Morgunblaðið - 11.08.1993, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 11.08.1993, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1993 félk í fréttum SVIÐSLJOSIÐ Keppinautum hótað sparki í rassinn UPPAKOMA Skegglaus Burt móðgar Breta Það var búið að auglýsa mikið útsöluna á sumarvörunum í Harrods í Lundúnum. Að sá frægi Hollywood-leikari Burt Reynolds yrði sérstakur gestur útsölunnar og talið er að viðskiptavinir versl- unarinnar hafi verið fleiri en ella vegna þessa. Fólk rak því í roga- stans þegar Burt var hvergi að sjá. Aftur á móti var einhver óþekktur Ameríkani þarna sem fór mikið fyrir. Opnunaratriðið var er Ameríkani þessi kaffærði Moham- með A1 Fayed, verslunarstjóra Harrods, í gríðarlegu hjónarúmi. Þegar að var gáð var þetta reynd- ar Burt Reynolds. Ástæðan fyrir því að fáir könnuðust við kappann var, að hann hefur rakað af sér yfirvaraskeggið sem hefur fylgt honum um árabil. Burt lék við hvem sinn fingur og sagði hveijum sem heyra vildi að það væri allt annað líf og betra að vera nú laus og liðugur á ný, en eins og greint hefur verið frá skyldi hann nýlega við sambýlis- konu sína til margra ára, Loni Anderson, leikkonuna sem kölluð hefur verið hin dæmigerða Holly- PHILOO 1»1 Þvottavélar á verði sem allir ráða við! Þær nota HEITT OG KALT vatn - spara tíma og rafmagn •Fjöldi þvottakerfa-eftir þínu vali •Sérstakt ullarþvottakerfi •Fjölþætt hitastilling •Sparnaöarrofi •Stilling fyrir hálfa hleöslu 64-600 sn. vmda. Verð 52.500,- 49.875,“ Stgr. L85-800 sn. vmda. Verð 57.500,- 54.625," Stgr. CD iWi ® munXlán i Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SlMI 69 15 00 . FAX 69 15 55 Skegglaus Burt kaffærir verslunarstjórann. woodljóska holdi klædd. Það féllí misjafnan jarðveg er Burt mætli þessi orð um skilnaðinn: „Ef það gengur upp hjá bresku konungs- fjölskyldunni, hví skyldi það ekki ganga upp hjá mér?“ Leikarinn Patrick Swa- yze hefur löngum þótt vera kvennagull hið mesta og frú hans, Lisa Niemi mátt horfa upp á hauga af aðdáendabréfum sem nær öll eru frá konum. Margar senda af sér myndir og margar eru fallegar. Marg- ar bjóða Patrek í róman- tískan kvöldverð og raunar allt mögulegt umfram það. í besta (versta)falli bjóða þær blíðu sína beinum orð- um eða ævarandi tryggð sína í heilögu hjónabandi. Patrekur hefur látið sér þetta í léttu rúmi liggja, en þó fengið sinn skammt af kjaftasögum um að hann haldi við þetta eða hitt smástirnið. Hann er hins vegar tryggðartröll og mik- ill fjölskyldumaður og ævinlega eru það smástirn- in sem sjálf hafa komið sögusögnunum á kreik til að vekja á sér athygli. Það hefur farið lítið fyrir því, en Lisa Niemi, sem er fínnskætt- uð, er einnig dansari og leikkona. Nú er nokkuð síðan að Patrekur sló síðast í gegn og dæmið hefur snúist við, nú er það frúin sem fær alla athyglina. Þannig er mál vexti, að Lisa gekk til liðs við söngleik á Broad- way, „The Will Rogers Follies", KONGAFOLK Sonja með ísskáp í baðherberginu 3 ODYRASTIR Við vorum ódýrastir í fyrra og erum það enn og ætlum að vera það áfram. Haft er fyrir satt að í híbýlum norsku konungshjónanna séu nokkrir ísskápar, sem er kannski von vegna stærðar hússins. Stað- setning á einum ísskápanna kemur þó sauðsvörtum almúganum spánskt fyrir sjónir því hann er inni á baðherberginu. Og hvað skyldi