Morgunblaðið - 14.12.1993, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 14.12.1993, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993 Yfirlitsuppgjör vegna EES eftir Hannes Jónsson EES-samningurinn er, eins og kunnugt er, angi af hinni svo köll- uðu samrunaþróun Evrópu. Napó- leon reyndi árangurslaust að sam- eina Evrópu með vopnavaldi í byijun 19. aldar, Hitler með síðari heims- styijöldinni. Þúsundáraríki nasis- mans varð ekki að veruleika og ekki heldur sá efnahagssamruni undir forystu Þýskalands, sem áætlanir Hitlers gerðu ráð fyrir. Evrópa var í rúst eftir stríðið og forusta Evrópuríkja í heimsmálum í skugga nýrra heimsvelda: Banda- ríkjanna og Sovétríkjanna. Hver nýlendan af annarri braust undan nýlenduveldum Evrópu, þau urðu vanmáttugri og áhrifaminni í heims- pólitíkinni. Þessar staðreyndir og hörmungar stríðsins höfðu skapað viðhorfin: „Aldrei aftur stríð“ í Evr- ópu. Því markmiði skyldi náð m.a. með uppbyggingu á grundvelli efna- hagssamvinnu og samruna. Kola- og stálbandalag Evrópu varð til 1952, Kjamorkubandalagið og Evr- ópubandalagið með Rómarsamn- ingnum 1958, fríverslunarsamtökin EFTA 1960. Markmið forusturíkja EB er, að öll ríki V-Evrópu samein- ist í EB, millistig að því markmiði er stofnun og starfræksla EES. Það er yfirlýst skoðun forustu- manna EB-ríkjanna, að þessi sam- runaþróun sé æskileg og góð. Hana þurfi enn að auka með vaxandi yfír- þjóðlegu valdi Evrópubandalagsins og þar af leiðandi takmarkaðra full- veldi einstakra aðildarríkja, eins og Maastricht-samningurinn sýnir ljós- lega. Hitt er svo ekki sjálfgefíð, að samrunaþróun Evrópu eftir mark- miðum EB sé góð fyrir Island, þótt hún kunni að vera góð fyrir megin- landsríki Evrópu. Koma þar til álita bæði stjórnmálalegar og efnahags- legar aðstæður. Stjórnmálalegar aðstæður Gagnstætt Evrópuríkjunum hefur ísland þá stjórn- og herfræðilegu sérstöðu að hafa aldrei verið þátttak- andi í stríðsátökum og aldrei haft eigin her. Ekkert var í rúst af hem- aðarátökum á íslandi í stríðslok. Þvert á móti áttum við gilda sjóði og góð atvinnutæki, þótt hluti gamla skipaflotans hafí orðið bráð stríðsá- takanna. Við vorum undir dönsku krúnunni þar til við stofnuðum lýð- veldið 1944, en í reynd herfræðilega á bresku valdsvæði allt frá árinu 1812 og því sterklega tengd Evrópu stjórnmálalega, herfræðilega og menningarlega. Á þessu varð róttæk breyting 1941. Með þríhliða samningi Hermanns Jónassonar, Churchills og Roosevelts árið 1941 um að bandaríski herinn annaðist varnir landsins en breska hernámsliðið hyrfi á brott var ís- land, með samþykki allra þessara aðila, herfræðilega og þar með að hluta stjórnmálalega flutt af evr- ópsku yfír á amerískt valdsvæði. Þessi stöðubreyting var styrkt með varnarsamningi okkar við Bandarík- in 1951. Þótt Bandaríkjamenn hverfí að mestu af landi brott, en við tökum að okkur að halda varnarstöðvunum í viðbragðsstöðu fyrir þá, breytist valdsvæðisstaða okkar ekkert við það. Ekki heldur við þau mistök stjórnvalda að samþykkja aukaaðild að Vestur-Evrópubandalaginu. Það er ekkert, sem bendir til þess, að við hverfum aftur af amerísku vald- svæði og yfír á evrópskt í fyrirsjáan- legri framtíð. Með allt þetta í huga ætti að vera ljóst, að pólitísku röksemdirnar fyrir samrunaþróuninni í Evrópu eiga ekki við um okkur. Hún kemur okk- ur við og við fylgjumst með henni úr fjarlægð, en það er engin stjórn- málaleg eða herfræðileg nauðsyn, að við verðum hluti af henni. Efnahagsiegu aðstæðurnar Ekki verður heldur séð, að efna- hagslegar aðstæður knýi okkur til þátttöku í evrópsku samrunaþróun- inni. Það leiðir af okkar efnahags- legu Iandafræði, sem hefur gert okkur að aðallega einnar vöru út- flytjanda, að okkar stóru hagsmunir á sviði milliríkjaviðskipta felast í hnattrænni fríverslun, ekki tak- markaðri og svæðisbundinni eins og afbökuð fríverslun EB