Morgunblaðið - 30.09.1993, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1993
47
Á beinið með ferða-
málaráðherrann
I Frá Gunnlaugi Eiðssyni:
MER heyrist það á flestum, hvar í
flokki sem þeir standa, að Halldór
^ Blöndal standi sig vel í starfi. Og
það er rétt. Hann er vel heima í
málum, fljótur að átta sig og bregst
rétt við. Svo er hann góður sjálf-
stæðismaður. Hann hefur stefnu
Sjálfstæðisflokksins í blóðinu; er
ftjálshyggjumaður af eðlisávísun.
(Nú þykir sumum sniðugt að tala
um „ný-frjálshyggju“. Guð einn
veit hvað það er. Fijálshyggja Hall-
dórs er bæði fom og ný.)
Þegar allt varð vitlaust útaf
fuglalöppum og svínafitu, sem flutt
var inn soðin og selja átti okkur
landsmönnum ódýrt, þá gerði Hall-
■ Frá Guðmundi Jónssyni:
KÆRA Rafmagnsveita Reykjavík-
k Ur’ -
' mikið hlýnaði mér um hjartaræt-
ur þegar ég fékk reikninginn frá
þér í júlí sl„ og sá að ég þurfti
ekki að borga svo mikið sem flmm-
eyring fyrir næstu tvo mánuði.
Þetta var eins og að vinna í happa-
drætti. Ég átti þá — alveg óvænt
— kr. 5.601 inni í góðri vörslu hjá
þér.
Aftur gladdist ég yfir reikningn-
um sem ég fékk á dögunum, því
aftur slapp ég við að borga, og á
ennþá inni kr. 1.512 í traustum
höndum þínum, og kemur sú upp-
hæð til frádráttar í nóvember. Eg
er bara alltaf að græða! Að hugsa
sér, mér eru meira að segja reiknað-
‘i ir til tekna vextir — alls kr. 7, og
þarna vaknaði forvitni mín. Þú
mátt ekki halda að ég sé að kvarta,
) þvert á móti er ég ákaflega stoltur
yfir því að a.m.k. ein stofnun í land-
dór það, sem rétt var. Og vegur
hans óx af því máli. Raunar stóð
allt ráðherralið Sjálfstæðisflokksins
með glans eftir þær málalyktir.
Afstaða margra ungra sjálfstæðis-
manna er engin ný pólitík. Hún
lýsir ekki neinni harðari frjáls-
hyggju en þekkst hefur í Sjálfstæð-
isflokknum. Hún er aðeins dæmi
um nýja kynslóð íslendinga: Borg-
arfólk. Það er fólk, sem fætt er og
alið upp á höfuðborgarsvæðinu og
þekkir ekkert annað en borgarlífið,
nema í gegnum kennslubækur. Og
borgarlífið er ekki bara skrifstofu-
og verslunarstörf. Auk margs ann-
ars er það sjávarútvegur t.d. Höfuð-
borgarsvæðið er ein stærsta verstöð
landsins. En landbúnaður er þessu
inu skuli halda uppi lágvaxtastefnu.
Mér datt meira að segja í hug að
stinga upp á því við þig að þú héld-
ir námskeið fyrir bankastjóra, svo
þeir gætu lært af þér!
Það eru nú meira en 56 ár síðan
ég útskrifaðist úr Verslunarskólan-
um, og þess vegna er ég farinn að
ryðga í prósentu- og vaxtareikningi
— og kannski ýmsu fleiru. Vonandi
er ég ekki að valda þér ónæði með
því að biðja þig að útskýra fyrir
mér hvernig þú reiknar „vexti af
inneign“. Eg er nefnilega dálítið
forvitinn.
Að lokum þakka ég þér birtuna,
ylinn og þægindin, sem þú færir
hverju heimili — að ógleymdum
vinnustöðunum — hér á höfuðborg-
arsvæðinu.
Fyrirgefðu nú kvabbið, og vertu
blessuð.
GUÐMUNDUR JÓNSSON,
söngvari,
Kvisthaga 14,
Reykjavík.
fólki algerlega framandi sem von
er, því hagsmunum þess er fullnægt
á höfuðborgarsvæðinu.
Flestum er hins vegar kunn
stefna Sjálfstæðisflokksins í land-
búnaðarmálum og utanríkisvið-
skiptum. Ráðherrar flokksins, ekki
síst Halldór Blöndal, hafa í engu
kvikað frá henni. Innflutningur á
landbúnaðarvörum verður gefinn
fijáls (með undantekningum vegna
heilbrigðis- og hollustuverndar). En
því skyldu bændur ekki fá aðlögun-
artíma eins og aðrir? Erum við
bættari með því að rústa íslenskan
landbúnað? Bændur hafa þegar tek-
ið á sig meiri kjaraskerðingu en
aðrar stéttir í landinu sl. 2-3 ár.
Sjálfstæðismenn vilja ekki halda í
staðnað og úrelt landbúnaðarkerfi.
Við viljum breyta því: Eyða miðstýr-
ingu og höftum, auka frelsi og rétt
bænda til að stýra eigin búum.
Um þetta má hafa langt mál.
