Morgunblaðið - 14.12.1993, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993
MENNING/LISTIR
Tónlist
Aðventutónleik-
ar í Kristskirkju
Blásarakvintett Reykjavíkur og fé-
lagar halda þriðjudaginn 14. desember
aðventutónleika í Kristskirkju undir
heitinu Kvöldlokkur á jólaföstu.
Kvöldlokkan eða serenaðan var vin-
sælt form skemmtitónlistar á átjándu
öld og fyrri hluta þeirrar nítjándu,
ættuð mönnum tii yndisauka og upp-
lyftingar við ýmis hátíðleg tækifæri.
Að þessu sinni verða leikin eftirtalin
verk: Octet-Partita í Es dúr eftir
Hummel, Petite symphonie eftir Go-
unod og eitt af meistaraverkum Moz-
arts fyrir átta blásara Serenade No.
12 í c-moll, K388. Hljóðfæraleikaram-
ir eru Bemharður Wilkinson á flautu,
Daði Kolbeinsson, Sigurður I. Snorra-
son og Einar Jóhannesson, klarinett,
Hafsteinn Guðmundsson, Rúnar Vil-
bergsson og Bjöm Ámason, fagott,
Peter Tompkins, óbó, og Jósef Ogni-
bene og Þorkell Jóelsson, hom. Tón-
leikamir hefjast kl. 20.30. Aðgöngu-
miðar em seldir við innganginn.
Gospeltónleikar á
aðventu
Gospeltónleikar, þeir fimmtu í röð
gospel-tónleika á aðventu, verða haldri-
ir í Seljakirkju í kvöld kl. 20. Tónleik-
arnir em á vegum Skálholtsútgáfunn-
ar, útgáfufélags Þjóðkirkjunnar.
Sjöttu og síðustu tónleikarnir verða
nk. fimmtudag, 16. desember, kl. 20
í Keflavíkurkirkju. Flytjendur eru
hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar,
gospelkór auk þeirra Rut Reginalds,
James Olsen, Ingveldar Ólafsdóttur og
Margrétar Eir. Flutt verða m.a. lög
af nýútkomnum hljómdiski „Trúarleg
tónlist" en á honum em mörg lög sem
notið hafa vinsælda hér á landi.
Myndlist
Skúlptúr á Patreks-
fjarðarflugvelli
Listamaðurinn og flugumferðar-
stjórinn Magnús Guðmundsson heldur
þessa dagana sýningu á skúlptúrverk-
um sínum í Flugstöðvarbyggingunni á
Patreksfjarðarflugvelli. Er þetta í
fyrsta skipti sem haldin er listaverka-
sýning á þeim stað og lífgar hún óneit-
anlega upp á.
Verkin sem em 8 talsins em unnin
úr timbri og frauðplasti og hefur lista-
maðurinn unnið þau á sl. 5 mánuðum.
Verða þau til sýnis eitthvað fram eftir
vetri.
- Helga Jónasdóttir
Maguús Guðmundsson við verk sín.
Nýtt raðhús
- Hafnarfirði
Til sölu 173 fm raðh. á tveimur hæðum ásamt 26 fm
innb. bílsk. Húsið er fullbúið að utan en ómálað og
nánast fullb. að innan, vantar gólfefni. Húsið skiptist
niður í aðalhæð þar sem er forstofa, eldh., stofa og
borðst., svefnherb. og gestasnyrt. Neðri hæð 3 rúmg.
svefnherb., fataherb., stórt baðherb. og þvottah. Stórar
suðursv. Áhv. hagst. langtlán 7,3 millj. Skipti á minni
eign koma sterklega til greina. Verð 12,9 millj.
Nánari upplýsingar hjá:
Fasteignasölunni Ás,
Strandgötu 33, 2. hæð,
Hafnarfirði, sími 652790.
Kleppsvegur - útsýni
3ja herb. 83 fm mjög falleg íbúð á 8. hæð í lyftuhúsi
innarlega við Kleppsveg. Góðar innréttingar, parket,
stórar suðursvalir, góð sameign, frábært útsýni.
Laus strax. Verð: 6.500.000.
Frostafold - húsnædisl.
4ra herb. tæpl. 100 fm gullfalleg íbúð á 2. hæð ásamt
bílskúr í litlu fjölbýlishúsi. Skemmtilegt fyrirkomulag.
Parket, vandaðar innréttingar. Þvottaherb. innan íbúð-
ar. Frábært útsýni. Laus strax. Áhv. Byggsj. 4.950.000
til 40 ára. Verð: 10.700.000.
if ÁSBYRGi if
Su&urlandsbraut 54, 108 Reykjavík,
sími: 682444, fax: 682446.
011 RH 01 07fi L^RUS Þ’ VALDIMARSSON framkvæmdastjori .
L\ Iwv'talw/U KRISTINN SIGURJONSSON, HRL. loggiltur fasteignasali
Til sýnis og sölu m.a. athyglisverðra eigna:
Góð íbúð - gott lán - gott verð
í Neðra-Breiðholti v. Dvergabakka endaíb. 3ja herb. á 3. hæð. Parket
á gólfum. Stórar svalir. Ágæt sameign. 40 ára húsnlán kr. 3,3 millj.
