Morgunblaðið - 05.11.1993, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1993
FRJALSIÞROTTIR
Fríða Rún varð aftur
Georgíumeistarí
„ÞAÐ var ánægjulegt að vinna hlaupið annað árið í röð,“ sagði
Fríða Rún Þórðardóttir hlaupakona úr UMFA í samtali við Morg-
unblaðið en hún varð háskólameistari Georgíuríkis í víðavangs-
hlaupi á dögunum. Sigraði hún annað árið f röð í hlaupinu, sem
fram fór í Ólympíuborginni Atlanta.
Fríða Rún sigraði ekki einvörð-
ungu í sjálfu hlaupinu, sem var
röskir 5 kílómetrar, heldur leiddi
hún skólasveit sína enn á ný til sig-
urs í sveitakeppninni. Sigraði skól-
inn reyndar fjórða árið í röð í sveita-
keppninni og hefur Fríða Rún verið
í sveitinni öll þess ár.
Fríðu Rún hefur gengið vel í víða-
vangshlaupum bandarískra háskóla
í haust; hefur unnið þijú hlaup af
fimm og einu sinni orðið í öðru
sæti. Um síðustu helgi varð hún í
sjöunda sæti af 90 keppendum á
sterku svæðismeistaramóti Suð-
austur-Bandaríkjanna og hreppti
skólasveitin bronsverðlaun í mjög
sterku hlaupi í Baton Rouge í Louis-
ianaríki. „Samkvæmt stigagjöf fyrir
hlaupið áttum við að verða í fimmta
sæti og því telst útkoman góð,“
sagði Fríða Rún.
„Ég náði mér ekki alveg á strik
í þessu hlaupi. Færið var mjög
blautt og þungt og var ég í 13.-15.
sæti eftir tvær mílur af þremur en
blótaði og beit á jaxlinn og komst
fram úr átta stelpum á síðasta kafl-
anum.
„Ég hef æft mjög mikið og vona
að það gangi vel á næstunni. Um
aðra helgi fer skólasveitin til Suður-
Karólínu og keppir á úrtökumóti
fyrir bandaríska háskólameistara-
mótið. Þar munum við etja kappi
við sjö til átta aðrar skólasveitir um
tvö til þijú sæti og það verða allir
að eiga góðan dag til að sveitin
komist áfram,“ sagði Fríða Rún.
Fríða Rún Þórðardóttir
■ TORFI Magnússon hefur verið
ráðinn landsliðsþjálfari kvenna í
körfuknattleik fram yfir alþjóðlegt
mót sem fram fer í desember á
Kýpur. Torfi var með landsliðið
áður en þjálfurum A-landsliðanna
var sagt upp í sumar, en hefur nú
verið endurráðinn fyrir þetta ein-
staka verkefni.
■ ANDRI Marteinsson landsliðs-
maður í knattspymu úr FH hefur
skrifað undir tveggja ára samning
við norska félagið Lyn, sem féll nið-
ur í 2. deild þar í landi í haust.
■ GEIR Sveinsson gerði fimm
mörk fyrir Alzira og Júiíus Jónas-
son fjögur gegn Sicak frá Króatíu
í fyrri Evrópuleik liðanna sem fram
fór í Zagreb. Alzira sigraði örugg-
lega, 20:30.
■ HAFSTEINN Gunnarsson frá
Akranesi hefur verið ráðinn á skrif-
stofu Knattspyrnusambands Is-
lands. Hann mun m.a. verða starfs-
maður mótanefndar, aganefndar og
mannvirkjanefndar. Hafsteinn hef-
ur verið^ starfsmaður Knattspymu-
félags LA síðustu tvö árin. Klara
Ósk Bjartmarz verður í 80% starfi
á skrifstofu KSÍ og mun m.a. verða
starfsmaður kvennanefndar. Þau
hefja bæði störf eftir áramótin.
■ ELVERUMvann lið Bodö 32:24
í 1. deild norska handboltans um
síðustu helgi. Þórir Hergeirsson,
þjálfari Elverum, sagði að leikurinn
hefði verið þokkalegur, en vamirnar
slakar hjá báðum liðum. Hann hafði
eftir Sigurði Gunnarssyni, þjálfara
Bodö, að þrátt fyrir tap í fjórum
fyrstu leikjunum, væri ekkert að
óttast. Gylfi Birgisson gerði fimm
mörk fyrir Bodö, en Matthías Matt-
híasson stóð sig vel þær 25 mínút-
ur, sem hann var inná hjá Elverum,
og gerði eitt mark.
-9 MIKEBrown einn þjálfara TBR
í badminton sagði upp störfum á
mánudaginn. Hann hefur starfað
sem þjálfari í hálft þriðja ár og í
fyrra þjálfaði hann einnig landsliðið.
