Morgunblaðið - 14.12.1993, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 14.12.1993, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993 Kría liggur með íslenska fánann uppi inni á lóni á Morea, systu- reyju Tahiti. ÞAU Unnur Jökulsdóttir og Þorbjörn Magnússon lögðu enn í hann á Kríunni, sigldu nú sjaldfarnar slóðir Islendingum, þvert yfir Kyrrahafið frá Panama til Ástralíu. Komu til þessara draumaeyja með nöfnum eins og Galapagoseyjar, Samoa, Tonga, Fiji, Tahiti, Túamóton Takarova, Bora Bora o.s.frv. og segja frá því í nýútkominni bók, Krían siglir um Suðurhöf. Þetta var lokaáfanginn í átta ára siglingum um heimshöfin á bátnum, sem Þorbjörn smíðaði sjálfur í Kaupmannahöfn meðan Unnur vann fyrir þeim. Siglingin yfir Kyrrahafið var mikil ævintýrasigling, sem tók þau heilt ár, enda þarf vegna fellibyljatímans að sæta lagi lengsta áfangann, sem tók nær mánuð án þess að sæist til lands. Á eyjunum hitta þau fólk og kynnast mannlifinu. I þeim kafla sem hér er birt úr, „Mannlausa Paradísin Hanamenú", hafa þau forðað sér undan tryggingafégræðgi lögreglusljórans í Atúóna og lagt Kríunni við auða strönd. KRTAN ÍKYRRAHAFI Þorbjörn vingast við íbúa á Galapagoseyju. Ströndin í Hanamenú er ekki árennileg að sjá héðan sem Kría liggur, eina skútan á þröngum fjallafirðinum. Samt er vindstilla og varla gári á vatnsborðinu. En langalda Kyrrahafsins tekur á sig sveig hingað inn, hún reisir sig við fjöruna með hvítkrullaðan kamb, sogar sandinn undir sig með lang- dregnum nið, heldur í sér andanum eitt augnablik og fellur svo fram með skelli og freyðandi hvissi. Við erum kyrfilega akkeruð, utar en þar sem aldan kennir grunns og byrjar að skjóta upp kryppunni, tvö út að framan og eitt aftur. Engu að síður höfum við á okkur andvara í nótt ef skútan skyldi draga akker- in, hlustuðum á brimtaktinn og beindum af og til ljóskastara til lands til að átta okkur á afstöðunni. Nú í björtu blasir við okkur þessi sjón: Af hvítskúmandi ölduströnd tekur við belti hárra teinréttra pálmatijáa, svo breitt að ekki sér í gegn milli stofnanna. Jöfn niður- röðun þeirra bendir til plantekru. Fyrrum bjó hér fjöldi fólks, tvöþús- und manns höfum við heyrt. Fyrir innan pálmaskíðgarðinn er langur djúpur dalur, brattar hlíðar með berum klettum efst, annars virðist hann þéttgróinn iðjagrænum skógi alveg þangað upp. Yst til hægri liggur stígur upp frá strönd- inni inn á milli pálmanna og við ályktum að lendingin sé þar, enda sandströndin í lægra lagi. Fjaran er annars brött sem ber vott um enn meira brim þegar svo stendur á. Þetta er spurning um að komast klakklaust í land og út aftur. Brimlending er kúnst sem enginn lærir óblautur. Að blotna einu sinni eða oftar er jafn nauðsynlegt og að detta til að læra að hjóla. Okkur verður hugsað til sægarpanna sem reru á opnum bátum frá hafnleysu- ströndum eins og söndunum sunnan á íslandi. Því miður hef ég ekki erft þessa kunnáttu í litningunum frá fomióður minni, Þuríði for- manni, en það er þó mildi að fá að æfa sig í að hvolfa báti og biotna í hlýjum sjó. Tvær stórar öldur hvor á eftir annarri, þá kemur ein af millistærð, síðan eru fjórar litlar í næstu stóru. Vitlaust reiknað, sú þriðja er óvenju stór í þetta sinn, hún endastingur gúmmíbátnum og sendir okkur í sandpússuðum kollhnísum upp á ströndina. Gegnum sandinn í aug- unum sé ég bátinn sogast aftur út og draga Þorra með sér á maganum því hann sleppir ekki bandinu, en áður en áhyggjumar leiða til at- hafna skríður hann skælbrosandi og vel skírður út úr þeirri millistóru. Líkt og allslausir skipbrotsmenn