En ég er hissa á ferðamálaráðherr-
anum okkar. Það er hann Halldór
Blöndal. Ár eftir ár leyfir hann inn-
flutning á soðnu kjöti, smjöri, osti,
og guð má vita hveiju. Áreiðanlega
svo hundruðum kílóa skiptir. En
ekki til að Jóhannes í Bónusi eða
Óskar í Hagkaupum geti selt okkur
ódýran mat. Nei, þetta er ekki
handa okkur — ekki landanum.
Útlenskar ferðaskrifstofur flytja
þetta inn handa sínu fólki, erlendum
ferðamönnum. Hér á ég við al-
ræmdar ferðaskrifstofur austur-
rískar, hollenskar og þýskar, sem
ég vil ekki nefna.
Og hvað voru þeir svo að segja
um, að hver lög gildi jafnt á landinu
og að allir séu jafnir fyrir lögum?
Hvers eiga þá t.d. ferðamenn ís-
lenskra ferðaskrifstofa að gjalda?
Mættu þeir ekki fá að smakka á
dönskum svínalöppum, eða hvað
þetta nú var?
Ég held það væri rétt, að hann
Halldór tæki þennan ferðamálaráð-
herra á beinið.
GUNNLAUGUR EIÐSSON,
Lindargötu 42,
Reykjavík.
Pennavinir
Frá Sierra Leone skrifar karl-
maður sem getur ekki um aldur en
segist hafa mikinn áhuga á íslandi:
Raymond Ola Buck,
12 Upper East Street,
Freetown,
Sierra Leone.
Frá Ghana skrifar 23 ára stúlka
með áhuga á bréfaskriftum og tón-
list:
Perpetual Creba,
P.O. Box 987,
Oguaa,
Ghana.
Frá Spáni skrifa þrír 27 ára
menn sem vilja eignast íslenska
pennavini á aldrinum 20-30 ára.
Þeir senda bréf sitt í nafni:
Pedro Caballero,
Daoiz y Velarde 15-8°,
28807 Alcala de Henares
(Madrid),
Spain.
LEIÐRÉTTING AR
Leiðrétting
I frétt um hinn nýja Reykjahlíð-
arskóla í Mývatnssveit sem tekinn
var í notkun fyrir nokkru og birtist
í blaðinu sl. laugardag var rangt
farið með föðurnafn Páls Kristjáns-
sonar, en einstaklingur sem ekki
vildi láta nafns síns getið gaf skól-
anum peningaupphæð til minningar
um þá Pál og Hermann Hjartarson.
Beðist er velvirðingar á mistökun-
um.
VELVAKANDI
SKATTPINING
SKULDLAUSRA
GUÐMUNDA hringdi og vildi
taka undir það sem fjallað er um
í grein sem birtist hér í blaðinu
um skattpíningu skuldlausra.
Hennar skoðun er sú að þegar
fólk er komið á efri ár, hefur
alltaf reynt að standa í skilum
og er ekki í neinum sjóðum, þá
lifir það eingöngu á því sem það
hefur reynt að spara. Að fara
að skattleggja skuldlausar eignir
er algjört siðleysi.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Seðlaveski tapaðist
RAUTT indverskt seðlaveski tap-
aðist í Kópavogi eða við HáaleiL
isbraut sl. föstudagskvöld. í
veskinu voru skilríki og persónu-
legir munir. Upplýsingar í síma
31767.
Hjól í óskilum
BRÚNT unglingahjól hefur verið
í óskilum í Grensáshverfi í nokk-
urn tíma. Upplýsingar í síma
32172.
Úlpa tapaðist
BLÁ vatteruð drengjaúlpa með
grænu fóðri tapaðist einhvers
staðar í grennd við Grandaskóla
eða KR-heimilið. Aftan á úlpuna
stendur skrifað orðið Mountains.
Eigandinn, sem er sex ára dreng-
ur, biður þann sem fann úlpuna
að hringja í sima 29549.
GÆLUDYR
Síamslæða
TÍU mánaða hreinræktuð síams-
læða, sealpoint, fæst gefins á
gott heimili. Á kyn að rekja til
verðlaunakat'ta. Upplýsingar í
síma 31765.
Týndur páfagaukur
LITILL hvítur og blár páfagauk-
ur hvarf að heiman frá sér, Skóg-
arhæð 2, Garðabæ, í bytjun ág-
úst. Hafi einhver orðið ferða hans
var er hann vinsamlega beðinn
að hringja í síma 658836.
Felix vantar gott heimili
AF ÓVIÐRÁÐANLEGUM orsök-
um vantar níu mánaða högna
gott heimili. Felix er inniköttur,
kelinn, barnvanur og afar
skemmtilegur. Upplýsingar í
síma 672829.
Týndur köttur
SVÖRT þriggja mánaða læða,
með hvítar loppur og bringu, tap-
aðist frá Fannafold sl. laugardag.
Hafi einhver orðið hennar var er
hann vinsamlega beðinn að
hringja í síma 674772. Halldóra.
Týndur páfagaukur
LÍTILL gulur páfagaukur flaug
út um glugga á Fellsmúla 4 sl.
þriðjudagsmorgun. Hafi einhver
orðið hans var er hann vinsam-
lega beðinn að hringja í síma
34763.
Rafmagnsveita Reykjavíkur
5% staðgreiðsluafsláttur,
einnig af póstkröfum greiddum innan 7 daga.
mmúTiLíFmm
GLÆSIBÆ. SÍMI812922
MAXFACTOR
INTERNATIONAL
Nýja Max Factor naglalakkið er
demanthart og endingin ótrúleg