Morgunblaðið - 30.09.1993, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1993
13
sveitarstjórnarstigsins er undirstaða
nútíma byggðastefnu. Menn verða
að hafa hugfast hvað hefur gerst og
er að gerast í byggðaþróuninni. A
síðasta áratug hefur íslendingum
fjölgað um tæplega 28 þúsund manns
samkvæmt upplýsingum Hagstof-
unnar. Fjölgun á höfuðborgarsvæð-
inu er á þeim tíma ríflega 26 þúsund
manns en landsbyggðarinnar einung-
is um 1.800 eða aðeins liðlega 6%
af heildarfjölgun sl. 10 ára. A síð-
ustu fimm árum hefur Islendingum
fjölgað um tæpiega 16 þúsund. Ibú-
um höfuðborgarsvæðisins hefur á
þessum tíma fjölgað um 15 þúsund,
en landsbyggðarinnar minna en eitt
þúsund.
Forsenda þess að snúa þessari
þróun við er að efla sveitarstjórnar-
stigið í landinu og gera því kleift að
takast á við aukin verkefni og bætta
þjónustu við íbúa sína. Sumir hafa
látið í ljós vantrú á að sameining
sveitarfélaga bæti hag hinna dreifðu
byggða. Hver er hin sögulega þróun?
Varla er það tilviljun að vöxtur höf-
uðborgarsvæðisins annars vegar og
vöxtur ríkisvaldsins hins vegar hafi
farið saman á kostnað landsbyggðar-
innar og sveitarstjórnarstigsins?
Varla er það tilviljun að þegar jafn-
vægi var í byggð landsins var ríkis-
valdið máttlítið og sveitarfélagastigið
aðal stjórnsýslustig landsins.
Meginmarkmið sameiningar
í kynningu samráðsnefndar um
sameiningu sveitarfélaga er einmitt
lögð sérstök áhersla á eftirfarandi:
„Gríðarlegar breytingar hafa orðið
á búsetu, samgöngum og atvinnulífi
á þessari öld. Mörg sveitarfélaga
hafa ekki fylgt eftir þessum miklu
umskiptum. Sveitarfélög hafa víða
ekki lengur tök á að sinna á eigin
spýtur öllum þeim verkefnum sem
þeim hafa verið falin, vegna þess að
þau mynda ekki heildstæð þjónustu-
svæði og eru fámenn. Sérstaklega
hafa mörg sveitarfélög í dreifbýli
ekki möguleika til að veita íbúum
sínum margþætta þjónustu sem oft
er veitt í nálægu þéttbýli.
Efling sveitarstjórnarstigsins er
forsenda þess að hægt sé að auka
staðbundið vald og skilvirkni stjórn-
sýslunnar. Stækkun sveitarfélaga og
bættar samgöngur stuðla að íjöl-
breyttara og öflugra atvinnulífi.
Á VEGGI, LOFT OG GÓLF
TRAUSTARI HUÓÐEINANGRUN,
ÞYNGRI OG STEINULL
ÞVÍ ÓÞÖRF. A FLOKKUR
ELDTRAUSTAR
VATNSHELDAR
ÖRUGGT NAGLHALD
KANTSKURÐUR SEM EGG
HOLLENSK GÆÐAVARA
Þ.ÞORGRfMSSON&CO
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640
Sveitarfélaganefnd, sem skipuð var
fulltrúum stjórnmálaflokkanna,
Sambands íslénskra sveitarfélaga og
Byggðastofnunar telur að stærri
sveitarfélög treysti byggð í landinu,
því þau verði betur í stakk búin til
að sinna þeim verkefnum sem nútím-
inn kallar á og til að taka að sér
verkefni sem nú eru í höndum ríkis-
valdsins."
Að leysa þessi mál með samvinnu
á héraðsgrundvelli er vafasamt, þar
sem með því yrði í veigamiklum
málaflokkum færð ákvarðanataka
frá stórum hluta lýðræðislega kjör-
inna sveitarstjórnamanna til fá-
mennra fulltrúa í héraðsnefndum.
Samráðsnefndin undirstrikar einn-
ig hver séu meginmarkmiðin með
sameiningu sveitarfélaga, en þau eru
að:
* Treysta byggð í landinu og efla
stjórn heimamanna.
* Auðvelda flutning verkefna frá
ríki til sveitarfélaga.
* Auka þjónustu við íbúana og gera
sveitafélögum betur kleift að tak-
ast á við núverandi og ný við-
fangsefni.
Tvenns konar sveitarfélög
Ljóst er að hin stærri sveitarfélög
eru mörg hver í stakk búin til að
taka til sín veigamikil verkefni og
tekjustofna frá ríkinu og þar með
að auka sjálfsforræði þeirra. Fámenn
sveitarfélög geta ekki komið í veg
fyrir slíka þróun. Þá væri lýðræðið
farið að snúast í andhverfu sína. Sú
hætta er því fyrir hendi, að ef litið
verður nú út' átaki í sameiningarmál-
um sveitarfélaga, að hér þróist
tvenns konar sveitarfélög. Annars
vegar þau sem munu taka að sér
viðamikil verkefni og tekjustofna frá
ríkinu og skipuleggja og bæta sjálf
sína þjónustu við íbúana án afskipta
ríkisvaldsins. Hins vegar þau sem
þá áfram yrðu háð miðstýringu ríkis-
ins í fjármagni og þjónustu í stórum
málaflokkum sem miklu skipta íbú-
ana.
Oll rök mæla því með stækkun
sveitarfélaganna, sem er fyrst og
fremst mikilvæg til að tryggja at-
vinnuuppbyggingu og landsmönnum
jöfnuð í þjónustu og lífskjörum hvar
sem þeit' búa á landinu.
Höfundur er félagsmálaráðherra.
Stretsbuxur
kr. 2.900
Mikið úrval af
allskonar buxum
Opib ó laugardöqum
kl. 11- 16
iJclr Icpom upp í Innön ferð.
23íllnot nftur 00 ftum t tímn
ofl túmí 0 motúutp fitoumo
00
FRUMSYNING
FÖSTUDAGSKVÖLD
Aðalhlutverk:
Pálmi Gestsson
Baltasar Kormákur
Eggert Þorleifsson
915
ÞJOÐLEIKHUSIÐ
Sími miðasölu 11200.
OPNUM Á MORGUN 1. OKT.!
BEST SELLER
frá Danmörku
frá Hollandi
frá Hollandi
OPNUNARTILBOÐ
RIP RIP RÚLLUKRAGABOLUR
890,-
HIP HOP SHAKE BOLUR
M. HETTU — ÞYKKUR 2.450,-
HIP HOP JUNOER BUXUR
1.980,-
KÖFLÓTT STRÁKASKYRTA M. HETTU
1.980,-
KRAKKAR
KRINGLUNNI 8—12
SÍMI 681719