Morgunblaðið - 14.12.1993, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993
Öll síld til
manneldis
SAMÞYKKT var breyting á
lögum um stjórn fiskveiða á
Alþingi sl. föstudagskvöld sem
gerir ráð fyrir að til loka yfir-
standandi veiðitímabils síldar
skuli síldveiðar við það miðað-
ar að allur afli fari til mann-
eldisvinnslu. Á yfirstandandi
vertíð er búið að landa 95
þús. lestum og er áætlað að
35 þús. lestir hafi farið í mann-
eldisvinnslu.
í lögunum kemur einnig fram
að árlega verði hveiju skipi
heimilað að veiða allt að 5%
umfram aflamark sitt hvert físk-
veiðiár af síld enda dragist það
,frá aflamarki næsta fískveiðiárs
en með þessu eiga aflaheimildir
á yfírstandandi vertíð að geta
aukist um allt að 5 þúsund lestir.
Fram kemur í greinargerð
frumvarpsins að með því að ein-
ungis verði heimilt að stunda
síldveiðar til menneldisvinnslu
ættu milli 15 og 20 þúsund lest-
ir af síld að vera til ráðstöfunar
til frystingar og söltunar.
ASÍ, BSRB og Neytendasamtökin hvelja fólk til að taka ekki debetkort
Kannað hvort samráð bank-
anna standist samkeppnislög
ASI, BSRB og Neytendasamtökin hafa beðið Samkeppnisstofnun að
meta kostnað við notkun debetkorta og hvort samstarf og samráð
bankastofnana um málið varði við lög. Þau hvelja almenning til að
fresta þvi að taka debetkort. Þá hafa Kaupmannasamtök íslands beðið
Samkeppnisstofnun um að kanna hvort sameiginleg ákvörðun bank-
anna um gjaldskrá, verð á debetkortum og hækkun verðs á tékkheftum
bijóti gegn samkeppnislögum. Samráð um verð er óheimilt samkvæmt
samkeppnislögunum og hafa bankar og greiðslukortafyrirtækin ekki
sótt um undanþágu, að sögn Georgs Ólafssonar, forsljóra Samkeppnis-
stofnunar. Stofnunin hefur skrifað bönkunum hverjum fyrir sig og
greiðslukortafyrirtækjunum bréf þar sem óskað er skýringa þeirra
vegna bréfs almannasamtakanna. í framhaldi af þvi verður málið kann-
að betur. Halldór Guðbjarnason, bankastjóri Landsbankans, sagði að
bankarnir teldu að ákvarðanir þeirra samrýmdust samkeppnislögunum
því með því að standa sameiginlega að upptöku debetkortanna væri
verði þjónustu haldið niðri.
Fólk þvingað
í sameiginlegri fréttatilkynningu
Alþýðusambands íslands, Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja og Neyt-
endasamtakanna mótmæla samtökin
þeim aðferðum sem bankar og spari-
sjóðir hafa notað við að koma debet:
kortum í notkun hjá almenningi. í
reynd sé verið að þvinga fólk til notk-
unar á debetkortum og þar með að
leggja í aukakostnað með því að fella
bankakort úr gildi. Samtökin segjast
hafa um það efasemdir að sú mikla
VEÐUR
IDAG kl. 12.00
Heimild: Veóurstofa íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.30 í gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 14. DESEMBER
YFIRLIT: Á Grænlandshafi er ört vaxandi 1.000 mb lægó sem hreyfist
austsuðaustur og verður yfir Vestmannaeyjum seint í nótt. Langt suður
f hafi er víðáttumikil 1.042 mb hæð.
STORMVIÐVÖRUN: Búist er við stormi á Suövesturmiðum, Breiðafjarð-
armiðum, Vestfjaröamiðum, Norðvesturmiðum, Austfjarðamiðum, Suð-
austurmiðum, Vesturdjúpi, Færeyjadjúpi, Suðausturdjúpi, Suðurdjúpi og
Suðvesturdjúpi.
SPÁ: Norðaustanátt, stormur suðaustantil og á Vestfjörðum en heldur
hægari víðast annars staðar. Suðaustanlands og á Austfjörðum verður
slydda, él um Iandið norðanvert en úrkomulítið suðvestantil. Hiti verður
yfir frostmarki suðaustantil, við frostmark suðvestanlands en um landið
norðanvert verður vægt frost.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR A MlÐViKUDAG OG FIMMTUDAG: NorAaustanátt. él á Norð-
ur- og Austurlandi, en víða léttskýjað suðvestan- og vestanlands. Tals-
vert frost.
