Morgunblaðið - 30.09.1993, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1993
35
Minning
Karl Olafsson
Fæddur 2. janúar 1904
Dáinn 22. september 1993
Hinn 22._ september lést afi okk-
ar, Karl Ólafsson, á Sólvangi í
Hafnarfirði. Karl fæddist í Reykja-
vík 2.Janúar 1904. Foreldrar hans
voru Ólafur Kristjánsson og Katrín
Einarsdóttir. Hann á eina eftirlif-
andi sj^stur, Katrínu, en áður eru
látin Óskar Sigurbjörn og Björg.
Karl ólst upp á Merkisteini í
Vesturbænum og við Vesturgötuna
átti hann heima fram yfir tvítugs-
aldur. A fermingarárinu vann hann
fyrst fyrir fullorðinskaupi. 16. ald-
ursárið varð afdrifankt hjá Karli
því þá tók Þorsteinn Jónsson eld-
smiður hann í smiðjuna til sín.
Lærlingar unnu þá alveg kaup-
laust, svo sem tíu stunda vinnudag,
en sá háttur var hafður á í þá daga
að iðnnemar voru alfarið á vegum
meistara síns. Var því heimili hans
hjá Þorsteini á meðan á námstíma
stóð, eða í rúm íjögur ár þar til
hann öðlaðist full réttindi eldsmiðs.
Þorsteinn Jónsson og Guðrún kona
hans reyndust honum fádæma vel.
Starfsferiil Karls var langur,
hann var eldsmiður í rúmlega 50
ár. Fyrst framan af var hann í
smiðjunni hjá Eristjáni Gíslasyni við
Nýlendugötu. Þar var hann í 15 ár.
Þá fór hann í nokkur ár á vertíðir,
var tvær vertíðir á Stokkseyri og
ijórar í Keflavik hjá Magnúsi
Björnssyni_ og tvær í Jnnri-Njarðvík
hjá Jens Árnasyni. Á kreppuárun-
um var lítið um vinnu og þá var
Unnur Tómasdóttir
Jensen - Minning
Fædd 4. nóvember 1910
Dáin 29. júlí 1993
Það datt mér ekki í hug þegar
ég kvaddi vinkonu mína Unni 1.
júlí á stéttinni heima í Litlu-Sand-
vík eftir níu daga dvöl hjá mér að
við værum að kveðjast í síðásta
sinn. Hún virtist svo heilbrigð og
sæl á meðan heimsókn hennar stóð.
En viku eftir heimkomu hennar
veiktist hún og var flutt sárþjáð á
spítala og átti þaðan ekki aftur-
kvæmt.
Unnur Tómasdóttir Jensen var
fædd 4. nóvember 1910 á Blöndu-
ósi. Foreldrar hennar voru Tómas
Guðmundsson af sunnlenskum ætt-
um og Ingibjörg Jónsdóttir Árna-
sonar í Múla í Línakradal. Móðir
Tómasar Guðmundssonar var Vil-
helmína Sigurðardóttir Ólafssonar
þjóðhagasmiðs, bónda og sýslu-
nefndarmanns í Merkinesi i Höfn-
um. Sigurður í Merkinesi og Ólafur
Ólafsson bæjarfulltrúi og
dannebrogsmaður í Reykjavík voru
bræður af Víkingslækjarætt. Unnur
missti kornung móður sína, en eign-
aðist skömmu síðar góða stjúpmóð-
ur og þijár hálfsystur.
Fjölskyldan fluttist til Reykjavík-
ur þegar Unnur var um fermingar-
aldur. Hún var því ein af dætrum
Reykjavíkur sem gengu um Austur-
stræti snemma á öldinni, áður en
bílar geystust um götur borgarinn-
ar. Ung fór Unnur í vist að Rauð-
ará til Sigrúnar og Þorláks. Síðar
gegndi hún ýmsum þjónustustörf-
um á Hótel Borg. Þar vann þá Flór-
entínus Jensen sem þjónn. Þau gift-
ust þegar Unnur var tvítug að aldri.
Tvö börn eignuðust þau; Ingiberg
Viggó og Mörtu, þau hafa gifst og
eiga íjölskyldur. Mann sinn missti
lílCMIEGAl
vítamín og kalk
fæst í apótekinu
•• /
V OKVABUNAÐUR
vandaðar vörur
sem vel er þj ónað
Gott úrval búnaðar fyrir vökvakerfi svo
sem dælur, mótorar, lokar og ýmsir fylgihlutir.
Varahluta- og viðgerðarþjónusta tryggja
rekstraröryggi tækjanna.
cn
S
<
= HÉÐINN =
í þjónustudeild okkar veita sölumenn fúslega
faglegar upplýsingar - hafið samband.
VÖKVA-
MÓTORAR
DÆLUR
•
STJÓRN-
LOKAR
Karl með smíðakompu á Framnes-
veginum 10-15 ár. Á stríðsárunum
varð svo allt vitlaust að gera og
þá fór hann í Hamar hf. og var þar
yfireldsmiður frá 1942 þar til hann
hætti vinnu 67 ára gamall.
