Morgunblaðið - 14.12.1993, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993
Viðreisnin og
saga hennar
Bókmenntir
Guðmundur H. Frímannsson
Gylfi Þ. Gíslason: Viðreisnarárin,
Almenna bókafélagið, 272 bls.
Gylfi Þ. Gíslason er óneitanlega í
hópi glæsilegustu stjórnmálafor-
ingja eftirstríðsáranna. Hann er vel
máli farinn, hefur glöggan skilning
á viðfangsefni stjómmála og er
menntaður í þess orðs beztu merk-
ingu. Gylfi var ráðherra Aiþýðu-
flokksins ailan þann tíma, sem Við-
reisnarstjórnin sat að völdum, frá
1959 til 1971. Seta hans í þeirri
stjóm hlýtur að teljast kórónan á
ferli Gylfa sem stjórnmálaforingja.
Hann hefur nú ritað merkilega bók
um þessa stjórn, sem hlýtur að telj-
ast veruleg tíðindi.
Viðreisnarstjórnin sat í 12 ár.
Engin önnur ríkisstjóm hefur setið
að völdum svo lengi á lýðveldistím-
anum. Engin önnur ríkisstjórn hefur
markað jafn afdrifarík spor í sam-
tímasöguna og hún. í huga stuðn-
ingsmanna hefur þessi stjórn yfir
sér ljóma sem engin önnur. And-
stæðingar hennar vönduðu henni
ekki kveðjurnar á sínum tíma og
fyrst á eftir var ýmislegt staðhæft
um hana og feril hennar, sem bæði
var ósanngjarnt og jafnvel ósatt.
En mér hefur virzt, að menn viður-
kenni, þó með semingi sé, að bara
sú staðreynd ein, að hún sat í 12
ár, sé markverð og merkileg. Það
fylgir líka, að því lengur sem stjórn
situr, því fleiri tækifæri hefur hún
til að skilja eftir sig varanleg spor.
Þessi bók fjallar um þróun í efna-
hags- og stjórnmálum á sjöunda
áratugnum. Aður en vikið er að efni
bókarinnar, er rétt að nefna, hvað
hér er ekki fjallað um. Það er nefni-
lega merkilegt líka. Þessi áratugur
er ekki bara frægur fyrir Viðreisnar-
stjórnina heldur er hann líka þekktur
fyrir stúdentauppreisnir og margvís-
lega ólgu meðal ungs fólks. Gylfi
segir ekkert af þessum atburðum.
Mér virðist það skynsamlegt mat.
Uppátæki 68-kynslóðarinnar eru svo
ofmetin, að ekki tekur nokkru tali.
Það, sem Gylfí fjallar um, er miklu
merkilegra og varanlegra en nokkur
hlutur, sem tengist 68-kynslóðinni.
Það er í rauninni Guðsþakkarvert,
að hann skuli ekki minnast á hana
einu orði.
Bókinni er skipt í 30 kafla, sem
felldir eru saman í 6 hluta. Fyrsti
hlutinn segir frá aðdraganda Við-
reisnarstjórnarinnar. Annar hiutinn
greinir frá fyrstu aðgerðum stjórn-
arinnar og þeim öru breytingum,
sem þá urðu. Þriðji hlutinn fjallar
um ólík viðfangsefni stjórnarinnar
þennan áratug og sömuleiðis fjórði
hlutinn, nema þau viðfangsefni voru
leidd til lykta á stjómartímanum að
undanskildu landhelgismálinu.
Fimmti hlutinn lýsir aðdraganda
kosninganna 1971 og stjórnmála-
þróuninni á áratugnum. Síðasti hlut-
inn víkur síðan að árangri og lær-
dómi, sem draga má af þeim stað-
reyndum, sem lýst hefur verið í bók-
inni.
Þessi bók er ekki skrifuð sem
endurminningabók um þetta tímabil
og er í þeim skilningi ópersónuleg.
