Morgunblaðið - 07.11.1993, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1993
19
Kammertónlist
frá Bergen
________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
BIT 20 nefnist kammerhópur frá
Bergen sem hér var á ferð og
hélt tónleika sl. miðvikudag í
Norræna húsinu. Á efnisskránni
voru verk eftir Káre Kolberg,
Hákon Berge, Þorkel Sigur-
bjömsson og Grieg.
Tónleikarnir hófust á verki
sem nefnist Alluso og er eftir
Káre Kolberg. í efnisskrá er
haft eftir höfundi, að verkið sé
tilraun til að „semja tónlist innan
rammans „Grieg í nútímasam-
hengi“. Varla er hægt að hugsa
sér flatneskjulegra og óskáld-
legra markmið til listsköpunar.
Grieg mun ekki hafa annað sam-
hengi við nútímann og framtíð-
ina en sem nemur listgildi tón-
verka hans og þörf manna til
að njóta listar hans.
Það er ekki þar með sagt, að
verk Kolbergs hafi verið slæmt,
en ekki mikið meira að efnisinni-
haldi en sem nemur á köflum
skemmtilegri hljómsveitarút-
færslu. Sama má segja um verk-
ið eftir Berg, sem hann nefnir
Shimmer og á að vera „persónu-
leg upplifun á verkum Griegs
og einnig minning frá óteljandi
píanótímum í barnæsku“. (Und-
arleg sálarfræði, líklega mar-
tröð.) Það hófst á fallegum
píanóleik en síðan breyttist tón-
málið í effektaleit, sem á köflum
var áheyrilega hljómandi en hálf
mögur tónlist. Bæði verkin, sem
eru lýsandi fyrir staðnaðan
„modernisma", voru ágætlega
leikin undir stjórn Ingar Berby
og auðheyrt að hljómsveitin er
þokkalega vel mönnuð.
Flautuleikarinn Ingela 0jen
lék Kalais eftir Þorkel Sigur-
björnsson og í leik hennar gat
að heyra mildari og hlýrri vinda
en í íslenskum norðanvindi, en
nefndur Kalais var sonur norð-
anvindsins (Boreasar). Það var
þokki yfír leik hennar og
skemmtilegt að heyra þetta vin-
sæla verk Þorkels litað nýjum
blæbrigðum.
Tónleikunum lauk með laga-
flokknum Haugtussa eftir Gri-
eg, fallegu listaverki, sem óþarft
er að endurskoða með hliðsjón
af nýjum tíma, sem gert var
fyrir þessa tónleika með því að
umrita það fyrir hljómsveit. Það
er ekki auðvelt að umrita slík
verk og hér hefur umritaranum,
Kjell Flem, ekki tekist að gæða
hana lífi, því oft er hún æði
flatneskjuleg og hefði því farið
betur að flytja verkið með píanó-
undirleik.
Rannveig Bragadóttir söng
lagaflokkinn frábærlega vel og
ef eitthvað mætti tiltaka, var
bæði fyrsta lagið og það síðasta,
glæsilega sungið. Rannveig
túlkaði mjög vel sérkennilegar
andstæður verksins eins og t.d.
glaðværðina í Killingdans og í
dapurlegri stefjum, þar sem ást-
artreginn er túlkaður mjög fal-
lega.
Benjamin Bagby.
Benjamin Bag-
by syngur og
leikur á lýru
BENJAMIN Bagby mun flytja
valda kafla úr Bjólfskviðu og
Hildibrandskviðu í Norræna hús-
inu í dag, sunnudaginn 7. nóvem-
ber kl. 20.30.
Benjamin er félagi og meðstjórn-
andi þýska sönghópsins Sequentia,
sem hefur eingöngu helgað sig mið-
aldatónlist. Hann er hingað kominn
á vegum Goethe-stofnunarinnar úr
tónleikaferð um Bandaríkin og ætlar
hann ekki bara að halda tónleika
hér, heldur líka að fást við rannsókn-
ir í tengslum við fyrirhugaða Eddu-
hátíð í Lúxemborg 1995, þar sem
ætlunin er að færa upp atriði úr
goðafræði Eddu með það fyrir aug-
um að endurvekja tónlist miðalda.
