Morgunblaðið - 14.12.1993, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993
Kæfa flutt
inn athuga-
semdalaust
1 TENGSLUM við franska daga
í Hagkaupi í Kringlunni voru
flutt inn 140 niðursuðuglös með
franskri andarkæfu og hefur
kæfan verið til sölu í versluninni
undanfarið. Að sögn Óskars
Magnússonar framkvæmda-
stjóra var kæfan tollafgreidd án
athugasemda sem kjöt eða kjöt-
úrgangur. Glasið kostar tæplega
350 krónur en samsvarandi glas
með íslenskri framleiðslu kostar
rúmar 700 krónur úr búð.
„Við fluttum inn einn gám af
ýmsum vörum frá Frakklandi í
tengslum við franska daga,“ sagði
Óskar. Sumt hafði verið pantað í
sumar og þar á meðal um 140
niðursuðuglös með þremur tegund-
um af kæfu. Sagði hann að kæfan
hafi verið tollflokkuð með eðlileg-
um hætti sem vara er innihéldi
kjöt eða kjötúrgang. „Þetta var
flokkað eftir okkar bestu vitund
og þar upplýst að þessi vara inni-
héldi kjöt,“ sagði Óskar. „Þetta
fékk eðlilega umfjöllun en það voru
ýmsir aðrir hlutir sem voru í gám-
inum sem við fengum fýrirspurnir
um.“
Mögulegt framhald
Óskar sagði að þegar innflutn-
ingur á skinku var stöðvaður hafi
það verið gert á þeim forsendum
að nægilegt svínakjöt væri til í
landinu. „Nú veit ég ekki hvort
innflutningur á 140 krukkum af
kæfu gæti hugsanlega skaðað
markaðinn jafnvel þó svo hér væri
til andarkæfa. Ég geri ekki ráð
fyrir að þessi innflutningur hafi
verið skoðaður sérstaklega enda
var þetta flutt inn vegna franskra
daga,“ sagði hann. „Það má vel
vera að framhald verði á.“
Skigverjinn
af Onnu SH
Skipulagðri
leit er hætt
SKIPULAGÐRI leit að skip-
veijanum af Önnu SH frá
Stykkishólmi sem hvolfdi á
innanverðum Breiðafirði 1.
desember sl. er hætt.
Nafn skipveijans er Gísli
Kristjánsson, Bókhlöðustíg 3,
Stykkishólmi.
Forystumenn björgunar-
sveitarinnar Berserkja í
Stykkishólmi vilja koma þakk-
læti til ailra þeirra fjölmörgu
sem hafa veitt aðstoð við þessa
umfangsmiklu leit.
í dag
Debetkort______________________
Samkeppnisstofnun kannar hvort
samráð bankastofnana um debet-
kort varði við lög 4
Lát Hendrix rannsakað aftur
Á grundvelli rannsókna sjáifstæðs
aðila verður málið opnað aftur 34
Sörvisperlur og jaspis_________
Sörvisperlur sem taldar eru vera
frá fyrstu öldum Islandsbyggðar
fundnar í Víðgelmi í Hallmundar-
hrauni 43
Leiðari________________________
Sigur öfgaaflanna í Rússlandi 36
• * Morgunblaðið/Sigurgeir
Steinbítar fjölga sér
SÁ SJALDGÆFI atburður varð í Fiska- og náttúru-
gripasafni Vestmannaeyja í gærmorgun að steinbíts-
hængur fijóvgaði steinbítshrygnu og er það í annað
skipti sem hrogn hrygnunnar fijóvgast síðan safnið
eignaðist hana árið 1989. Kristján Egilsson, for-
stöðumaður safnsins, segir að þegar hann kom til
vinnu í gærmorgun hafi steinbítsparið nýlokið leik
sínum og innri fijóvgun var afstaðin. „Um kl. 7 í
gærkvöldi gaut hrygnan og hnoðaði þá hrognunum
í köggul á stærð við handbolta og hringaði sig
umhverfis hann. Hængurinn lá þar fyrir utan og
ef þetta heppnast allt saman á karlinn að taka við
á morgun. Hún fer þá að éta að nýju eftir þriggja
mánaða svelti en hann gætir hrognanna næstu 100
daga þangað til klakið verður og étur ekki á með-
an. Svo virðist vera að það þurfi að vera rétt sam-
spil milli hængs og hrygnu því ef hann er ekki tilbú-
inn til að taka þátt í eftirleiknum eyðileggur hann
hrognin," segir Kristján.
