Morgunblaðið - 14.12.1993, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 14.12.1993, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993 35 SIGUR ÞJOÐERNISOFGAMANNA OG KOMMUNISTA I KOSNINGUNUM I RUSSLANDI Zhírínovskí segist vilja hafa samstarf við Jeltsín Moskvu, Reuter, The Daily Telegraph. VONIR Borisar Jeltsíns Rússlandsforseta um samstarfsþýðara þing virðast ekki ætla að rætast. Urslit í kosningxinum á sunnu- dag lágu ekki fyrir fyrr en seint í gær en snemma var ljóst að sigurvegari kosninganna yrði Fijálslyndi lýðræðisflokkurinn og leiðtogi hans, Vladímír Zhírínovski. Kjörstöðum var lokað klukk- an tíu að staðartíma á sunnudagskvöld og fyrstu tölur, sem birt- ust í rússnesku kosningasjónvarpi, bentu til að flokkar þjóðernis- sinna og kommúnista myndu ná verulegu fylgi. Sjónvarpsstöðin Ostankíno hafði boðað að hún myndi fylgjast með talningu fram undir morgun en það var ekki fyrr en rúmlega þrjú um nóttina, sem fyrstu tölurnar voru birtar. Þær voru um margt óyósar, til dæmis ekki gefið upp hve stór hluti atkvæða hefði verið talinn. í kjölfarið var útsendingin rofin og næstu kosningafréttir komu ekki fyrr en klukkan tíu um morguninn. Sagði sjónvarpsstjóri Ostankíno að þetta hefði verið gert vegna „skorts á áreiðanlegum upplýsingum um talninguna". Drög Jeltsíns að nýrri stjórnarskrá voru hins vegar samþykkt. Að sögn formanns kjörstjórnar var kosningaþátttaka um 55% og greiddi rúmlega helmingur þeirra sem kusu stjórnarskránni atkvæði sitt. Þar með hafa völd forseta- cmbættisins verið aukin verulega. Samkvæmt upplýsingum hátt- setts embættismanns í Kreml, sem ekki vildi láta nafns síns getið, voru niðurstöður kosninganna eftirfar- andi, þegar talið hafði verið í 25 héruðum af 89: Frjálslyndi demó- krataflokkurinn fékk 24% atkvæða; Valkostur Rússlands, flokkur Jegors Gajdars hlaut 13%; Rússneski kommúnistaflokkurinn 10%; Bænda- flokkurinn, sem er andsnúinn um- bótum, 9% atkvæða; Jabloko, flokk- ur nokkurra umbótasinnaðra hag- fræðinga, 6% og kvennaframboðið Konur Rússlands 7%. Vanmetni „trúðurinn" Það var ekki fyrr en á allra síð- ustu dögum kosningabaráttunnar að aðrir flokkar fóru að taka Zhírínovkí alvarlega. Var lengi vel einungis lit- ið á hann sem blöndu af trúð og fasista, sem ekki væri líklegur til mikilla afreka. í kosningabaráttunni lagði hann áherslu á að Rússum bæri að endurheimta fyrrum Sovét- lýðveldi, andstöðu við „ameríkanís- eríngu“ efnahagslífsins og að hann vildi auka velmegun allra. I gær virt- ist hann hins vegar vilja milda ímynd sína og sagði að ekki bæri að reyna að ná gömlu Sovétlýðveldunum með vopnavaldi. í stað þess bæri að beita efnahagslegum þrýstingi þar til íbú- ar lýðveldanna myndu af fúsum og frjálsum vilja vilja sameinast Rúss- landi. Zhírínovskí virtist einnig reiðubú- inn að taka upp samstarf við Jeltsín og ríkisstjórn hans. „Ef Jeltsín biður okkur um að mynda ríkisstjórn þá erum við tilbúnir. Ef hann býður okkur sæti í ríkisstjórn og við fáum tvö til þijú ráðuneyti þá erum við reiðubúnir. Ef hann býður okkur hins vegar ekki neitt þá eru við reiðubúnir til að verða stærsti stjórn- arandstöðuflokkurinn." Margir ráðherrar í ríkisstjórn Jeltsíns hafa aftur á móti lýst því yfir að Zhírínovskí sé hættulegur öfgamaður, fasisti sem ekki sé hægt að eiga samstarf við. „Það sem hann lofar að gera er óframkvæmanlegt. Ef það verður reynt engu að síður mun það verða til að kalla yfir okk- ur þriðju heimsstyijöldina,“ sagði Anatolí Sjúbaís, ráðherra einkavæð- ingar. Jegor Gajdar og fleiri umbótasinn- ar ítrekuðu í gær að þeir væru ekki reiðubúnir til að eiga samstarf við „fasista". Það er líka ekki talið verða til að auka líkurnar á samstarfi milli Zhír- ínovskís og Jeltsíns að sá fyrrnefndi hefur lýst því yfir að hann kunni að sækjast eftir forsetaembættinu í næstu kosningum. Kommúnistar vilja „raunsæi" Meira að segja Gennadí Zjúganov, leiðtogi kommúnista, sagðist ekki hafa hug á samvinnu við hinn þjóð- ernissinnaða flokk Zhírínovskís. „Við eigum ekkert sameiginlegt með