Morgunblaðið - 30.09.1993, Page 36

Morgunblaðið - 30.09.1993, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ- FJMMTHÐAGUK 30,’SSEPTESTOER 1993 Minning Jónína Jóhanns- dóttir Briem Fædd 27. nóvember 1917 Dáin 20. september 1993 Mig langar að minnast Ninnu ömmusystur í örfáum orðum, en hún lést í síðustu viku eftir rúmlega eins árs hetjulega baráttu við illvíg- an sjúkdóm. Ég var svo lánsöm að fá að kynn- ast Ninnu og manni hennar Páli svolítið betur en ella fyrir tólf árum eftir að ég fluttist til ömmu Jens- ínu, stóru systur Ninnu. Fáir voru dagarnir sem liðu án þess að hitta Ninnu og/eða heyra frá henni í síma. Tengslin á milli þeirra systra voru alveg sérstök, full af hlýju og virðingu og studdu þær hvor aðra í gegnum súrt og sætt og naut ég góðs af. Hugulsemi, elskulegheit og vin- átta. Þetta eru þeir þrír eðliskostir sem mér fannst einkenna Ninnu allt fram á hinstu stundu. Þrátt fyrir erfið veikindi síðasta árið studdi hún systkini sín og aðra vandamenn dyggilega í veikindum þeirra. Hún kvartaði aldrei, heldur horfði með bjartsýni til framtíðar- innar. Um leið og ég þakka Ninnu sam- fylgdina þá bið ég Guð að styrkja Pál og fjölskyldu hans á þessari sorgarstundu. Guð blessi minningu hennar. Bryndís Guðjónsdóttir. Móðursystir mín, Jónína Jó- hannsdóttir Briem, eða Ninna, eins og hún jafnan var kölluð, var ættuð frá Auðkúlu við Arnarfjörð. For- eldrar hennar voru Bjarney Frið- riksdóttir og Jóhann Jónsson, bóndi og skipstjóri. Hún var næstyngst níu systkina, en sjö þeirra eru nú látin. Eftir lifa Jensína móðir mín og Friðrik. Föður sinn misstu þau ungan og við það færðist mikil ábyrgð á móður þeirra og barnahóp- inn. Af dugnaði og myndarskap brutust þau öll áfram og komust vel til manns, þrátt fyrir erfiða lífs- baráttu. Systkinin voru öll sérstak- lega samrýnd og það ríkti gleði og kátína þegar þau komu saman og rifjuðu upp minningar frá æskuár- unum. Á seinustu 12 mánuðum hefur mikið skarð verið höggvið í systk- inahópinn, þar sem þrjú þeirra hafa látist á þessu tímabili, eða þau Jón Á. Jóhannsson, skattstjóri ,á ísafirði, sem lést 7. sept. 1992, Guðný, eða Gauja, húsmóðir í Reykjavík, sem lést 17. mars 1993 — og núna Ninna. Ninna var búin að glíma lengi við sín veikindi og vissi að hveiju stefndi. Fram á seinustu stundu hélt hún reisn sinni og glæsileika. Aldrei vantaði brosið og bjartsýnina þegar við heimsóttum hana á Land- spítalann. Hún vildi lítið ræða um eigin veikindi, en fylgdist náið með heilsufari annarra íjölskyldumeð- lima. Varla leið sá dagur að hún Erfidrykkjur Glæsileg kalli- hlaðborð tiillegir síilir oji» íiijiig 1»CK> |)j()IlllStlL Upplýsingar ísíma22322 m FLUGLEIDIR HÖTEL LOFTLElllK hringdi ekki til mín og þá til að fá slíkar fréttir af mínum bæ. Það var ríkt í eðli Ninnu að láta gott af sér leiða. Um árabil vann hún sjálfboðastarf fyrir Rauða krossinn og víða kom hún færandi hendi til sjúkra og aldraðra og þá gjarnan í fylgd með eiginmanni sín- um, Páli Briem. Ósjaldan styttu þau hjónin móður minni stundir eftir að hún varð ekkja. Ég minnist hennar einna fyrst þegar ég kom frá ísafirði og fékk að búa hjá Ninnu frænku, ásamt vinkonu minni. Nokkrum árum síð- ar fluttist ég