Morgunblaðið - 30.09.1993, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1993
Siglt á Björg VE við Vestmannaeyjar
Það hefur engiiin
verið uppi í brú
- segir Gísli Einarsson, skipstjóri Bjargar
DANSKA flutningaskipið Sathelit sigldi á Björg VE 5 tólf mílur
vestur af Surtsey snemma í gærmorgun. „Það er á siglingu og
kemur allt í einu upp í síðuna á okkur. Við vorum að toga með
togljós og siglingaljós kveikt og bjuggumst auðvitað við því að það
myndi beygja frá í tíma. En það hefur enginn verið uppi í brú,“
segir Gísli Einarsson, skipstjóri Bjargar. Gísli segir að stýrimaður
hafi kveikt dekkljós þegar um hálf míla var á milli skipanna og
síðan hafi hann reynt að sveigja frá og bakka þegar hann sá hvert
stefridi. Frekari tjóni hafi verið afstýrt á þann hátt, en „smáklessa
sé fram á skipinu,“ sem hafi komið þegar Sathelit straukst við
byrðing Bjargar.
Símamynd/Cees Kuiper
Gísli segir að flestallir skipvetjar
nema stýrimaður hafi verið í koju
þegar áreksturinn varð um kl. hálf-
sjö að morgni miðvikudags.
„Mönnum brá illilega, sérstaklega
þar sem höggið kom á kojurnar
þótt enginn hafi talað um að hafa
henst fram úr,“ segir Gísli.
Björg VE 5 er 130 tonna togbát-
ur með átta manna áhöfn og Gísli
segir að Sathelit sé flutningaskip
í smærri kantinum en það hafi rist
djúpt sem bendi til fullfermis. Sam-
band náðist við danska skipið
stuttu eftir áreksturinn og kveðst
Utflutningur hrossa
Stefnir í
nýtt met
VEL LÍTUR út með útflutnirig
hrossa það sem af er árinu og
virðist allt stefna í nýtt met í
fjölda. Um mánaðamótin ág-
úst/september höfðu 1.453 hross
verið flutt út sem er 112 hrossum
fleira een á sama tíma í fyrra.
Flesta mánuði ársins hefur verið
fjöigun en í ágúst voru heldur færri
hross flutt út en ástæða þess er
talin vera sú að þá var haldið heims-
meistaramót íslenskra hrossa í Hol-
landi og hrossakaupmenn meira og
minna uppteknir vegna þess. Nú
sem áður fara flest hross á Þýska-
landsmarkað en veruleg aukning
virðist vera til Noregs. Að sögn
Hallveigar Fróðadóttur hjá Félagi
hrossabænda eru framundan drjúg-
ir mánuðir í hrossaútflutningi svo
allt stefnir í nýtt met. Sagði hún að
í september færu út í kringum 200
hross.
Af þessum 1.453 hrossum eru
stóðhestarnir 46, geldingar 704 og
hryssur 703. Hryssum í útflutningi
virðist stöðugt fjölga sem virðist
endurspegla síaukinn áhuga á
ræktun íslenskra hrossa á erlendri
grund. Eftir 1. október er óheimilt
að flytja hross til Norðurlanda með
skipum en slíkt bann gengur ekki
í gildi fyrr en 1. nóvember í öðrum
löndum Evrópu.
Gísli ekki hafa krafið yfirmenn
þess um skýringar á atburðinum,
heldur athugað hvort útgerðarfé-
lag skipsins gæti ábyrgst greiðslu
vegna tjónsins.
Sjópróf verða haldin þegar Björg
VE 5 kemur í land og segist Gísli
halda að það verði á næstu dögum.
Evrópudraumúrinn úti
ÍSLENSKU liðin þrjú, ÍA, KR og Valur, voru öll selngin út úr Evrópu-
mótunum í knattspyrnu í gærkvöldi. Skagamann töpuðu 3:0 fyrir
Feyenoord, KR gerði markalaust jafntefli í Ungveijalandi og Valur
tapaði 4:0 fyrir Aberdeen. Hér má sjá Skagamehnina Sturíaug Haralds-
son og Ólaf Adolfsson í baráttu við Regi Blinker, einn besta mknn
Feyenoord.
