrids bæði með Bridgefélagi Kópavogs og Skagfirðingum. Já, það er margs að minnast. í Eskihlíðinni var oft glatt á hjalla, og þar vora húsráðendurnir, Bjarni og Guðný, samhent um að skapa þann skemmtilega anda, sem ávallt ríkti á heimilinu og margra ógleym- anlegra samverustunda minnist ég nú, þegar ég lít yfír farinn veg að leiðarlokum. Fljótamanna- og síðar Skagfírð- ingaskemmtanirnar, sem sóttar voru úr Eskihlíðinni, og jafnvel skipastjóraböllin, þótt enginn væri skipstjórinn, allt er þetta lifandi í minningunni. Ég vil í lok þessara fátæklegu kveðjuorða þakka Bjama vini mín- um órofa tryggð og vináttu og fyr- ir allar þær ánægjustundir, sem ég hef átt með honum og Guðnýju. Elsku Guðný, við Helga sendum þér, Sævin, Svölu og krökkunum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu hans. Bogi Sigurbjörnsson. LEGSTEINAR ílfasteinn; 720 Borgarfirði eystra. simi 97-29977 fax 97-29877 Bjami mágur okkar og vinur, sem andaðist á Landspítalanum 5. þessa mánaðar, verður jarðsunginn í dag kl. 15.00 frá Fossvogskapellu. Bjarni var fæddur á Grund í Haganesvík í Fljótum, sonur hjón- anna Péturs Jónssonar og seinni konu hans Einarsínu Jónasdóttur. Pétur og Einarsína stunduðu bú- skap og Pétur jafnframt sjó- mennsku. Á þessum áram var altítt að bændur í Fljótum stunduðu sjó- mennsku meðfram búskap og mun ekki hafa af veitt, því bú vora yfir- leitt lítil og tekjur af þeim, í mörg- um tilvikum ónógar til framfærslu ábúenda. Þannig liðu fyrstu æviár Bjarna, líkt því sem algengast var í Fljótum á þeim áram. Alvara lífs- ins varð þó snemma á vegi hans, því að þegar hann var átta ára veiktist Einarsína móðir hans af berklum og andaðist úr þeim á Kristneshæli tveimur árum seinna. Móðurmissirinn var þung raun tíu ára dreng. Margvísleg var sú óvissa sem á eftir fylgdi. Næstu árin var Bjami á ýmsum heimilum í Fljótum, ýmist með föð- ur sínum eða ekki. Lengst var hann hjá Jóni Gunnlaugssyni á Mjóafelli sem bjó þar myndabúi með móður sinni, Sigríði Jónsdóttur. Bæði vora þau víðþekktar sómamanneskjur og heimilið rómað fyrir rausnarskap. Dvölin á Mjóafelli var Bjarna án efa holl og átti líklega sterkan þátt í að skapa þann manndómsmann, sem hann var. Sem títt var í Fljót- um, fyrr og síðar, sótti hann um skólavist í Bændaskólanum og var þar við nám og störf árin 1939- 1941. í Hólaskóla undi Bjarni hag sín- um og minntist oft góðra daga þar. Ekki síst var honum ofarlega í huga vináttubönd, sem þar urðu til og héldust til hinsta dags. Í Hólaskóla lögðu nemendur stund á fleira en búfræði. Þar vora íþróttir stundaðar af kappi. Fljótt kom í ljós að Bjami var meira en meðalgott efni í knatt- spyrnu- og fijálsíþróttamann. Með snerpu sinni og stökkkrafti komst hann fljótlega í fremstu röð í af- rekaskrá Ungmennasambands Skagafjarðar. Um það bil, sem hann lauk námi á Hólum, hafði hann sett skagfírsk met í nokkrum grein- um frjálsíþrótta. Sum þeirra reynd- ust héraðsmönnum erfið viðfangs og stóðu lengi efst á afrekaskrá UMSS. Eftir að skólavistinni á Hólum lauk, hætti Bjarni að mestu æfíng- um og keppni í fijálsíþróttum, en lengi eftir það æfði hann og keppti í knattspyrnu með Ungmennafélagi Holtshrepps. Þar kom kunnátta hans og leikni að góðu gagni. Það var vissulega áhættusamt fyrir bú- andi mann, sem ekki hafði aðra á að treysta við búskapinn en eigin- konuna og sig, að stunda æfingar og keppni í knattspyrnu. En Bjarni var of góður knattspyrnumaður til að fá að sitja heima. Kynni okkar bræðranna af Bjarna voru lítil þar til hann kvænt- ist systur okkar Guðnýju og flutti til okkar á Knappsstaði í Stíflu. Þar byijuðu þau búskap í smáum stíl og stunduðu jafnframt aðra vinnu. Á Knappsstöðum fæddist þeirra eina bam, Sævin, sem búsettur er í Reykjavík, giftur Svölu Haralds- dóttur. Börn þeirra era: Guðný, Sig- rún Dóra, Haraldur og Bjarney. Koma Bjarna á Knappsstaða- heimilið var öllum á heimilinu fagn- aðarefni. Fyrir okkur bræðurna, sem vorum nokkuð yngri en hann, var hann fyrirmynd um margt. Með honum kom á heimilið nýr og fersk- ur blær, sem við kunnum vel að meta. Sem áður var nefnt var Bjarni fjölhæfur íþróttamaður og fylgdist alla tíð af áhuga með afrekum á því sviði. Hann var einnig snjall bridsspilari og skákmaður og naut þess að stunda hvort tveggja, þegar svo bar undir. j Bjarni og Guðný bjuggu víðar í Fljótum, en á Knappsstöðum, áður en þau fluttu til Reykjavíkur. Þá varð Bjami starfsmaður Áburðar- verksmiðju ríkisins í Gufunesi og vann þar allt til þess að hann hætti fyrir aldurssakir. Síðustu mánuðina lifði Bjarni í vægðarlausri baráttu við þann ill- víga sjúkdóm, sem nú leggur svo marga að velli. Þeirri þrautagöngu er nú lokið. Friður sé með þér, frændi. Bogi, Jónas, Sigurjón.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.