HORFUR A FÓSTUDAG: Vaxandi austanátt. Rigning eða slydda á Suður-
og Vesturlandi, en víðast þurrt norðaustanlands. Hlýnandi veður.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
tik A M
r f r * r *
f f * f
f f f f * f
Rigning Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
V $
Skúrir Slydduél
V
Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.(
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
stig..
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
Góð vetrarfærð er á öllum helstu þjóðvegum landsins. Á Vestfjörðum
er Eyrarfjall ófært. Á Norður- og Austurlandí eru aðalleiðar færar, þó
er Hellisheiði eystri ófær og Vatnsskarð þungfært.
Upplý9ingar um færð eru veittar hjá Vegaeftírliti í sfma 91-631500 og
í grænnilínu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hlti veður
Akureyri +11 hálfskýjað
Reykjavfk +8 hálfskýjað
BJÖrgvin
Helainki
Kaupmannahöfn
Narssarssuaq
Nuuk
Ósló
Stokkhólmur
Þórshöfn
skýjað
snjókoma
skýjað
slydda
snjókoma
léttskýjað
skýjað
anjóélásfð.klst.
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Feneyjar
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
LosAngeles
Lúxemborg
Madríd
Malaga
Mallorca
Montreal
NewYork
Orlando
Parfs
Madeira
Róm
Vín
Washington
Wlnnlpeg
15 þokumóða
8 skúr
11 þokumðða
1 snjðkoma
2 alskýjað
5 þokumóða
10 skýjað
5 skúr á síð. klst.
1 snjófcoma
10 skýjað
8 léttskýjað
8 rigning og suld
6 heiðskfrt
14 þokumóða
16 skýjað
+8 léttskýjað
heiðskírt
skýjað
rign.ásfð.klst.
18 léttskýjeð
14 alskýjað
4 rigning
0 heiðskírt
1
7
11
+9 alskýjaö
verðhækkun sem fyrirhuguð er á
notkun ávísana sé í samræmi við
raunverulegan kostnað banka og
sparisjóða. Mikiu fremur sé ástæða
til að ætla að þessi hækkun sé til
að knýja almenning til að fá sér
debetkort. Bankar og sparisjóðir hafí
boðið fólki debetkort á „sérstökum
vildarkjörum" í ákveðinn tíma. Jafn-
framt séu engar upplýsingar um það
hver kostnaður notenda verði í fram-
tíðinni. Þó sé ljóst að taka eigi ár-
gjald og færslugjald á næsta ári.
Viðskiptahættir sem þessir séu óvið-
unandi. Samtökin telja að með tii-
komu debetkorta megi ná fram veru-
legri hagræðingu í greiðslumiðlun
en að tryggja verði að sú hagræðing
skili sér til neytenda. Nú taki hins
vegar fáir verslunar- og þjónustuaðil-
ar við debetkortum og framtíðar-
kostnaður notandans óljós.
í bréfí sínu til Samkeppnisstofn-
unar segja samtökin að debetkortin
séu í reynd jafngild núverandi banka-
kortum. Því sé vert að vita hvaða
kostnaðarauki verði fyrir notendur
ávísana að taka debetkortin i notkun
í stað bankakortanna. Beðið er um
að einnig verði kannað hver kostnað-
urinn verði eftir að tilboð um „sér-
stök vildarkjör" á kortunum rennur
út. Jafnframt að gerð verði grein
fyrir fyrirhuguðum breytingum á
gjöldum við notkun ávísana. Loks
er stofnunin beðin um að kanna hvort
samstarf og samráð bankastofnana
í debetkortamálinu stangist á við lög.
Kaupmannasamtökin óska eftir
því að Samkeppnisstofnun kanni
hvort sameiginleg ákvörðun banka
og sparisjóða um gjaldskrá, verð á
debetkortum og hækkun verðs á
tékkheftum, varði við samkepppnis-
lögin.
Eitt kerfi ódýrara
Halldór Guðbjamason, bankastjóri
Landsbankans, sagði að bankarnir
teldu að ákvarðanir þeirra samrýmd-
ust samkeppnislögunum vegna þess
að með því að standa sameiginlega
að upptöku debetkortanna væru þeir
að halda verði þjónustunnar niðri.