síðan með fjölskyldu minni og urðu þá samskipti tíðari, enda einkar kært með þeim systr- um, móður minni og Ninnu. Állar minningar frá þessum tíma eru einkar ánægjulegar og gjarnan tengdar hjálpsemi hennar og glað- værð. Síðar átti Ninna eftir að reyn- ast dóttur minni, Bryndísi, og syni hennar, Ólafi Friðrik, einkar vel þegar þau dvöldust hjá móður minni í Reykjavík, en íj'ölskylda mín var erlendis. Fyrir þetta kann ég Ninnu miklar þakkir fyrir. Ninna og Páll eignuðust fjögur börn, Kristinu lögfræðing, gifta Siguijóni Ólafssyni tannlækni, Sig- rúnu hjúkrunarfræðing, gifta Jóni Viðari Arnórssyni tannlækni, Jó- hann rekstrarráðgjafa sem kvæntur var Ingibjörgu Haraldsdóttur, og Jóhönnu Björk, gifta Guðmundi Þorbjörnssyni verkfræðingi. Bama- börnin munu nú vera 12 talsins og nýlega bættist svo barnabarnabam í hópinn — glæsilegur hópur og stolt Ninnu. Við hjónin sendum Páli og fjöl- skyldunni allri innilegar samúðar- kveðjur og biðjum góðan Guð að styrkja þau í mikilli sorg þeirra. Minningin um góða konu mun lengi lifa. Guðlaug Brynja Guðjónsdóttir. Á yndislegu íslensku hausti hefur einnig haustað í lífi yndislegrar konu. Og að lokum em laufin fall- in. Hún Ninna tengdamóðir er látin. Það var eins og birtan sem frá Ninnu stafaði á hinum erfiðu síð- ustu vikum lífs hennar hafi náð til veðurguðanna og haldið haustinu í skefjum. Veðrið var stillt, tært og fagurt, og í fullkomnu samræmi við þá reisn sem Ninna hélt allt þar til yfir lauk. Andjegur styrkur hennar var einstakur og ógleymanlegur. Löngu var ljóst hvert stefndi, en umhyggjan fyrir öðrum og ósér- hlífnín höfðu eftir sem áður forgang hjá Ninnu fram til hinstu stundar. Ég kynntist Ninnu fyrst fyrir tæpum 17 árum, er ég hóf að gera hosur mínar grænar fyrir dóttur hennar, Jóhönnu Björk. Ég var eft- irvæntingarfullur í okkar upphafs- ky.nnum eftir allar þær goðsagnir um varasamar tengdamömmur sem gjarnan eru á kreiki. Það fór hins vegar svo, að Ninna afsannaði allar slíkar kenningar frá fyrstu stundu, og gott betur. Það var lán hveijum sem fékk Ninnu að kynnast. Það er e.t.v. mótsagnakennt, en þegar ég minnist Ninnu ræður gleð- in ríkjum og yfirbugar söknuðinn og sorgina. Og ég er sannfærður um að þannig vill hún hafa það. Það er úr vöndu að ráða þegar rifja á upp alla þá kosti sem Ninnu prýddu. Hvar á að byija? Glæsi- leiki, gestrisni og myndarskapur einkenndu allan hennar framgang. Stundum hafði maður á tilfinning- unni, að henni væri ætlaður æðri ERFIDRYKKJUR Verð frá kr. 850- P E R l. A N sími 620200 sess en okkur hinum, svo sköruleg var oft framkoma hennar. Og það er gaman að geta riíjað upp þær stundir, þegar hún naut sín best. Sérstaklega var hún í essinu sínu á stórhátíðum þegar öll fjölskyldan var saman komin, ekki síst þegar hún fékk að veita. En það þurfti ekki stórhátíðir til. Ninna var óþreytandi í hinu daglega amstri við að sinna þeim sem næst- ir henni voru. Fjölskyldan gekk allt- af fyrir. Ninna var afar blíð kona og umhyggjusöm og stóð styrkan vörð uin alla þá sem minna máttu sín. Þessa fengu ekki síst börn hennar og síðan barnabörn að njóta í ríkum mæli. Ninna var þolinmóð og skynsöm og margt heillaráðið gaf hún um ævina. Stundum var erfitt