Morgunblaðið - 08.09.1993, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1993
11
annan vettvang í listinni og voru
lengstum á framsæknasta kantinum
og á tímaskeiði mátti helst ekki
kenna neitt hlutlægt í myndum
þeirra. Jón og Louisa hneigðust
meira að hefðinni, en þá einungis
hvað ytra yfírborð snertir, því að í
raun voru myndir þeirra alla tíð
mjög abstrakt í lithugsun og upp-
byggingu, eins og maður skilur það
hugtak. í öllu falli hefði enginn sann-
ur natúralisti viljað skilgreina list
þeirra á annan veg, né taka slíka
list sem fullgildan natúralisma.
Segja má að þessir listamenn
hafí sótt föng sín á skyld mið, en
þróað þau á ólíkan hátt og svo er
einungis mat hvers og eins hvort sé
mikilvægara. Enginn getur nokkurn
tíma fullyrt, að ein aðferð sé annari
æðri, svo fremi sem sjálf efnistökin
feli í sér átakamikla og safaríka
geijun, sem borin er fram af ferskri
lifun.
Hið rpikilvægasta er líka að vera
opinn fyrir umhverfi sínu, og þannig
var með Nínu og Parísarborg, jafnt
og Louisu og New York. Hin óhlut-
læga list var í öndvegi á Parísarárum
Nínu, en raunsæið prýddi aðallega
listhugsun þeirra vestan hafs.
Það er því skiljanlegt, að Louisa
yrði fyrir áhrifum af amerískum
„realistum", t.d. Edward Hopper
(1882-1967), sem aðallega kemur
fram í einstaka húsamyndum henn-
ar, og hún varð einnig fyrir ýmsum
áhrifum af öðrum amerískum mál-
urum. En þessi ytri hrif runnu ein-
ungis eðlilega saman við hennar list-
ræna geðslag og styrktu hina upp-
runalegu grind, jafnframt því að
fága ytri skurnbrún.
Þannig er þessu varið í myndlist-
inni sem öðrum listgreinum, að hér
er um að ræða vixlverkun og um-
ræðu, „dialog", sem aldrei slotar og
sækir næringu og eldsneyti í sjálfa
lífskvikuna allt um kring.
Sýningin á Kjarvalsstöðum rennir
stoðum undir þessar almennu stað-
reyndir, sem vilja vefjast fyrir svo
mörgum, og það er ótvírætt aðal
hennar. Styrkur hennar er einnig
ótvírætt, að hér er um að ræða
myndir í eigu listakonunnar, en ekk-
ert yfírvegað val utanaðkomandi,
og sýningin hefði átt að vera með-
höndluð sem slík. Hér er um að
ræða eins konar stikkprufur eða
sýnishorn á vinnubrögðum listakon-
unnar í tímans rás og ekki er mögu-
legt að skera úr um listrænt vægi
einstakra tímabila með hliðsjón af
þessum sýnishomum, því allt eins
geta bestu myndirnar verið annars
staðar. Persónulega hefði ég óskað
eftir meira af eldri verkum Louisu
vegna þess að við höfum þegar feng-
ið svo ágæt sýnishom á nýrri verk-
um hennar, t.d. í listhúsinu Borg og
í Austursal Kjarvalsstaða á vegum
Listmunahússins (hvorugra þessara
sýninga er getið í skránni!).
Á sýningunni fannst mér einna
mest koma til mannamyndanna og
sjálfsmyndanna auk sumra kyrra-
lífsmyndanna.
Gefíð hefur verið út ágætt vegg-
spjald, sem er til sölu, m.a. áritað
af listakonunni.
Allar myndimar á sýningunni em
til sölu sem eitt og sér er frétt-
næmt, en verð þeirra hefur helst
vakið athygli hér á útnáranum og
verið á milli tannanna á fólki, sem
hallar undir flatt og talar um „am-
eríska prísa“, eins og það heitir t.d.
í Pressunni.
En menn skyldu líta sér nær í
þessum fullyrðingum sínum, því að
hér hefur mönnum næstum tekist
að gera flest sem skarar varanleg
verðmæti og hugvit verðlaust, ólíkt
því sem gerist í Ameríku. En við
höfum hins vegar „íslenzka prísa“ á
forgengilegum hlutum sem enginn
léti bjóða sér vestan hafs, t.d. bifreið-
um auk hvers konar glingurs og
flottheita yfírborðsins, sem allt er
dæmt í glathaugana. Þetta minnir
mig sterklega á söguna af því, að í
gamla daga er fyrirfólk kom á
bóndabæ og vildi gerast alþýðlegt
og heilsa upp á fjósamanninn, átti
hann bara til ein sokkaplögg ötuð
flór. En dó þó ekki ráðalaus, enda
áttu ýmis andleg átök sér stað í ís-
lenzum fjósum og peran því í lagi,
- snéri þeim einfaldlega við.