Benjamin Bagby mun flytja valda
kafla úr Bjólfskviðu svo og Hildi-
brandskviðu alla, en eins og kunnugt
er úr gömlum heimildum, hefur tón-
list alla tíð verið mikilvægur þáttur
í flutningi fornra kvæða. Hljóðfærið
er endurbyggð 6 strengja lýra, eins
og hún fannst í haug óþekkts höfð-
ingja í Suðvestur-Þýskalandi frá 7.
öld.
Aðgangur er ókeypis.
Norræna húsið
Þriðju Háskóla-
tónleikar vetrarins
ÞRIÐJU Háskólatónleikar vetrarins verða í Norræna húsinu mið-
vikudaginn 10. nóvember kl. 12.30 og standa í um það bil hálfa
klukkustund.
Á tónleikunum flytur Chalume-
aux-tríóið verk eftir J. Haydn, Fr.
Schubert, A. Salieri, L.v. Beethoven
og W. A. Mozart.
Tríóið skipa Kjartan Óskarsson,
Óskar Ingólfsson og Sigurður Ingvi
Snorrason. Þeir félagar hafa starf-
að saman nokkur undangengin ár
og leika jöfnum höndum á flestar
gerðir klarínetta, allt frá litlu Es-
klarínettunni niður í bassaklarín-
ettu.
í verkefnavali sínu leggur Chal-
umeaux-tríóið mikla áherslu á sam-
tímatónlist og hafa mörg tónskáld
samið verk fyrir það. Sl. vor tók
tríóið þátt í tónleikum á vegum
Musica Nova og FÍH þar sem flutt
voru verk eftir hollenska tónskáldið
Joep Straesser. Af þessu tilefni
samdi Straesser verk, sem hann
nefnir Gedanken der Nacht, sér-
staklega fyrir Chalumeaux-tríóið.
Chalumeaux-tríóið
GOLFDUKARGOLFDUKARGOLFDUKARGOLFDUKARGOLFDUKAR
KJARAN
GÓLFBÚNAÐUR
SlÐUMÚU 14,108 REYKJAVÍK, SlMI 813022
golfdukargolfdukargolfdukargolfdukargolfdukAr
VEISTU HVAÐ
ÞETIA ER?
Svarið færðu hjá LESTRARHESTINUM, sem er
fræðslubókaklúbbur fyrir böm og unglinga. Hann er
áskriftarklúbbur sem saman stendur af 17 bókum í
bókaflokknum LÍFIÐ OG TILVERAN,
sem farið hefur sigurför um heiminn.
✓
Fjöldi Islendinga hafa skráð sig í klúbbinn á undan-
förnum dögum. Astæðan, segir fólk, vandaðar
fræðslubækur sem eiga erindi inn á hvert heimili.
Fræðsluhœkur fyrir börn og unglinga
itw
•, j ■’.■■ ■
V ■» ■■ .§i ■■■:. y
.......p • V b
%
•r' • f \ t J ■ -- - >’
m
\ • , .
:: , < , ■■■-■■'..:.■
iV' . • ■?.. 'Jt’.
1. bók. RISAEÐLUR
Dýr frá horfnum heimi
2. bók. DÝR - umhverfi
og lífshœttir
■ '■■ '■ •'■•'
Bœkurnar íþessum frábœra
bókaflokki fjalla um:
Risaeðlur • Dýraríkið • Jurtaríkið
Hafíð • Jörðina • Uppgötvanir
Himininn og stjörnurnar
Mannslíkamann * Söguna
Húsdýrin • Dýrin í náttúrunni
Ferðalög • Listir • Tónlist
Matreiðslu t'yrir byrjendur
Mannasiði • Þjóðsögur og þjóðtrú
Þetta er mynd
ggj*l / úr bókinni
■r]- RISAEÐLUR
sem er fyrsta
bókin í
bókaflokknuin
LÍFIÐ OG
TILVERAN
, ’ ’ -
-
f ■,■' •' ■ i > y. 's -■ / ' /• ■ • i
, „ ’ r > >r . i - - • ...
• ■' Vv - •-.. 'V' ■ .'■
G
B0KAKLUBBUR
LESTRARHESTURINN
SKJALDBORG • ÁRMÚLA23 • REYKJAVÍK
SIMI
7*24*00>
-ídagogaiía daga-
GÓLFDÚKARGÓLFDÚKARGÓLFDÚKAR