Sonja vilja gera með hann þar? Jú, þama geymir hún allar snyrtivör- umar sínar, en eins og kvenþjóðin veit geymast til dæmis naglalökk og varalitir betur í kulda. Patrekur Swayze og Lísa í “gallanum". þar sem hún sprangar um í örbux- um og glansandi kúrekablússu og litskrúðugan kúrekahatt. Hún er fremst í flokki og þykir standa sig með prýði. Nú hrynja aðdáenda- bréfin enn inn um lúguna á bú- garði þeirra hjóna, en nú eru þau flest stíluð á Lísu. Patrekur tjáði sig nýverið um mál þessi og lýsti sig meira en lítið afbrýðissaman. Ekki vegna þess að hann gæti ekki unnt konu sinni að slá ærlega í gegn svona einu sinni eða svo. Nei, heldur vegna þess að hann er búinn að lesa slatta af aðdá- endabréfunum. Þau eru nær öll frá karlmönnum og tilboðin eru mörg og glæst. „Menn eru að senda henni blóm og játa henni ást sína þó þeir viti að ég eigi hana!“ seg- ir Patrekur. Og hann heldur áfram: „Stundum þegar ég er að lesa, æpi ég upp, heyrðu vinur, slakaðu á, þú ert að ávarpa eigin- konu mína. Ef þú heldur þér ekki á mottunni mæti ég á teppinu hjá þér og sparka í afturendann á þér!“ Sonja geymir snyrtivörurnar í ísskáp. Af Lisu er það að segja, að hún hefur bara gaman að segir að hún ætli að njóta sviðsljóssins á meðan það býðst. Þess sé vart langt að bíða að bóndi sinn hrifsi það af sér á ný.... STJÖRNUR Pabbi ræður engu lengur Nú eru að verða síðustu forvöð á fá myndatöku á tilboðsverðinu okkar, tilboðið gildir út ágústmánuð í okkar myndatökum er innifalið að allar myndir eru stækkaðar og fullunnar í stærðinni 13 x 18 cm að auki 2 stækkanir 20 x 25 cm og ein stækkun 30 x 40 cm í ramma. Verð frá kr. 11.000, oo Ljósmyndastofan Mynd sími: 65 42 07 Barna og fjölskylduljósmyndir sími: 677 644 Ljósmyndastofa Kópavogs sími: 4 30 20 Sjónvarpsstjaman Alyssa Milano er orðin stór og hefur karl faðir hennar þurft að taka á honum stóra sínum til að grípa ekki í taum- ana þegar hlutverkaval Alyssu er annars vegar. Áhorfendur „Hver á að ráða“ þekkja Alyssu mætavel úr hlutverki unglingsstúlkunnar Samönthu en þau hlutverk sem hún hefur tekið að sér uppi á síðkastið minna lítið á hlutverk hennar í sjón- varpsþáttunum. Hún reynist föður sínum hins vegar erfiður Ijár í þúfu rétt eins og í þáttunum. Nýjasta mynd Alyssu heitir „Double Drag- on“ og fjallar um nútímalega stúlknaklíku sem fer um með kar- atespörkum. Til að falla inn í hlut- verkið fómaði Alyssa síða hárinu og lét aflita það í ofanálag. Er stúlk- an nánast óþekkjanleg og það varð ekki til að gleðja karl föður henn- ar, sem „fríkaði út“ þegar hann sá útganginn, eftir lýsingu dótturinnar að dæma. Fyrr á árinu þurfti Alyssa Milano að lita hár sitt ljóst vegna hlutverks í sjónvarpsmynd og sá faðir hennar ekkert athugavert við það. Eins og áður hefur komið fram þótti honum lítið til um knallstutt og platínuljóst hár dóttur sinnar en um þverbak keyrði þegar hún fór með hlutverk stúlku sem á í sadó-masókísku sam- bandi. Varð föður hennar svo mikið um að hann treysti sér ekki til að vera viðstaddur tökur eins og hann er vanur. Þegar hann barði myndina loks augum var það eina sem hann gat sagt; „þeim tókst þó að minnsta kosti að skjóta þig almennilega". Alyssa Milano er nánast óþekkj- anleg eftir að hún hefur fórnað dökku, síðu hárinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.