Reuter Forsetahjónin á kjörstað BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, og Naína, kona hans, voru með þeim fyrstu, sem kusu í kjördeildinni við Míússkaja-torg í miðborg Moskvu. Það var kalt í veðri í Moskvu í gær og mugga í lofti og líklega á eftir að næða um Jeltsín á næstunni. þeim, sem vilja víkka út landamæri Rússlands í samræmi við hin gömlu landamæri . Sovétríkjanna fyrrver- andi. Stefna okkar byggist á raun- sæi,“ sagði Zjúgaanov. En í yfirlýsingu talsmanns Jelts- íns, Vjatsjeslavs Kostíkovs, sem hef- ur gagnrýnt andstæðinga forsetans hvað harðast, kvað hins vegar við mildari tón. Kostíkov sagði í sam- tali við fréttastofuna Interfax að forsetinn gæti vel hugsað sér sam- vinnu við þjóðernissinna og komm- únista ef þeir létu af hinni öfga- kenndu stefnu sinni. Margt í stefnu- skrám þessara flokka samrýmdist hinni félagslegu stefnu forsetans og þeir ættu einnig sameiginlega föður- landsást og vilja til að auka veg Rússlands. Valdaránsmenn á þing Meðal þeirra sem náðu kjöri í kosningunum voru nokkrir af helstu andstæðingum Jeltsíns forseta. Má nefna Sergei Babúrín, sem var einn af leiðtogum gamla þingsins og í hópi þeirra sem hertóku þinghúsið í haust. Þá náðu tveir þeirra, sem tóku þátt í valdaráninu í ágúst 1991, kjöri á þing. Anatolí Ljúkanov, fyrr- um forseti sovéska þingsins, náði kjöri í borginni Smolensk og Vasilí Starodubtsjev, einn þeirra átta sem mynduðu neyðarráð valdaráns- manna, var kjörinn í borginni Túla. Uggurí grann- ríkjum Bonn, Riga, Stokkhólmi, Ilclsinki. Rcuter. UNDRUN og áhyggjur voru þau viðbrögð sem helst voru áberandi meðal vestrænna ríkja er birtar voru fyrstu tölur úr rússnesku þingkosningunum sem fram fóru á sunnudag. Leiðtogar Eystra- saltsríkjanna, Eistlands, Lett- lands og Litháens, kváðust áhyggjufullir vegna velgengni þjóðernissinna og boðuðu til fundar á miðvikudag til að ræða samskiptin við Rússa í ljósi kosn- inganna. Johan Jorgen Holst, utanríkisráðherra Noregs, sagði fylgisaukningu Zhírinovskis vekja ótta og vera greinilegt hættumerki. í útvarpsviðtali við Algirdas Brazauskas, forsætisráðherra Lit- háens sagði hann fylgisaukningu öfgamanna neyða stjórnvöld Eystrasaltsríkjanna til að setjast niður og átta sig á nýjum aðstæð- um. Þá sagði Mart Laar, forsætis- ráðherra Eistlands, að Evrópa gæti ekki gleymt reynslunni í Þýskalandi á fjórða áratugnum. Klaus Kinkel, utanríkisráðherra Þýskalands, lagði í gær áherslu á að Atlantshafsbandalagið (NATO) sýndi aðgát er innganga Mið- og Austur-Evrópuríkja væri til um- ræðu, vegna úrslitanna. Það þýddi þó ekki að Borís Jeltsín Rússlands- forseti, sem lagst hefur gegn stækkun NATO, hefði neitunarvald yfir bandalaginu. Kinkel kvaðst telja að Jeltsín hefði styrkt stöðu sína þar sem stjórnarskrá hans hefði verið samþykkt. Zhírínovskí ber ummæli um Finnland til baka Finnski utanríkisráðherrann, Heikki Haavisto, kvaðst í gær ekki hafa áhyggjur af fýlgi þjóðemis- sinna, Finnum fyndist sér ekki ógn- að, en sagt var frá því fyrir kosning- ar að eitt af stefnumálum Zhír- ínovskís væri að leggja Finnland undir Rússland að nýju. Þá var haft eftir honum að land, sem hefði konu í embætti varnarmálaráðherra ætti ekki skilið að vera sjálfstætt, með vísun til Finnlands. Vlsaði Zhírínovskí þessum ummælum á bug í gær, sagði um illkvittinn róg- burð að ræða. Þaá er púchir í Jiessari sögfu^ Vib Urbarbrunn EFTIR VILBORGU DAVÍÐSDÓTTUR Hér sýnir ungur rithöfundur inn í heim fyrstu kynslóöar íslendinga og kallar til sögunnar landnema, þrœla, gob og þekktar persónur. Spennandi bók fyrir alla sem heillast af fortíöinni og góöri sagnalist. „ Þaö er fáum gefiö aö geta skrifaö verk sem er allt í senn; metnaöarfullt, spennandi og fróölegt en mér finnst Vilborg komast vel frá því og þrátt fyrir ungan aldur söguhetjunnar á þessi saga erindi til okkar allra." Oddný Árnadóttir DV. * Kolbrún Bergþórsdóttir Pressunni. og menmng LAUCAVECI 18, SÍMI (91) 24240 & SÍDUMÚLA 7-9, SÍMI (91) 688577
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.