EES verður að veru-
leika um áramót
Ráðherra-
ráð EB hef-
ur staðfest
samningirm
RÁÐHERRARÁÐ Evrópubanda-
lagsins staðfesti í gær samning-
inn um evrópskt efnahagssvæði,
EES, og tekur hann gildi 1. janú-
ar á næsta ári. Átján þjóðir og
350 milljónir manna eiga aðild
að þessum sanmingi og verður
þetta fjölmennasta viðskipta-
svæði heims.
„Mörg ný tækifæri munu skapast
fyrir íbúa á svæðinu sem nær frá
íshafinu til Miðjarðarhafsins," sagði
Hans van der Broek, sem fer með
utanríkismál í Evrópubandalaginu,
í yfirlýsingu í gær.
Samningurinn er milli Evrópu-
bandalagsins og fimm EFTA-ríkja,
íslands, Noregs, Finnlands, Svíþjóð-
ar og Liechtenstein. Sjötta EFTA-
ríkið, Sviss, felldi samninginn í þjóð-
aratkvæðagreiðslu á síðasta ári.
Með honum fá EFTA-ríkin aðild að
sameiginlegum innri markaði Evr-
ópubandalagsins án þess þó að und-
irgangast pólitískar og efnahagsleg-
ar skuldbindingar sem gilda í EB.
Lánastofnanír sameinast
um að breyta vanskilalánuni
Lífeyrissjóðasamböndin hafa hvatt einstaka aðildarsjóði til þátttöku
SAMRÆMT átak félagsmálaráðuneytis, Húsnæðisstofnunar
og viðskiptabanka og sparisjóða um skuldbreytingar hjá
lánþegum, sem eru komnir í mikinn greiðsluvanda og van-
skil vegna tekjulækkunar, sem stafar af atvinnuleysi eða
veikindum, er nú komið af stað og að sögn Sigurðar E.
Guðmundssonar, forstjóra Húsnæðisstofnunar, eru skuld-
breytingar þegar hafnar hjá Byggingarsjóði ríkisins.
Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri er í mestum vanskilum hefur for-
Landssambands lífeyrissjóða, segir
að lífeyrissjóðasamtökin hafí fylgst
með vinnu starfshóps félagsmála-
ráðuneytisins og í framhaldi af því
hafí samtökin sent einstökum sjóð-
um bréf og hvatt þá til að taka vel
í málaleitanir í tengslum við þessi
mál.
„Við höfum sett af stað skuld-
breytingar hjá fólki sem er í van-
skilum við Byggingarsjóð ríkisins
og við erum að búa okkur undir
að setja líka í gang skuldbreytingar
hjá fólki sem er í vanskilum við
Byggingarsjóð verkamanna, og við
húsbréfadeildina," sagði Sigurður.
Hann sagði þó enn of snemmt að
segja til um hver viðbrögðin yrðu.
Samstarfíð byggist á því að sú
lánastofnun þar sem viðkomandi
göngu um skuldbreytingarnar og
ráðleggur síðan hinum hvað þeim
beri að gera þannig að tryggt sé
að skuldbreytingarnar beri árangur
til langframa fyrir viðkomandi lán-
takanda.
