Morgunblaðið - 14.12.1993, Side 51

Morgunblaðið - 14.12.1993, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993 51 Ölöf S. Eyjólfsdóttir er hvort tveggja þekkt fyrir bein- harða sagnfræði, önnur leturgerð væri bara væmið Rósumál. Sögur íslenskra erfðaprinsa, sem bæði þora, geta og vilja keyra íslensku þjóðina út úr myrkviði og hlekkjum fátæktar. Höfuadur er atvinnulaus. eftir Ólöfu S. Eyjólfsdóttur Hvíslað hefur verið að öldnu eyðsluseggirnir þarna í Seðlabanka- höllinni séu orðnir karlægir og úr tengslum við minnkandi þjóðarfram- leiðslu, versnandi lífskjör og vaxandi atvinnuleysi þegnanna. Heyrst hefur líka að verð eins lúxusjeppa ásamt vöxtum jafngildi daglaunum verka- manns í 10 ár, en þetta eru bara rætnar tungur. Þessir forfrömuðu bóhemar Seðlabankans og ríkisfor- stjórar hlusta ekki á neitt krepput- al, það er úrelt tugga. Þeir vita að þetta er bara gabb hjá honum Dabba. Þessir nýju vormenn íslands telja að nóg sé til að bíta og brenna í þessu gósenlandi, við þurfum bara að seilast eftir því. Hér eru hug- myndir um leiðir til að borga kostn- að og viðhaid 3-5 milljónkrónu lúx- usjeppanna. Við getum efnt til jö- klaralls á Vatnajökli og haft Seðla- bankastjómendur, forstjóra Byggða- stofnunar og Þjóðhagsstofnunar ásamt kollegum þeirra á lúxusjepp- unum í halarófu og sent um víða veröld um gervihnetti sjónvarps- myndir af þessum hentugu heim- skautafarartækjum í stórbrotinni jöklaparadís. Þarna gera torfæru- tröllin minnstan usla því jökullinn er síbreytilegur. Við látum jeppa- framleiðendur í heiminum borga vænar fúlgur fyrir auglýsinguna, kannski íslenska ríkið fái verð torfæ- rubílanna til baka, marga tugi millj- óna og græði á öllu saman. Við gætum jafnframt flutt Byggðastofnun upp á Vatnajökul og reist þar snjóbyrgi, Uppsali, á mörg- um hæðum, með málmkvistum eins- konar hvíldarheimili jólasveinanna frá Esjurótum og aukið ferðamanna- strauminn í leiðinni. í samvinnu við SÁÁ getum við látið álfinn þeirra fjármagna framtakið. Þjóðin er ávallt reiðubúin til að styrkja lítil- magnann og þaðan er stutt að skreppa á jeppum í Silfurlax. Þjóð- hagsstofnun mætti svo flytja til Kröflu en þar er fyrir ónotað raf- orkuver og kalla stöðina Ársali og bæta þar við nokkrum friðunarspí- rum og nýta sem aðsetur og íhugun- arstöð handa efnahagsráðgjöfum þjóðarinnar m.a. við athuganir á beislun sólarorku, sjávarfalla og vindorku, nógur er gusturinn á Fróni, sem hitagjafa eins og Evr- ópubúar beina nú sjónum að. Mér eins og fleirum tekur sárt að fóma Eyjabökkum griðlandi fugla og hreindýra og Dettifossi sem er einn stórfenglegasti foss í Evrópu í stór- iðju og sæstreng handa orkuhungr- uðum iðnaðarlöndum. Harla lítið verður eftir af rómaðri óspilltri náttúruflóru íslands þegar þessir frammámenn hafa virkjað þá 9/10 til viðbótar sem Seðlabanka- stjórarnir Jóhannes Nordal og Jón Sigurðsson, fyrrv. iðnaðarráðherra og fleiri hafa upplýst íslensku þjóð- ina um að væru til athugunar (þeir hafa nú einungis virkjað 1/10). Landið er á góðri leið með að fara sömu leið og íslenska krónan sem hefur rýmað um 9/10 frá því sem hún var 1981, þegar tvö núll höfðu verið strokuð út. Um aldamót sé ég fyrir mér þyrni- gerði þéttriðinna víraskóga milli íjalls og fjöru, kannski erlendir ferðamenn komi til að beija með eigin augum þann skúlptúr, enda sveitir landsins að mestu komnar undir vatn svo ekki þarf lengur að hafa áhyggjur af uppblæstri. Við þessa stofnanaflutninga myndi skapast byggðajafnvægi í landinu og allir hljóta að sjá að tor- færutröllin vom brýn nauðsyn. Stijálbýlisbúar hætta sínum barlóm um að allar stofnanir séu hér á suð- vesturhorninu. Þá getum við haldið eftir Seðlabankastjórunum og fylgt þeim þurrum fótum yfir Rauðarár- stíg í hina nýju Versali. Því Seðla- bankinn sem geymir fallvallt fjöregg þjóðarinnar er ekki lengur öruggur Fjölskylduspilið f ár! Fyrirtæki, götur, verslanamiðstöövar, banki, hús og hótel. - þú getur eignast það allt í M0N0P0LY. Fæst í bóka-, spila- og leikfangaverslunum um land allt. Dreifing: Eskifell hf., sími 670930.. „Við gætum jafnframt flutt Byggðastofnun upp á Vatnajökul og reist þar snjóbyrgi, Uppsali, á mörgum hæðum.“ í miðborginni þar sem uppreisnar- seggir og skríll ganga berserksgang um hveija helgi. Pískrað er um að brýn nauðsyn sé að breyta nokkrum auðum verksmiðjum í mannheldar Bastillur í anda Loðvíks 14. Þarna í loftsölum Versala, listaverkasafni Seðlabankans, geta pótindátar í friði dansað menúett kringum gullkálfinn og tekið undir með Jónasi og Jör- undi hundadagakonungi “Við gef- umst aldrei upp þótt á móti blási ... á íslandi við getum verið kóngar allir þrír.“ Við þurfum svo að skrá sögur þessara máttarstólpa, því að sögur af almúgafólki á íslandi eins og Salka Valka og Sjálfstætt fólk er liðin tíð. Nú þörfnumst við nýrrar sagnaaldar, sögur ættarveldis, flokksbræðrasögur, ristar í Gullveig- ar- og Helgu Guðrúnarletur en það I Eitt ódýrasta spd eoundar á Islandt sinnar teg Spilið er þroskandi, skerpir athyglisgáfu, þjálfar hugareikning og gengur út á klókindi, útsjónarsemi og heppni leikmanns. Spilið er vandað og með íslenskum leiðarvísi. HEILDSÖLUDREIFING: ISLENSKA VeRSLUNARMIÐSTÖÐIN HF. GRENSÁSVEGI 1(> BAKHÚS, SÍMI (>87355, FAX 687185 Eru uppgangstímar á Islandí í vændum?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.