Morgunblaðið - 30.09.1993, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 30.09.1993, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1993 Vilja ekki lýðveldi ÁHUGI Ástrala á stofnun lýðveld- is fer dvínandi miðað við niðurstöð- ur nýrrar skoðanakönnunar en þar kemur fram að meirihluti þjóðar- innar, 61%, er annað hvort óviss eða andvígur því að landið segi sig úr iögum við bresku krúnuna. Aukin hernað- arumsvif NORÐUR-Kóreumenn hafa aukið hernaðarumsvif að sögn talsmanns japanska varnarmálaráðuneytis- ins. Einkum hafa þeir aukið um- svif meðfram landamærum Suður- Kóreu. Hvorki hefur dregið úr spennu á svæðinu né hún aukist. 3.000 steingerð- ir fiskar ÁSTRALSKIR vísindamenn hafa uppgötvað mesta magn stein- gerðra fiska sem fundist hefur. Steingei"vingarnir voru um 3.000 talsins þar af fjórar áður óþekktar tegundir. Fundurinn er ekki síst merkur fyrir þá sök að mörg ein- tök svonefndra holdugga fundust en talið er að þeir séu skyldir for- feðrum manna. Lækka flug- fargjöld JAPÖNSK flugfélög, þar á meðal Japan Airlines og ANA, hafa ákveðið að lækka fargjöld á al- mennu rými til Evrópu um 32% frá og með apríl 1994 í þeirri von að farþegum fjölgi og tekjur félag- anna aukist. Talsmaður flugfélag- anna sagði aðalástæðuna vera harða samkeppni við erlend flugfé- lög og efnahagskreppu. Banvæn kvörtun DEILUR vegna reykinga urðu tii þess að 22 ára gömul kona, Dap- hnye Luster, skaut tvítuga konu, Raehelle Houston, í höfuðið í bæn- um Richmond í Bandaríkjunum á þriðjudag. Luster hafði kveikt sér í sígarettu á veitingastað þar sem reykingar eru bannaðar. Houston kvartaði, svo að Luster slökkti strax í. Hún segir konuna hins vegar ekki hafa hætt umkvörtun- um, og því fór Luster heim og náði í byssu, sneri aftur og skaut Hous- ton í höfuðið. Fjögur börn Luster fylgdust með. Pawlak for- sætisráðherra? LÍKLEGAST er að Waldemar Pawlak, 34 ára gamall bóndason- ur, verði næsti forsætisráðherra Póllands. Pawlak er leiðtogi Smá- bændaflokksins, PSL sem á í stjórnarmyndunarviðræðum við Lýðræðisbandalag vinstrimanna. Talið er að Smábændaflokkurinn hafi sett það sem skilyrði fyrir stjórnarþáttöku að forsætisráð- herrann komi úr þeirra röðum. Tímaritið Spectator fjallar um æviminningar „Járnfrúarinnar“ Umstangið sagt rýra virðingu Thatcher ÆVIMINNINGAR Margaret Thatcher fyrrum forsætisráð- herra Bretlands sem hún nefnir „Árin í Downingstræti“ (The Downing Street Years), eiga að koma á markaðinn 18. októ- ber nk. Thatcher hefur unnið að bókinni undanfarin tvö ár og er hennar beðið með mikilli eftirvæntingu. Mikil leynd hef- ur hvílt yfir innihaldi bókarinn- ar og fyrrum yfirmaður bresku lögreglunnar, John Stalker, hefur borið ábyrgð á því að ekki eitt einasta orð leki út til fjölmiðla fyrirfram. Ekki eru þó allir sannfærðir um að þarna sé pólitískt tímamótaverk vænt- anlegt og hefur Thatcher einn- ig verið gagnrýnd fyrir hvernig staðið hefur verið að útgáf- unni. Sumir vilja jafnvel halda því fram að sagan í kringum tilurð bókarinnar sé ekki síður ævintýraleg en væntanlegt innihald hennar en í nýlegu hefti breska tímaritsins The Spectator er sú saga rakin. Er niðurstaða greinarhöfundar, Martin Vander Weyer, sú að Thatcher, þessi merkilegasti forsætisráðherra eftirstríðsár- anna, hafi leyft að hún yrði gerð að Ieiksoppi í auglýsinga- sirkusi og það verði til þess að draga