Stofnað var til samstarfs lána-
stofnananna í byijun nóvember og
var komið á fót samráðsnefnd sem
hefur komið saman í tvígang frá
því að verkefnið hófst. Félagsmála-
ráðherra gaf út reglugerð í sein-
asta mánuði um skuldbreytingar
vegna húsnæðislána og eru þar
sett ströng skilyrði sem viðkomandi
lántakendur þurfa að uppfylla til
að eiga kost á skuldbreytingu. í
Húsnæðisstofnun er 350 millj. kr.
varið til skuldbreytingalánanna í
báðum byggingarsjóðunum og hús-
bréfadeildinni.
Iþróttir
► Þorvaldur Órlygsson í sviðs-
Ijósinu í Englandi - Ásgeir
Sigurvinsson tekur ekki við
þjálfun Stuttgart - Aftureld-
ing fyrst til að vinna Hauka í
1. deild.
Segulsvið mælt á höfuðborgarsvæðinu með mælitækjum í flugvél
Tveggja milljóna ára
eldstöð nndir Reykjavík
RAUNVÍSINDASTOFNUN háskólans hefur að undanförnu kannað
segulsvið á höfuðborgarsvæðinu með mælitækjum í flugvél sem flog-
ið er samkvæmt ákveðnu mynstri. Úrvinnsla gagnanna stendur yfir
en Leó Kristjánsson prófessor segir að greinilega megi sjá eldstöð-
ina eða eldstöðvamar í Reykjavík, á Sundunum og við Kjalames,
sem jarðfræðingar hafa áður getið sér til að væm á þessu svæði.
Áætlað er að eldstöðin sé rúmlega tveggja miiyóna ára gömul og
því óvirk fyrir Iöngu.
Bergtegundir hafa mismunandi
mikið af seguikomum og mælingar
á segulsviði þeirra endurspegla
jarðfræðina. Þorbjöm Sigurgeirs-
son prófessor flaug um allt land til
að mæla segulsviðið og síðar tóku
Leó og Geirfínnur Jónsson jarðeðlis-
fræðingur við rannsóknunum. Áð-
ur, eða 1959, höfðu verið gerðar
sérstakar mælingar úr kanadískum
flugbát sem hafði hér viðkomu á
leið yfír Atlantshafíð. Á korti sem
gert var úr gögnum hans koma
fram mjög brött segulfrávík og raða
sum þeirra sér á hringlaga svæði
sem reynst hefur falla saman við
öskurima í um það bil 2 milljóna
ára gamalli megineldstöð undir
Reykjavík og Sundunum. Leó og
Geirfínnur sögðu í samtali við
Morgunblaðið að þeir hefðu lengi
haft áhuga á að mæla þetta upp á
nýtt með þeirri tækni sem nú væri
völ á. Miklar framfarir hefðu til
dæmis orðið í staðsetningartækjum
á undanförnum árum.
Samvinna við hitaveitu
Ákveðið var að gera mælingam-
ar í samvinnu við Hitaveitu Reykja-
víkur sem vinnur að kortlagningu
á jarðfræði svæðisins vegna nýting-
ar jarðhita. Flogið var þétt yfír allt
höfuðborgarsvæðið og nágrenni í
október og mælingunum lauk síðan
í gær.
Leó og Geirfinnur vinna úr gögn-
unum í vetur. Þeir sögðu að stór
hluti gömlu eldstöðvarinnar sæist
greinilega. Reyndar væri nú talið
að eldstöðvarnar væru frekar tvær
en ein, önnur við Kjalarnes og hin
á Sundunum og í Reykjavík.
Ke66 ESJA
Rauðavatn
10 km
—j
Morgunblaðið/Þorkell
Mælingarnar
undirbúnar
LÍTIÐ tæki sem fest er neðan
flugvélina nemur segulsviðið c
síðan er lesið af mælinum inni
flugvélinni. Leó Kristjánssc
prófessor í jarðeðlisfræði steni
ur hér við tækið þegar síðasi
mælingaflugið var undirbúið
gær.