• En hún er persónuleg með þeim
hætti, að hún er rökstudd málsvörn
Viðreisnarinnar og þar með orða og
gerða höfundar. Það er líka einkenni
á bókinni, að ekki er hallað orði á
nokkurn mann, samheija sem og
andstæðinga. Það gengur líka ljós-
lega fram af síðum bókarinnar, að
höfundurinn hefur lagt í töluverða
vinnu við að afla fanga í bókina,
giöggva sig _á staðreyndum og
treysta ályktanir. Venjulegur lesandi
þarf að leggja sig nokkuð fram til
að fylgja öllum röksemdunum, því
að ýmsar efnahagslegar staðreyndir,
sem lýst er í bókinni, liggja ekki í
augum uppi fyrir öllum þorra fólks.
En þetta er alvöru bók um alvöru
mál, sem verður ekki orðin úrelt
eftir þessa jólavertíð. Það er þess
virði að reyna að skilja hana og meta.
Það, sem sætir kannski mestu tíð-
indum í þessari bók, eru ályktanir
höfundar um stjórnmálaþróun á
fyrrihluta aldarinnar og hlut Alþýðu-
flokksins í þeim, og einnig það, hve
Viðreisnin skilaði góðu búi í lok
valdatíma síns. í raun er það ekki
síður merkiiegur hluti bókarinnar,
hve vel er dregin fram efnahags-
stefna stjórnarinnar allan valdatíma
hennar og hvernig hún tengdist mis-
heppnuðum tilraunum á sjötta ára-
tugnum til að ná tökum á efnahags-
stjórninni og öðrum þáttum stjómar-
stefnunnar á sjöunda áratugnum.
Það fyrsta, sem er mikilvægt um
Viðreisnina, er, að henni heppnaðist
að opna efnahagskerfið í upphafi
valdatíma síns og vinna síðan að því
allan tímann að tengja ísland inn í
efnahagskerfi hins vestræna heims.
Þetta fólst í að styrkja innlendar
stjórnarstofnanir í efnahagsmálum,
t.d. með stofnun Seðlabanka Is-
lands, að opna erlendum fyrirtækj-
um leið inn í landið með samningun-
um við Alusuisse, og að ganga í
Fríverzlunarsamtök Evrópu ásamt
Mikið magn af limrum
Nýjar bækur
Heitbaugurinn eftir
Þorstein Stefánsson
Bókmenntir
Skafti Þ. Halldórsson
Hrólfur Sveinsson: Ljóðmæli
mikið magn af limrum. Mál og
menning. 1993.
Fátt léttir betur lundina en vel
kveðin limra. Þótt bragarháttur sá
sé ekki íslenskur að uppruna hafa
ýmsir gárungar hér á landi beislað
hann af miklu listfengi. Einn þess-
ara limrulávarða nefnist Hrólfur
Sveinsson og hleypir nú skáldfáki
sínum á skeið með nýtt limrukver
undir hendinni, Ljóðmæli mikið
magn af Iimrum. Eins og titillinn
gefur til kynna er hér á ferðinni
mjög svo ábyrgðarsnauður og al-
vörulaus skáldskapur en þó engan
veginn léttvægur. Limrurnar í bók-
inni eru hugmyndaríkur og kíminn
kveðskapur, oft geislandi af andríki
og formið leikur í höndunum á höf-
undinum.
Skáldið kemur víða við og yrkir
um andleg efni og veraldleg; graf-
ljóð, sorgarkvæði, söguljóð, ástar-
ljóð og heimspekileg kvæði. Hinu
er þó ekki að leyna að limrurnar
eru mestanpart útúrsnúningur,
háðsádeila og kerskni eins og þeim
ber að vera. Stundum eru mörg til-
brigði við svipuð þemu og minni
(grafljóð, riddarasögur og harm-
ljóð) en annars eru limrurnar eins
konar stökur.
