Morgunblaðið - 30.09.1993, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 30.09.1993, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1993 Áhyggjur af HM á íslandi — vegna sjónvarpsmála. íslenska framkvaemdanefndin segistfullnægja öllum kröfum, en málið strandi á rétthafa MIKIL óvissa ríkir um sjónvarpsútsendingar frá fyrirhugaðri heimsmeistarakeppni íhandknattleik á íslandi 1995. Alþjóða handknattleikssambandið, IHF, seldi einkaréttinn til sviss- neska fyrirtækisins CWL, sem segir að málið komi sér ekki við heldur sé íhöndum IHF. Hins vegar segir IHFað íslenska framkvæmdanefnd mótsins eigi að vera búin að tryggja um- sjón með sjónvarpsútsendingum fyrir 30. september, sem er í dag, en framkvæmdanefndin segir að CWL beri ábyrgðina á sjónvarpsútsendingunum enda hafi nefndin ekkert haft með samning IHF og CWL að gera. Rfkissjónvarpið segist ekki hafa peninga til að annast þjónustuna og Stöð 2 telur sig ekki geta tekið verkið að sér að öllu óbreyttu. Náist ekki samn- ingur við RÚV óttast stofnunin að keppnin verði tekin frá íslend- ingum. Framkvæmdanefndin segir að samþykkt þings IHF um að halda keppnina á íslandi standi, en hefur áhyggjur af sjón- varpsmálinu og hvetur CWLtil að semja við ísienska sjónvarps- stöð áður en skrifað verður undir samninginn um keppnina við IHF í nóvember. Frá því undirbúningur hófst fyrir nokkrum árum vegna um- sóknarinnar um að halda keppnina hefur Handknattleikssamband Ís- lands gengið út frá samvinnu við RÚV í sambandi við beinar sjón- varpsútsendingar. Ingólfur Hann- esson, íþróttastjóri RUV, og Eyjólf- ur Valdimars'son, framkvæmda- stjóri tæknideildar, tóku fyrir sex mánuðum saman skýrslu um for- sendur fyrir þátttöku RÚV í út- sendingum í útvarpi og sjónvarpi frá fyrirhugaðri HM-keppni 1995. Þar kemur fram að viðræður um hugsanlegt samstarf hafi átt sér stað, en þeir hafi margítrekað að RÚV hafi hvergi skuldbundið sig til að hafa umsjón með sendingum. RÚV er í Evrópusambandi sjón- varpsstöðva, EBU, en samstarf innan EBU byggir á gagnkvæmum skiptum á efni og þjónustu, sé um EBU-samning að ræða. Slíkur samningur liggur ekki fyrir á milli IHF og EBU og segir í fyrrnefndri skýrslu „að ef EBU og IHF ná ekki samkomulagi má segja að móralskar skuldbindingar okkar séu ekki lengur til staðar. Ef RÚV annast ekki þjónustuna er öruggt að ekkert verður af mótshaldi hér- lendis.“ EBU ekki í myndinni Wilfried Verlinde, deildarstjóri íþróttadeildar EBU, staðfesti við Morgunblaðið að EBU hefði reynt að fá sjónvarpsréttinn, en IHF hefði valið að semja við svissneska fyrir- tækið og ætti EBU því engan hlut að máli. CWL hefði valið þann kost að semja beint við einstakar sjón- varpsstöðvar og framselja þeim réttinn, en það hlyti líka að þurfa að semja við væntanlegan umsjóna- raðila. I fyrrnefndri skýrslu kemur fram að RÚV getur annast þá þjónustu, sem þarf, en hún komi til með að kosta mikið og verði auk þess frek á mannafla og tæki. Miðað við ámóta þjónustu og sænska sjón- varpið veitti á HM s.l. vetur, m.a. sjónvarpsútsendingar frá fjórum stöðum í einu, er lágmarkskostnað- ur áætlaður 75 til 95 milljónir, en í Ijósi bágrar fjárhagsstöðu stofnunarinnar hafi hún ekki bol- magn til að leggja út í slíkan kostn- að. Til að svo megi verða er bent á að tímabundin hækkun afnota- gjalda um 90 krónur frá og með 1. janúar n.k. gæti brúað bilið og eins sé sjálfsagt að leita eftir stuðn- ingi EBU. Verlinde sagði slíkan stuðning ekki koma til greina enda væri EBU ekki með samning vegna keppninnar. Ótrúlegur sofandaháttur I skýrslu Ingólfs og Eyjólfs seg- ir að heildarkostnaður sænska sjón- varpsins venga keppninnar þar í landi hafi verið áætlaður um 30,5 millj. kr. og þar gert ráð fyrir bein- um útsendingum frá öllum keppnis- stöðum, en þess getið að tæknibún- aður hafi að mestu verið fyrir hendi: Ingólfur sagði