SITUATIONISTAR
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
Á efri hæðum Nýlistasafnsins
tekur á móti gestum sýning sem
hlotið hefur yfírskriftina „Situati-
on ’93 Reykjavík — Köln“. Sýning-
in er afrakstur verka nokkurra
listamanna, m.a. tveggja ís-
lenskra, og er jafnframt ætlað að
veita innsýn í sögu þeirrar hreyf-
ingar, sem tók sér nafnið „situati-
onistar", sem mætti ef til vill snara
á slæma íslensku sem „kringum-
stæðuskapendur".
Sýningargestir geta reynt að fá
þessa innsýn í gegnum rit um
hreyfinguna sem eru kynnt í setu-
stofu og í efsta salnum. Á þeirri
kynningu er þó sá galli, að hún
er öll á erlendum tungumálum
(mest ensku og frönsku), og lítt
skipulega framsett. Hreyfíngin á
betra skilið, sem og íslenskir sýn-
ingargestir, og er rétt að tæpa á
nokkrum atriðum um hana.
Situationistar höfðu orðið til
sem þjóðfélags-pólitísk hreyfíng
með listrænu ivafí um miðjan
sjötta áratuginn, og meðal áber-
andi þátttakenda fyrsta kastið má
nefna þann þekkta Cobra-mann
Asger Jorn, og raunar fleiri úr
þeim hópi. Hreyfingin átti sér fyrst
og fremst rætur í Frakklandi, þó
að hópar víðar að, t.d. í Englandi
um 1960, tengdust henni. Eins og
oft vill verða um hreyfingar af
þessu tagi (t.d. súrrealistana und-
ir stjórn Andre Bretons) varð
kennisetningasmíðin fljótlega list-
inni yfírsterkari, og því varla hægt
að tala um þetta fyrirbæri sem
listhreyfingu í vanalegri merkingu
þess orð, enda urðu yfirlýsingarn-
ar að boðskap fyrir stjómleysi (an-
arkisma) eða frumkommúnisma
er hreyfingin var einna þekktust
1968.
Áhugafólk um svokallaða ’68-
kynslóð ætti að kannast við situ-
ationista, því þeir voru m.a. í for-
ystu stúdenta sem lögðu undir sig
háskólann í Strassburg um þriggja
vikna skeið haustið 1966; sá at-
burður hefur af ýmsum verið tal-
inn fyrirboði svipaðra atburða um
alla Evrópu, Ameríku og Japan á
næstu árum á eftir, sem náðu
hámarki í Frakklandi í maí 1968.
Framlag situationista í þessum
hræringum var ekki eingöngu
pólitískt, heldur lögðu þeir sitt á
vogarskálarnar með hinn „list-
ræna“ umbúnað á kröfugöngum,
slagorðum, veifum og fánum.
Þetta framlag lifði þó ekki hrær-
ingarnar af, og má segja að hreyf-
ingin og öll hennar áhrif (nema
e.t.v. notkun sprautubrúsa við
slagorðagerð!) hafí verið liðin und-
ir lok um 1970.
Saga þessarar hreyfíngar er þó
í mesta lagi neðanmálsgrein í lista-
sögu sjöunda áratugarins á þess-
ari öld, og er nafni hennar nú
helst haldið á lofti af einhveijum
taglhnýtingum, sem misstu af
fjörinu, en vildu gjama hafa verið
með.
Sýningin í Nýlistasafninu ber
merki þessa; hún kann þó að ein-
hveiju leyti að vera fræðandi fyrir
þá sem kannast áður við sögu situ-
ationista. Fyrir aðra er hún fremur
hindrun en verðugur vegvísir til
raunverulegs (smá)þáttar þessar-
ar hreyfíngar í listasögu tuttug-
ustu aldar, enda uppsetning henn-
ar og íslenskur umbúnaður til
vansa fyrir Nýiistasafnið, og ekki
til þess fallið að vekja áhuga gesta.
