Morgunblaðið - 14.12.1993, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993
15
Ævisaga listamanns
Bókmenntir
Jenna Jensdóttir
Eðvarð Ingólfsson: Róbert, ævi-
saga listamanns. Æskan 1993.
Einn af ástsælustu og bestu leik-
urum þjóðarinnar, Róbert Arnfmns-
son, hefur hér dregið tjöldin frá
fortíð sinni og leyft lesendum að
skyggnast með sér í minningar sín-
ar allt frá bemsku til þessa dags.
Róbert er fæddur í Leipzig í
Þýskalandi, 16. ágúst 1923 — þar
sem faðir hans Amfinnur Jónsson
stundaði nám í uppeldis- og sálar-
fræði. Móðir hans, Meda írene
Charlotte Korper, var þýsk. Þegar
Róbert var á fyrsta ári gerðist fað-
ir hans skólastjóri á æskustöðvum
sínum, Eskifirði.
Fyrstu minningar sínar á Róbert
frá Leipzig, en þaðan flutti hann
alkominn til íslands með_ móður
sinni um 5 ára.
Róbert er nærfærinn í orðum er
hann veitir lesendum innsýn í
reynsluþungt líf móður sinnar, sem
kom frá þekktu heimili í stórborg
menningar og lista. Alin upp að
hefðbundnum hætti heldri dætra
þeirra tíma. Lesandi verður gripinn
djúpri samkennd með ungri konu
sem örlögin búa ævilanga fjarveru
frá föðurlandi, ættingjum og vinum.
Með sár í móðurhjarta vegna að-
skilnaðar við ungan son er hún átti
með unnusta sínum er féll í fyrra
stríði og enn að missa barnungan
son heima á ísland.
Gjörólíkir, listfengir foreldrar
virðast hafa borið gæfu til að veita
drengnum sínum Róbert gott fjöl-
skyldulíf og besta uppeldi.
Faðirinn, trúlaus kommúnisti,
sérhyggjulaus vandaður maður,
virtur af öllum er kynntust honum
vel og vinsæll kennari. Lífsskoðanir
föður og sonar féllu aldrei saman
á vettvangi heimsmála.
Móðirin ætíð heimavinnandi. En
gat fundið listrænum hæfileikum
sínum þroska í blómarækt og
skrautritun sem aðrir nutu góðs af.
Trúuð kona er kenndi syni sínum
bænir á þýsku, sem eflaust leiddi
til þess að síðan hefur Faðir vorið
verið dyggur förunautur hans.
Þessi sérstæða kona dó 83 ára
og var lögð í íslenska mold. Hún
ásamt manni sínum rækti svo vel
móðurmál sitt á heimilinu að sonur-
inn var altalandi á þýsku er þau
seinna fóru með hann í heimsókn
til Þýskalands. Sú kunnátta var
honum dýrmæt er hann sigraði oft-
ar en einu sinni á leiksviði í móður-
landi sínu.
Bemsku- og æskuár Róberts á
Eskifírði hafa verið allt í senn við-
burðarik, litrík og skemmtileg.
Drengurinn fór snemma að spila á
harmonikku á samkomum og ferð-
aðist því víða um. 16 ára fluttist
hann með foreldrum sínum til
Reykjavíkur þar sem faðir hans
gerðist kennari við Austurbæjar-
skólann (seinna skólastjóri).
Burtför sinni frá Eskifirði lýsir
Róbert þannig:......sjórinn var eins
og spegill. Þá settist ég aftast á
skipið og grét fögrum tárum yfír
því að vera að yfirgefa þennan
sælureit...“ (bls. 44).
En árin urðu áfram litrík og
skemmtileg er til Reykjavíkur kom.
Störfín urðu margvísleg en megin-
starfíð fólst 1 músíkinni. Róbert tók
gagnfræðapróf frá Ingimarsskóla
og gerði misheppnaða tilraun til að
komast í Ix)ftskeytaskólann.
Stuttu síðar réðust örlög hans á
tvennan hátt. Hann kynntist konu-
efni sínu Ólöfu Stellu Guðmunds-
dóttur frá Vestmannaeyjum, sem
minningarnar þaðan í frá bera hví-
vetna með sér að er sérstök ágætis
kona og lífsförunautur. Og hann
settist í leiklistarskóla hjá Lárusi
Pálssyni leikara. Þar með hófst
aðál lífsstarfíð.
Þungamiðja bókarinnar er lífs-
ferill Róberts í heimi leiklistarinnar.
Þann hluta úr ævistarfi hans þekk-
ir öll þjóðin vel. Hver leiksigurinn
á fætur öðrum bæði hér heima og
erlendis. Frá því er sagt af hóg-
værð og látleysi, sem hvort tveggja
virðast ríkulegir þættir í fari Ró-
berts.
Eins og leikhúsgestir verða les-
endur glaðir og stoltir af hinum
mikla listamanni og finnst sem
landið og þjóðin eigi hann.
En grípum niður í frásögn Ró-
berts:
„Við það að kynnast Harry bróð-
ur mínum fékk ég í rauninni stað-
festingu á þeim sterku, þýsku rót-
um sem höfðu náð að festast í mér
og sitja þar enn. Ég fínn það í hvert
sinn er ég kem til Þýskalands að
þar á ég heima.. .“ (bls. 124).