sem skolað hefur á land á ókunnri strönd fylgjum við stígnum inn í kyrrsælan skugga pálmanna. Undir þessum burðarstólpum breiddar- gráðunnar er jörðin þakin dottnum hnetum, sumstaðar skýtur grænu pálmalaufi upp úr morknandi kös- inni - sú jurt sem aldrei í birtu nær því krónurnar mynda svotil sam- fellt þak á fimmtu hæð ef hugsað er um hús. Sem betur fer þarf ekki að klífa þessi leggjalöngu tré til að ná í kókoshnetumar, við tínum nokkrar þeirra af jörðinni, hristum og hlustum eftir gutli, sumar em nýfallnar og fullar af vökva og mat. Það er ekki auðvelt að opna þær en ætti að vera hægt með hent- ugu egggijóti. Með þetta óþijótandi forðabúr mætti auðveldlega halda í sér lífinu ef maður passar sig á að verða ekki fyrir þeim í fallinu. Eftir stuttan spöl á hlykkjóttum stígnum opnast svo undursamleg sjón að við föllum í stafi. Niður hallandi klettaflúðir flæðir glitrandi lækur milli stórblaða jurta og steina og fellur í mjúkum fossi í fersk- vatnslind umgirta villtum aldin- garði. Þetta meistaraverk frá nátt- úrunnar hendi er hringlaga laug mynduð úr klettum og flötum stein- um með tæru mittisdjúpu vatni yfir svörtum sandi á botninum. Risa- burknar og angandi blómjurtir brydda bakka lindarinnar og allt um kring hafa pólynesísk börn nátt- úrunnar sáð sínum uppáhaldstijám. Þar eru bananapálmar, papayatré, pangúrínur, limafögur frangipani- tré með hvítum blómum og önnur hávaxnari framandi tré. Eitt þeirra ber brauðaldin sem við sjáum hér í fyrsta sinn. Grannir sólstafir skjót- ast um glufur gegnum ilmandi for- sælu ijóðursins, leika um laufín þegar golan bærir gróðurþykknið og dansa margbrotnir á sandbotni lindarinnar. Hvílík nautn að finna tært og kalt uppsprettuvatnið á saltpækl- uðu hörundinu, fara á kaf og fá sér sætan sopa, teygja út höndina eftir ilmandi rauðu blómi, eða hvítu - og stinga því bakvið eyrað. Að liggja svona í fullkomnum friði og hlusta á lækjarniðinn og taktföst ölduslögin á ströndinni í hæfilegum fjarska, bera saman græna liti laufsins og allavega löngun þess, leggja sína bláu úthafssál í bleyti í grænglansandi laufskrúðinu." Polynesísk eldamenska í Hanamenú dvöldu þau Unnur og Þorbjöm í tvær vikur og líf þeirra snerist um lindina. í ljósa- skiptunum eitt kvöldið kemur lítill hraðbátur fyrir víkurtána með tvo hlægjandi og hrópandi Pólýnesa um borð: „Ótahikí og Zigí leika við hvern sinn fingur. Nú skyldu þeir aldeilis elda fyrir okkur að pólynesískum hætti, í úmú, það er að segja í jarð- ofni. Hjá Pólynesum voru það yfir- leitt karlmennirnir sem elduðu mat- inn en konurnar sáu um undirbún- inginn og það var ekkert vandamál hver ætti að þvo upp á eftir því diskarnir voru einnota laufblöð og hnífapörin vaxa á höndunum. Vjð róum öll í land því svona veisla krefst langs undirbúnings. Við Zígí förum að sækja bananablöð, taró- lauf og brauðaldin sem hann klifrar eftir glæfralega langt út á greinarn- ar. Á meðan grafa Otahíki og Þorri djúpa holu í sandinn, klæða hana að innan með steinhnullungum og kveikja eld ofan í henni úr pálma- laufi og þurrum tijágreinum. Með- an viðurinn er að verða að glóandi kolum afhreistrum við og flökum fiskana, skerum niður ávextina sem á að baka með og búum til kók- osijóma sem bökunarsósu. Rifíð kókoskjötið er bleytt upp í safa fullþroska kókoshnetu og látið trekkja þannig í nokkurn tíma áður en ijóminn er kreistur úr með því að tveir vinda á milii sín hreinan Unnur í lindinni góðu í Draugadal. Hvílík nautn að finna tært og kalt uppsprettuvatnið á saltpækluðu hörundinu...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.