Morgunblaðið - 30.09.1993, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 30.09.1993, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1993 Ingibjörg Magnús- dóttir - Minning Fædd 28. febrúar 1921 Dáin 19. september 1993 í dag er til moldar borin Ingi- björg Magnúsdóttir, Þórsgötu 9 í Reykjavík. Hún andaðist á heimili sínu aðfaranótt sunnudagsins 19. september eftir fímm ára stríð við skæðan sjúkdóm. Ingibjörg eða Inga eins og hún var kölluð í vinahópi var dóttir hjón- anna Magnúsar Gíslasonar, sem ættaður var af Skeiðum í Ames- sýslu, og Olafar Magnúsdóttur, sem ættuð var úr Borgarfirði eystra. Þau áttu tvær dætur, Þóreyju, sem fædd var árið 1917 en andaðist fertug að aldri árið 1958, og Ingi- björgu, sem við nú kveðjum í dag. Ólöf, móðir þeirra, andaðist er Inga var á fjórða ári. Dvaldi Inga eftir það í nokkur ár hjá föðursyst- úr sinni, Þóru Gísladóttur, og manni hennar, Siguijóni Jóhannssyni, sem bjuggu í Hafnarfirði. En Þórey var eftir hjá föður sínum heima. Nokkru seinna kom önnur systir Magnúsar, Þuríður, til bróður síns og tók að sér heimilið um nokkurt skeið. Með henni var sonur hennar Sigurgeir Sigurdórsson, sem var á líku reki og systurnar og ólst hann því að nokkru leyti upp með frænk- um sínum. Inga hóf fyrstu skólagöngu sína í Barnaskóla Hafnarfjarðar. Bama- skólanámi lauk hún síðan í Reykja- vík, er hún hafði flutt aftur til föð- ur síns. Að bamaskólanámi loknu fór hún í kvöldskóla KFUM og það- an í Kvennaskólann og lauk þar prófí með ágætum námsárangri. Loks var hún einn vetur í Hús- mæðraskóla ísafjarðar. Hinn 10. maí 1947 gekk hún að eiga eftirlifandi mann sinn, Her- mann Þorsteinsson. Hermann starf- aði þá og alla tíð síðan hjá Sam- bandi íslenskra samvinnufélaga. Um það leyti, er þau kynntust, var Hermann sendur sem starfsmaður Sambandsins til Danmerkur. Bjuggu þau síðan í Danmörku með stuttum hléum í 7 ár. í árslok 1960 fluttust þau alkom- in heim til íslands og bjuggu síðan alla tíð á æskuslóðum Ingu á Þórs- götu 9. Þar áttu þau fallegt og hlýlegt heimili, og þaðan minnumst við, gömlu vinirnir þeirra, margra ánægjulegra gleðistunda. Þangað var alltaf gott að koma. Hjónin voru sérstaklega samhent í því að taka vel á móti gestum sínum. Eftir heimkomuna frá Dan- mörku, gegndi Hermann ýmsum störfum hjá Sambandinu, uns hann gerðist framkvæmdastjóri Lífeyris- sjóðs Sambandsins. Því starfi gegndi hann í 25 ár, uns hann lét af störfum hjá Sambandinu eftir 50 ára þjónustu. Inga átti dýrmætan arf frá bemskuheimili sínu. Hún var alin upp í „guðsótta og góðum siðum“ og hlaut með því þann arf sem dýrmætastur er og bestur. Mjög ung fór hún að fara með eldri systur sinni á fundi í KFUK, Þar átti hún síðan sitt andlega heimili og sótti þangað svo lengi sem heilsan leyfði. Hún hafði ung valið að gjöra Jesúm Krist að leiðtoga lífs síns og honum þjónuðu bæði hjónin trúfast- lega alla tíð. Inga hafði fallega söngrödd og var frábær upplesari. Þessa hæfí- leika notaði hún frá barnæsku öðr- um til gleði og blessunar í starfi KFUK og KFUM og víðar. Hún var um tíma ein af stjórnarkonum KFUK. Söngurinn varð einkum ómetan- legt framlag hennar til félagsstarfs- ins. Hún byijaði í Ungmeyjakórnum hjá Svanlaugu Sigurbjörnsdóttur. Síðar sungu þær stöllur á Þórsgöt- unni oft fimm saman til mikillar ánægju á fundum og samkomum. Þá kom Kvennakórinn undir stjórn Helgu Magnúsdóttur kennara og loks Blandaður kór KFUM og KFUK undir stjórn Árna Siguijóns- sonar bankamanns. Sönglífið í félögunum á þessum árum var í miklum blóma og á bak við það lá mikið starf áhuga og fórnfýsi. Inga