úr þeirri virðingu sem nú er borin fyrir eldri stjórn- málaleiðtogum. Til þessa hafa þrettán fyrrum ráðherrar gefið út æviminningar í Bretlandi og er búist við að æviminningar Thatcher muni slá þeim öllum við. Til þessa hefur mest selst af bókinni „Time of My Life“ eftir Denis Healey (65 þúsund eintök) en mest umtal hefur bók Alans Clarks „Diaries“ (rúmlega 30 þúsund eintök) vakið. Thatcher lagði drög að bókinni um það leyti sem hún lét af störf- um sem forsætisráðherra í nóvem- ber 1990. í bók Alans Clarks er greint frá samtali sem hún átti við Frank Johnson og Peregriné Worsthorne um hver ætti að vinna bókina og hversu mikilvæg hún væri. Segir Clark að honum. hafi jafnvel verið boðið að skrifa bók- ina en hann hafi hafnað því á þeirri forsendu að hann vildi ekki vera nafnlaus skrásetjari. Einn þeirra sem veitti Thatcher hvað mesta ráðgjöf varðandi út- gáfumál er rithöfundurinn og ráð- herrann fyrrverandi Jeffrey Arc- her, eða Archer lávarður eins og hann er nú nefndur. Orðrómur er á kreiku um að Archer eigi að afhenda Thatcher fyrsta eintakið af bókinni í næsta mánuði. Virtur breskur útgefandi taldi líklegt að bókin myndi afla 8 millj- óna punda í tekjur og því væri rökrétt að útgáfurétturinn yrði sanngjarnt hlutfall af þeirri tölu eða í mesta lagi um 2,5 milljónir punda. Thatcher og útgefendur tóku hins vegar strax að deila um hversu mikið bæri að greiða fyrir útgáfuréttinn að bókinni. Ástæð- an fyrir því að bókaútgáfan breyttist í sápuóperu, segir í Spectator, var sú að sonur hennar Mark var tekinn að hafa afskipti af útgáfunni , en hann er búsett- ur í Dallas í Bandaríkjunum. Deilt um söluverðmæti Haft er eftir Alan Clark að Mark hafi sannfært móður sína um að söluverðmæti bókarinnar gæti verið allt að tuttugu milljón- ir punda. Mark ræddi við fjöl- marga breska útgefendur og um- boðsaðila en hann taldi þá alla vanmeta væntanlega sölu á bók- inni. Hann leitaði því til banda- ríska umboðsmannsins Marks McCormacks, sem aðallega er þekktur fyrir að sjá um þekkt íþróttafólk. Loks ákvað Mark Thatcher að fela Marvin Josep- hson hjá International Creative Managament Inc. að vera um- boðsaðili móður sinnar, en Josep- hson er aðallega þekktur í Holly- wood og stærsta afrek hans á bókmenntasviðinu var að gefa út óopinbera ævisögu Kitty Kelley um Nancy Reagan. En á meðan sonurinn var að semja við umboðsmenn misstu æ fleiri útgefendur áhugann á bók- inni vegna þeirrar miklu fyrir- framgreiðslu sem Mark fór fram á. Höfðu margir á orði að Mark Thatcher væri farinn að skemma verulega fyrir móður sinni. „Hann heldur að hann viti allt um útgáfu- mál en hann er viðvaningur,“ sagði hinn frægi bandaríski um- boðsmaður Swifty Lazar. Herma heimildir einnig að æðstu ráðherr- ar ríkisstjórnarinnar hafi sent sendinefnd til lafði Thatcher til að reyna að sannfæra hana um að framferði sonarins væri tekið að rýra virðingu hennar. Einu sinni var Mark raunar næstum því búinn að ná stórkost- legum samningi - við Robert Maxwell, sem þá átti hinn banda- ríska hluta fyrirtækisins Macmill- an. Er talið að samningsdrögin hafi hljómað upp á um tíu milljón- ir punda. Sumarið 1991 skipti Maxwell hins vegar skyndilega um skoðun og fór að krefjast þess að upphæðin yrði lækkuð. í kjöl- farið slitnaði upp úr samningun- um. Það var því ekki fyrr en í októ- ber 1991 sem Josephson náði samningi við