Hann sagði að bankamir notuðu
sama kerfið og rækju það í gegn um
Reiknistofnu bankanna. Það væri
mun ódýrara en að hver banki hefði
sitt eigið kerfi.
Halldór vísaði því á bug að verið
væri að þvinga fólk til að taka debet-
kort með fyrirhugaðri hækkun á
gjaldskrá vegna ávísanaviðskipta.
Hann sagði að tékkakerfið hefði ver-
ið niðurgreitt með tekjum bankanna
af vaxtamun. Nú hefðu bankarnir
ekki þær tekjur lengur og þá yrði
kostnaðurinn við tékkakerfið að
koma í ljós og notendur þjónustunn-
ar að greiða fyrir hana. Fram hefði
komið fyrir löngu -að árgjald debet-
kortanna yrði um 900 kr. og færslu-
gjald það sama og eitt eyðublað í
ávísanahefti eða 10 krónur.
Halldór sagði vegna kvörtunar
kaupmannasamtakanna og almanna-
samtakanna til Samkeppnisstofnun-
ar mætti spyija hvort barátta þeirra
gegn debetkortunum stangaðist ekki
á við samkeppnislög. Vert væri fyrir
sömu stofnun og þeir kærðu til, að
kanna markaðshindranir kaup-
mannasamtakanna og þeirra sam-
starfsaðila, sem væru að reyna að
koma í veg fyrir að hægt væri að
bjóða þessa þjónustu á markaðnum.
Stærstu félögin sam-
þykkja samninga
TVÖ stærstu stéttarfélög opinberra starfsmanna hafa samþykkt ný-
gerða kjarasamninga við ríkisvaldið með miklum meirihluta atkvæða.
Starfsmannafélag ríkisstofnana samþykkti samningana með 76%
greiddra atkvæða og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar með 86%
greiddra atkvæða.
Hjá Starfsmannafélagi ríkisstofn-
ana greiddu 1.876 atkvæði af 4.628
félagsmönnum sem voru á kjörskrá
eða 40,54%. Já sögðu 1.439 eða
76,7%, nei sögðu 377 eða 20,1% og
auðir og ógildir seðlar voru 60 eða
3,2%.
Kosning í Starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar fór fram dagana
8. og 9. desember. Á kjörskrá voru
2.260 og atkvæði greiddu 336 eða
um 15%. Já sögðu 288 eða 86% og
nei 41 eða 13%. Sjö seðiar voru auð-
ir. Þá eru einnig sextíu ríkistarfs-
menn innan Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar og samþykktu
þeir samningana einnig.
Krislján G. Gíslason
stórkaupmaður látínn
KRISTJÁN G. Gíslason stórkaup-
maður er látinn 84 ára að aldri.
Kristján fæddist í Edinborg í Skot-
landi 5. mars 1909, sonur Garðars
Gíslasonar stórkaupmanns og
fyrri konu hans, Þóru Sigfúsdótt-
ur. \
Að loknu stúdentsprófi stundaði
Kristján nám í verslunarháskóla í
Berlín en hóf störf í fyrirtæki föður
síns í Reykjavík 1930. 1941 stofnaði
hann fírmað Kristján G. Gislason hf.
og starfaði við það síðan. Kristján
G. Gíslason var ræðismaður Belgíu
á íslandi frá nóvember 1962 en aðal-
ræðismaður frá 1964 og var sæmdur
heiðursmerkjum Belgíukonungs fyrir
þau störf sín.
Kristján G. Gíslason var formaður
Félags íslenskra stórkaupmanna
1959-1963 og formaður Verslun-
arráðs íslands 1966-1968. Hann sat
einnig í stjómum beggja samtak-
anna. Kristján G. Gíslason sat um
árabil í bankaráði Landsbanka Is-
lands. Hann átti sæti í stjóm Versl-
unarráðs íslands, Verslunarmanna-
félags Islands og Vestrænnar sam-
vinnu. Þá sat Kristján í stjómskipuð-
um samninganefndum um verslun
við Vestur-Þýskaland, Tékkóslóvakíu
og Pólland.
Eftirlifandi eiginkona Kristjáns
G. Gíslasonar er Ingunn Jónsdóttir.
Þau eiga þijú uppkomin böm.