Nýkomin til sölu.
Góðar eignir í Bankastræti
Stór rishæð 142,8 fm auk þess er mikið rými undir súð. Miklir breyt-
inga- og nýtingamöguleikar.
Verslhæð í sama húsi. Hæðinni fylgir kj. og viðbygging á baklóð m.
bílastæðum. Teikn. og nánari uppl. á skrifst. Úrvalsstaður.
Skammt frá KR-heimilinu
sólrík og vel með farin 3ja herb. íb. á 2. hæð. Ágæt sameign. Góð
bílastæði. Gott verð. Vinsæll staður. Nýkomin til sölu.
Á glæsilegri eignarlóð við Ránargötu
glæsil. endurn. parhús m. 5-6 herb. íb. á tveimur hæðum. Sérib. í kj.
Grunnfl. hússins rúmir 60 fm. Geymsla 'i risi.
Giæsileg einstaklingsíbúð á Högunum
2ja herb. 56,1 fm á 1. hæð, jarðhæð. Sérinng. Sérþvaðstaða. Allar
innr. og tæki ný. Laus strax.
Eignir óskast á skrá
Jarðhæð - 3ja herb. íb. á góðum stað í borginni (ekki tröppur). Húseign
í gamla, góða vesturbænum. Má þarfn. nokkurra endurbóta. Eignir í
Þingholtum og nágr. Traustir, fjársterkir kaupendur.
• • •
Einbhús óskast f Smáíbhv.
Ennfremur 2ja-3ja herbergja
íbúð. __________________
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
AIMENNA
FASTEIGN ASAL AN
Nýjar bækur
■ Út er komin bókin Villt íslensk
spendýr. Ritstjórar bókarinnar eru
Páll Hersteinsson og Guttormur Sig-
bjamarson en þeim til aðstoðar var
ritnefnd af hálfu Líffræðifélags ís-
lands, skipuð þeim Arnóri Þ. Sigfús-
syni, Hálfdáni Ómari Hálfdánar-
syni, Karli Skírnissyni og Sigurði
S. Sorrasyni.
Almennir yfirlitskaflar eru um
einstakar tegundir eða tegunda-
hópa. Skarphéðinn Þórisson ritaði
kaflann um hreindýr, Páll Her-
steinsson um ref, Karl Skírnisson
um mink, mýs og rottur, Erlingur
Hauksson um seli, Jóhaann Sigur-
jónsson um hvali og Ævar Peters-
en um flökkudýrin rostung og leð-
urblökur.
Fjórtán aðrir vísindamenn
koma við sögu við ritun smærri
kafla í bókinni sem flestir greina
frá niðurstöðum á nýlegum rann-
sóknum höfundanna.
Bókin er gefin út af Hinu ís-
lenska Náttúrufræðifélagi og
Landvernd. Bókin er 352 bls. auk
16 síðna með litmyndum af ís-
lenskum spendýrum. Fjöldi teikn-
inga og skýringarmynda prýðir
bókina. Bókin kostar 3.650 kr.
innbundin og 2.950 kiljan.
■ Út er komin hestabókin Hest-
urinn og reiðmennskan eftir Walt-
er Feidman og Andreu K.
Rocstsock með breyttu útliti. í kynn-
ingu útgefanda segir: „Bók þessi er
einstakur fróðleikur um allt sem við-
kemur tamningum og hestamennsku
og hefur bókin verið valin til kennslu
í hestamennsku við Bændaskólann
að Hólum.“
Ástund hf. og Bókavirkið hf. sjá
um dreifingu bókarinnar. Kápan
er prýdd mynd af hinum kunna
51500
Hafnarfjörður
Hjallabraut
- þjónustuíbúð
Góð 2ja herb. þjónustuíb., fyrir
Hatnfirðinga 60 ára og eldri, á
4. hæð ca 63 fm. Áhv. byggsj.
ca 3,2 millj. Verð 7,8 millj.
Álfaskeið
Góð ca 100 fm 4ra herb. íb. á
1. hæð í þríbýlishúsi.
Klettagata
Til sölu tvær 4ra-5 herb. íb. í
tvíbýiishúsi auk bílskúrs. Geta
selst saman.
Arnarhraun
Góð 5 herb. íb. á 3. hæð í þríb-
húsi ca 136 fm. Sérinng. Áhv.
ca 1,5 millj.
Lindarhvammur
Glæsil. efri sérhæð ásamt risi
ca 140 fm. Mikið endurn.
Æskil. skipti á einbhúsi i Hafn-
• arfirði ca 200-300 fm.
Árni Grétar Finnsson hrl.,
Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl.,
Linnetsstíg 3, 2. hæð, Hfj.,
slmar 51500 og 51601.
hestamanni Sigurði Sigmundssyni
og kostar 3.990 krónur.