Ljóðmál textans er nokkuð ná-
lægt því sem nefnt hefur verið fág-
að talmál og höfundur skirrist ekki
við að sveigja útlendar slettur að
því með góðum árangri. Stílbrögð
eru margvísleg; leikur að orðum og
þverstæðum, ísmeygilegt myndmál,
tvíræðni og afhelgun sögulegra
persóna og geistlegra þjóna. Limran
Einsemd er dæmi um hið síðast-
nefnda:
Abbadís Birgitta Brant
var bústin og elegant
Já, svo er að heyra.
En hitt er þó meira,
hvað henni var ábóta-vant.
Ekki veit ég hvort Hrólfur
Sveinsson hefur áður birt mikið á
prenti undir eigin nafni. Ljóst er
þó að hér er enginn byijandi á ferð
og eitthvað hefur hann komið ná-
lægt þýðingum enda eru þær hon-
ýmsu öðru raunar. En hagstjórnin í
heild og viðbrögðin við erfíðleikun-
um, þegar síldin hvarf, held ég að
hljóti að teljast merkustu afrek Við-
reisnarstjórnarinnar. I heild þá voru
afleiðingar efnahagsstefnu hennar
þau að gera ísland að nútímaríki í
efnahagsmálum.
Hugleiðingar Gylfa um sögulegt
hlutverk Alþýðuflokksins á fyrri-
hluta aldarinnar eru skemmtilegar
og fróðlegar. En þær breyta engu
um það, að Alþýðuflokkurinn studdi
það kosningakerfi, sem var megin-
stoð veldis Framsóknarflokksins á
þessum tíma sem og andstæðinga.
Það gengur líka Ijóslega fram af
síðum bókarinnar, að höfundurinn
hefur lagt í töluverða vinnu við að
afla fanga í bókina, glöggva sig á
staðreyndum og treysta ályktanir.
Venjulegur lesandi þarf að leggja
sig nokkuð fram til að fylgja öllum
röksemdunum, því að ýmsar efna-
hagslegar staðreyndir, sem lýst er í
bókinni, liggja ekki í augum uppi
fyrir öllum þorra fólks. En þetta er
alvöru bók um alvöru mál, sem verð-
ur ekki orðin úrelt eftir þessa jóla-
vertíð. Það er þess virði að reyna
að skilja hana og meta.
En tákn eru mikilvæg fyrir þjóð,
þótt þau hafi engin áhrif á hags-
muni hennar. Gylfi segir líka frá
menntamálum, enda er hann sá
menntamálaráðherra, sem lengst
hefur setið í embætti. Og hann víkur
líka að landbúnaðarmálum, sem eru
kannski erfiðasta arfleifð Viðreisnar
ásamt því að raunvextir urðu ekki
jákvæðir nema tvö ár á tímum
stjórnarinnar. En þess ber að geta
að samanburður við aðrar stjórnir
síðustu tvo áratugina er svo aumur,
að Viðreisnin glansar í slíkum sam-
jöfnuði.
Það er mikill fengur að þessari
bók. Hún er skynsamleg málsvörn
merkilegs tímabils í nútímasögu ís-
lenzku þjóðarinnar.
um hugleiknar. í inngangi að ljóð-
mælum sínum getur hann þess að
nokkur „þessara ljóða minna hafa
útlendingar reynt að þýða, hvernig
sem þeir hafa nú komizt yfir þau,
en ekki ráðið við það betur en svo,
að þeir hafa neyðzt til að kalla þau
frumort“.
Þótt skáldskapur Hrólfs geti
varla talist sjálfhverfur leitar þó
kreppa sjálfsins á hann eins og
önnur skáld 20. aldar. Hjá honum
er hún jafnvel dýpri en hjá öðrum
eða svo segir í kvæðinu Ég, Hrólfur
Sveinsson:
Æ, ég er bannsettur bjálfi
sem bruðlað hef eigin sjálfi.
„I hvað gazt þú eytt
því sem aldrei var neitt?“
spyr frændi minn Helgi Hálfi.
Þar sem Hrólfur er helgaður
neindinni verður víst að leita hans
í fórum þess sem dæmir hann svo.
