Morgunblaðið - 30.09.1993, Page 21
MORGIJ.NBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FIMMTUÐAGUR 30. SEPTEMBER 1993
21
E-vítamín
minnkar líkur
á hjartasjúkdómum
NIÐURSTÖÐUR úr nýjum banda-
rískum rannsóknum gefa tilefni
til að ætla að E-vítamín dragi úr
líkum á hjartasjúkdómum.
Greint er frá rannsókninni í New
England Journal of Medicine, en í
bandaríska heilsuritinu Prevention
er rætt við bandaríska hjartasér-
fræðinginn Meir Stampfer um rann-
sóknina.
127 þúsund manns tóku þátt í
henni og tók helmingur hópsins E-
vítamín inn daglega í tvö ár. Að
þeim tíma liðnum þótti sýnt að 40%
minni líkur væru á að E-vítamín-
æturnar fengju hjartaáfall.
Sumir sérfræðingar hafa velt fyr-
Þó vítamín geti haft góð áhrif,
er óráðlegt að taka of stóra
skammta af þeim
ir sér þeim hugmyndum að E-vít-
amín hafi góð áhrif á blóðfitu, en
ekki hafa verið birtar niðurstöður
þess efnis. Meir Stampfer ráðleggur
fölki að taka ekki inn stóra skammta
af vítamíni, því 200-800 alþjóðaein-
ingar séu hæfilegur dagskammtur.
Eigenda-
skipti á Búrfelli
MATVÖRUVERSLUNIN Búrfell,
sem rekin hefur verið í 27 ár á
Húsavík, skipti um eigendur hinn
1. þessa mánaðar.
Hjónin Sólrún Hansdóttir og Sig-
urður Friðriksson, sem rekið hafa
verzlunina undanfarin níu ár hafa
nú selt hana hjónunum Jóhönnu
Björnsdóttur og Frímanni Sveinssyni
matreiðslumeistara, sem hugsa sér
að reka hana fyrst um sinn í sama
formi og verið hefur, þótt síðarmeir
geri þau einhveijar breytingar.
í bænum eru þrjár matvöruversl-
anir, allar við Garðarsbraut, í stór-
markaðirnir K.Þ. fyrir norðan og
Þingey fyrir sunnan, og svo verslun-
in á horninu í Búrfelli. §§
- Fréttaritari.
Nýjar matreiðslubækur
um sósur, pönnu- og eggjakökur
MATAR- OG VINKLUBBUR AB
hefur gefið út tvær nýjar mat-
reiðslubækur Sósur og Pönnu-
kökur - Eggjakökur. Bækurnar
eru um 120 blaðsíður hvor og
prýddar litmyndum af hverjum
rétti.
I bókinni um sósur segir í for-
mála „... tilraun til að einfalda sósu-
gerð og eyða nokkru af þeim leynd-
ardómshjúp, sem jafnvel hefur
umlukið undirstöðuatriðin. Sósan á
að bæta bragð og útlit margra mis-
munandi rétta, hvort heldur þeir
eru sterkir, sætir, kryddaðir eða
beiskir."
Hér fer á eftir uppskrift úr bók-
inni:
RABARBARA - BERJASÓSA
250 g rabarbari
250 g afhýdd jarðarber
1 25 g sykur
Safi úr einni sítrónu
1 tsk. fínt rifinn sítrónubörkur
Skerið rabarbarann í 5 cm bita.
Sjóðið í vatni við miðiungshita í 10
mínútur eða þar til hann er meyr.
Sigtið og hendið soðinu.
Geymið nokkur jarðarber til að
skreyta með. Látið öll innihaldsefn-
in í matvinnsluvél og maukið.
Pressið gegnum fínt sigti, hendið
PONNUKOKUR
EGGJ4ÍÖKUR
fræjum og strengjum úr rabarbar-
anum. Lokið og kælið fyrir notkun.
Hellið í sósuskál og skreytið með
jarðarbeijasneiðum. Berið fram kalt
með ijómaís eða pönnukökum.
Magn 2'h di
Þessi sósa ætti að bragðast vel
með einhverri pönnukökuuppskrift-
inni í bókinni Pönnukökur - eggja-
kökur. Þar segir að hægt sé að
bjóða upp á kökurnar við ýmsár
máltíðir dagsins, því fyllingar og
bragðefni geti verið af einföldustu
gerð allt til þess að vera afar marg-
brotnar, sætar eða ósætar.
I báðum bókunum eru gefnar
auðskiljanlegar leiðbeiningar, skref
fyrir skref. ®
UTSALA
Flísabúðarinnar
á Dverghöfða 27
Allir afgangar eiga að seljast
Einnig er um að ræða sértilboð á nokkrum gerðum af flísum,
t.d. gólfflísar.áður kr. 2.576, nú kr. 1.890
wm
mm
Stórhöfða 17 við Gullinbrú, sími 67 48 44
TDLBOÐ
VIKUNNAR
FRÓNMABIE
SÍIKKULAÐIKEX
í
ÁÐUR
89,-
—
BUrTONlSPXGHETTI
2 P AKKAR FYKIR1
'■* pr. 2 pakka
góðurkostur
nautahakk
Aður|
1 ^"^pr.kg 695,-
15ÍLLU
xxVrrLAUKSBKALIÐ
FÍN OG GllÓF
ÁÐUR
179,
JONAGOLDEPLl
HOLLAND
pr
Vg
HAGKAUP
- allt í einni ferö