Morgunblaðið - 07.11.1993, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 07.11.1993, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1993 5 Nujoma Namibíuforseti vill auka viðskipti landa sinna við íslendinga Viljum bjarga okkur sjálfir og vera herrar í eigin landi Namibíumenn vilja ekki sitja með hendur í skauti „skælandi eins og börn“ ER Namibíumenn hlutu sjálfstæði fyrir þrem árum voru fiskistofnar við landið ofnýttir og sjávarútveg- ur hafði verið vanræktur í landinu sjálfu, það voru útlend skip sem stunduðu rányrkjuna. Eitt fyrsta verk sljórnar Sam Nujoma for- Yfirlæknir Blóðbankans Ekkert blóð- efni keypt frá Evrópu „BLÓÐBANKINN kaupir ekkert blóðefni frá Evrópu,“ sagði Ólaf- ur Jensson yfirlæknir og for- stöðumaður Blóðbankans í sam- tali við Morgunblaðið. Landspítalinn keypti að sögn Ólafs blóðefnið storkuþátt 8 frá blóðbanka finnska Rauða krossins í Helsinki fram til ársins 1988. Síð- an þá hafi spítalinn keypt faktor 8, sem er háhreinsaður, frá Banda- ríkjunum. „Einnig kaupir spítalinn albúmín, sem unnið er úr plasma, frá Norðurlöndunum en það er dauðhreinsað," sagði Ólafur Jens- son. seta var því að lýsa yfir 200 sjó- mílna fiskveiðilögsögu og selja reglur um verndun fiskistofna. Þetta kom fram á blaðamanna- fundi forsetans og Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráð- herra á Hótel Sögu á föstudag; Davíð Oddsson forsætisherra gat ekki verið viðstaddur fundinn. Namibíumenn hafa flutt út tölu- vert af fiski til Spánar, Frakk- lands, Þýskalands og Bretlands og þeir gera sér vonir um að sjáv- arútvegur verði ein af helstu undirstöðum efnahags lands- manna. Nujoma forseti sagðist hafa átt afar gagnlegar viðræður við forsæt- isráðherra og fleiri ráðamenn hér- lendis í heimsókninni. Er- blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við Nujoma var hann fyrst spurður hvort íslensk og namibísk fyrirtæki gætu átt samstarf á fleiri sviðum en í sjávarútvegi, t.d. orku- vinnslu og landbúnaði. „Já í sendi- nefnd minni eru tveir kaupsýslu- menn. Markmiðið með heimsókn þeirra er að þeir ræði við starfsbræð- ur sína hér á landi og reyni að ná samningum um samstarfsfyrirtæki. Einkum er um að ræða sjávarútveg- inn að sjálfsögðu en einnig landbún- að og orkumál. Okkur fannst mikil til um framkvæmdirnar á Nesjavöll- um. Ég tel að okkur geti komið til góða kunnátta ykkar og reynsla í orkumálum. En í Namibíu viljum við reyna að nýta sólarorkuna, þar er sólskin allan ársins hring. Ég hygg að íslensk fyrirtæki gætu tekið þátt í verkefnum sem miða að því að nýta orku til að bæta efnahag okk- ar.“ - Norsk fyrirtæki eru byijuð að kanna hvort olíu er að finna við Namibíu. Eruð þið bjartsýnir? „Við bíðum milli vonar og ótta eftir niðurstöðunni, olíutekjur myndu létta okkur mjög róðurinn í efnahagsmálunum." Reynsla og tækniþekking - Margir hafa að undanförnu gagnrýnt þá stefnu sem fylgt hefur verið hjá Sameinuðu þjóðunum síð- ustu áratugi í þróunaraðstoð. Finnst þér að vel hafi tekist til? „Sjálfur tel ég að ekki sé hægt að kenna Sameinuðu þjóðunum um efnahagsástandið í þriðja heiminum. Það þarf að kanna með vísindalegum aðferðum hvaða auðlindir eru fyrir hendi í hveiju landi og fá síðan þá sem hafa til þess reynslu og tækni- þekkingu að aðstoða við að nýta auðlindirnar. Sums staðar er ekki um margt að ræða en þá er að nýta vel það sem samt sem áður er til staðar. í Namíbíu höfum við sjávarútveg- inn en leggjum einnig mikla áherslu á landbúnaðinn. Við viljum auka fallþunga nautgripanna og sauðfjár- ins til að skepnurnar gefi af sér meira kjöt svo að við getum aukið útflutninginn. Við viljum fullvinna ýmsar námuafurðir sem nú eru flutt- ar út sem hráefni, þá aukum við verðmæti þeirra og hagnaðurinn verður eftir í landinu. Við teljum ekki rétt að sitja með hendur í skauti, skælandi' eins og smábörn, viljum heldur bjarga okkur sjálf“. - Þú vilt vafalaust ekki gagnrýna starfsbræður þína meðal annarra þriðjaheimsleiðtoga. En telurðu að of mikillar sjálfsmeðaumkunar hafi gætt hjá sumum þeirra, að þeir kenni gömlum nýlenduherrum um allt illt? „Það er ekki hlutverk mitt hér að finna sökudólga handa neinum, ég vil miklu heldur ræða um Namibíu. Þar er ég sjálfur ábyrgur.“ Nujoma er einn af örfáum lýðræð- islega kjörnum leiðtogum Afríku. Hann var spurður hveijgr líkurnar væru á því að lýðræði yxi ásmegin í álfunni, hvað vestræn ríki ættu að gera til að styrkja lýðræðisþróunina. Forsetinn svaraði að ákvarðanir um lýðræði og framkvæmd þess ætti hver þjóð að taka fyrir sig. Honum fyndist mikilvægt að almenningi yrði gert kleift að taka stöðugt þátt í daglegum ákvörðunum stjórnvalda sem snertu hag ailra, einnig að eiga Morgunblaðið/Kristinn Sam Nujoma, forseti Namibíu. aðild að grundvallarstefnumótun. Nujoma var fram á síðustu ár talinn marxisti eins og fleiri leiðtog- ar í þriðja heiminum. Hann var spurður hvort pólitískar skoðanir hans hefðu breyst mikið. „Ymsir og einkum þeir sem arð- rændu auðlindir Namibíu ásamt Suður-Afríkumönnum reyndu að sjálfsögðu að sverta okkur svo að nýlenduherrarnir gætu haldið áfram að stjórna landinu okkar, þeir voru staðráðnir í að halda völduin. Við vorum á hinn bóginn jafn staðráðnir í að binda enda á kúgunina og arðr- ánið. Við vildum ákveða eigin fram- tíð, við vildum hafa stjórn á fram- leiðsluatvinnuvegunum og gera okk- ar eigin samninga við þá sem viður- kenndu réttindi okkar. I slíkum samningum verður að ríkja gagn- kvæmur skiiningur og samstarf, báðir verða að hagnast á samvinn- unni. Við viljum bjarga okkur sjálfir og vera herrar í eigin landi.“ Sumir halda... En rétt er... ...að mikil veisla bíði íslendinga ef óheftur innflutningur á erlendum landbúnaðarafurðum verður heimilaður. ...að þúsundir íslendinga sem starfa við landbúnað og þjónustu í tengslum við hann munu missa atvinnu sína og erlendar landbúnaðarafurðir munu kosta þjóðina milljarða króna í erlendum gjaldeyri - höfum við ráð á því? ISLENSKUR LANDBÚNAÐUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.