Morgunblaðið - 30.09.1993, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1993
51
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI MEISTARALIÐA
Draumurinn úti
Skagamenn áttu ekki möguleika gegn sterku liði Feyenoord í Hollandi
i
í
i
!
I
I
I
1
f
SKAGAMENN eru úr leik í Evrópukeppni meistaraliða í knatt-
spyrnu eftir 0:3 tap gegn Feyenoord í Hollandi f gærkvöldi. Það
voru fyllilega sanngjörn úrslit, heimamenn voru mun sterkari og
Akurnesingar náðu ekki að sýna bestu hliðar sínar. Sjálfstraust-
ið, sem hefur verið svo mikið í herbúðum ÍA í sumar, var ekki
til staðar enda mótherjarnir sterkir og þeir byrjuðu strax með
miklum látum — keyrðu upp hraðann — og Akurnesingar áttu í
vök að verjast lengst af. Þeir sköpuðu sér þó tvö góð færi, þann-
ig að með smá heppni hefðu þeir átt að geta skorað.
Skapti
Hallgrímsson
skrifar frá
Rotterdam
Leikmenn Feyenoord hófu leikinn
eins og þeir höfðu lofað fyrir-
fram; léku mjög hratt og ætluðu
sér greinilega að
reyna að kaffæra
gestina strax. Jo-
hnny Metgod gaf
tóninn eftir aðeins
sex mín. er hann þrumaði í netið
talsvert utan vítateigs. Einn félagi
hans var reyndar rangstæður,
þannig að mark var ekki dæmt, en
atvikið hafði góð áhrif á liðið. Eina
mark hálfleiksins kom á 25. mín.
eftir mjög góða sókn, og Skaga-
menn voru í raun heppnir að mörk-
in í hálfleiknum urðu ekki fleiri.
Þeir voru alls ekki eins öruggir með
sjálfa sig og í fyrri leiknum í
Reykjavík, enda varla við þvi að
búast. Liðið hélt boltanum einmitt
sérlega vel þá, en því var ekki að
heilsa að þessu sinni. Miðjumenn-
irnir náðu sér ekki á strik og aðstoð-
uðu vörnina ekki nægjanlega vel,
þannig að talsvert pláss myndaðist
nokkrum sinnum á hættulegum
svæðum.
Fyrsta markið
Það var bakvörðurinn Errol Re-
fos sem gerða fyrsta markið, eftir
fallegt spil. Haraldur Ingólfsson
virtist reyndar vera með knöttinn á
valdi sínu í teignum, en missti hann
til útheijans Tauments og hann gaf
fyrir á bakvörðinn sem var á mark-
teignum og skoraði af Öryggi. „Við
lentum í vandræðum með þá strax
frá fyrstu mínútu. Við vorum að
vísu óheppnir að ná ekki að skora
í leiknum en þeir hefðu getað gert
miklu fleiri mörk. Mér fannst við
reyndar ná að halda aftur af þeim
nokkuð lengi en svo koma ein mis-
tök sem skipta öllu máli. Eftir að
þeir náðu að skora var vitað mál
að þetta yrði mjög erfitt,“ sagði
Ólafur Þórðarson eftir leikinn.
Annað markið
Eftir stundaríjórðung í seinni hálf-
leik kom annað markið. Skagamenn
urðu reyndar vægast sagt bálreiðir út
í línuvörðinn; vildu meina að einn
Hollendingurinn hefði verið rangstæð-
ur þegar sendingin kom en mark var
dæmt. Það var miðheijinn Obiku sem
þnimaði í netið úr miðjum teig eftir
fyrirgjöf Blinkers. „Þetta var rang-
staða, ég er sannfærður um það,“
sagði Ólafur Adolfsson, sem var aft-
asti maður í vöm þegar boltinn kom.
Munaði litlu
Skömmu fyrir þriðja markið, um
tíu mín. fyrir leikslok, munaði ekki
miklu að Skagamönnum tækist að
minnka muninn. Ólafur Þórðarson
komst á auðan sjó hægra megin í
teignum, en sending hans fyrir
markið var ekki nægilega góð og
knötturinn rann framhjá fjærstöng-
inni. Þórður og Bibércic voru báðir
í góðu færi á markteignum. Hefðu
Skagamenn náð að skora þarna
Feyenoord - ÍA 3:0
Stadion Feyenoord, 1. umferð Evrópukeppni meistaraliða í knatt-
spyrnu, seinni leikur, miðvikudaginn 29. september 1993.