■ DIEGO Maradona meiddist í
síðari hálfleik í landsleik Argentínu
og Astraliu sl. sunnudag eftir sam-
stuð við Paul Wade, fyrirliða Astr-
alíu. Talsmaður landsliðsins, Ro-
berto Viera, sagði að fyrirliðinn
yrði orðinn góður fyrir síðari leik
þjóðanna 17. nóvember í Buenos
Aires.
Leikur númer eitt á
laugardagsseðlinum er:
1. Orebro - Vasalund
- allir hinir eru enskir.
GOLF
Á golfvelli Arnold Palmers
ÚLFAR og Amar Már hittu einn frægasta kylfing allra tíma, Amold Palmer, á Bay Hill í Flórída á dögunum. Palmer
á þennan völl og lék í næsta riðli á eftir þeim félögum. Úlfar lék mjög vel, var fímm undir eftir fyrri níu holumar.
Úlfar á réltri leið
- segir Arnar Már Ólafsson golfkennari sem leiðbeindi Úlfari ytra
ÚLFAR Jónsson, kylfingur úr Keili, hefur ákveðið að reyna að
komast að á sænsku mótaröðinni næsta sumar eftir að hafa
leikið á þremur mótaröðum i Bandaríkjunum í vetur. Ástæðan
er meðal annars að heldur ódýrarara er að leika í Svíþjóð en í
Bandaríkjunum. Næsta haust er stefnan síðan sett á úrtökumót-
in fyrir stóru mótaraðirnar tvær í Bandaríkjunum, PGA-mótin eða
Nike-mótin.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Arnar Már Ólafsson golfkennari
úr Keili var nýverið hjá Úlfari
í Bandaríkjunum til að leiðbeina
honum og aðstoða.
Arnar Már segir Úlf-
ar tvímæialaust á
réttri leið og það
hafi verið rétt
ákvörðun hjá honum að fara ekki í
úrtökumótin sem nú standa yfir.
„Hann hefur verið að spila ágætlega
og hefði ef til vill komist áfram, en
ef eitthvað hefði komið uppá hjá
honum þá hefði hann verið búinn
með það fé sem hann ætlar til að
lifa af veturinn," segir Arnar Már.
„Það eru tveir strákar sem æfa
með Úlfari í Louisana sem komust
í gegnum fyrsta úrtökumótið núna
og Ulfar hefur verið að leika jafn
vel og þeir ef ekki betur. Ég held
samt að það sé rétt hjá Úlfari að
gefa sér eitt ár til að venjast því að
leika á atvinnumannamótum áður
en hann lætur til skarar skríða við
stóru mótin. Hann hefur skipulagt
þetta allt út í ystu æsar og heldur
sig við það, spilar á þremur mótum
í mánuði og hann er þegar farinn
að finna þefinn af því að leika tals-
vert langt undir pari valla þannig
að hann er á réttri leið. Sem dæmi
get ég nefnt að á meðan ég var með
honum úti lékum við með Árna
Árnasyni í Austurbakka einn hring
á veljinum þar sem hann býr og þar
lék Úlfar völlinn á 60 höggum, eða
tíu undir pari hans og setti vallar-
met.“
Úlfar hefur ákveðið að leika á
þremur mótaröðum, Emorald Coast
í Flórída, Texas Tour og Tommy
Armour en það er stærsta og erfið-
asta mótaröðin og eru vikuleg mót
í henni í kringum Orlando. Með vor-
inu er síðan hugmyndin að fara til
Svíþjóðar og taka þátt í úrtökumót-
. um til að komast að á sænsku móta-
röðinni og leika á henni ef hann
kemst að. Næsta haust er síðan stóra
stundin þegar reynt verður við
bandarísku mótaröðina.
„Úrtökumótin í Barndaríkjunum
eru eiginlega fjórskipt. Á fyrsta stigi
detta flestir út en ef menn komast
í gegnum annað stigið eru menn
nokkuð öruggir um að komast á
Nike mótin. Þriðja og fjórða stigið
er síðan til að ákveða hveijir fara á
PGA mótin og hveijir á Nike. Allt
skipulag hjá Úlfari er mjög raun-
hæft og ég tel hann vera á réttri
leið og möguleikar hans á að kom-
ast áfram eru mjög miklir. Hæfileik-
arnir eru til staðar og hann hefur
rétta skapgerð til að ná langt. Þeir
sem eru að leika á þessum „míní“
mótum eru fyrst og fremst strákar
sem eru að stefna að því sama og
Úlfar, að komast lengra og þetta
er mikill fjöldi kylfinga," segir Amar
Már.
Það kostar mikla peninga að taka
þátt í þessum mótum. Menn verða
að greiða fyrir að taka þátt í hverri
mótaröð og kostar um 12 þúsund
krónur á hveija mótaröð og síðan
annað eins á hvert mót innan þeirra.
Úlfar þarf að auki að aka nokkuð
langt til að komast í þessi mót og
sjá sér fyrir fæði og húsnæði á
meðan mótin standa yfir. „Ef Úlfar
kemst á Nike-röðina verður það til-
tölulega ódýrara fyrir hann því þá
eru ferðir og uppihald greitt að hluta
til og verðlaunaféið er inun hærra.