■ Tinni, pilturinn hugdjarfí,
ásamt hundinum Tobba og Kolbeini
kafteini, skýtur nú aftur upp kolli á
íslandi. Fjölvi hefur nú endurútgáfu
á Tinna-ævintýrunum með fjórum
teiknisögubókum, sem hafa verið
ófáanlegar í meira en áratug.
Tinnabækurnar eru eftir belgíska
listamanninn Hergé, sem lést fyrir
nokkrum árum. Þær bækur sem nú
koma í nýrri útgáfu eru Tinni í
Kongó, Tinni í Ameríku, Tinni í-Sól-
hofinu og Tinni og Pikkarónamir.
Má segja að þessi flokkur spanni
allan feril höfundarins, því að hér
er elsta og yngsta bók hans.
Útgefandi er Fjölvaútgáfan.
Hver Tinnabók er 64 bls., allar
litprentaðar. Loftur heitinn Guð-
mundssn þýddi bækumar, en þær
eru unnar í samprenti hjá Caster-
man-útgáfunni í Belgíu. Verð á
hverri bók er 1.080 krónur.
BÚSTAÐASÓKN. Fótsnyrt-
ing fimmtudag. Uppl. í s.
38189.
DÓMKIRK JU SÓKN. Fót-
snyrting í safnaðarheimili kl.
13.30. Uppl. í s. 13667.
DAGBÓK Háskóla íslands
Þriðjudagur 14. desember.
Kl. 10.30. Gamla ioftskeyta-
stöðin. Málstofa í stærðfræði.
Efni: Marggild fáguð föll.
Fyrirlesari: Ragnar Sigurðs-
son,_ sérfræðingur við Raun-
vísindastofnun.
Miðvikudagur 15. desem-
ber. Kl. 12.30. Norræna hús-
ið. Háskólatónleikar. Sigrún
Valgerður Gestsdóttir (sópr-
an) og Einar Kristján Einars-
son (gítar) flytja sönglög frá
16. og 17. öld. Kl. 16.15.
Stofa 155, VR-II, Hjarðar-
haga 2-6. Málstofa í efna-
fræði. Efni: Efnahvörf 1-aza-
1,3-butadiena (niðurstöður úr
MS-verkefni). Pyrirlesari:
Jónína Freydís Jóhannesdótt-
ir, cand. pharm.
Nánari upplýsingar um eft-
irtaldar samkomur á vegum
Háskóla íslands má fá í síma
694371.
KIRKJUSTARF
ÁSKIRKJA: Opið hús fyrir
alla aldurshópa í dag kl.
14-17.
BÚSTAÐAKIRKJA: Starf
11-12 ára krakka í dag.
Húsið opnar kl. 16.30.
DÓMKIRKJAN: Mömmu-
morgunn í safnaðarheimilinu
Lækjargötu 14a, kl. 10-12.
LANGHOLTSKIRKJA: Aft-
ansöngur í dag kl. 18.
NESKIRKJA: Mömmumorg-
unn í safnaðarheimilinu kl.
10-12. Jólaskemmtun. Orgel-
leikur í hádeginu kl. 12.15-
12.45 alla virka daga til 23.
desember. Reynir Jónasson,
organisti og fleiri leika á org-
el Neskirkju.
GRENSÁSKIRKJA: Kyrrð-
arstund kl. 12. Við upphaf
stundarinnar leikur Hallfríður
Ólafsdóttir á þverflautu í 10
mín. Altarisganga, fyrirbæn-
ir, samvera. Helgistund með
öldruðum kl. 14. Gestir frá
Múlabæ koma i heimsókn.
Síðdegiskaffi.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fyr-
irbænaguðsþjónusta kl.
10.30. Beðið fyrir'sjúkum.
SELTJARNARNES-
KIRKJA: Foreldramorgunn
kl. 10-12. Starf fyrir 10-12
ára í dag kl. 17.30.
BREIÐHOLTSKIRKJA:
Starf 10-12 ára barna (TTT)
í dag kl. 16.30. Bænaguðs-
þjónusta með altarisgöngu í
dag kl. 18.30.
FELLA- og Hólakirkja:
Mömmumorgunn í fyrramálið
kl. 10.
HJALLAKIRKJA: Mömmu-
morgunn í fyrramálið kl.
10-12.
VEGURINN, kristið samfé-
lag, Smiðjuvegi 5, Kópa-
vogi. Biblíulestur sr. Halldórs
S. Gröndal í dag kl. 18.
KEFLAVÍKURKIRKJA:
Foreldramorgnar kl. 10-12
og umræða um safnaðarefl-
ingu ki. 18-19.30 í Kirkju-
lundi á miðvikudögum.
Kyrrðar- og bænastundir eru
í kirkjunni á fimmtudögum
kl. 17.30.
BORGARPRESTAKALL:
Mömmumorgunn verður í
Félagsbæ í dag milli kl.
10-12. Helgistund í Borgar-
neskirkju kl. 18.30 sama dag