Sjá „Draumurinn úti...“ á bls. 51.
Bflþjófur
í gæslu-
varðhald
MAÐUR á fertugsaldri
sem var handtekinn að-
faranótt sl. þriðjudags
við innbrot í bíla hefur
verið úrskurðaður í
gæsluvarðhaldtil tveggja
vikna. Maðurinn reyndist
sekur um innbrot í fimm
bíla nóttina sem hann var
handsamaður.
Mörg mál eru í gangi gagn-
vart manninum og m.a. er beð-
ið eftir dómi yfir honum frá
'Héraðsdómi Reykjavíkur. Þess
vegna var tekin ákvörðun um
að óska eftir gæsluvarðhaldi
yfir honum í tvær vikur.
Maðurinn hefur áður afplán-
að fangelsisdóma vegna af-
brota, einkum þjófnaða.
139
* ársins
Framleiðsluverðmæti land-
vinnslunnar jókst um 25%
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa hf. skilaði 139 milljóna
króna hagnaði af reglulegri starfsemi fyrirtækisins fyrstu
átta mánuði ársins samanborið við 127 millj. kr. á sama
tímabili í fyrra, en þá hafði verið tekið tlllit til 92 millj.
kr. greiðslu úr Verðjöfnunarsjóði sjávarútvegsins. I frétta-
tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að vegna mikils
gengistaps umfram verðlagsbreytingar, sem að mestu stafi
af gengisfellingunni í júní, reyndist endanlegur hagnaður
fyrirtækisins 28 millj. kr. á fyrstu átta mánuðum ársins.
Það sem af er árinu nema
rekstrartekjur ÚA tæpum tveimur
milljörðum króna, sem er 23,8%
hækkun miðað við sama tímabil í
fyrra. Er hagnaður fyrir afskriftir
og ijármagnskostnað 454 millj.
kr. eða um 22% af rekstrartekjum.
Eigið fé fyrirtækisins í lok ágúst-
mánaðar var rúmlega 1,6 milljarð-
ar kr. og veltufjárhlutfallið á sama
tíma 1,24.
Viðunandi afkoma
„Miðað við aðstæður teljum við
þetta viðunandi afkomu. Með sér-
stöku tilliti til þess hvað rekstur
ísfiskskipa hefur verið erfiður og
með tilliti til aflasamdráttar, get-
um við sæmilega við þetta unað,“
sagði Gunnar Ragnars, fram-
kvæmdastjóri ÚA, í samtali við
Morgunblaðið.
Útgerðarfélag Akureyringa
gerir út fimm ísfisktogara og tvo
frystitogara og rekur fiskvinnslu
á Akureyri. Á fyrstu átta mánuð-
um ársins var afli ísfisktogaranna
9.711 tonn, sem er 1.570 tonnum
minna magn en á sama tíma í
fyrra og er það 13,9% aflamrnnkun.
milli ára. Afli frystitogaranna var
á sama tímabili 4.253 tonn, sem
er 9,6% minna magn en á sama
tímabili 1992. Þrátt fyrir aflasam-
drátt hefur útgerð frystitogaranna
gengið vel og er framleíðsluverð-
mæti þeirra 15% meira én á sama
tímabili í fyrra. Munar þar mestu
um aflaaukningu á grálúðuveið-
um.
Ellefu hundruðum tonna meiri
framleiðsla
Framleiðsla í frystihúsi ÚA er
meiri í ár en á sama tíma í fyrra
og er aukning framleiðsluverð-
mætis tæp 25%. Hafa verið fram-
leidd tæplega 5.500 tonn miðað
við rúm 4.400 tonn á sl. ári. Hef-
ur félagið náð þessari aukningu
þrátt fyrir aflasamdrátt með því
að kaupa afla af öðrum fiskveiði-
skipum. Var heildarframleiðsla
ÚA á land- og sjófrystum afurðum
fyrstu átta mánuðina tæplega
8.300 tonn samanborið við liðlega
7.100 tonn í fyrra.
