Morgunblaðið - 30.09.1993, Page 11
MENNING/LISTIR
Myndlist
Sýningu Sossu
lýkur í Gallerí
Fold
Margrét, Soffía Björnsdóttir,
Sossa, hefur að undanförnu sýnt
nýjar olíumyndir í Gallerí Fold,
Austurstræti 3. Sossa er fædd í
Keflavík 1954 og stundaði n_ám við
Myndlista- og handíðaskóla íslands
1977-1979.
Sossa við verk sín.
Sossa hefur haldið einkasýningar
hérlendis og erlendis, nú nýlega í
Danmörku og Noregi og tekið þátt
í samsýningum. Sossa er búsett á
Sauðárkróki.
Opið er í Gallerí Fold mánudaga
til föstudaga frá kl. 10-18, laugar-
daga kl. 10-16 og sunnudaginn 3.
október kl. 13-17.
Haukur Dór í
Listmunahúsinu
og er Listmunahúsið opið frá kl.
10-18 virka daga og frá kl. 14-18
um helgar.______________________
Leiklist
Geiri lygari
Leikhópurinn Möguleikhúsið hef-
ur nú hafið að nýju sýningar á
barnaleikritinu Geira lygara eftir
Pétur Eggerz.
Leikriritið var sýnt á leikskólum
á höfuðborgarsvæðinu í. vor, auk
þess sem farið var með sýninguna
í leikferð til Svíþjóðar og Danmerk-
ur.
Geiri lygari gerist í verslun kaup-
mannsins Sigvalda þar sem sendi-
llinn Geiri vinnur. Hann er mesti
galgopi og gjarn á að skreyta frá-
sagnir sínar. Það kemur honum í
koll dag einn þegar Sigvaldi biður
hann að gæta verslunarinnar fyrir
sig.
Leikarar í Geira lygara eru fjórir,
Alda Arnardóttir, Bjarni Ingvars-
son, Pétur Eggerz og Stefán Sturla
Siguijónsson. Leikstjóri er Bjarni
Ingvarsson, en Ingvi Þór Kormáks-
son samdi tónlist.
Sýnt verður á leikskólum á höfuð-
borgarsvæðinu og víðar.
FERÐATILBOÐ í VIKU # FERÐATILBOÐ í VIKU # FERÐATILBOÐ í VIKU # FERÐATILBOÐ í VIKU
Nú færðu ofangreindar vörur á einstöku ferðatilboði í viku, 30. sept. til 6. okt. Lyftu þér nú upp og nýttu þér ferðatilboð í
verslunum Hagkaups í vikunni. Ef Hagkaup er
ekki í byggðarlaginu þá er hægt að notfæra sér þjónustu
Póstverslunar Hagkaups, grænt símanúmer 99 66 80.
Tilboðið gildir á meðan birgðir endast.
HAGKAUP
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1993
Taktu
Barnaúlpa
Verö-áétrr4^9 5
Ferðatilboð
Þjóðleikhúsið
13. krossferðin á Stóra sviðinu
Dömugallabuxur
Verð áöuri<r. 27995,-
Ferðatilboð
1.993.-
............. .
/■
í Listmunahúsinu verður opnuð
sýning á verkum Hauks Dórs, laug-
ardaginn 2. október.
Haukur Dór stundaði nám í mál-
aralist og keramik í Reykjavík, Ed-
inborg og Kaupmannahöfn. Hann
var lengi leirlistamaður en á seinni
hluta sjöunda áratugarins sneri
hann sér að málverkinu.
Haukur Dór hefur haldið fjölda
einka- og samsýninga bæði hér á
landi og erlendis.
Á sýningunni í Listmunahúsinu
eru 25 verk, unnin með olíu á striga
á sl. tveimur árum.
Sýningin stendur til 17. október
Pétur Eggerz og Stefán
Sturla Sigurjónsson.
FYRSTA frumsýning vetrarins á
Stóra sviði Þjóðleikhússins verð-
ur föstudagskvöldið kemur. Þá
kemur á fjalirnar nýtt leikrit eft-
ir Odd Björnsson, 13. krossferðin.
