Morgunblaðið - 30.09.1993, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1993
25
Reuter
Myndasaga um Hitler
ÞJÓÐVERJAR hafa gefið út teiknimyndabók um hvernig Adolf Hitler
komst til valda og fall hans. Myndasagan er ætluð skólabörnum og er
í henni leitast við að útskýra uppgang nasismans, þátt Hitlers í honum
og hvers vegna atburðarásin á þriðja og fjórða tug aldarinnar geti
endurtekið sig.
Skæð inflúensa í
Bandar íkj unum
Florída. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morg’unbladsins.
BANDARÍSKIR vísindamenn segja, að inflúensa þessa árs sé
af A-stofni sem kenndur er við Peking. Venjulega hefst inflú-
ensutímabiiið ekki fyrr en um miðjan desember og stendur fram
í apríl, en nú varð illþyrmilegrar flensu af þessum stofni vart
í ágúst, aðallega í Louisiana.
Biðlistar á sjúkrahúsum í Danmörku
Læknar sinna
pappírunum en
ekki sjúklingum
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíösdóttur, fréttaritara Morgunblaösins.
BIÐLISTÁR danskra sjúkrahúsa stafa ekki eingöngu af fjárskorti,
heldur einnig af óhentugu skipulagi. Læknarnir nýtast ekki sem
skyldi við lækningar, af því tími þeirra fer í stjórnun og pappírs-
vinnu og sama er um hjúkrunarfólk, segir Palle Juul-Jensen yfirmað-
ur heilbrigðisstjórnarinnar í viðtali við dagblaðið Det Fri Aktuelt
Ýmsir aðrir innan heilbrigðiskerfisins taka undir álit hans. Óhent-
ugt skipuiag felst meðal annars í stífri verkaskiptingu faghópa á
spítölum, sem stéttarfélög hafa komið upp.
Palle Juul-Jensen segir að engum
sé í raun ljóst hversu miklum tíma
læknar vetji í stjórnun og hversu
litlum í sjúklinga. Það sé skrítið til
þess að hugsa að læknar fái dýra
og tímafreka menntun til að stunda
lækningar, rannsóknir og kenna,
en síðaii fari mestur tíminn í papp-
írsvinnu ogþeir fari jafnvel á stjórn-
unarnámskeið í verslunarháskólun-
um. Bæði læknar og hjúkrunarfólk
veiji æ meiri tíma í störf, sem þau
séu ekki menntuð til, ekki síst yfir-
læknar og yfirhjúkrunarfólk. Poul
Riis prófessor og yfirlæknir tekur
undir þessa skoðun og segir að ef
hann sjálfur tæki ekki pappírs-
vinnuna heim og ynni hana á kvöld-
in, þyrfti hann að hætta að ganga
stofugang og um leið missti hann
hinn mannlega þátt í starfinu.
Til dæmis um þann tíma sem fer
í sjúklinga má nefna að í danskri
rannsókn frá 1991, sem gerð var á
geðdeild nokkurri, kom í ljós að
allir starfsmannahópar notuðu
minna en fjórðung vinnutíma síns
í að sinna sjúklingunum. Læknarnir
voru að meðaltali með sjúklingun-
um 5,7 mínútur vikulega. Palle Ju-
ul-Jensen segir að ekki þurfi að
hafa mörg orð um að læknar geti
ekki afrekað mikið á svo stuttum
tíma og eitthvað mikið hljóti að
vera að, en samt bregðist enginn
við. Hann segist ekki vilja skera
úr um hvort orsökin sé peninga-
skortur, samningamál eða skipulag,
en eitthvað þurfi að gera. Best
væri að frumkvæðið kæmi frá
starfsfólkinu á hvetjum stað, en
ekki frá sérskipaðri nefnd.
Framtíðarverkefni: Breytt
vinnutilhögun á sjúkrahúsum
Anita Alban heilsuhagfræðingur
segir að einkasjúkrahús veiti hinum
opinberu viðmiðun, sem verfsé að
huga að. Styrkur einkasjúkrahús-
anna liggi í að þar taki bestu og
reyndustu læknarnir á móti sjúk-
lingunum og fylgi þeim eftir, svo
sjúkdómsgreiningin gangi fljótt fyr-
ir sig, en á opinberu sjúkrahúsunurn
séu það oft aðstoðarlæknar með
litla starfsreynslu. Hins vegar liggi
styrkur opinberu sjúkrahúsanna í
hve mikil og margvísleg kunnátta
og tækni sé fyrir hendi þar. Vegna
sparnaðarkrafna geti mörg af opin-
beru sjúkrahúsunum ekki aukið af-
köstin frekar en orðið sé, svo lausn-
in geti legið í breyttu vinnuskipu-
lagi. Verkaskiptinguna, sem stétt-
arfélög hafi byggt upp undanfarin
ár og áratugi, verði að rífa niður.
I stað þess að einstakir hópar
starfsfólks gefi skipanir, ætti það
að vinna saman í blönduðum hóp-
um. Þannig verði líka hægt að kom-
ast hjá því að hver sjúklingur sjái
herskara lækna, en hafi ekki fast
samband við neinn þeirra.