Óvissa framundan
Gunnar Ragnars lagði áherslu ‘
á að aflasamdrátturinn skapaði
mikla óvissu um afkomuna á
næstu mánuðum, vegna kvótanið-
urskurðar og aflasamdráttar og
að verðlækkanir á helstu mörkuð-
um sköpuðu mikla óvissu um af-
komuna á næstu mánuðum .og
misserum- Við úthlutun áflakvóta
á nýju fískVeiðiári fékk félagið
17.584 tonn og hefur það þurft
að þola 2.400 tonna niðurskurð
milli kvótaára. Er raunskerðing
fyrirtækisins á aflaheimildum frá
árinu 1988 um 8.500 tonn.
i ÍPIi:
p^"'ÍKENWOQD IfeááglqSPr SIS ; , , • FONN ;
mim mémkm. ii II 1 >1 JU$$ :
íi|r' 'míM .<1>S jHP riarf kaup - k
:: ■rry’J.r-.n
fctÍÍrí: V'alnSflttrihl Í
„Nýttu þér kjarabót" er aug-
lýsinga- og tilboðsblað á vegum
auglýsingaþjónustunnar „Okk-
ar ,sérsvið“ sem áætlað er að
komi út mánaðarlega og dreift
er með Morgunblaðinu í dag.
í dag
Byggðastofnun
HöfuðstóU neikvæður um tvo millj-
arða kr. 4
Æviminningar „Járnfrúarinn-
ar“___________________________
Umstangið sagt rýra virðingu
Thatcher 24
Kominn til meðvitundar________
Drengurinn sem var nær drukkn-
'dður er að jafna sig 27
ztœ.ityj. “ .........
Toyotaþridjn hwr i ~
hifrvið i M-ptcniber <;’ .Úý*y <f -<á
Leiðari
Flugorðasafn - reglugerðir á móð-
urmáli 26
Viðskipti/A tvinnulíf
► Toyota selur þriðja hvern bíl
- Sóun hins opinbera - Carlzon
og Alcazar-áætlunin - íslenskir
frumkvöðlar - Ný lög um neyt-
endalán auka upplýsingaskyldu
Dagskrá
► Dagskrá Sjónvarpsins í
skammdeginu - Breytingar á
innlendri dagkrá - Stöð 2 heim-
sækir Færeyjar - Stafrænt út-
varp - Fréttarás BBC í Japan
Landspítali tekur á
móti tveimur særð-
um Bosníumönnum
TVEIR ungir menn frá Sarajevo koma til lækninga á Landspítalann
7. október. Halldór Jónsson Jr., yfirlæknir á bæklunarskurðdeild, segir
enn ekki vitað hvort mennimir séu óbreyttir borgarar eða hermenn.
Þeir urðu fyrir sprengjuslysum fyrir þremur og fjórum mánuðum.
Ríkisstjórnin tók ákvörðun um að
bjóða sex slösuðum ungmennum frá
Bosníu lækningu hér á landi í ág-
úst. Tilboðinu var í framhaldi af því
komið til Flóttamannastofnunarinn-
ar og hefur hún nú tekið ákvörðun
um að senda mennina tvo hingað til
lands en búist er við að fleiri komi
í kjölfarið.
Halldór sagði að eldri maðurinn,
sem er 29 ára, hefði orðið fyrir
sprengjuslysi fyrir fjórum mánuðum
og misst annan fótinn. Þá væri sýk-
ing og taugaskaði í hinum fótleggn-
um. Yngri maðurinn, sem er 27 ára
og varð fyrir sprengjuslysi fyrir
þremur mánuðum, er með tauga-
skaða í báðum handleggjum og sýkt
brot í upphandlegg og fótlegg.
Óvíst með fylgdarlið
Aðspurður sagði Halldór að verið
væri að undirbúa ferð tvímenning-
anna og eiginkonu eldri mannsins
hingað tii lands og væri áætlað að
koma til Kaupmannahafnar síðdeg-
is á fimmtudag. Þaðan færi fólkið
sennilega til Islands um kvöidið.
Hann sagði að stfax yrði byrjað á
því að skoða mennina og meta al-
mennt ástand þeirra og hversu al-
varlegir áverkarnir væru en óvíst
væri hversu lengi þeir yrðu á spít-
ala. Hins vegar sagði hann ljóst að
um langtímameðferð yrði að ræða.
Ekki er vitað hvort fylgdarlið frá
Rauða krossinum eða Flóttamánna-
hjálpinni verður með í för.