Oddur Björnsson á að baki á ann-
an tug sviðsverka og á þriðja tug
leikrita fyrir útvarp, auk annarra
skrifa og kemur 13. krossferðin
frá höfundinum eftir tíu ára
þögn.
I meginatriðum má segja að leik-
ritið fjalli um leit hermannanna
þriggja eða hins þríeina hermanns
að hinu eina og sanna „stríði", en
texti verksins og atbúrðarás er upp-
full af ögrandi samlíkingum og til-
vísunum til mannkynssögunnar,
bókmenntanna og goðsagna.
Margvíslegur háski verður á vegi
þeirra, en þar gerist líka margt sem
gleður þreytt hjarta. Eftir miklar
vegviliur er 'sem leit hermannanna
ljúki og dregur þá til hins óumflýjan-
lega uppgjörs milli þeirra.
Leikstjóri er Þórhildur Þorleifs-
dóttir, Siguijón Jóhannsson gerir
leikmynd og búninga, Hjálmar H.
Ragnarsson semur tónlistina, Páll
Ragnarsson hannar lýsingu og Ást-
rós_ Gunnarsdóttir semur dansa.
I aðalhlutverkum eru Pálmi
Gestsson, Baltasar Kormákur og
Eggert Þorleifsson, en þeir leika
hermennina þijá. Auk þeirra þriggja
fara með stór hlutverk Gísli Rúnar
Jónsson, Arnar Jónsson, Helga Bac-
hmann, Helgi Skúlason, Kristbjörg
Kjeid, Erlingur Gíslason, Örn Árna-
son, Hilmar Jónsson, Þórey Sigþórs-
dóttir og Hjálmar Hjálmarsson. Alls
kemur hátt á þriðja tug leikara,
dansara og hljóðfæraleikara fram í
sýningunni.
í tilefni af frumflutningi verksins
kemur 13. krossferðin einnig út á
bók hjá Vöku-Helgafelli og verður
hún til sölu í Þjóðleikhúsinu og í
bókaverslunum.
Eggert Þorleifsson í hlutverki Seppa.
Tríó Reykjavíkur með
tónleika í Hveragerði
TRÍÓ Reykjavíkur heldur tón-
leika í Hveragerðiskirkju á niorg-
un, föstudaginn 1. október. I Tríói
Reykjavíkur eru Gunnar Kvaran,
Guðný Guðinundsdóttir og Hall-
dór Haraldsson, en að þessu sinni
verður einnig danski fiðluleikar-
inn Elisabeth Zeuthenschneider.
Elisabeth hefur unnið til fjölda
verðlauna fyrir fiðluleik og komið.
fram með öllum helstu hljómsveitum
Dana. Einnig hefur hún komið fram
sem einleikari og með kammersveit-
um víða um lönd. Eiisabeth kennir
fiðluleik í Kaupmannahöfn og er
aðstoðarkonsertmeistari við Kon-
unglegu kapelluhljómsveitina í
Kaupmannahöfn.
Á efnisskrá tríósins verður Tríó í
G-dúr Hob. XV:25 eftir Joseph Ha-
ydn, sónata fyrir fiðlu og píanó í
G-dúr op. 100 eftir Antonin Dvorák
og píanókvarte.tt op. 25 eftir Johann-
es Brahms.
Tónleikarnir heijast kl. 20.30.
Kirkjan verður opnuð kl. 20 og miða-
verð er kr. 800, segir í fréttatilkynn-
ingu.
------» » ♦----
Leiðrétting
Meinleg villa slæddist í grein
Braga Ásgeirssonar um sýningu
Tinu Auferio í Nýlistasafninu við
vinnslu greinarinnar í blaðinu, en í
lok hennar breyttist orðið korsett
(lífstykki) í klósett. Þetta breytir
setningunni töluvert og rétt mein-
ing kemst ekki til skila, enda villan
í meira lagi neyðarleg.
Leðurbakpoki
Veré-áðun<i*T.995,-
Ferðatilbod
1.495.-
Afabolur herra
VerA-éíhn-k?rrÖ95,-
Ferðatilboð
1.295.'