Morgunblaðið - 05.11.1993, Qupperneq 44
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
SlÓVÁ^ftvLMENNAR
sluí(69nBMASÍMBRÉFN69lnsí, 'pÓSTHÓL.f'mÍo'/ AKVREYRl: HAFNARSTRÆTl 85 FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Nauðgunardómur þyngdur á grundvelli DNA-rannsóknar
12 ára fangelsi fyr-
ir nauðganir og rán
Greiði fórnarlömbum 2 milljónir í skaðabætur
HÆSTIRÉTTUR þyngdi í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir
Björgvini Þór Ríkharðssyni, 27 ára, og dæmdi hann í 12 ára fang-
elsi fyrir tvær nauðganir, líkamsárás, rán framið á sóibaðsstofu í
Reykjavík og nokkur fjársvikabrot. Aðra nauðgunina framdi maður-
inn með hettu á höfði í júlí 1992 þegar hann braust inn á konu á
Akureyri og hótaði að vinna henni og börnum hennar mein ef hún
léti ekki að vilja hans. Akæra á hendur honum var meðal annars
studd niðurstöðum DNA-rannsóknar og í dómi Hæstaréttar kemur
fram að- sú niðurstaða sé meðal þess sem þyki veita fulla sönnun
fyrir sekt mannsins þrátt fyrir neitun hans. Þetta er samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins þyngsti fangelsisdómur sem upp hefur
verið kveðinn yfir manni á íslandi fyrir aðrar sakir en manndráp.
Héraðsdómur hafði dæmt manninn í 10 ára fangelsi en Hæstiréttur
staðfesti ákvörðun héraðsdóms um að maðurinn skuli auk alls sakar-
kostnaðar greiða 2 millj. kr. í skaðabætur til fórnarlamba sinna.
Morgunblaðið/Júlíus
Bílarnir mikið skemmdir
TÆKJABIL slökkviliðsins þurfti til þess að losa fólkið úr bílunum.
Börn slösuðust í
árekstri við bíl í
fylgd forsetans
TVÖ BÖRN og móðir þeirra slösuðust í hörðum árekstri á mótum
Miklubrautar, Hringbrautar, Snorrabrautar og Bústaðavegar síð-
degis í gær þegar bíll móðurinnar lenti í árekstri við stóran fólks-
bíl sem í voru auk ökumanns tveir fylgdarmenn Namibíuforseta
en bíllinn hafði dregist aftur úr lögreglufylgd forsetans. Meiðsli
mæðginanna voru ekki talin alvarleg, að sögn lögreglu, en annað
barnanna, fjögurra ára, þurfti að gangast undir allnákvæma skoð-
un og röntgenmyndatökur. Namibíumennirnir fóru sjálfir til eftir-
lits á slysadeild en eru ekki taldir alvarlega meiddir.
Aðdragandi árekstursins var sá
að sögn lögreglu að vegna fylgdar
Namibíuforseta var iögreglumaður
að stjóma umferð um gatnamótin.
Lögreglubíll var í fararbroddi nokk-
urra bíla sem fluttu fylgdarlið for-
setans. Einn bílanna með fylgdar-
menn forsetans hafði hins vegar
dregist afturúr og höfðu aðrir bílar
komist inn á milli hans og fylgdar-
innar. Lögreglumaður sem stjóm-
aði umferð um gatnamótin hafði
því hætt umferðarstjóm þegar sá
bíll kom að gatnamótunum.
Kristján Loftsson, útgerðar-
maður Venusar, segir að menn
renni nokkuð blint í sjóinn með
veiðar af þessu tagi. Reyndar
hafi einn bátur reynt fyrir sér í
fyrra með flottroll, en sú síld
hafí ekki verið unnin um borð.
„Þetta byggist á því að vel veið-
ist, en við getum fryst um 25
tonn á sólarhring. Sfldin er ódýr
fiskur og því verður mikið að
ganga í gegn um vinnsluna til
að dæmið borgi sig. Það er sagt
að stærsta síldin haldi sig næst
botninum og henni er hægt að
ná í trollið. Verði hátt hlutfall
af stórsíld í aflanum, getur út-
flutningsverðmæti FOB á hvert
kíló orðið um 60 krónur. Það
munar um þá verðmætaaukningu
miðað við bræðslu, en í fyrra
Rautt eða gult ljós
Móðir barnanna sagði við lög-
reglu að bíllinn með Namibíumönn-
unum hefði farið inn á gatnamótin
á rauðu ljósi þegar hún ætlaði að
beygja af Hringbraut norður
Snorrabraut en ökumaður fylgdar-
bílsins sagði að gult ljós hefði logað
þegar áreksturinn varð.