var alltaf, er hún var hér heima, meðal þeirra fremstu í þeim flokki, sem bar þetta mikil- væga starf uppi. Þá lagði Inga kirkjunni sinni lið með söng sínum. Hún söng með Dómkirkjukórnum í tvo áratugi og naut þar mikils trausts og voru falip ýmis trúnaðarstörf. Útför Ingu fer fram í dag frá Dómkirkjunni. En Dómkirkjan var lengst af sóknarkirkja hennar. Þar var hún fermd sama dag og maður hennar og þar voru þau gefin sam- an i heilagt hjónaband. Inga var sannarlega stoð og stytta manns síns í öllu hans marg- víslega starfi. Auk hans eigin at- vinnu tók hann aö sér siunúikl! Cg' tímafrek sjálfboðastörf til eflingar kristni og kirkju, störf sem hann vann af mikiili fórnfýsi án þess að taka nokkurn tíma laun fyrir. Þar á ég við starf hans að byggingu Hallgrímskirkju og framkvæmda- stjórastarf hans í Hinu íslenska Biblíufélagi. Inga átti vissulega þátt í öllu því mikla starfi, sem hann kom í verk. Hún var líka hans stoð og stytta sem hin hógværa og fórnfúsa eigin- kona. „Hún er góði andinn á bak við mig,“ sagði Hermann oft. Hvar sem Inga kom var hún alls staðar hvers manns hugljúfi. Elskulegi vinur, nú er hún kvödd í dag. Við vinir ykkar Ingu, sem höfum mörg átt samleið með ykkur um hálfrar aldar skeið, tökum inni- lega þátt í sorg þinni. Við höfum átt margar blessunarríkar gleði- stundir með ykkur, sem við þökkum Guði fyrir. Við höfum fylgst með baráttu ykkar síðustu erfiðu mán- uðina, en nú er helstríðinu lokið og sigur unninn. Þeir sem komu að dánarbeði Ingu vitna það, að hún háði baráttuna með einstakri rósemi og miklu trún- aðartrausti. Hún vissi vel á hvern hún trúði og Hann brást henni ekki við dauðans dyr. Við trúum því, kæri vinur, að sá frelsari, sem var ykkur báðum svo kær alla tíð á björtu, dögunum, muni gefa þér styrk til að þreyja þann tíma sem eftir er uns þið hitt- ist á ný á landi lifenda, þar sem engin þjáning er lengur til og eng- inn dauði skilur að ástvini, sem unnast. „Drottinn gaf, Drottinn tók, lofað veri nafn Drottins." Ástráður Sigursteindórsson. t Móðir mín, HULDA JÓHANNSDÓTTIR frá Brekku, Vestmannaeyjum, er lést 17. september, verður jarðsungin 2. október kl. 14.00 frá Landakirkju í Vestmannaeyjum. Kolbrún H. Lorange. t Móðir okkar og tengdamóðir, ÓLÖF ANNA BENEDIKTSDÓTTIR, lést á Kumbaravogi 20. þessa mánaðar. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu, föstudaginn 1. október kl. 10.30. Sæmundur R. Jónsson, Hrafnhildur Jónasdóttir, Loftur H. Jónsson, Jónina Gróa Jónsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ERLA GUNNARSDÓTTIR, áður til heimilis i Stóragerði 16, Hellulandi 3, lést í Borgarspítalanum 28. september. Ragnheiður Jósúadóttir, Ingi Þ. Gunnarsson, Borghildur Jósúadóttir, Sveinn Kristinsson og barnabörn. t Elskuleg móðir okkar, INGEBORG CHRISTINE HOE HJARTARSON, Hrafnistu, Hafnarfirði, áðurtil heimilisá Egilsgötu 20, er látin. Jarðarförin fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 1. október kl. 10.30. Björg H. Hermannsdóttir, Elsa L. Hoe Hermannsdóttir, Hinrik Hoe Hermannsson. t Minningarathöfn um RAGNARBÓASSON fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 1. október kl. 13.30. Jarðsett verður á Seyðisfirði mánudaginn 4. október. Fyrir hönd eiginkonu, barna og systkina hans, Ásvaldur Andrésson. t Ástkær eiginkona mín, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR, Þórsgötu 9, er lést á heimili okkar aðfaranótt sunnu- dagsins 19. september, verður jarð- sungin frá Dómkirkjunni í dag, fimmtu- daginn 30. september, og hefst athöfn- in klukkan þrettán (13.00). Þeim, sem vilja minnast hennar, er vin- samlega bent á Kristniboðssambandið. Hermann Þorsteinsson. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN GUÐMUNDSSON, Vallartúni 8, Keflavfk, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 1. október kl. 16. Jóhann Jónsson, Sesselja Birgisdóttir, Þórir Jónsson, María Jóhannsdóttir og barnabörn. t Móðir okkar og tengdamóðir, GRÉTA KRISTJÁNSDÓTTIR frá Álfsnesi, Mávahlíð 8, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 1. október kl. 13.30. Kristfn Jónasdóttir, Valdimar Örnólfsson, Kári Jónasson, Ragnhildur Valdimarsdóttir. Ævidagar vorir eru sjötíu ár og þegar bezt lætur áttatíu ár. Þannig er komizt að orði í kunnuni Davíðs- sálmi og þetta mun vera reynzla kynslóðanna. Nýlega er látin á sjötugasta og þriðja aldursári Ingibjörg Magnús- dóttir til heimilis að Þórsgötu 9 í Revkiavík. mikilhæf kona fyrir margra hluta sakir. Nú þegar hún er kvödd er margs að minnast, þótt fátt eitt rúmist í stuttri minningargrein. Inga, eins og hún var jafnan kölluð í vina- hópi, fæddist 28. febrúar 1921. Var hún dóttir hjónanna Ólafar Magn- úsdóttur og Magnúsar Gíslasonar, verkamanns í Reykjavík. Hún missti móður sína ung að aldri, en naut umhyggju föður síns og eldri systur fram á unglingsárin. En Þórey systir hennar lézt á bezta aldri, árið 1958, og faðir hennar um svipað leyti. Þær systur áttu það sameiginlegt með vinkonum sínum á Þórsgötu 4 aðn hafa yndi af söng og hljóðfæra- leik. Þessi áhugi þeirra setti svip á starfið í þeim félagsskap, sem þær helguðu krafta sína um áratugi, KFUK og KFUM. Óhætt er að segja að þær hafi borið uppi að talsverðu leyti fjölbreytt sönglíf félaganna um áratugi, ásamt vinkonu þeirra í næsta nágrenni, Guðfínnu Jóns- dóttur. Á yngri árum voru þær kjarni í svonefndum Ungmeyjakór KFUK og síðar í blönduðum kór og kvennakór, en síðast en ekki sízt í sérstökum sextett og síðar kvartett, er þær mynduðu saman, er sungu oftlega á fundum og sam- komum í félögunum. Léku þær þá gjaman á gítara sína með. Þær eignuðust snemma lifandi trú á þann Drottin, sem þær vildu þjóna með söng sínum. Inga söng síðar meir árum saman með Dómkirkjukórnum í Reykjavík og voru henni falin þar ýms trúnað- arstörf fyrir kórinn og söngstjóra hans. Einn var sá þáttur í lífi og starfi Ingu, sem ber að nefna, en það var hve frábær upplesari hún var. Kom það sér einkum vel er þær stöllurn- ar tóku að sér útvarpsþætti fyrir börnin, eða þegar hátíðir voru haldnar í KFUK og KFUM. Var Inga þá jafnan fengin til að taka að sér slík hlutverk. I þeim félagsskap kynntist hún einnig sínum ágæta eiginmanni, Hermannij Þorsteinssyni, fulltrúa hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga og síðar forstöðumanni Lífeyris- sjóðs SÍS. Stofnuðu þau heimili sitt á Þórsgötu 9 og bjuggu þar æ síð- an. Dvaidist Inga ásamt eiginmanni sínum nokkur ár í Danmörku, er hann var fulltrúi fyrirtækis síns í Kaupmannahöfn. Kom sér oft vel á þeim árum að hafa þar slíka sendi- fulltrúa, er félagsfólk og aðrir vinir áttu leið um höfuðborg Danaveldis. Það gleymist ekki heldur hvemig hún stóð við hlið manns síns, hljóð- lát og ástrík, við mikilvæg störf hans og uppbyggingu Hallgríms- kirkju og sem framkvæmdástjóra Hins íslenzka biblíufélags, árum saman. Hennar er nú sárt saknað í hópi vina og ekki sizt af eiginmanni hennar. Eru honum færðar einlæg- ar samúðarkveðjur og þakkir með óskum um blessun Guðs á komandi árum. Félgssystur í KFUK. HARÐVIÐARVAL HF. KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010 Höföar til .fólksíöllum starfsgreinum!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.