fyrir ungt og ákaft fólk að sætta sig við að Ninna hefði á réttu að standa. En hún var ávallt fyrst og fremst að hugsa um velferð annarra og skynsemin náði yfir- höndinni á endanum. Mig langar sérstaklega að geta eiginleika í fari Ninnu sem ég er ekki viss um að allir samferðamenn hennar hafi kynnst að marki. En það er hin ríka kímnigáfa sem hún bjó yfir. Ninna var mjög glettin og hafði gaman af að gantast. Kímnin var aldrei langt undan og lítið þurfti til að vekja hana upp. Stundum kom stríðnispúkinn upp í okkur og flugu þá skotin. Fyrir nokkrum árum var Ninna í heimsókn hjá okkur Hönnu þar sem við bjuggum úti í Sviss. Hafði ég verið heldur óstýrilátur í stríðni og fannst Ninnu ég ætti eitt- hvað inni. Bar þá við eftir góðan kvöldverð að ég bauð Ninnu kon- íak, sem hún hafði yndi af að dreypa á á góðri stundu. Þar sem uppá- haldskoníak Ninnu var ekki til á heimilinu neyddist ég til að færa henni lélegri gerð sem keypt hafði verið til matargerðar. Ég treysti því að hún fyndi engan mun. Hún dreypti á drykknum. Eftir svolitla þögn sneri hún sér síðan að mér og sagði í ávítunartón: „Tengdason- ur, hvers konar rusl ert þú eiginlega að bjóða mér?“ Þrátt fyrir ákveðn- ina í röddinni leyndi sér ekki kímn- isglampinn í augunum. Og bæði höfðum við gaman af. I þessum minningarslitrum get ég ekki látið hjá líða að þakka Ninnu fyrir hina ómældu ástúð og umhyggju sem hún veitti börnunum mínum, þeim Kristínu Hrund og Birgi Fannari, alla tíð. Aldrei var neitt mál svo rætt sem snerti fjöl- skylduhagi að Ninna spyrði ekki: „En hvað með börnin?“ Kristín Hrund fékk notið ömmu sinnar mun lengur en Birgir Fannar og mun um ókomna framtíð búa að því ómetanlega veganesti sem amma hennar veitti henni út í lífið. Kristín Hrund var afar hænd að ömmu sinni og voru þau ófá innilegu faðmlögin þeirra þegar þær hittust og kvödd- ust. Birgi Fannari verður sagt frá ömmu í Sigtúni þegar hann eldist og þroskast og vonandi tekst að skila til hans verðugri mynd af ein- stakri konu. Megi minning frú Jónínu Briem verða okkur öllum að leiðarljósi. Guðmundur Þorbjörnsson. Hinn 20. þ.m. lést í Landspítalan- um Jónina Briem, mágkona mín, á 76. aldursári og verður útför henn- ar gerð frá Dómkirkjunni í dag. Hún hafði yfirleitt verið við góða heilsu, þar til á síðasta ári, að hún kenndi þess sjúkdóms, sem nú hef- ur orðið henni að aldurtila. Allt var gert sem í mannlegu valdi stóð til að bjarga lífi hennar, en það kom fyrir ekki og þegar kom fram á þetta ár varð ljóst að hveiju stefndi. Sjúkdóm sinn bar hún með mikilli hugprýði. Hún talaði ekki mikið um veikindi sín og tók þeim með rósemi og æðruleysi. Jónína var Vestfirðingur að ætt og uppruna. Hún var fædd á Auð- kúlu í Arnarfirði hinn 27. nóvember 1917. Voru foreldrar hennar Jó- hann Jónsson, skipstjóri og bóndi, og kona hans, Bjarney Jónína Frið- riksdóttir. Þau eignuðust níu börn og er mikill ættbogi frá þeim kom- inn.' Börn þeirra voru þessi auk Jónínu: Jón, yfirlögregluþjónn og síðar skattstjóri á ísafirði, kvæntur Oktavíu Margréti Gísladóttur; Jens- ína, gift Guðjóni Jónssyni, banka- stjóra; Bjarney gift Andrési Krist- jánssyni, bónda og skipstjóra; Bjarni, lögreglumaður, síðar útsölu- stjóri