Höggið kom á hlið bíls konunnar
með börnin og slasaðist það barn-
anna mest sem sat í barnastól þar
sem höggið kom á bílinn aftanverð-
fóru um 75% síldarinnar í mjöl-
vinnslu," segir Kristján Loftsson.
Sjávarútvegsráðuneytið aug-
lýsti í sumar eftir umsóknum um
leyfi til síldveiða í troll og sóttu
10 bátar um. Þeir fengu allir leyfi
til veiðanna. Að auki var auglýst
eftir umsóknum togara til veiða
á síld í troll í því skyni að auka
hlutfall síldaraflans til annarrar
vinnslu en bræðslu. Upp úr því
fengu frystitogararnir Venus og
Sléttanes og ísfisktogarinn Ólaf-
ur Jónsson leyfi til síldveiða í
troll. Venus og Sléttanes frysta
um borð en um borð í Ólafí var
ætlunin að vera með síldina í
körum og salta í landi. Fyrir
nokkrum áratugum reyndu síðu-
togarar fyrir sér með síldartroll
og Vestmannaeyjabáturinn Hug-
Auk nauðgunarinnar á Akureyri
var maðurinn sakfelldur fyrir að
hafa í nóvember 1992, nakinn ógn-
að starfsstúlku á sólbaðsstofu með
hnífí, hótað henni lífláti og rænt frá
sólbaðsstofunni 120 þúsund krón-
um. Sama dag hafði hann ekki
mætt í Héraðsdóm Reykjavíkur þar
sem dæma átti vegna árásar sem
hann var sakaður um og sakfelldur
fyrir með dómi Hæstaréttar í gær
en sú átti sér stað í húsi í Reykjavík
í maí 1992 þegar hann réðist inn á
sofandi konu, skar með hnífí utan
af henni sokkabuxur og þrengdi
hættulega að öndunarvegi hennar
þegar hún streittist á móti. Fyrir
þessa árás var maðurinn dæmdur
í Hæstarétti í gær og einnig nauðg-
un sem hann framdi á heimili sínu
í Hafnarfirði í september 1992 þeg-
ar hann þröngvaði tvítugri konu til
samræðis við sig.
I einróma niðurstöðum fímm
hæstaréttardómaranna kemur fram
að við ákvörðun refsingar verði að
líta til þess að maðurinn hafi gerst
sekur um óvenju hrottafengnar og
háskalegar líkamsárásir og stórfelld
kynferðisbrot og beitt við það
hættulegum verkfærum. Hann hafi
inn reyndi trollið í fyrra með
viðunandi árangri. Þá frysti tog-
arinn Siglfírðingur síld um borð
á sínum tíma, en síldarbátur sá
um veiðarnar þar sem togarinn
fékk ekki leyfi til veiða.
A vertíðinni í fyrra fór bróður-
rofið heimilisgrið og vakið fórn-
arlömbum sínum ótta um líf þeirra
og velferð og í einu tilviki líf og
velferð ungra bama. Um sakfell-
ingu fyrir nauðgunina á Akureyri,
sem grunur vaknaði um að Björg-
vin bæri ábyrgð á eftir ránið á sól-
baðsstofunni, segir í dómi Hæsta-
réttar að fram hafí farið sérstök
samanburðarrannsókn í Bretlandi á
blóðsýni úr manninum og sæði sem
fannst á árársarstað. Sú rannsókn
hafi bent til þess með líkum í hlut-
fallinu 1 á móti 300.000 að sæðið
væri úr ákærða. „Þessi niðurstaða
ásamt öðru því, sem í héraðsdómi
greinir, þykir veita fulla sönnun um,
að ákærði hafi þröngvað [konunni]
til holdlegs samræðis og annarra
kynferðismaka," segir í dómi
hæstaréttardómaranna Hrafns
Bragasonar, Haralds Henryssonar,
Hjartar Torfasonar, Péturs Kr.