Hvað sem því líður sóttu að mér
við lestur bókar þessarar orð sem
annar meistari orðsins og Iffsspek-
ingur lét frá sér fara í frægu riti.
Grunntónn tilverunnar er mein-
laust grín.
ÚT ER komin bókin Heitbaugur-
inn eftir Þorstein Stefánsson.
í kynningu útgefanda segir: „Þor-
steinn er borinn og bamfæddur
Austfírðingur, fæddur árið 1912 að
Nesi í Loðmundarfírði. Fyrsta bók
hans, Frá öðrum hnetti, kom út
árið 1935 og sama ár stefndi Þor-
steinn fleyi sínu til Danmerkur. Þar
kom út bók hans Dalen árið 1942
og fyrir þá bók fékk hann H.C.
Andersen-verðlaunin. Þessi verð-
laun voru veitt höfundum undir 35
ára aldri og var þeim fyrst úthlutað
árið 1930 í tilefni 125 ára afmælis
H.C. Andersen. Dalurinn kom síðan
út í íslenskri þýðingu Friðjóns Stef-
ánssonar, bróður Þorsteins, árið
1944. Framtíðin gullna kom út hjá
Oxford University Press árið 1974
og í Bandaríkjunum 1977. Bókin
hefur verið þýdd á fleiri tungumál,
m.a. þýsku og hollensku."
Heitbaugurinn kom fyrst úr árið
1976 í Bretlandi hjá Oxford Uni-
versity Press undir nafninu The
Engagement Ring. Bókin kom síðan
árið eftir á dönsku undir nafninu
Forlovelsesringen og nú hefur Þor-
Nýjar bækur
■ Klukkan Kassíópeira og húsið
í dalnum heitir nýútkomin barnabók
eftir Þórunni Sigurðardóttur.
Bókin er byggð á leikriti sem flutt
var í Ríkisútvarpinu í haust og fjall-
ar um börn sem fara að grafast
fyrir um gamalt leyndarmál og
komast þá að óvæntum sannleika.
„Þegar farið er að grufla í fortíð-
inni kemur ýmislegt spennandi í ljós
og aðalpersónan, Halla, uppgötvar
höfuðborgina, þar sem kapphlaupið
við tímann er allsráðandi," segir í
kynningu útgefanda. Klukkan
kassíópeia og húsið í dalnum er
fyrsta barnabók Þórunnar.
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er 140 blaðsíður, prentuð
í Prentsmiðjunni Odda hf. Katrín
Sigurðardóttir myndskreytti
bókina. Verð 1.390 krónur.
■ Út er komin bókin Sjö, níu,
þrettán — hjátrú Islendinga í
daglega lífinu. Ritstjóri er Símon
Jón Jóhannsson. Um er að ræða
bók um margvíslega hjátrú lands-
manna fyrr og nú. A bókakápu
segir að bókin sé í senn fræðandi
og skemmtileg og að hún höfði jafnt
til ungra sem aldinna íslendinga.
Meðal efnisflokka má nefna ástir
og brúðkaup', meðgöngu og fæð-
ingu, íþróttir og leikhús, stiga og
spegla, salt og svarta ketti, að því
ógleymdu að banka undir borð og
fara með töfraþuluna „Sjö, níu,
þrettán!“
Útgefandi er Vaka-Helgafell.
Bókin er rikulega myndskreytt,
bæði með ljósmyndum úr ýmsum
áttum og teikningum eftir Gísla
J. Ástþórsson og fleiri. Hún er
269 blaðsíður að lengd, prentuð
í prentsmiðju Arna Valdemars-
sonar. Bókin kostar 2.980 krón-
ur.
B Út er komin bók sem nefnist
íslensk málnefnd 1964-1989.
Afmælisrit. Höfundar eru Halldór
Halldórsson og Baldur Jónsson.