við Morgun- blaðið að ef dregið yrði úr kröfum og til dæmis aðeins sýnt frá tveim- ur stöðum samtímis yrði kostnaður- inn 35 til 45 milljónir, en heildar- tekjur á bilinu 6-10 milljónir. RÚV hefði ekki verið beðið að taka um- sjónina að sér og væri vægast sagt furðulegt hvernig IHF og CWL hefðu komið fram gagnvart EBU. „Aðalatriðið er að þessir aðilar hafa ekkert aðhafst í málinu og eru að brenna inni á tíma,“ sagði Ingólfur. „Það er allt í lausu lofti og þessi ótrúlegi sofandaháttur getur leitt til þess að keppnin verði tekin af íslandi." Heimir Karlsson, yfirmaður íþróttadeildar Stöðvar 2, sagði að miðað við þær kröfur, sem hefðu verið gerðar á sambærilegum mót- um, gæti fyrirtækið ekki sinnt umsjóninni að öllu óbreyttu. Hins vegar væri furðulegt að handknatt- leiksforystan hefði ekki haft sam- band vegna þessa máls og því hefði það ekki verið skoðað ofan í kjölinn. HM 95 hveturtil samninga Framkvæmdanefnd HM 95 kom saman á þriðjudagskvöldið vegna þessa máls. Magnús Oddsson, for- maður nefndarinnar, sagði við Morgunblaðið eftir fundinn að tæknilega séð væri ekkert því til fyrirstöðu að sjónvarpa beint frá fyrirhuguðum leikstöðum og yrði staðfesting á því send IHF fyrir umbeðinn tíma, sem er í dag. Hins vegar bæri CWL að tryggja sjón- varpssendingar héðan enda ekki hægt að gera þriðja_ aðila ábyrgan og það hefði gert RÚV tilboð í júní s.l., sem hefði verið óaðgengilegt að mati stofnunarinnar. Nefndin hefði af því áhyggjur að svissneska fyrirtækið hefði ekki gengið frá samningum í sambandi við sjón- varpsútsendingar héðan, en Mn væri ekki samningsaðili að málinu og gæti því aðeins hvatt til að geng- ið yrði til samninga og kæmi til með að gera það formlega. Fresturinn að renna út Klaus Anders, einn af markaðs- stjórum CWL, sagði við Morgun- blaðið að fyrirtækið ætti réttinn, en útsendingar kæmu því ekki við, það væri mál, sem IHF yrði að semja um _við framkvæmdanefnd mótsins á íslandi. Frank Birkenfeld, skrifstofu- stjóri IHF, sagði við Morgunblaðið á þriðjudaginn að svissneska fyrir- tækið hefði keypt réttinn og ábyrgð þess væri falin í því að framselja hann til annarra stöðva. Hand- knattleikssamband íslands hefði tekið að sér að sjá um keppnina og í því fælist m.a. að bera ábyrgð á umsjón með sjónvarpssendingum frá íslandi, en það hefði frest til 30. - september til að ganga frá málinu, eða til dagsins í dag. Ef samningur lægi ekki á borðinu á tilsettum tíma yrði IHF að gerav nauðsynlegar ráðstafanir. Að- spurður um hvort þa_ð þýddi að keppnin yrði tekin af íslendingum sagði hann: „Nei, ég held ekki og ég vona ekki.“ UTSALAN HEFST í FYRRAMÁLIÐ KL. 10:00 Kristinn R. þjálfari Hauka Kristinn R. Jónsson, miðvallar- spilari og fyrirliði Fram, hef- ur verið ráðinn þjálfari 3. deildar- liðs Hauka frá Hafnarfirði. Krist- inn Rúnar, sem er 28 ára, hefur verið lykilmaður Framliðsins und- anfarin ár og fagnað mörgum titl- um með félaginu. Hann hefur leik- ið tíu landsleiki. Kristinn R. Jónsson. GALLABUXUR FRÁ KR. 2.500, BOLIR FRÁ KR. 890, JAKKAR FRÁ KR. 3.500, SKYRTUR FRÁ KR. 1.900, PEYSUR FRÁ KR. 2.500, SKÓR - STRIGASKÓR LEVI’S BÚÐIN - LAUGAVEGI 37 - S. 618777 Guðjón og Pétur í bann Guðjón Árnason, fyrirliði FH, og Pétur Petersen voru úrskurðaðir í eins leiks bann af aganefnd HSÍ, en þeir fengu að sjá rauða spjaldið í leik FH gegn Selfossi í 1. umferð 1. deildarkeppninnar. Fengu fyrir það fimm refsistig, en fimm stig þýðir eins leiks bann. Þeir félagar leika því ekki með FH gegn Haukum í Iþróttahúsinu að Strandgötu kl. 2Ó í kvöld. Þjálfarar Þjálfarar óskast fyrir unglingaflokka handknattleiksdeildar Breiðabliks, bæði drengja og stúlkna. Uppl. í símum 45461,641308 og 643397. HANDKNATTLEIKUR / HEIMSMEISTARAKEPPNIN 1995 HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KNATTSPYRNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.