Morgunblaðið - 14.12.1993, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993
17
Hnoði í buðk. Hnykill í
bauk. Heimur í bók.
Nýjar bækur
■ Ut er komin bókin Háska-
leikur eftir bandaríska rithöfund-
inn Stephen King í íslenskri þýð-
ingu Guðbrandar Gíslasonar. Þetta
er níunda bókin eftir Stephen King
sem kemur út á íslensku. í kynn-
ingu útgefanda segir: „Sagan fjall-
ar um hjón á besta aldri sem taka
sér ferð á hendur í afskekkt sum-
arhús sitt í þeim tilgangi að hressa
upp á ástarlíf sitt. En ógnþrungin
atburðarás setur strik í reikning-
inn og það sem átti að verða sak-
laus skemmtun breytist í baráttu
upp_ á líf og dauða."
Útgefandi er Fróði. Bókin
Háskaleikur er 351 blaðsíða.
Bókin er prentunnin í Prent-
smiðjunni Odda hf. Kápuhönn-
un annaðist Hugverkasmiðjan,
Helgi Sigurðsson. Verð bókar-
innar er kr. 1.980.
■ Út er komin skáldsagan
Glerborgin eftir bandaríska höf-
undinn Paul Auster í þýðingu
Braga Ólafssonar.
í kynningu útgefanda segir:
„Spennusagnahöfundurinn Daniel
Quinn er í misgripum dreginn út
á götur New York, inn í atburða-
rás sem ekki aðeins krefst þess
að hann lifi lífí sinnar eigin sögu-
persónu, heldur er hann neyddur
til að leggja eigið líf að veði. Hann
fær það verkefni að vernda Peter
nokkurn Stillmann gegn föður sín-
um. Þar með hefst einstæð'eftirför
ólíkt öllu sem þekkist í seinni tíma
bókmenntum. Þetta er margslung-
in saga, á yfírborðinu spennusaga,
eða ber meira svipmót hinnar
klassísku sakamálsögu, en er allt
annað og meira.“
Útgefandi er Bjartur. Bókin
er prentuð hjá PAV, kápu gerðu
Snæbjörn Arngrímsson og
Kristín Ómarsdóttir. Bókin er
117 blaðsíður og kostar 2.480.
Bókmenntir
Soffía Auður Birgisdóttir
Álfrún Gunnlaugsdóttir
Hvatt að rúnum
Skáldsaga
Mál og menning, 1993
336 bls.
Orðið texti, sem í nútímamáli
merkir ritað mál, er komið úr latínu
og er leitt af orðinu textora sem
þýðir að vefa eða fella saman. Skyld-
leiki texta og vefs er því orðsifjaleg-
ur og er það einkar viðeigandi því
tengsl þessa tveggja eru margvísleg,
enda þreytast menn seint á að líkja
ritverkum við vef, spuna, fléttu og
annað því um líkt. Slíkar hugleiðing-
ar kvikna enn við lestur nýjustu
skáldsögu Álfrúnar Gunnlaugsdótt-
ur, Hvatt að rúnum.
í þessari sögu situr kona á tali
við tvo menn í húsi sínu. Þessa konu
má kalla sögukonu þó aðrar persón-
ur bregði sér einnig í hlutverk frá-
sagnaraðila textans. Annar viðmæl-
anda sögukonu heitir Stefán og hann
er draugur. Hann felur hún uppi á
lofti fyrir hinum viðmælandanum,
Jóni Pétri, sem hún ræðir við niðri
í stofu. Samtöl konunnar við þessa
tvo menn mynda tvo meginþræði
sögunnar en ótal aðrir þættir flétt-
ast saman við: hugleiðingar sögu-
konu um líf sitt í fortíð og nútíð og
atburði fortíðarinnar sem tengjast
fleiri persónum. Af þessum auka-
þáttum er þó einn fyrirferðamestur
en það er saga sem draugurinn Stef-
án las í lifanda lífi sínu og segir
sögukonu. Sú saga er frá miðöldum
og segir af sveininum Diafanusi sem
leggur af stað heiman frá í leit
ævintýra og lendir í þeim mörgum.