ÁTVR á Siglufirði, giftur Guðlaugu Þorgilsdóttur; Guðmunda er dó ung að árum; Friðrik, trésmið- ur og fangavörður á Eyrarbakka, kvæntur Sólveigu Þorgilsdóttur; Guðný gift Kristjáni Sigurmunds- syni, framkvæmdastjóra, og Sigur- leifur, jársmiður á ísafirði, kvæntur Ingu Svövu Straumland. Sjö systk- inanna eru látin, en tvö eru á lífi þau Jensína og Friðrik. Þegar Jónína var á fjórða ári lést faðir hennar. Var hún þá tekin í fóstur af frænda sínum, Gísla Ás- geirssyni, bónda og skipstjóra á Álftamýri, og konu hans, Guðnýju Maren Kristjánsdóttur, en móðir hennar hélt áfram búskap á Auð- kúlu með tilstyrk elstu barna sinna. Jónína ólst síðan upp á Álftamýri hjá þeim Gísla og Guðnýju við gott atlæti. Gísli var mikill sjósóknari og forystumaður í sveit sinni bæði hreppstjóri og oddviti. Var mikill fyrirmyndarbragur á heimilinu á Álftamýri og öllum minnisstæður, er þangað komu. Guðný lést, er Jónína var á tólfta ári og stóð Jó- hanna, dóttir þeirra Gísla, eftir það fyrir búinu með miklum myndar- skap. Sagði Jónína, að hún hefði ávallt reynst sér sem hin besta móðir. Nokkru fyrir tvítugt fluttist Jón- ína á brott frá Álftamýri til ísafjarð- ar og átti þar heima næstu árin. Jónína var mikil hagleikskona og lék flest í höndum hennar. Hún nam kjólasaum á Siglufirði og í Reykja- vík og náði mikilli leikni í þeirri iðngreim Rak hún um skeið sauma- stofu á ísafirði. Sumarið 1941 kynntist hún bróð- ur mínum, Páli J. Briem, síðar úti- bússtjóra Búnaðarbanka íslands í Mosfellsbæ, syni Kristins P. Briem, kaupmanns á Sauðárkróki og konu hans, Kristínar Björnsdóttur Briem frá Hofstöðum í Skagafirði. Gengu þau í hjónaband 21. febrúar árið eftir og stofnuðu heimili í Reykja- vík. Bjuggu þau lengst af við Sig- tún og þar er heimilið enn. Þau eign- uðust íjögur börn. Elst þeirra er Kristín, lögfræðingur, er rekur málflutningsskrifstofu, gift Sigur- jóni H. Ólafssyni, tannlækni og lekt- or. Þau eiga þijá syni. Næst henni að aldri er Sigrún, hjúkrunarfræð- ingur, gift Jóni Viðari Arnórssyni, tannlækni og lektor, og eiga þau einnig þijá syni. Þriðja barn þeirra er Jóhann, rekstrarráðgjafi, búsett- ur í Garðabæ. Hann var kvæntur Ingibjörgu Haraldsdóttur og eiga þau þijú börn. Fyrir hjúskap átti Jóhann dóttur með Valgerði Bjöms- dóttur. Jóhanna Björk, sjúkranudd- ari og BA í ensku og þýsku, er yngst barna þeirra og er hún gift Guðmundi Þorbjörnssyni, verkfræð- ingi, og eiga þau tvö börn. Jónína var greind kona og fríð sýnum. Hún var hjálpsöm, ráðholl og úrræðagóð og leið öllum vel í návist hennar. Hún lagði mikla rækt við heimili sitt og veitti börn- um sínum gott uppeldi. Barnabörn hennar löðuðust mjög að henni og mikil samheldni var í ijölskyldunni og gestrisni á heimili þeirra Páls. Hún lét sér alla tíð mjög annt um systkini sín og fóstursystkini og fjölskyldur þeirra og hið sama er að segja um fjölskyldu mína. Auk heimilisstarfa starfaði Jón- ína fyrir Rauða krossinn um árabil á meðan heilsan leyfði. Það er skarð fyrir skildi, þegar Jónína er horfm héðan og mikill missir fyrir fjölskyldu hennar. Að leiðarlokum skulu henni færðar þakkir fyrir samfylgdina og vináttu í okkar garð um langt árabil. Send- um við Hjördís og börn okkar Páli, börnum þeirra og barnabörnum innilegar samúðarkvejur vegna frá- falls hennar. Gunnlaugur Briem. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (E. Ben.) Hinn 20. september sl. lést í Landspítalanum tengdamóðir mín elskuleg, frú Jónína Jóhannsdóttir Briem. Jónína var fædd 27. nóvem- ber 1917 og uppalin við Arnarfjörð til 16 ára aldurs að hún fluttist til Isafjarðar. Þar kom hún svo síðar á fót saumastofu eftir að hafa num- ið kjólasaum í Reykjavík og á Siglu- firði. í febrúar 1942 giftist hún Páli J. Briem, bankastjóra, frá Sauðárkróki, og settist að í Reykja- vík. Mestallan sinn búskap bjuggu þau hjón í Sigtúni 39, í Reykjavík, sem þau keyptu uppsteypta ný- byggingu 1948 og innréttuðu svo sjálf og luku við. I Sigtúninu ólust upp börnin þeirra fjögur, við öryggi og íestu í fallegu borgarhverfi og hlutu þá umhyggju og ástúð í upp- vextinum, sem einkenndi Jónínu alla tíð. Hún fórnaði sér fyrir heill barna sinna og hamingju og leitun er að konu, sem ræktaði móðurhlut- verk sitt af sömu kostgæfni og Jón- ína gerði. Á þessum tímum skömmtunar og vöruskorts var sjálfsþurftar búskapur nauðsyn. Húsmæður súrsuðu, söltuðu, söft- uðu, sultuðu og saumuðu, og með takmarkaðri aðstoð heimilistækja var vinnudagurinn oftast langur og lítill tími vannst til að sinna eigin hugðarefnum. Jónína var einstak- lega iðjusöm, henni féll varla verk úr hendi og flíkur þær, sem hún saumaði á börn sín, voru unnar af slíkri snilld að eftirtekt vakti í fjöl- skylduboðum og á jólaböllum. Kynni mín og Jónínu hófust vor- ið 1966, er Sigrún eiginkona mín og ég vorum í tilhugalífinu. Þegar við svo giftum okkur 1968 hófum við búskap skammt frá tengdafor- eldrum mínum, Ninnu og Páli, og þaðan í frá höfum við alla tíð haft góð og náin tengsl. Við vorum að vísu búsett um fjögurra ára skeið í Englandi, þar sem ég stundaði framhaldsnám, en þau komu til okkar í heimsóknir og við til þeirra um jól og í sumarfrium. Alltaf var Jónína tilbúin til að rétta hjálpar- hönd og barnabörnin voru alltaf velkomin til lengri eða skemmri dvalar til ömmu og afa í Sigtúnið. Tengdamóðir mín var stórbrotin á margan hátt, svo að minnir á fjöllin þverhníptu við Arnarfjörð, en í bland svo blíð og vorkunnsöm að líkja mætti við innfjarðarlognið, sem við þekkjum svo-vel, sem nut- um þeirrar gæfu að alast upp við þessi náttúruskilyrði. Jónína var félagslynd og hrókur alls fagnaðar á mannamótum, minnug mjög á menn og atburði og fróð um ætt- fræði. Hún var falleg kona og glæsi- leg svo að eftir var tekið og naut virðingar allra sem kynntust henni. Eftir að heimilishald léttist og börnin hurfu að heiman hóf Jónína störf af fullum krafti fyrir kvenna- deild Rauða kross íslands og var mjög virk innan þess hóps. Hún starfaði í mörg ár við útlán bóka til sjúklinga á Landspítala og vann ötullega að fjáröflun kvennadeildar- innar. Fyrir tæplega einu og hálfu ári uppgötvaðist hjá Ninnu Iungna- krabbamein, sem hún barðist gegn af miklu þreklyndi og reisn til hinstu stundar. Hún var starfsfólki Land- spítala afar þakklát fyrir einstaka hjúkrun og aðhlynningu. Með þessum fátæklegu orðum vil ég þakka Ninnu samfylgdina,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.