Hreyfingin fetar greinilega í fót-
spor merkari listhreyfinga á fyrri
hluta aldarinnar þar sem eru fút-
uristar, dadaistar og súrrealistar,
og skuggi þeirra er enn í dag mun
sterkari en.sú ljóstýra, sem situati-
onistar náðu ef til vill að tendra
á sínum tíma.
Sýningin „Situation ’93 Reykja-
vík — Köln“ í Nýlistasafninu við
Vatnsstíg stendur til sunnudags-
ins 12. september.
Norræni tvíæringurinn
Ingibjörg Guðjóns-
dóttir fulltrúi Islands
NORRÆNI einsöngvara- og ein-
ieikaratvíæringurinn hefst í
Stokkhólmi 22. þessa mánaðar.
Markmiðið með tónleikunum er
að koma á framfæri ungum nor-
rænum listamönnum, jafnt á nor-
rænum sem alþjóðlegum vett-
vangi.
Tónlistarfólkið mun koma fram
ásamt tveim stærstu hljómsveitum
Stokkhólms. Fulltrúamir fímm
verða Niklas Sivelöv, píanóleikari
frá Svíþjóð, Solve Sigerland, fíðlu-
leikari frá Noregi, Pia Freund, sópr-
ansöngkona frá Finnlandi, Troels
Svane Hermansen, sellóleikari frá
Danmörku og Ingibjörg Guðjóns-
dóttir, sópransöngkona, verður full-
trúi íslands. Tvíæringnum lýkur 25.
þessa mánaðar.
Ingibjörg Guðjónsdóttir.
Tónlistarfélag Akraness
Einsöngstónleikar í Vinaminni
TÓNLISTARFÉLAG Akraness stendur fyrir einsöngstónleikum í
kvöld kl. 20.30 í safnaðarheimilinu Vinaminni. Á tónleikunum koma
fram Heiðrún Harðardóttir altsöngkona og Ólafur Vignir Albertsson
píanóleikari.
Á efnisskránni eru íslensk söng-
lög eftir Árna Thorstejnsson, Sig-
valda Kaldalóns, Pál ísólfsson og
Þórarin Guðmundsson, ljóð eftir
Dvorák og óperuaríur eftir A.
Thomas, Donizetti og Saint-Saénce.
Tónleikar þessir eru haldnir í 100
ára minningu eins af stofnendum
tónlistarfélagsins, Jóns Sigmunds-
sonar en hann er móðurafí Heiðrún-
ar.
Heiðrún Harðardóttir lauk 8.
stigi í söng frá Söngskólanum í
Reykjavík vorið 1992, þar sem aðal-
kennarar hennar voru, Ásrún Da-
víðsdóttir og Jórunn Viðar. Síðan í
janúar á þessu ári hefur hún verið
búsett í London og sótt einkatíma
í söng hjá Sigríði Ellu Magnúsdótt-
ur. Þetta eru fyrstu einsöngstón-
leikar Heiðrúnar.
Ólafur Vingir Albertsson er
löngu landskunnur píanóleikari og
hefur í áratugi spilað með mörgum
söngvumm á tónleikum, inná plöt-
ur, í útvarpi og víðar.
DISKÓDANSAR • BUMP • JÓN STEINAR, SIMBI 0G K0LLA, MARGFALDIR ÍSLANDSMEISTARAR KENNA
MA BJOÐA ÞER I DAHIS?
• KENNSLUSTAÐIR
• Reykjavík Brautarholt 4, Ársel,
Gerðuberg, Fjörgyn
og Hólmasel.
• Mosfellsbær
•Hafnarfjörður
• Innritun í síma 91-20345 frá
kl. 15 til 22 að Brautarholti 4.
• Suðurnes Keflavík, Sandgeröi
Grindavík og Garður.
• Innritun f síma 92-67680 frá
kl. 21.30 til 22.30.
• KENNSLA HEFST PRIÐJUDAGINN14. SEPT.
Afhending skírteina að
Brautarholti 4, sunnudaginn
12. september, frá kl. 15-22
SÍDASTI
INNRITUNARDAGUR
FÖSTUDAGINN
10. SEPTEMBER
Gjaldskrá óbreytt
frá liðnum vetri
Systkinaafsláttur -fyrsta barnfullt gjald,
annað barn hálft gjald, þriðja barn og þar yfir
frítt. Aukaafsláttur efforeldrar eru einnig í
dansnámi.
m
DANSSKOLI
STVALDSSONAR