Morgunblaðið - 14.12.1993, Síða 70

Morgunblaðið - 14.12.1993, Síða 70
70 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993 Hveragerði með bestu rekstaraf- komuna 1991 og ’92 ÓRÁÐSTAFAÐAR tekjur Hvera- gerðisbæjar árið 1992 námu rúm- lega 21 milljón króna sem var besta rekstrarafkoma allra sveit- arfélaga árið 1992. Til að ná þessu markmiði var allur rekstur sveitarfélagsins endurskoðaður og dregið úr fjárfestingum og rekstarumfangi. Nýlega er komin út Árbók sveit- arfélaga sem sýnir m.a. rekstur og afkomu sveitarfélaganna fýrir árið 1992. í fréttatilkynningu frá Hvera- gerðisbæ segir að tekist hafi að bæta fjárhagsstöðu bæjarins mikið frá árinu 1989. Árið 1991 skilaði Hveragerðisbær í óráðstöfuðum tekjum kr. 23.280 á hvern íbúa og kr. 12.704 á hvem íbúa árið 1992. Dregið úr fjárfestingum Til að ná þessu markmiði var allur rekstur sveitarfélagsins end- urskoðaður og dregið úr flárfesting- um og rekstarumfangi, þar sem það var hægt. Viðhald fasteigna, gatna- og holræsakerfis svo og annað við- hald var hins vegar aukið mikið til að draga enn frekar úr rekstrar- kostnaði þegar fram líða stundir. Þrátt fýrir aukin viðhaldsverkefni hefur Hveragerðisbæ tekist að skila bestri rekstarafkomu bæjarfélaga árin 1991 og 1992. Jökuldal- ur vel upp- lýst sveit Vaðbrekku, Jökuldal. HREPPSNEFND Jökuldals- hrepps gekkst fyrir tillögu bónda í sveitinni um að reisa ljósastaur við hvern bæ í sveitinni. Nú á haustdögum er lokið við að reisa alla staurana. Hreppurinn kostar einn staur og uppsetningu hans við hvem bæ en nokkrir bændur hafa síðan keypt aukastaur við bæi sína. Skólinn var einnig vel upplýstur því þjóðvegur nr. 1 liggur í gegnum hlaðið og myndaðist oft mikil slysahætta í skammdeginu. - Sig. Að. -----♦ ♦ ♦ Fyrirlestrar um þjóðhætti ÁRNI Björnsson þjóðháttafræð- ingur og Símon Jón Jóhannsson þjóðfræðingur halda fyrirlestra á vegum félagsins Minja og sögu í Norræna húsinu næstkomandi þriðjudag kl. 17. Ámi Bjömsson fjallar um efni bókar sinnar Sögu daganna en í henni er fjallað um merkisdaga árs- ins og hátíðir. Símon Jón Jóhanns- son fjallar um bók sína Sjö, níu, þrettán, en þar er yfirlit yfir hjátrú Islendinga í daglegu lífi. Margir lögðu leið sína að trénu til þess að njóta ljósadýrðarinnar í skammdeginu. Ljósin kveikt á Óslóartrénu KVEIKT var á jólatrénu á Austurvelli sl. sunnudag að viðstöddu fjölmenni. Sendifulltrúi úr norska sendiráðinu afhenti tréð og að því búnu hófst skemmtidagskrá fyrir unga sem aldna. Athöfnin hófst klukkan 16 og tréð fyrir hönd Óslóarborgar. Það afhenti 0yvind Stokke sendifulltrúi voru svo tveir norsk-íslenskir Hátt í fjögur þúsund manns fylgdust með þegar jólatréð á Austur- velli var tendrað sl. sunnudag. bræður sem hleyptu straumi á tréð. Að því búnu lék Lúðrasveit Reykja- víkur og borgarstjóri, Markús Órn Antonsson, flutti þakkarávarp. Þvínæst söng Dómkórinn og Ketill Larsen og jólasveinar hans ráku síðan smiðshöggið á skemmtunina á þaki Nýja kökuhússins. Athöfnin var fjölsótt enda var veður með besta móti, taldist lögreglunni til að um 4.000 manns hefðu lagt leið sína niður á Austurvöll í ár. Unga kynslóðin fylgdist andaktug með Katli Larsen og jólasvein- unum á þaki Nýja kökuhússins. Reykjavík vill ekki hefja greiðslur til spítalaleikskóla Borgarráð telur heilbrigðisráðuneyti ekki hafa fullnægt skilyrðum REYKJAVÍKURBORG mun ekki greiða 6.000 krónur á mán- uði með hverju barni á leikskólum sjúkrastofnana frá og með næstu áramótum að afstöðu heilbrigðisráðuneytis til fyrir- komulags á rekstri leikskólanna óbreyttri. Borgarstjóri, Mark- ús Örn Antonsson, tilkynnti ráðuneytinu þetta með bréfi dag- settu 8. desember sl. Markús Örn segir að boðað hafi verið til viðræðna um málið af hálfu heilbrigðisráðuneytis og ættu þær að fara fram eftir áramót. Hann segir borgina ekki geta hafið greiðslur fyrr en vitað sé að hverju sé stefnt með þeim viðræðum. Nýr Dominos staður DOMINOS pizza opnar í dag klukkan 17 nýjan veitingastað að Höfðabakka 1. Frá nýja staðnum er ætlunin að þjóna Breiðholti, Árbæ og Grafarvogi. Sett hefur verið upp sameiginlegt tölvuvætt símkerfi milli staða fyrirtækisins við Grens- ásveg og Höfðabakka til að flýta fyrir pöntunum. Eins og áður er markmiðið að fólk fái pizzuna senda heim á innan við 30 mínút- um. Stefna heilbrigðisráðuneytis, að borga 14.000 krónur á mánuði með hverju því bami sem nú er á leikskólum sjúkrastofnana þar til það kemst af leikskólaaldri og borga ekki með nýjum bömum sem koma inn í staðinn fyrir þau sem hætta, er að sögn Áma Sigfússon- ar, formanns stjómar sjúkrastofn- ana Reykjavíkurborgar og borgar- ráðsmanns, óviðunandi. Árni segir borgarráð hafa sam- þykkt framlagið með því skilyrði að heilbrigðisráðuneytið endur- skoðaði þessa afstöðu sína, rekstri leikskólanna yrði að öðrum kosti sjálfhætt. „Við setjum skilyrði um framlög ráðuneytisins til að tryggja rekstur leikskólanna til lengri tíma en eins árs í þágu spítalareksturs. Við leggjum áherslu á sérstöðu leik- skólanna vegna reksturs spítal- ans,“ segir Ami. Ráðherra ætlaði að sjá um opinber framlög Inga Arnardóttir, lyfjafræðing- ur á Borgarspítala og fulltrúi starfsmanna og foreldra í vinnuhóp um leikskólamál sem skipaður var af heilbrigðisráðuneyti, segir að á einum fundi hópsins hafí heil- brigðisráðherra, Guðmundur Ámi Stefánsson, svarað fyrirspurn um hvort búið væri að semja um fram- lag borgarinnar á þann veg að hann myndi tryggja 20.000 króna framlag opinberra aðila með hverju barni á mánuði. „Við skildum það öll þannig að ef 6.000 krónumar kæmu ekki frá borginni þá myndi hann sjá um þær,“ segir Inga. Ekki náðist tal af heilbrigðisráð- herra í gærkvöldi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.