Morgunblaðið - 14.12.1993, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 14.12.1993, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993 47 kerfi þess. Það er betri kostur fyrir þau og okkur en að standa í EB biðröð. Fimmta, við þurfum að fylgjast með þróun NAFTA, fríverslunar- kerfi Ameríkuríkja, og tengjast því, með tímanum. Sjötta, halda áfram að efla við- skipti okkar við Ameríku, sérstak- lega Bandaríkin, og Asíu, sérstak- lega Japan. Sjöunda, stórefla efnahags-, við- skipta-, stjórnmála- og menningar- lega samvinnu okkar við næstu ná- granna okkar, Færeyinga og Græn- lendinga. Allt þetta er gott að hafa í huga, þegar ókostir EES verða mönnum smátt og smátt ljósari vegna fram- kvæmdar samningsins. Það er lán í óláni, að EES-samn- ingnum má með nokkurri fyrirhöfn segja upp með eins árs fyrirvara. Það kann að þykja fýsilegt fyrr en seinna. Tel ég ekki ólíklegt, að þeir byiji að kvarta og kveina mest und- ir samningnum sem ákafast töluðu fyrir honum í grunnhyggni sinni. Höfundur er fyrrverandi sendiherra. Starfsdagar og frídagar í skóla eftir Guðrúnu Theódórsdóttur Börn á grunnskólaaldri og for- eldrar þeirra búa við skrýtinn veru- leika. Skólaárið er slitið sundur með allskyns fríum sem fara ekki saman við frí á vinnumarkaði. Foreldrar yngstu grunnskólabarnanna lenda í vandræðum með vistun fyrir börn sín í þessum fríum því allir eru að vinna, mömmur, pabbar, ömmur og afar. Hvernig er þetta hugsað? Hvað er ætlast til að venjulegt vinnandi fólk geri við bömin þegar skólinn er lokaður? Margir héldu að með tilkomu heilsdagsskólan's yrði ein- hver breyting á þessu. Það er ekki því heilsdagsskólinn fer í frí þegar skólinn fer í fn. Þessi frí í skólum virðast vera leifar af gamalli tíð þegar mæður voru heimavinnandi. Skólinn veðrur auðvitað að laga sig að breyttum þjóðfélagsaðstæðum eins og aðrir. Hversvegna gefa skól- ar frí 1. desember? Væri ekki nær að halda uppi skólastarfi og helga daginn t.d. sjálfstæðisbaráttu þjóð- arinnar? Hvað með öskudag? Engin skynsamleg skýring er til að fríi þann dag. En starfsdagar kennara? Það væri auðvitað betra að greiða kennurum full laun fyrir sína vinnu og halda skólanum opnum. Hvað ætla foreldrar 6 ára bama að gera við böm sín þá 7 vinnudaga sem skólinn er lokaður í jólafríi? Það væri fróðlegt að vita hvort starfs- menn ríkisins fá frí frá vinnu til að sinna börnum sínum þegar skólinn er lokaður, lokun skólanna er jú ákvörðun ríkisins. Það er alveg ljóst að fólk á almennum vinnumarkaði fær ekki frí. Þetta misræmi milli þess veruleika sem fólk býr við og skólans veldur togstreitu og erfið- leikum hjá foreldrum og þó einkum og sér í lagi mæðrum því óhætt er að fullyrða að þetta lendir fyrst og fremst á konum. Konur hafa átt erfítt uppdráttar á vinnumarkaði og fá lægri laun fyrir sína vinnu en karlar. Kannski er það hluti skýr- ingarinnar að konur sem eiga börn á grunnskólaaldri og eru í fullri Guðrún Theódórsdóttir „Fólk á almennum vinnumarkaði fær ekki frí.“ vinnu á vinnumarkaði em líka í fullri vinnu annarsstaðar og geta þvi sinnt hvomgu vel. Hvernig starfskraftur ^r það sem tekur sér frí frá vinnu 8 daga á ári vegna starfsdaga, 7 daga vegna jólafrís, 2 daga vegna 1. des. og öskudags og 4 daga vegna páskafrís? Þetta er 21 vinnudagur fyrir utan frí vegna veikinda barna eða foreldranna sjálfra. Auk þessa er ætlast til að foreldrar yngstu barnanna mæti til að fara með þeim í læknisskoðun í skólanum og til tannlæknis í skólanum. Já, hvemig starfskraftur? Líklega fyrrverandi starfskraftur því þetta er auðvitað hvergi liðið á vinnumarkaði. Krafan er því heilsársskóli. Höfundur er m&ifræðingur og móðir 6 ára barns. Allt í hátíðarmatinn á einum stað jMáöSícíis Gimsoy konfekt - íslenskt og gott jólaglögg kr. 298,- Prals Tilboðsverð piparkökur kr. 219,- Quality Street S8 london lamb kr. 995,- kg. SS lambahamborgarhryggir Mackintosh 1 kg. kr. 1.295,- kr. 895,- kg. Munið Jólamarkaðinn 15. - 23. desember Kalkúnar kr. 985,- kg. Aligæsir kr, 1.295,- kg. Pekingendur gottverð Ali hamborgarhryggir.........kr. 1.165,- kg. Úrb. Ah hamborgarhryggir.....kr. 1.559,- kg. SS hamborgarhryggir...............gott verð Bayonne skinka, læri,..........kr. 985,- kg. Bayonne skinka, bógur,............kr. 858,- kg. Reyktur svínabógur................kr. 595,- kg. Nýr svínabógur....................kr. 489,- kg. Svínakótilettur...................kr. 998,- kg. Svínalæri.........................kr. 489,- kg. Nýreyktir SS lambaskrokkar í heilu og hálfu kr. 649,- kg á meðan birgðir endast KJarna hangikjöt, læri kr. 798,- kg. Kjama frampartur kr. 549,- kg. Austurvers úrb. hangilæri kr. 998,- kg. Austurvers úrb. hangiframpartur kr. 849,- kg. Búrfells Jólatilboð Hamborgarahryggir kr. 899,- kg. Rjúpur 795,- kg. Villigæsir 1.795,- stk. Hreindýralæri kr. 2.195,- Gerið jólainnkaupin tímanlega - verið velkomin Opið til kl. 22.00 alladaga MATVÖRUVERSLUNIN MSTUJtVm Háaleitisbraut 68, sími 812599 Opið til kl. 22.00 alla daga i Sagan fjallar um Harún og föður hans og baráttu þeirra fyrir frásagnargáfunni. Fyrsta skáidsaga Salmans Rushdie eftir dauðadóminn. SAI.MAN RV/SI II >11 > I IAKBJN OC, Oddur Ólafsson á Reykjalundi var afreksmaður og mannvinur. Hann vann ómetanlegt starf í þágu sjúkra og öryrkja. Oddur var gæfusamur hugsjónamaður sem sá hugsjónir sínar rætast. Forvitnileg bók sem allir ættu að lesa. Isafold Austurstrœti 10 Ath. opið öll kvöld til kl. 22:00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.