einkennist af. Hitt er rétt og má ekki villa um fyrir fólki að Evrópuríkin eru hefð- bundnir viðskiptavinir okkar og voru það löngu áður en EB varð til. Meiri hluta aldarinnar hefur 80-90%, en um þessar mundir um 70%, af milli- ríkjaverslun okkar verið við Evrópu- ríkin sem eru nú innan EB og EFTA. Þetta eru viðskipti byggð á fram- boði og eftirspurn og gagnkvæmum hagsmunum og ábata seljenda og kaupenda. Þau færu vafalítið fram þótt EB væri ekki til og EES ekki í sjónmáli. Gildandi milliríkjaviðskiptakerfi okkar byggist í grundvallaratriðum á athafnafrelsi, markaðshagkerfi, fríverslun innan ramma EFTA og GATT, fríverslunarsamningi við EB og vaxandi frjálsri verslun við Amer- íkuríki, einkum Bandaríkin, og Asíu- ríki, einkum Japan. Þetta kerfi virk- ar vel og engin ástæða til að ætla, að það geti ekki haldið áfram að ganga vel, þótt eðlilegt sé, að það verði í stöðugri þróun með tilliti til viðskiptahagsmuna okkar. í grund- vallaratriðum er það gott og engin brýn þörf fyrir að kollvarpa því. EES slæmt fyrir ísland Engan hef ég heyrt tala fyrir því, að við einangrum okkur frá Evrópuviðskiptum. Þau eru svo góð sem raun ber vitni án þess að EES sé komið til framkvæmda. Hitt er áhyggjuefni, að EES breytir gildandi milliríkjaviðskiptakerfí okkar til hins verra. Fómað er miklum hagsmun- um fyrir Iítilræði. Stórar fórnir okkar með EES- samningnum eru einkum þijár: 1) Við samþykkjum Rómarrétt og reglugerðarfrumskóg EB á samn- ingssviðinu eins og hann er, eins og honum kann að verða breytt í Bruss- el eða bætt við hann; sættum okkur við erlenda eftirlitsnefnd og dóm- stól; fórnum þannig takmörkuðu lög- gjafarvaldi, framkvæmdavaldi og dómsvaldi; búum eftir það við tak- markað fullveldi á samningssviðinu. 2) Við samþykkjum að loka okkur af með um 8% tollverndarstefnu í þágu Evrópuríkja en gegn öðrum ríkjum heims, þ. á m. Ameríkuríkj- um, Asíuríkjum og Austur-Evrópu- ríkjum. 3) Við samþykkjum fjórfrelsi Rómarsrttmála — fríverslun með iðnaðarvörur — fijálsa fólksflutn- inga — fijálsa þjónustustarfsemi — fijálsa fjármagnsflutninga — án þess að sýnilegt sé, að við njótum nokk- urs ábata af þessu nýja kerfí, þar sem að aðalútflutningsafurðir okkar, sjávarafurðir, eru utan fjórfrelsi- skerfísins. Auðvelt er að sýna fram á, að framkvæmd fjórfrelsisins hafí í för með sér tap fyrir okkur íslend- inga, svo sem ég hef m.a. sýnt fram á í greinum hér í blaðinu og í bók minni Evrópumarkaðshyggjan. Rýr ábatavon okkar af íjórfrelsinu er ástæða þess, að ákveðið var að gera sérsamning við Island um sjáv- arafla. Slæmur sérsamningur Það hefur lengi verið ljóst, að gömlu nýlenduríkin í Evrópu hafa haft þau rányrkjuviðhorf í sjávarút- vegsmálum, að þau mættu veiða á hinu „opna hafí“, sem þau töldu lengst af ná upp að 3 mílum strand- ríkisins. Þrotlaus barátta leiddi til þess, að 200 mílna efnahagslögsaga er nú viðurkennd þjóðréttarregla. Gömlu rányrkjuviðhorfin ríkja þó enn hjá EB-ríkjunum, en í nýju formi. Nú segja þau, að á móti tolla- lækkun á markaði þeirra skuli koma aðgangur flota þeirra að auðlind. I samræmi við þessa stefnu setti EB samninganefnd sinni um EES það umboð 18. júní 1990, að ekki mætti fallast á tollalækkun sjávarafla nema á móti kæmi aðgangur EB- flota að fiskveiðilögsögu samnings- aðila, þ. á m. íslands. Reisn stjórnvalda var ekki meiri en svo, að samningamenn íslands voru látnir fallast á þetta. I sérsamningnum er annars vegar fjallað um aðgang að markaði, hins vegar að auðlind. Samkvæmt fyrra atriðinu lækka tollar EB nokkuð af innfluttum sjávarafla frá íslandi í EB-ríkjum, samkvæmt hinum síðari opnum við fiskveiðilandhelgi okkar fyrir rányrkjuflota EB til þess að físka 3.000 tonn af karfaígildum og veitum þeim sama athafnarétt í ís- lenskum höfnum og okkar eigin skipum. Að yfírvarpi eigum við svo að fá að veiða 30.000 tonn af loðnu, sem EB hefur keypt rétt