Þetta er hljóðlát átakasaga
manns sem nær fullkomnum í há-
leitri list. Sem lítillátur og sáttur
við samtíðina reynir að skilja þá sem
yngri eru og breytingar þær sem
þeir koma með inn í næma veröld
leiklistar.
Það er alls staðar léttur blær
yfir frásögninni. Jafnvel í sárri sorg
sem nístir, eins og örlög einkasonar-
ins, kemur fram sálarþroski Ró-
berts, að sætta sig við það sem
orðið er, fínna gleðistundir njóta
þeirra og glæða um leið kærleiks-
ríka samheldni. Fjölskyldutengsl
dætranna þriggja og þeirra allra
virðast mjög sterk og fátíð í hraða
samtímans.
Nýjar bækur
■ Út er komin bókin Haglýsing
íslands eftir Sigurð Snævarr,
hagfræðing og forstöðumann við
Þjóðhagsstofnun.
Viðfangsefni bókarinnar er lýs-
ing á þróun íslenska hagkerfísins
og stöðu þess nú og tekur hún því
bæði til sögulegra þátta og núver-
andi ástands í þjóðarbúskap íslend-
inga. Hún skiptist í fimmtán kafla
sem fjalla m.a. um mannfjölda og
mannafla, náttúruauðlindir, at-
vinnuvegina, tekjuskiptingu, vinnu-
markaðinn, útgjöld þjóðarinnar,
búskap hins opinbera, utanríkisvið-
skipti, peningamál, verðbólgu og
þjóðhagsreikninga. Ritið er að
stofni til háskólafyrirlestrar höf-
undar, en það á að sögn útgefanda
erindi til allra sem vilja fræðast
nánast um íslenskt efnahagslíf.
Útgefandi er Heimskringla,
háskólaforlag Máls og menning-
ar. Bókin er unnin hjá G. Ben.
prentstofu hf. og Erlingur Páll
Ingvarsson gerði kápu. Verð kr.
3.880.
■ Matreiðslubókin Af bestu
Það er viljandi gert að víkja ekki
meira inn í frásögn Róberts af leik-
listarferli hans, sem er þó hreint
heillandi að lesa. Vel fer á því að
birt eru ummæli gagnrýnenda um
leiksigra hans og í bókarlok skrá
yfir sviðshlutverkin.
Tveir ágætir menn hafa lagt
metnað sinn í að gera þessa ævi-
sögu sem best úr garði og þeim
sýnist hafa tekist það. Rithöfundur-
inn Eðvarð Ingólfsson hefur kosið
þá aðferð að sitja á baksviði og
leyfa listamanninum að tjá sig í
fyrstu persónu, það gerir frásögn-
ina heilsteypta.
Margar ljósmyndir prýða bókina
og fýlla í frásögn. Einstæð ævi-
saga, falleg útgáfa.
Róbert Arnfinnsson
Eðvarð Ingólfsson
lyst er komin út. Um útgáfu henn-
ar sameinast fjórir aðilar: Manneld-
isráð, Krabbameinsfélagið, Hjarta-
vernd og Vaka-Helgafell og er það
nýlunda að þessir aðilar vinni sam-
an að viðlíka verkefni.
í kynningu útgefanda segir:
„Markmiðið með útgáfunni er að
opna augu almennings fyrir þeirri
staðreynd að hollur matur getur
jafnframt verið gómsætur og girni-
legur. Með því vilja útgefndur
stuðla að bættu mataræði og þar
með betri heilsu fólks. Það er metn-
aður þeirra sem að verkinu standa
að sem flestir geti eignast bókina
og því hefur verið lögð rík áhersla
á að halda verði hennar í algjöru
lágmarki. Bókin kostar 1.680 krón-
ur.“
Hitann og þungann af fræðilegri
vinnu hefur Laufey Steingrímsdótt-
ir, næringarfræðingur hjá Manneld-
isráði, borið, en auk hennar skipuðu
ritnefnd bókarinnar þau Kristinn
Arnarson, Vöku-Helgafelli,'Guðrún
Agnarsdóttir, Krabbameinsfélag-
inu, og Sigurður Helgason, Hjarta-
vernd. Ljósmyndun annaðist Guð-
mundur Ingólfsson, filmuvinnsla
var í höndum Samútgáfunnar-
Korpus en um prentun og bókband
sá prentstofa G. Ben.
PHILIPS - WHIRPOOL örbylgjuofnamir hafa tvöfalda
örbylgjudreifingu ásamt snúningsdiski sem tryggir jafna
hitadreifingu og þess vegna betri matreiðslu.
Sá litli
kraft-
mikli
1
j : i M+ ' -
'■'ÍI--. ' ';VÍ/' 4. ■
AVW600
20L - 900W
Þessi iitli kraftmikli með
tvöfaldri örbylgjudreifingu og
sérstakri hraðstillingu "Jet Start".
Afb. verð 22.940
Staðg. verð
rMt
Crisp
og
Grill
AVW 9r4
27L - 1000/2000W
Afb. verð 42.000
Staðg. verö
Stökkbreyting fyrir
örbylgjunotendur
Örbylgjuofninn sem getur eldað, steikt,
bakað, gratinerað og grillað. Crisp
stillingin gerir þér kleift að framreiða
franskar, beikon og pizzur með stökkri húð.
nyiniiiiB
Sjálfvirkt grill með lítilli orkunotkun
grillar matinn beint og gefur honum
gimilegt yfirbragð.
W W ■ ■' ■■^# ’
SÆTÚNI8 • SÍMI: 691515