Stefán, sem lifði á 18. öld, sér sjálf-
an sig í Diafanusi enda eru samsvar-
anir margar: báðir yfírgefa þeir
mæður sínar ungir, alast upp og
læra á lífið meðal vandalausra, báð-
ir lenda þeir í ferðalögum um ókunn
lönd þar sem ýmis ævintýri og marg-
ar hættur bíða þeirra. Þau mynstur
sem hér eru ofín tengjast vináttu,
svikum, ást, kynhvöt, trú, kreddu,
stríði, friði, hugsjónum og valdníðslu
— svo fátt eitt sé nefnt. Og þessi
mynstur fléttast síðan öll á einn eða
annan hátt inn í þá sögu sem ramm-
ar allar hinar, söguna sem gerist á
tíma sögukonu — sem er einnig okk-
ar tími eða 20. öldin. •
Nútímasagan er hreinræktuð „nú-
tíma“ saga sem hefur að geyma hina
þrjá ómissandi þætti sem „nútíma“
lesendur eru sagðir krefjast: ást,
ofbeldi og kynlíf í ríkum mæli. Hér
er sagt frá ástum tveggja kvenna
og eins karlmanns sem gæta ekki
að sér í hita tilfinninga, girndar,
afbrýði og einsemdar. Þetta er til-
finningaþrungin saga af óblíðum
örlögum og flóknum mannlegum
samskiptum. Saga Stefáns draugs
skiptist í tvo meginþætti og segir
annar af æsku hans á íslensku
prestssetri, Friðþjófsstöðum, þar
sem ýmsir vofveiflegir atburðir ger-
ast, og hins vegar segir af ferðalagi
hans til Evrópu og lífi hans þar á
ógnartímum plágu og stríðs. Aftan
á bókarkápu stendur að saga Diaf-
anusar sé riddarasaga úr fjarlægri
fortíð, en mér virðist hún fremur
þjóna hluverki nokkurs konar dæmi-
sögu (með skírskotanir til hirina
tveggja meginsagnanna). Persónur
miðaldasögunnar standa fyrir
ákveðin gildi og lífssýn eins og ráða
má af nöfnum og/eða stöðu þeirra
í lífinu: (Diafanus = hinn gagnsæi
eða jafnvel flón guðs, Fronín = hinn
montni, eða sá sem hreykir sér, Glor-
ía = hin dýrðarlega (kona). Hermíti,
Abbadís og Vörður (eða valdsmað-
ur).
Álfrún Gunnlaugsdóttir
Um leið og sagðar eru margar
magnaðar og skemmtilegar sögur í
þessari bók er sjálft frásagnarformið
í brennidepli. Æ ofan í æ verður á
vegi lesandans aðaltákn frásagnar-
innar í þessari bók: Þráðurinn.
„Hnykill í bauk“ berst á milli per-
sóna í nútímasögunni og „hnoði í
buðk“ fer manna á milli í sögu Stef-
áns. Ekki er á hreinu hver á hnyki-
ana, en ljóst er að þeir sem geyma
þá hafa „visst ráðrúm“, visst frelsi
til að ráða lífi sínu. Hnyklarnir eru
komnir frá konum og verða bitbein
karla og kvenna í sögunni og tengj-
ast þeim ýmis svik. Undir bókarlok
stendur sögukona með hvoru
tveggja í höndunum, hnykilinn og
hnoðann: „Upp er runnið fyrir mér
hvað gera skal, ég tek um þráðar-
endann á hvorum hnykli, hnýti og
vind sameiginlega ofan af þeim upp
á nýja,n hnykil. Mér til gleði sé ég
að þræðirnir tvinnast saman. Styrkja
hvor annan“ (331). Hún biður síðan
ungan mann að koma hnyklinum í
hendur annarra hvorra tveggja
kvenna sem hann þekkir. Þannig
hefur hún ráðstafað þræðinum =
frásögninni í trássi við höfundinn
að því er virðist: „— Þú hafðir bet-
ur. H er ævareiður. — Höfundurinn!
