Morgunblaðið - 30.09.1993, Page 18

Morgunblaðið - 30.09.1993, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1993 Morgunblaðið/Golli Sýningin skoðuð NEMENDUR úr Gagnfræðaskólanum á Akureyri heimsóttu Listasafnið á Akureyri nýlega og skoðuðu sýningu sem þar stendur yfir og nutu leiðsagnar Haraldar Inga Haraldssonar forstöðumanns. Sýning Listasafnsins framlengd OPNUNARSÝNING Listasafnsins á Akureyri hefur verið fram- lengd til 10. október næstkomandi, m.a. til að gefa nemendum skólanna kost á að skoða sýninguna. Haraldur Ingi Haraldsson for- stöðumaður Listasafnsins á Akur- eyri sagði að aðsókn á safnið hefði verið afar góð og í raun mun betri en hann hefði átt von á. Safnið var opnað í lok ágúst í tengslum við afmæli Akureyrarbæjar og hefur Fyrirlesturinn fjallar um sorgina, sorgarviðbrögð og ýmsar tegundir af missi, s.s. vegna atvinnu eða aðsókn að sýningunni verið jöfn og góð frá þeim tima. Nemendur skoða Nýlega komu nemendur úr Gagn- fræðaskólanum á Akureyri og skoð- uðu sýningu safnsins og nutu leið- skilnaðar. Þá verður fjallað um úr- vinnslu sorgar og aðlögun og vinnu með streitu og loks um huggun. sagnar Haraldar Inga, en heim- sóknin var liður í myndmenntar- námi þeirra. Framlenging sýningar- innar er m.a. til komin til að gafa nemendum skólanna kost á að koma og skoða safnið og sýninguna. Á sýningunni eru m.a. verk í eigu Akureyrarbæjar frá ýmsum tímum sem og nýrri verk eftir akureyska sem og brottflutta eyfirska lista- menn. «F oreldrafélag Gagnfræðaskól- ans á Akureyri efnir til fundar um vímuefnaneyslu unglinga á sal skól- ans í kvöld, fimmtudagskvöldið 30. september kl. 20.30. Sigrún Magn- úsdóttir félagsráðgjafi og Páll Bier- ing hjúkrunarfræðingur kynna með- ferðarheimili Unglingaheimilis ríkisins á Tindum og flytja erindi sem nefnist: Unglingar í vímuefnaneyslu og viðbrögð foreldra. Fyrirlestur um missi BJORG Bjarnadóttir, sálfræðifulltrúi Fræðsluskrifstofu Norðurlands vestra á Blönduósi, heldur fyrirlestur hjá Samtökum um sorg og sorgarviðbrögð í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju í kvöld, fimmtu- dagskvöld kl. 20.30. Gunnlaugur Konráðsson hrefnuveiðimaður Tilbúinn að láta stinga mér í stein- inn fyrir málstaðinn „ÉG ER orðinn yfir mig þreytt- ur á þessu og fer líklega fljót- lega að veiða mér í matinn. Það er ekki hægt að láta bjóða sér það Iengur að mega ekki veiða í kjaftinn á sér án þess að spyija einhverja bjána úti í heimi um leyfi,“ segir Gunn- laugur Konráðsson, fyrrver-' andi hrefnuveiðimaður á Ár- skógssandi, en hann segir óhemjumagn af hrefnu í sjón- um og þær séu vaðandi inn allan fjörð. Gunnlaugur segir að svo virðist sem stofninn hafi þanist út „bara eins bg hafi orðið sprenging, það er sama hvert farið er, það eru alls staðar hópar af hrefnum". Hann segist vita til þess að trill- usjómenn hafi nýlega flúið í land vegna ágangs frá hrefnunum, þeir séu á litlum bátum og eitt sporðakast geti hæglega brotið slíka báta í spón. Taldi 30 hrefnur Gunnlaugur segir að ekki þurfí að sigla langt út á fjörðinn