til að veiða í lögsögu Grænlands. En þetta er bara pappírsloðna, sem um áraraðir hefur ekki verið í veiðanlegu ástandi fýrr en hún flytur sig yfir í íslenska lögsögu — og þar eigum við hana hvort sem er og þurfum ekki að kaupa af neinum! Að fórna landhelg- inni fyrir lítilræði tollalækkana er vottur um fádæma dómgreindars- kort. Kostnaður og ábati í umræðunni um EES hefur ut- anríkisráðherra jafnan haft þann háttinn á, að telja aðeins fram ábat- ann af samningnum en sleppa hinum margvíslegu kostnaðarliðum svo og reikningsjöfnuði. Lát hann reikna ábatann út frá magni, tegundasam- setningu og tollum, sem EB-innflytj- andinn greiddi af íslenskum sjávar- afurðum árið 1990, og reikna alla tollalækkun sem hreinan ábata, án tillits til kostnaðarauka okkar af aðild og án tillits til þekktrar skipt- ingar ábata af tollalækkun á milli neytenda innflutningslandsins og framleiðenda útflutningslandsins. Réttara uppgjör birti ég hér í blað- inu 6. og 7. nóvember 1992. Hefur enginn treyst sér til að mótmæla því með rökum. Þar kemur fram, að á árunum 1993-1997 gætu tölurnar verið þannig miðað við forsendur utanríkisráðherra um EB-markað 1990: Árleg gjöld 945 milljónir króna, ábati vegna tollalækkana um 800 milljónir, tap 145 milljónir króna á ári, þegar fýrirsjáanlegir kostnað- arliðir eru reiknaðir með í dæminu. Eftir 1997 yrðu samsavarndi tölur 995 milljóna króna gjöld, 950 millj- óna kr. ábati, árlegt tap 45 milljónir króna. Vegna minnkandi aflakvóta gæti ábatinn af tollalækkuninni orðið minni og tapið því meira. Með þessu er ekki sagt, að einstök fyrirtæki geti ekki grætt eitthvað á EES. Gallinn er bara sá, að ríkið tapar meira í auknum kostnaði en fyrirtækin græða. Af þessu má ráða, að EES-samn- ingurinn er slæmur samningur fyrir heildarefnahag okkar íslendinga.- Ólýðræðisleg ákvarðanataka? EES-samningurinn er gerður af ríkisstjórn sem samkvæmt skoðana- könnun í september 1993 naut að- eins 29,8% fylgis, en 70,2% voru á móti. Rétt um helmingur alþingis- manna samþykkti hann. Skoðana- könnun í janúar 1993 sýndi, að um Hannes Jónsson „Það er lán í óláni, að EES-samningnum má með nokkurri fyrirhöfn segja upp með eins árs fyrirvara. Það kann að þykja fýsilegt fyrr en seinna. Tel ég ekki ólík- legt, að þeir byrji að kvarta og kveina mest undir samningnum sem ákafast töluðu fyrir honum í grunnhyggni sinni.“ 60% þjóðarinnar var óánægð með samninginn,- Áður hafði komið fram að um 70% þjóðarinnar vildi þjóðaratkvæði um EES, sem ekki fékkst. Vilji þjóð- arinnar við samningsgerðina var því sniðgenginn. Auk þess orkar árekstur samn- ingsins við stjórnarskrána tvímælis, svo ekki sé meira sagt. Skylda for- seta, samkvæmt 26. gr., til að láta stjórnarskrána njóta vafans var van- rækt. Voru leikreglur lýðræðisins virtar við afgreiðslu málsins? Tæplega. Betri valkostir Við eigum og höfum alltaf átt betri valkosti en EES. Fyrst og fremst þann að halda áfram að reka milliríkjaviðskipti okkar í megin- atriðum samkvæmt gildandi kerfi víðtækra viðskipta í öllum heimsálf- um. I annan stað getum við, svo sem dæmin um fjölda viðskiptasamninga EB sanna, í fyllingu tímans náð fram umbótum á fríverslunarsamningi okkar við EB frá 1972 án fullveldis- fórna, ef rétt er á haldið. I þriðja lagi er unnið að samþykki endurskoðaðs GATT-samnings um fríverslun í hnattrænu samhengi. Fjórða, að vinna að vexti EFTA með því að beita okkur fyrir aðild Austur-Evrópuríkja að fríverslunar- Uppáhaldsbók allra veiðimanna sem hefur að geyma aflatölur, veiðisögur og allar helstu fréttir af stangaveiðinni 1993. Upplýsingar um snjóflóð, skriðuföll, jarðsícjálfta, mannskaða, eldgos og að sjálfsögðu allt sem viðkemur veðri hvers mánaðar síðustu 100 árin. VEÐUR A ISLANDl 1 ÍOOÁR Kossar, burstaklipping, unglingavinna og prakkarastrik. Spennandi unglingabók. hM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.