Menn verða líka að hafa í huga að
þó svo kylfingur komist inn á PGA
mótaröðina er ekki tryggt að hann
geti gengið inn í öll mótin. Það gera
menn ekki fyrr en þeir hafa sannað
sig. Flestir þu'rfa að taka þátt í úr-
tökumótum fyrir hvert mót,“ segir
Arnar Már.
InémR
FOLK
■ TIM Flowers, markvörður So-
uthampton í Englandi, skrifar í dag
undir samning við Blackburn Rov-
ers. Söluverðið var 2,4 milljónir
punda — andvirði 250 milljóna —
og leikur markvörðurinn gegn QPR
strax á morgun. Flowers er sagður
fá 8.000 pund á viku í laun hjá
Blackburn; andvirði 840.000
króna.
■ DAVE Beasent, varamark-
vörður Chelsea, var í gær keyptur
fyrir 300.000 pund — 31 milljóna
kr. — til Southampton. Honum er
ætlað að fylla skarð Flowers.
■ UEFA, Knattspyrnusamband
Evrópu, vísaði í gær frá kröfu
spænska félagsins Atletico Madrid
um að félagið fengi að mæta OFI
frá Krít aftur í Evrópukeppninni.
■ GRÍSKA félagið sló Atletico
Madrídarliðið út úr Evrópukeppn-
inni í vikunni. Grikkirnir sigruðu
2:0 á Krít og gerðu annað markið
— sem skipti sköpum' — úr mjög
vafasamri vítaspyrnu. Markvörður
Atletico varði skotið; sló knöttinn
í stöng og þaðan rúllaði hann eftir
marklínunni, áður en markvörður-
inn náði að slá hann frá. Sjónvarps-
upptaka þykir sýna að knötturinn
hafi aldrei farið inn fyrir marklín-
una. Talsmenn UEFA sögðu ein-
faldlega að úrskurður dómarans
væri endanlegur.
■ TONY Daley, leikmaður Aston
Villa, sem talið var að væri á leið
til Udinese á Italíu, verður áfram
hjá Villa. ítalimir vildu aðeins
leigja leikmanninn, sem er 26 ára,
og sjá til hvemig hann stæði sig.
En Ron Atkinson, stjóri Villa, vildi
ekki láta Daley fara nema að Udi-
nese keypti hann. Ekkert verður
því af því að hann fari.
■ GIANLUIGI Lentini, leikmað-
ur AC Milan, sem lenti í mjög alvar-
legu bílslysi í ágúst — og var talinn
í lífshættu á tímabili — hefur feng-
ið grænt ljós frá læknum um að
mega byija að æfa á ný. Lentini
vonast til að spila gegn gömlu félög-
unum í Tórínó í ítölsku 1. deildinni
5. desember.
■ TOTTENHAM í Englandi kom
á óvart í fyrradag er félagið keypti
miðvallarleikmannin Mickey Haz-
ard frá Swindon á 60.000 pund,
andvirði 6,3 milljóna króna. Haz-
ard, sem orðinn er 33 ára, lék með
Tottenham fyrir nokkrum árum,
við góðan orðstír, en var síðan hjá
Chelsea og Portsmouth áður en
hann fór til Swindon, þar sem hann
lék m.a. undir stjóm Ossie Ardi-
les, sem nú er við stjórnvölinn hjá
Tottenham, en þeir léku einnig
saman hjá félaginu á sínum tíma.
■ NICK Faldo, stigahæsti kylf-
ingur heims, hefur tilkynnt að hann
verði ekki með á HM liða í golfi,
sem fram fer í næstu viku í Flórída.
Meiðsli á úlnlið koma í veg fyrir
að þessi frábæri enski kylfingur
Seti tekið þátt.
I MEXÍKÓ sigraði Kína í vin-
áttulandsleik í knattspyrnu, 3:0, í
San Diego í Bandaríkjunum í
fyrrinótt.
É ÓTTAST er að Elber, brasil-
ískur framheiji hjá svissneska liðinu
Grasshopper, missi sjón á vinstri
auga eftir að fengið högg í það í
leik um síðustu helgi.
■ JULIO Cesar, brasilíski varn-
armaðurinn hjá Juventus, meiddist
í Evrópuleik liðsins gegn Kong-
svinger í vikunni — fékk spark í
hægri sköflunginn, og verður frá
keppni í mánuð.
■ GARY Lineker, fyrrum lands-
liðsmaður Englands í knattspyrnu,
meiddist í leik með Nagoya
Grampus Eight í japönsku 1. deild-
inni í vikunni — tábrotnaði, og verð-
ur líklega ekki meira með það sem
eftir er keppnistímabilsins.
■ DANSKI landsliðsmaðurinn í
knattspyrnu Johnny Mölby var í
gær seldur frá Borussia Mönc-
hengladbach í Þýskalandi til belg-
íska félagsins Mechelen. Hann er
24 ára.