Hafsteins og Sigurðar Líndals pró-
fessors.
Til frádráttar 12 ára fangelsis-
vist mannsins kemur gæsluvarðhald
frá 10. nóvember 1992.
Með dómi Hæstaréttar var stað-
fest ákvörðun héraðsdóms um að
dæma konunni á Akureyri 1,5 millj-
parturinn af síldinni í bræðslu og
náðist ekki að fylla upp í gerða
sölusamninga. Samkvæmt upplýs-
ingum frá sjávarútvegsráðuneytinu
stefnir í svipaða stöðu nú, þrátt
fyrir tilraunir til að fá aukið hlut-
fall aflans til vinnslu og aukinnar
verðmætasköpunar,
óna króna miskabætur frá mannin-
um, en það eru hæstu miskabætur
sem dæmdar hafa verið fórnarlambi
kynferðisbrots hér á landi. Fyrra
hámark var 800 þúsund krónur.
Konunni í Reykjavík sem maðurinn
réðist á sofandi eins og fyrr var
lýst voru dæmdar 500 þúsund króna
bætur og því var Björgvin alls
dæmdur til að greiða fómarlömbum
sínum 2 milljónir króna, auk alls
sakar- og áfrýjunarkostnaðar, en
þar er m.a. um að ræða kostnað
vegna DNA-rannsóknarinnar, svo
og 160 þús. kr. í saksóknarlaun og
220 þúsund krónur til vetjenda.
Flugleiðir í
Bandaríkjunum
Aðalstöðv-
arnar til
Maryland
FLUGLEIÐIR hafa ákveðið
að flytja aðalstöðvar sínar í
Bandaríkjunum frá New
York til borgarinnar Col-
umbia í Maryland og mun
starfsemi þar hefjast 1. jan-
úar nk. Verður skrifstofan í
um 20 mínútna akstursfjar-
lægð frá Baltimore/Wash-
ington alþjóðaflugvellinum.
Starfsfólki í New York hefur
verið boðið að flytjast til
nýrra bækistöðva í Columbia
en ekki er ljóst hve margir
þekkjast boðið. Er gert ráð
fyrir að ráða þurfi eitthvað
af nýju starfsliði. Nú starfa
tæplega 50 manns á aðal-
skrifstofunni í New York.
Flugleiðir og Loftleiðir hafa
haft skrifstofu í New York
síðan árið 1948.
Aðalástæða þess að ráðist er
í flutning skrifstofunnar er
lægri rekstrarkostnaður í Mary-
land en New York og er þetta
liður í sparnaðarátaki félagsins.
Farmiðasala hefur breyst mjög
undanfarin ár og fer nú nánast
eingöngu fram í gegnum ferða-
skrifstofur, síma og afgreiðslu
á flugvelli. Félagið mun þó eftir
sem áður hafa sölumenn starf-
andi í New York og þeir munu
halda sambandi félagsins við
ferðaskrifstofur á svæðinu.
Flogið er daglega til Balti-
more/Washington á sumrin en
fjórum sinnum í viku yfír vetur-
inn. Daglegar ferðir eru til New
York allt árið og flogið er tvisv-
ar í viku til Orlando og Fort
Lauderdale á Flórída.
Flugleiðir hafa auk þess
ákveðið að flytja skrifstofur sín-
ar í Ósló úr miðborginni til
Fomibue-flugvallar. Þá verður
skrifstofa félagsins í Stokk-
hólmi flutt til innan sömu bygg-
ingar.
Frystitogari á sfldveiðar
FRYSTITOGARINN Venus frá Hafnarfirði er nú að hefja síldveiðar
fyrstur frystitogara. Hann heldur af stað í dag eða um helgina og
tnun stunda veiðarnar með flot- eða botntrolli. Útgerð togarans
hefur keypt 1.100 tonna síldarkvóta og verður sildin flokkuð og
heilfryst um borð fyrir markað í Japan. Um tífalt hærra verð fæst
fyrir síldina með þessu móti, en fari hún í bræðslu.
Venus á síld
FRYSTITOGARINN Venus frá Hafnarfirði fer til síldveiða í dag eða
um helgina og er hann fyrsti frystitogarinn sem það gerir.