Árið 1934 kvæntist Karl Hansínu
Guðmundsdóttur en hún var dóttir
Guðmundar Ásgeirssonar og Svein-
bjargar Sæmundsdóttur. Þau
bjuggu fyrst á Öldugötu 47, svo á
Brekkustíg 4a og byggðu síðan
heimili á Njálsgötu 12 í Reykjavík.
Hansína lést 8. ágúst 1987. Þau
eignuðust eina dóttur, Sveinbjörgu
Karlsdóttur, sem er gift Guðmundi
Guðbergssyni og eiga þau fjögur
börn, Karl, Guðberg Má, Hans og
Hansínu. Barnabarnabörnin eru
orðin níu.
Stóra áhugamál þeirra hjóna var
sumarbústaðurinn. Þar dvöldust
þau á hverju sumri í einn til tvo
mánuði og við barnabörnin eigum
þaðan margar góðar minningar.
Það voru margir sem iitu inn í kaffi
til þeirra eða gistu nótt, ættingjar
í sumarleyfum og bændur úr ná-
grannasveitum þáðu kaffisopann
og nutu þess að spjalla. Þar var oft
margt um manninn og gaman að
vera.
Unnur þegar börn hennar voru ung.
Þá fór hún að vinna úti — áður
heimavinnandi húsmóðir. Meðal
starfa utan heimilis var aðstoð við
gestamóttöku á heimilum.
Í mars 1941 korh Unnur hingað
ásamt eiginmanni sínum og ungum
syni. Fengu þau leigð tvö lítil her-
bergi fram að slætti. Flórentínus
átti vörubíl og hafði þá vinnu hjá
hernum í Kaldaðarnesi. Síðar hefur
kunningsskapur og vinátta okkar
Unnar haldist. Á síðari árum kom
hún árlega til mín í vikudvöl, mik-
ill aufúsugestur. Unnur bjó yfir
mikilli skaphöfn, gerði kröfur til sín
og annarra, vay trygglynd og hafði
blíða og aðlaðandi framkomu. Hún
var mjög hreinleg og myndarleg
húsmóðir á öllum sviðum. Fallegt
var heimili hennar í Hraunbænum
sem ógleymanlegt var þeim sem
þar litu inn. Ég átti vináttu hennar
í hálfa öld og einnig íjölskylda mín.
Ég votta samúð mína börnum henn-
ar og fjölskyldum þeirra.
Aldís Pálsdóttir,
Litlu-Sandvík.
Afi Kalli og amma Sína eins og
við barnabörnin kölluðum þau komu
einnig alltaf til okkar í heimsókn á
laugardögum frá því að við munum
eftir okkur á meðan heilsan entist
þeim. Og aldrei fórum við til
Reykjavíkur án þess að líta inn hjá
afa og ömmu. Það var svo gott að
sækja þau heim. Oft barst sumarbú-
staðurinn í tal, bæði rifjað upp hvað
veiddist í vatninu og lagt á ráðin
með næsta sumar.
Síðustu æviár sín í nær sex ár
naut Karl góðrar umönnunar hjá
indælis fólki á Sólvangi í Hafnar-
firði og kunnum við því hinar bestu
þakkir fyrir að búa svona vel að
honum því þar leið honum vel í
góðum félagsskap.
Eftir lifir minningin um góðan
mann. Blessuð sé minning hans.
Karl, Guðbergur Már,
Hans og Hansína.
ALPINA
vandaðir gönguskór fyrir meiri
og minni háttar gönguferðir.
Frábærverð frá
5.500,-
'LEIGANI
ÚTIVISTARBÚÐIN
við Umferðarmiðstððina, slmar 19800 og 13072.
í ^ Fatnaður - skór - snyrtivörur
Okkar verð...
sannkölluð kjarabót!
Vegna hagkvæmra innkaupa bjóðum við fatnað frá
Englandi og Þýskalandi ásamt snyrtivörum frá Frakklandi
á verði, sem á sér ekki hliðstæðu hérlendis.
Að auki bjóðum við 25% kynningarafslátt af öllum vörum
í takmarkaðan tíma!
emi: m/25%
afsl.
Peysur ... frákr. 1.750 1.312
Bolir ... frákr. 880 660
Pils ... frákr. 1.100 825
Buxur ... frá kr. 1.399 1.049
Jakkar .... frá kr. 2.200 1.650
Kjólar .... frá kr. 2.799 2.099
Skyrtur .... frákr. 1.049 786
Skór .... frákr. 1.259 944
Kápur .... frákr. 3.199 2.399
Náttsloppar .... frá kr. 909 681
Póstval, Skútuvogi 1 sími 68 44 22.
(næsta hús sunnan Miklagarðs).
Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 12-18.
Laugardaga frá kl. 10-14.