Mörk Feyenoord: Errol Refos (25.), Mike Obiku (60.), Regi Blin-
ker (79.)
Gult spjald: Mike Obiku (52.) fyrir brot - Sigursteinn Gíslason (11.)
fyrir að tefja í innkasti, Alexander Högnason (15.) fyrir brot.
Dómari: K. Burge frá Wales.
Línuverðir: S. Type og V. Reed, einnig frá Wales.
Áhorfendur: 24.500.
Feyenoord: Ed de Goey - Peter Bosz, John De Wolf, John Metgod,
Errol Refos (Henk Fraser 75.) - Arnold Scholten, Rob Maas, Rob
Witschge - Gaston Taument, Mike Obiku (John Van Loen 65.),
Regi Blinker.
ÍA: Kristján Finnbogason - Sturlaugur Haraldsson, Luka Kostic,
Ólafur Adolfsson, Sigursteinn Gíslason - Ólafur Þórðarson, Sigurður
Jónsson, Alexander Högnason, Haraldur Ingólfsson - Þórður Guð-
jónsson, Mihajlo Bibercic (Haraldur Hinriksson 85.).
Cees Kuiper Rotterdam
MÚlfurinn“ hafði betur
JOHN de Wolf eða „úlfurinn" sem jafnframt er fyrirliði Feyenoord hafði hér
betur í skallaeinviginu við Skagamanninn Sigurð Jónsson. Leikmenn Feyenoord
sýndu sínar bestu hliðar og sigur þeirra var verðskuldaður.
hefði staðan orðið 2:2 en þeir farið
áfram á marki skoruðu á útivelli,
hefði leikurinn endaði svona. En
svona þýðir auðvitað ekki að
hugsa...
Þriðja markið — rothöggið
Strax eftir þetta kom þriðja mark
heimamanna sem var rothöggið.
Kostic átti misheppnaða sendingu
út úr vörninni, knötturinn var gef-
inn strax fram á ný þar sem Blin-
ker skaust fram fyrir Kostic í teign-
um vinstra megin og þrumaði efst
í fjærhornið með vinstra færi. Stór-
kostlegt mark sem kórónaði stórleik
útheijans.
Það er einföld staðreynd að lið
Feyenoord er talsvert miklu sterk-
ara en lið íslandsmeistaranna og
því er það fullkomnlega eðlilegt að
það fari áfram í keppninni. Skaga-
menn sýndu á heimavelli að þegar
sjálfstraustið er í lagi getur allt
gerst, en þeir átti ekki möguleika
í gærvöldi. Hollendingarnir' tóku
SjáKstraustið vantaði
Okkur vantaði sjálfstraust.
Þeir byrjuðu með miklum
látum og strákarnir hefðu þurft
að svara tæklingunum af fullum
krafti strax, til að sýna að við
ætluðum að beijast við þá. Það
gerðist hins vegar ekki. Eftir að
þeir komust yfir skánaði þetta
hins vegar og strákarnir fóru að
spila af meiri krafti,“ sagði Guð-
jón Þórðar8on þjálfari IA eftir
leikinn í gærkvöldi.
„Ég hélt að það myndi hleypa
lífi í liðið þegar við fengum gott
færi í byijun; þegar Doddi [Þórð-
urj komst í gegn og sendi á Mikka;
þetta var vísbending um að við
gætum skorað, en þetta hleypti
ekki nægu lífí í menn. Það er að
vísu í raun ekki svo slæmt að
tapa 3:0 hérna, en ég hefði þó
viljað ná að skora eitt mark og
það átti að vera hægt.“
Mjög góöir
„Þeir eru með mjög gott lið;.
eru mjög fljótir, sterkir í loftinu
og halda boltanum vel,“ sagði
Lúkas Kostic, fyrirliði ÍA. Hann
sagðist viss um að annað markið
hefði komið eftir rangstöðu, en
úrslitin hefðu auðvitað verið sann-
gjöm „því þeir fengu fleiri færi
til að skora. Okkur vantaði sjálfs-
traust í þessum leik, en fengum
samt færi til að skora. Þegar Óli
Þórðar komst inn á teig vorum
við nálægt því; ef hann hefði náð
að senda á Dodda eða Mikka hefð-
um við getað komist í 2:1 og tíu
mínútur eftir! Ef við hefðum skor-
að hefði allt getað gerst...“
Erfitt
„Það sást í kvöld að Evrópuleik-
ir eru aldrei auðveldir nú til dags.