útgefandann Har- perCollins (sem er í eigu Ruperts Murdochs) um útgáfu bókarinnar. Ekki hefur verið gefið upp hversu mikið var greitt fyrir útgáfurétt- inn en talið er að það hafi verið um 3,5 milljónir fyrir tvær bækur (síðar áformar Thatcher að skrá endurminningar frá tímanum áð- ur en hún varð forsætisráðherra). Fyrir þessa upphæð fær Murdoch öll réttindi varðandi bókina í öllum löndum nema Japan. Þetta er gífurlega há upphæð í samanburði við það sem hingað til hefur verið greitt fyrir ævi- minningar breskra stjórnmála- manna. Nigel Lawson, fyrrum fjármálaráðherra, fékk til dæmis 600 þúsund pund fyrir bók sína „The View from Number 11“ en flestir verða að sætta sig við um 150 þúsund pund. Fyrst Díana, svo Thatcher Murdoch ætlar að láta önnur fyrirtæki sín taka hluta af áhætt- unni og er þannig talið að The Sunday Times muni greiða um 500 þúsund pund fyrir að birta kafla úr bókinni. Blaðið náði góð- um árangri á síðasta ári með því að birta kafla úr bókinni um Dí- önu en þá þarf líka eitthvað „krassandi“ að vera að finna í þeim köflum sem birtir eru. Er talið að „söluvaran“ eigi að vera sá kafli þar sem Thatcher fjallar um John Major og hversu óverð- ugur hann hafi verið sem arftaki hennar. í Spectator segir að blaðið hafi þegar lagt sitt af mörkum til að grafa undan konungdæminu og verði því líklega ófeimið við að eyðileggja forsætisráðherraferil Majors til að geta selt einhver eintök af ævisögu. Á blaðið að hafa sent fyrsta uppkastið af bók- inni til baka með þeim skilaboðum að það yrði að lífga upp á textann svo hægt yrði að birta kafla úr honum. Greinarhöfundur Spectator dregur líka í efa að æviminningar Thatcher verði mjög vel skrifaðar. Hún hafi aldrei verið mikill stílisti sjálf og hafi einn helsti ræðuritari hennar, Ronald Millar, til dæmis ljóstrað upp um þá staðreynd að hann hafi oftast þurft að útskýra brandarana í ræðunum fyrir henni. Þó að útgefandinn haldi því fram að hún hafi skrifað bókina, sem er 704 blaðsíður, algjörlega sjálf segir tímaritið að tveir af ræðuhöfundum hennar, þeir Rob- in Harris og John O’Sullivan, standi að mestu leyti á bak við verkið. Það er þó ekki víst að bókin verði óspennandi. Samkvæmt einni kjaftasögu, sem nú gengur um í bresku stjórnmálalífi, gæti hún jafnvel verið bitastæð. Breska ríkissjónvarpið BBC hefur undan- farið rætt við fyrrum samstarfs- menn Margaret Thatcher, sem lentu upp á kant við hana, vegna heimildaþátta sem verið er að vinna um forsætisráðherratíð hennar. Nokkrir af ráðherrunum fyrrverandi hófu mál sitt á mjög diplómatísktan hátt með setning- um á borð ,við: „auðvitað mun sagan dæma hana vel“. Þá slökktu kvikmyndagerðamennirn- ir á upptökuvélunum, lásu kafla úr handriti væntanlegrar bókar Thatcher um hennar álit á þeim sem verið var að taka viðtal við. Hermir sagan að þeir hafí í kjöl- farið verið mun reiðubúnari til að tjá sig opinskátt um samstarfið við Thatcher. i4w° RÚG- 0G KORNBRAUBSBLANDA Þú bakar bollt oggróft brauð fyrir heimilið Nú er Uekifierið til að reyna sig við brauðbakstur. ÍAMO rúg- og kombrauðsblöndunni er sérlega vönduð samsetning af þeim hráefhum sem þarftil að baka gimileg og holl brauð. Framkvtemdin er einfóld, alltfrá þvi aðþurfa aðeins að beeta vatni oggeri sanutn við innihaldpakkanna. - spennandi möguleiki i matargerð!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.