Sýnishorn úr söluskrá: Bílar við allra hæfi
^s^Íiggg
MMC Lancer GLXi 4x4 '91, hlaðbakur hvftur, ekinn 49 þ. km. Verð 1150 þús. stgr.
Toyota Extra Cab, '89 blá- sans, ekinn 66 þús. km. Verð 1100 þús., sk. á ódýr- ari fólksbíl. VSK bfll.
Daihatsu Charade CX '87 grásans, ekinn 86 þ. km. Verð 280 þús.
Saab 9000 CS '92, rauður, ekinn 18 þ. km., álfelgur, sumar/vetrardekk, cruise control, central læs. Verð 1900 þús., sk, á ódyrari.
MMC Lancer station 4x4 '88, rauðúrekinn 106 þ. km. Verð 750 þús.
Toyota Hiace 4x4 '91, bensín, blár, ekinn 24 þ. km. Verð 1500 þús., vsk bíll.
Mikil sala - vantar allar gerðir bifreiða á skrá og á staðinn.
BÍLASALAN
BÍLDSHÖFDA 3 S.670333
I
Talsmenn bándarísku sjúkdóms-
greiningarstöðvarinnar í Atlanta
segja að Peking-inflúensa leggist
verr á eldra fólk en ungt. Þessi
flensutegund hefur einnig orsakað
sjúkrahúsvist og dauða fleiri sjúkl-
inga en aðrar tegundir inflúensu.
Árlega látast um 10 þúsund
Bandaríkjamenn af völdum inflú-
ensu og sjúkdóma sem hún hefur
áhrif á. í verstu árum hafa um og
yfir 40 þúsund manns látið lífið af
völdum sjúkdómsins. Ungt fólk er
vel móttækilegt fyrir inflúensu, en
80-90% dauðsfalla verða meðal
þeirra sem komnir eru yfir 65 ára
aldur.
Bólusetning er ráðlögð öllum
þeim sem sjúkir eru eða veikir fyr-
ir. Bólusetning fyrri ára er alveg
gagnslaus á þessu ári. Árangursrík-
ast þykir að bólusetning fari fram
1-2 mánuðum fyrir aðaltímabil
inflúensunnar ár hvert eða frá miðj-
um október fram í miðjan nóvember
en bólusetning er þegar fáanleg í
Bandaríkjunum.
Bandaríkin
Hagvöxt-
ur eykst
HAGVÖXTUR í Bandaríkjunum
á öðrum ársfjórðungi reyndist
hærri en talið var í síðasta mán-
uði, þar sem neysla var meiri en
reiknað var með.
í yfirlýsingu bandaríska við-
skiptaráðuneytisins segir að hag-
vöxtur hafi reynst 1,9% en ekki
1,8%, eins og talið var í síðasta
mánuði.
m.,.
frá mufjum deptember
þú velur iun 2 eda 2 nætnr
Tilboð fyrir hópa:
2.000 kr. afsláttur
á mann ef í
hópnum eru 15
manns eöa fleiri.
40.000 kr.
spamaöur fyrir 20
manna hóp.
í Lúxemborg
bjóóum við
gistingu í
eftirtöldum
gæöahótelum:
Italia Sari,
Delta, Puliman,
Sheraton
Aerogolf, Ibiz
og Le Roi
Dagobert.
Verslunargötur, verslunarmiöstöðvar,
„Kaktusinn", hagstæö innkaup. Góðir
veitingastaðir, frábær matur, kaffihús, vínstoffir, skemmtistaðir,
heillandi umhveffi, rómantík liðinna alda. Örstutt til
vínræktarhéraða við Mosel, skemmtigarðar, útvistarsvæði,
hlýlegar sveitir. Hjarta Evrópu.
a rnanmnn i
tvíbýli í 2 nœtur og
3 daga á Hotel
Italia Sari.**
Veittur er 5% staðgreiðsluafcláttur*
Brottfarir á fimmtu-, föstu- og laugardögum.
Heimflug á sunnu-, mánu- og þriðjudögum.
*M.v að greitt sé með minnst 14 daga fyrirvara. Innifalið er flug, giscing, morgunverður og
flugvallarskactar. Börn, 2ja - 11 ára, fa 10.500 kr. í aislátt. Börn að 2ja ára aldri greiða 3.000 kr.
Enginn bókunarfyrirvari.
Forfallagjald, 1.200 kr., er ekki innifalið í verði. Forfallagjíúd er valfrjálst en Flugleiðir hvetja
farþega til að greiða það til að firra sig óþarfa áhættu. *■■■! qaTLASP
**Verð miðast við gengi 6. ágúst 1993. eurocahd.
Hafðu samband við söluskrifetofur okkar, umboðsmenn
um allt land, ferðaskrifstofumar eða í síma 690300
(svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8 -18.)
FLUGLEIDIR
Traustu r íslenskur ferðafélagi