Ég læt mér það í léttu rúmi liggja.
Hann vildi ráðskast með mig, þvert
ofan í leikreglurnar sem hann sjáifur
setti. Gaf mér frelsi og ætlaði síðan
að svipta mig því. Þú tróðst þér inn
á mig sem handbendi hans. Klókindi
tveggja karla. Svei því“ (332). Með
þessum óvænta en bráðsmellna at-
burði gefur Álfrún skáldverki sínu
enn eina vídd sem tengist húgleið-
ingum um frásagnarlist og kynferði
og tekur hún þar upp þráð sem
meðal annars var spunninn í Gunnl-
aðar sögu eftir Svövu Jakobsdóttur.
Þeir sem lesið hafa fyrra verk
Álfrúnar kannast við þessa frásagn-
araðferð hennar; að bijóta upp tíma
og umhverfi frásagnar, flétta saman
brotum, og láta lesanda eftir að ráða
í heildarmyndina. Þetta er krefjandi
frásagnarháttur en um leið mjög
gefandi og skapandi: lesandinn verð-
ur virkur þátttakandi í þeirri sögu
sem miðlað er. Álfrún hefur meist-
aratök á þessari aðferð sem hún
hefur þróað frá fyrstu smásögum
sínum. Þótt fram vindi í bókinni
þremur meginsögum frá þremur
mismunandi tímaskeiðum þá verður
frásögnin aldrei það flókin að les-
andinn tapi áttum. Svo vel er ofíð
saman þráðum; atburðir frá einu
tímaskeiði speglast í atburðum ann-
ars tímaskeiðs, sömu stefín koma
fyrir aftur og aftur í mismunandi
myndum; þrátt fyrir ólíkan tíma og
ólíkt umhverfi er mannskepnan ætíð
söm við sig í öllu sínu æði, stríði,
ástum og svikum. Vel má vera að
einhveijir lesendur hafi lítið umburð-
arlyndi gagnvart þessum frásagnar-
hætti þar sem meira er gefíð í skyn
en látið er uppi. Vel má vera að ein-
hveijir lesendur Iáti letina letja sig
við lesturinn og heimti skýringar og
einföld söbr. Við þá vil ég segja (og
geri ég orð Stefáns draugs að mínum
þegar hann segir við sögukonu):
„...ófróð þykir mér þú um þá list að
segja sögu. Allt þarf að skýra!“
(167). Þeir sem hins vegar lúta lög-
málum þessa texta munu njóta hins
listræna vefnaðar til fulls — enda
gerður af meistara höndum. Að lok-
um vil ég geta bókarkápunnar sem
gerð er af Ingibjörgu Eyþórsdóttur
og er einstaklega vel gerð og hæfir
fullkomlega söguefninu.
Glæsilegar íbúðir
á eftirsóttum stað
í Vesturborginni
Vandað fjölbýlishús
Vorum að fá til sölu glæsilegar 101-124 fm íbúðir í nýju vönduðu
fjölbýlishúsi við Suðurgötu í Reykjavík (sunnan Hjónagarða).
Húsið er 5 hæðir þar af 4 íbúðarhæðir. Lyfta. íbúðimar afhendast
fullbúnar með fullbúinni sameign og frágenginni lóð.
Hlutdeild í húsvarðaríbúðum fylgir.
Gert er ráð fyrir að kaupendur séu eldri en 62ja ára.
Reykjavíkurborg mun byggja þjónustusel á lóðinni
Frágangur:
Húsið er mjög vandað að allri gerð, m.a. verður það klætt að utan
með viðhaldsffíu eftii. Hiti verður í gangstéttum og plani.
Glæsilegt útsýni. _____
::
íbúðimar verða afhentar 15. desember 1994.
__ 4raherb. fbúðir 101,3 fm. Verð kr. 10.280.000,-
J| 4ra herb. íbúðir 124,3 fm. Verð kr. 12.440.000,-
Simi 67 -90-9» - Fax 67 -W -K - Síðnmnla 21
9
IGNAMIÐLUNIN