íslendingarnir eru mjög líkamlega
sterkir og við vissum að það yrði
mjög erfitt að leika gegn þeim,
eins og kom á daginn. En við viss-
um líka að við ættum að vinna á
heimaveili; við erum atvinnumenn
en þeir áhugamenn og lið eins og
Feyenoord á auðvitað að vinna
svona leiki,“ sagði van Hanegem,
annar þjálfara hollenska liðsins.
strax völdin á vellinum, héldu knett-
inum vel og biðu þess að draga
Skagamenn út úr varnarskelinni.
Það tókst og eftir að ísinn var brotT**
inn virtist augljóst hvert stefndi.
Lið ÍA lenti strax í vandræðum
með eldfljóta framheija hollenska
liðsins. Kristján Finnbogason lék
mjög vel í markinu hjá IA og kom
í veg fyrir stærra tap með því að
veija nokkrum sinnum mjög vel og
eins skutu Hollendingarnir nokkr-
um sinnum yfir eða famlijá úr
ákjósanlegum færum. Liðsheild IA
var langt í frá eins samstillt eins
og oft áður á keppnistímabilinu, en
þess ber að geta að fáir leikmanna
liðsins hafa leikið við aðstæður sem
þessar. Flestir virkuðu ragir, það
var eins og þeir tryðu því ekki sjálf-
ir að möguleikinn á hinu óvænta..
væri fyrir hendi
„Þeir eru rosalega fljótir og nýttu
hraðann miklu betur en í fyrri leikn-
um. Það var líka erfitt fyrir ökkur
að eiga við þ,á á miðjunni; það kom
mjög oft einn fram úr vörninnni til
að hjálpa til þannig að við urðum
oft einum færri þar. Það var því
mikið um hlaup hjá okkur, hálfgerð-
ur eltingaleikur,“ sagði Sigurður
Jónsson við Morgunblaðið eftir leik-
inn.
Á 8. mín. leiksins munaði
minnstu að ÍA skoraði. Þórður Guð-
jónsson brunaði eins og eldflaug
upp vinstri kantinn, lék inn á teig
og sendi fyrir markið þar sem Bi-
bercic var alveg við þáð að skora,
en markvörðurinn var sekúndubroti
á undan honum í knöttinn og náði
að bjarga. Þar var heppnin með
Feyenoord, en hún átti eftir að vera
á bandi Akurnesinga í svipuðum
atvikum hinum megin. Sjálfstraust-
ið skein af Hollendingunum og fýr-
irliðinn De Wolf, „Úlfurinn“ sterki
í vörn Feyenoord, reyndist sannspár
er hann sagði í samtali við Morgun-
blaðið fyrr í vikunni að lið hans
væri einfaldlega allt of sterkt fyrir
íslandsmeistarana.
ÍÞRÓMR
FOLX
■ ARNAR Gunnlaugsson hefur
líklega verið mjög feginn að Fey-
enoord fór áfram, í tvennum skiln-
ingi. Hann og félagar eiga auðvitað
von á talsverðum peningum með
frekari þátttöku, og eins hafði hann
lofað því í viðtali í einu hollenskú
blaðanna fyrir leikinn að láta raka
allt hár af höfði sínu ef Akurnes-
ingar kæmust áfram! Arnar er síð-
hærður mjög þessa dagana, og
hefði örugglega séð eftir lubban-
um...
■ HARALDUR Sturlaugsson
fyrrum formaður Knattspyrnur-
áðs íA og faðir þeirra bakvarðarins
Sturlaugs og Pálma, sem var á
bekknum, er í fararstjórahóp 1A og
var á varamannabekknum í gær-
kvöldi. Hann var að koma á leik-
vang Feyenoord í fyrsta skipti 'í
23 ára; hann lék þar Evrópuleik
með ÍA gegn Spörtu árið 1970.
■ LEIKURINN í gærkvöldi var
sá fjót'ði sem Akurnesingar tapa
á keppnistímabilinu; þeir lágu gegn
Bröndby á æfingamóti í Dan-
mörku í vor, töpuðu svo gegn Vals-
mönnum í Meistarakeppni KSÍ,
gegn Fram á Laugardalsvelli í
1. deildinni og loks í gær.