til að sjá hrefnur í hópum. Einn daginn taldi hann um 30 hrefnur frá því hann sigldi frá nyrðri enda Hrís- eyjar og að Látrum, en það sé ekki nema brot af því sem í sjón- um er. Hann segir ekki spursmál að þessi fjöldi fari að hafa áhrif á lífríkið í sjónum, til dæmis éti ein hrefna um 400 kíló af fiski á dag. Stofnarnir stækki og lifi óhjákvæmilega á því sem við Is- lendingar séum að veiða þannig að sífellt verði minna eftir handa okkur. Hrefnurnar séu skæðar, þær fari grunnt og éti mikið af seiðum. „Það eru ekki til verri vargar í seiðaátinu en hrefnurn- ar, þær komast nánast upp í fjöru Morgunblaðið/Rúnar Þór Til í slaginn GUNNLAUGUR Konráðsson með hrefnuskutul, en fremst á skutlinum er granatsprengja sem að hans sögn drepur dýrið tafarlaust. Gunnlaugur telur að senn muni aukast að sjó- menn veiði hrefnur „óvart“. og alls staðar þar sem seiðin eru.“ Á síðustu árum hefur aflakvóti Gunnlaugs farið síminnkandi, var rúm 130 tonn fyrir tveimur árum, um 100 tonn í fyrra og nú er hann kominn niður í 75 tonn. „Það eru grundvallarmannrétt- indi að fá að lifa, það er ekki hægt að láta bjóða sér þetta leng- ur,“ segir hann og bætir við að það myndi ekki koma sér á óvart þó að hrefnur færu að veiðast „óvart“ í auknum mæli á næst- unni. „Ég er tilbúinn að láta stinga mér í steininn upp á vatn og brauð fyrir þennan málstað." Schiesser® N Æ R F Ö T Það besta næst pér! AMARO AKUREYRI SKEMMTANIR ■ STJÓRNIN kveður Hafnarbúa um helgina en hún leikur föstudags- og Iaugardagskvöld á Höfn. Á föstudegin- um leikur hljómsveitin í Sindrabæ en á laugardagskvöldinu á Hótel Höfn. ■ BAROKK Um helgina föstudags- og laugardagskvöld leikur J.J. Soul fyrir gesti Barokks. Aðgangur er ókeypis. H HRESSÓ. Hljómsveitirnar Kol- rassa krókríðandi, Texas Jesús og Melissa halda tónleika í kvöld, fimmtu- daginn 30. sept. Hljómsveitirnar hafa æft vel undanfarið og í kvöld leika þær eldra efni í bland við nýtt. Tónleikarnir hefjast kl. 22. ■ VINIR VORS OG BLÓMA koma fram á Gauki á Stöng í kvöld, fimmtu- dagskvöld. Hljómsveitin mun leika frumsamin lög og einnig lög eftir aðra. Hljómsveitin verður einnig á Gauknum föstudagskvöld en á laugardagskvöld- inu leika þeir með Rokkabillybandi Reykjavíkur í Þotunni í Keflavík. ■ TVEIR VINIR. í kvöld verða Út- gáfutónleikar Spor þar sem fram koma hljómsveitirnar Dos Pilas og Bone China. Föstudagskvöldið leikur svo hljómsveitin Todmobile og á laug- ardagskvöidinu kemur fram hljómsveit- in Páll Óskar Hjálmtýsson og Millj- ónamæringjarnir. ■ BORGARDÆTUR leikur á skemmtistaðnum Can Cun á Lauga- vegi í kvöld, fimmtudagskvöld. Borgar- dætur eru þær Ellen Kristjánsdóttir, Berglin Björk Jónasdóttir og Andrea Gylfadóttir. Borgardætur munu leika vítt og breytt um borgina á fimmtu- dagskvöldum í vetur. ■ PLÚSINN. Svokallað Nautnakvöld verður haldið á Plúsnum við Vitastíg á laugardagskvöld. Þar munu staðarhald- arar bjóða upp á flatbökur frá Pizza 67 og öl. Hljómsveitin Sniglabandið mun skemmta gestum um kvöldið og einnig verður boðið upp á önnur dag- skráratriði. Dauða & kántrý dúettinn Blóðmör tekur lagið og svetflutríóið Sjarmör sveiflar fólki. Trúbadorarnir Panik & Einar taka einnig lagið. ■ TODMOBILE leikur föstudags- kvöldið 1. okt. á Tveimur vinum. Laugardagskvöldið 2. okt. leikur sveitin á árlegu réttarballi í félagsheimilinu Njálsbúð, Vestur Landeyjum. Hljóm- sveitin mun halda áfram að spila fyrir landann allt fram að áramótum en þá mun hún taka sér iangt frí frá störfum. ■ L.A. CAFÉ. í kvöld, fimmtudaginn 30. okt., skemmtir hljómsveitin Keltar. Hljómsveitin er hópur tónlistarmanna sem leikur keltnesk (írsk og skosk) þjóðlög með hefðbundinni hljóðfæra- skipan. Kelta skipa þeir Eggert Páls- son mandóla, banjó og trommur, Sean Bradley frá Dublin sem leikur á fiðlu, Guðni Franzson, flautur og Einar Kr. Einarsson gítarleikari. L.A. Café opnar kl. 18 fyrir matargesti en Keltar hefja leik sinn kl. 22.30. I DANSBARINN. Fimmtudags- og sunnudagskvöld er Opinn míkrafónn þar sem gestir hússins geta troðið upp með ljóð, brandara, söng o.fl. Trúbador- inn Éinar Jónsson aðstoðar gesti og leikur einnig lög úr ýmsum áttum til kl. 1. Föstudags- og laugardagskvöld leikur hljómsveitin Þorvaldur Hall- dórs og Gunni Tryggva. ■ NÝDÖNSK heldur áfram haustyf- irreið sinni næstu helgi og verður á Norðurlandi. Sveitin leikur á skóla- balli fyrir Verkmenntaskólann í kvöld, fimmtudag og á sameiginlegu skóla- balli Framhaldsskólans á Húsavík og Laugum föstudaginn 1. okt. Sá dans- leikur er einnig opinn almenningi. Þá verður spilað í Sjallanum á Akureyri laugardagskvöldið. Hluti dansleikj- anna verður tekin upp á nýjan videó- búnað. Hljómsveitin leikur efni af vænt- anlegri hljómplötu ásamt eldri lögum. ■ ISLENSKA BLÚSFÉLAGIÐ stendur fyrir videókvöldið á Plúsnum í kvöld, fimmtudag. Þar verða sýnd myndbönd með Muddy Waters Band og Steve Ray Vaughan and double trouble, Live at the E1 Mocambo. Sýningin hefst kl. 21.15. Aðgangur er 300 kr. ■ HÓTEL EDDA, Kirkjubæjar- klaustri. Dansleikur verður haldinn laugardagskvöldið 2. okt. kl. 23-3. Hljómsveitin Mannakorn leikur fyrir dansi. Veitingasalurinn er opinn frá kl. 19-22.30. Aldurstakmark er 20 ár. ■ BUBBI MORTHENS leggur upp í tónleikaferð um landið og hefur leik- inn föstudagskvöld 1. okt. í Hótel Borgarnesi. Laugardaginn 2. okt. fer hann norður í land og heldur tónleika í bíóinu á Dalvik. Sunnud. 3. okt. verða tónleikar í Leikhúsinu á Akur- eyri, þriðjud. 5. okt. Bifröst, Sauðár- króki og miðvikud. 6. okt. leikur Bubbi í Félagsheimilinu Vopnafirði. Bubbi kemur fram einn með kassagítar og kynnir lög af væntanlegri plötu sinni Lífið er ljúft sem kemur út á næstunni. ■ ÖRKIN HANS NÓA heldur uppi fjörinu fyrir alla féiaga í S.Á.Á. laugar- dagskvöldið 2. okt. í Úlfaldanum, Ármúla 17. Félagar í AA eru hvattir til mæta. ■ HITT HÚSIÐ Föstudagskvöldið 1. okt. munu hljómsveitirnar Dos Pilas og Stripshow skemmta á 4. hæð. Tón- leikarnir standa frá kl. 10 til 1. Á 3. hæðinni verður glymjandi danstónlist. Miðaverð er 400 kr. Aldurstakmark er 16 ár.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.