í þessu riti er rakin saga mál-
nefndarinnar í 25 ár og tildrögin
að stofnun hennar allt frá því að
Björn Ólafsson lagði fram frumvarp
til laga um Akademíu íslands á
Alþingi 1950. Fjallað er um barátt-
una fyrir eflingu málnefndarinnar
og um leið íslenskrar málræktar,
og allrsgkilega er sagt frá fjölþættu
starfi nefndarinnar bæði á innlend-
um og erlendum vettvangi.
Halldór Halldórsson prófessor
var aðalhvatamaðurinn að stofnun
málnefndarinnar og fyrsti formaður
hennar. Hann rekur tildrögin að
stofnun nefndarinnar og segir frá
upphafi hennar.
Þorsteinn Stefánsson.
steinn þýtt bókina á íslensku.
Útgefandi er Erla, en Lindin
hf. annast dreifingu. Bókin kost-
ar 1995 krónur.
Baldur Jónsson prófessor var for-
maður íslenskrar málnefndar
1978-1988 og er nú forstöðumaður
íslenskrar málstöðvar sem mál-
nefndin rekur í samvinnu við Há-
skóla íslands. Baldur segir sögu
nefnarinnar allt frá 1966 til 1989.
Aftast í ritinu er skrá yfir skipan
íslenskrar málnefndar 1964-1989,
heimildaskrá og nafnaskrá.
Afmælisritið er 8. ritið í bóka-
flokknum Rit íslenskrar mál-
nefndar. Það er 162 blaðsíður,
prýtt myndum. Bókin er fáanleg
í Islenskri málstöð, Aragötu 9,
Reykjavík, og kostar 2.850 kr.
I Út er komin bókin Milli
sterkra stafna eftir Jonínu Micha-
elsdóttur. Bókin fjallar um líf og
störf fólks, sem á það sameiginlegt
að hafa starfað áratugum saman
hjá Eimskipafélagi íslands.
í kynningu útgefanda segir:
„Jónínu Michaelsdóttur, höfundi
bókarinnar, tekst á skemmtilegan
hátt að laða fram skoðanir og til-
finningar viðmælenda sinna. Hún
bregður upp mynd af fólkinu sjálfu,
sem segir frá því hvað á daga þess
hefur drifið, bæði í leik og starfi,
gamni og alvöru. Margt af því sem
sagt er frá í bókinni hefur aldrei
komið fram opinberlega áður og
fjölbreytileiki fólksins og frásagnar-
gleði gerir bókina fróðlega og
skemmtilega aflestrar."
Frumkvæði að ritun bókarinnar
Milli sterkra stafna er komið frá
Eimskipafélagi íslands og er til-
gangurinn sá að varðveita heimildir
um starf fólks sem sumt hefur unn-
ið í hálfa öld samfleytt hjá félaginu.
Útgefandi er Almenna bókafé-
lagið. Bókin er prentuð hjá Odda
hf., er 288 blaðsíður og kostar
3.650 krónur.
■ Hestar og menn 1993, ár-
bók hestamanna eftir Guðmund
Jónsson og Þorgeir Guðlaugsson
er komin út. Arbók hestamanna
kemur nú út í sjöunda sinn. í Bók-
inni segir frá hestamönnum og
hestum þeirra í ferðalögum og
keppni bæði hérlendis og erlendis á
árinu. í bókinni eru viðtöl við ís-
lenska og erlenda sýningarmenn og
ræktendur. Þetta efni er í 11 köflum
sem heita; Saga fjórðungsmóta á
Norðurlandi, Fjórðungsmót á
Vindheimamelum, Myndir af
ræktunarbúum á fjórðungsmót-
inu, Vignir Siggeirsson, Jóhann
Þór Friðgeirsson, Tveir á ferð
um V-Skaftafellssýslu, íslands-
mót á Akureyri, Heimsmeistara-
mót í Hollandi, Sigurður Vignir
Matthíasson Jolly Schrenk og í
þeim síðasta eru rakin úrslit
helstu móta ársins 1933.
Útgefandi er Skjaldborg. Bók-
in er 255 bls. Verð 3.495 krónur.
|
€
<£
1