Morgunblaðið - 14.12.1993, Síða 18

Morgunblaðið - 14.12.1993, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993 Stj ómmálastarf átakamanns _________Bækur______________ Björn Bjarnason JÁRNKARLINN Matthías Bjarnason ræðir um ævi sína og viðhorf. Höfundur: Ornólfur Árnason. Útgefandi: Skjaldborg 1993. 312 bls. með ljósmyndum og nafnaskrá. Nýlega birtist umsögn eftir Do- uglas Hurd, utanríkisráðherra Breta, um nýja bók Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráð- herra Breta, þar sem hún lýsir störf- um sinum í forsætisráðherraemb- ættinu. Hurd kemst þannig að orði, að bókin sé merkileg enda eftir merkan stjómmálamann. Á hinn bóginn hefði hún orðið enn þá merkilegri, ef Thatcher hefði frest- að því að skrifa hana í fimm ár eða svo. Þá hefðu sárin eftir stjóm- málaátökin og fall hennar úr ráð- herrastólnum verið gróin og hún hefði getað litið yfir sviðið án þess að þurfa að gera upp við einstaka menn eða fella um þá dóma sjálfri sér til framdráttar. Þetta sjónarmið Hurds á erindi til allra, stjórnmálamanna og ann- arra, sem taka sér fyrir hendur að fjalla um ævi sína og viðhorf á meðan þeir em enn virkir í barátt- unni, ef svo má að orði komast, eða hafa ekki að fullu sagt skilið við hana. Þótt menn vilji setjast niður og líta yfir sviðið í heild án þess að láta stjórnast af dægurþrasinu, er erfitt að losna við það, þegar á hólminn er komið. Viðhorfin til manna og málefna breytast furðu- fljótt hjá sama einstaklingi eftir því af hvaða hóli hann horfír. Hvatvís- legir dómar vekja meira fjölmiðla- umtal á líðandi stundu en íhugult mat á störfum og stefnu eða frá- sagnir af horfnum vinum og sam- starfsmönnum og lýsingar á aldar- hætti í æsku og á unglings- og mótunarárum. í frásögnum fjölmiðla af Jám- karlinum hefur einkum verið vitnað til palladóma Matthíasar Bjama- sonar um ýmsa menn, sem hann hefur kynnst á löngum starfs- og stjórnmálaferli og enn eru virkir í þjóðmálum eða hafa nýlokið þar störfum. Minna hefur verið vikið að þeim stjómmálaviðhorfum sem Matthías lýsir eða lifandi frásögn- um hans af lífí og starfí á ísafírði eða annars staðar á Vestfjörðum. Hafí heiti bókarinnar Járnkarlinn gefíð einhverjum þá hugmynd að með því væri Matthías Bjarnason að höfða til pólitísks skyldleika við járnfrúna Margaret Thatcher er um misskilning að ræða. Þegar Matthí- as ræðir um fjölskyldulíf sitt og eiginkonu sinnar Kristínar Ingi- mundardóttur, kemst hann meðal annars svo að orði: „Þó að ég þyki jámkarl út á við var ekki hörkunni fyrir að fara við krakkana." Virðist vísað til þessara orða í bókarheitinu en ekki hins, að Matthías hafí verið jafnhrifínn af stjómmálakenning- um og Thatcher eða eins mikill fijálshyggjumaður og hún. Raunar gerir Matthías fremur lítið úr því, sem kallað er fijálshyggja. Matthías ólst upp á sjálfstæðis- heimili og hertist í lífsskoðun sinni og pólitík í átökum við Alþýðuflokk- inn á ísafírði. Ef marka má lýsingu hans sjálfs á því, hvemig hann gekk fram sem smápolli til að koma í veg fyrir sameiningu fótboltafélaga á ísafírði og þann dóm vinar hans og baráttufélaga, að þá hefði hann fyrst fengið nasasjón af pólitískum vinnubrögðum Matthíasar, er les- andanum gefíð til kynna strax á fyrstu síðum bókarinnar, að sögu- hetjan hafí ekki alltaf vílað hlutina fyrir sér í hörðum slag. Honum hefur jafnframt tekist vel að halda velli, því að nú er hann í senn ald- ursforseti Alþingis og hefur setið þar manna lengst um þessar mund- ir. Var þess minnst á forsetastóli Alþingis fyrir skömmu, að Matthías hefði setið samfellt í 30 ár á þingi. Þegar Matthías lýsir stjórnmála- viðhorfum sínum kemst hann meðal annars þannig að orði: „Ég er ekki alltof mikið fyrir kenningar. Póli- tískar kenningar eins og aðrar kenningar hafa þann slæma ann- marka að reynast betur í orði en á borði. Stjómmálaskoðanir mínar hafa orðið til smám saman gegnum tíðina og viðhorf mín að mestu sprottið af eigin reynslu af lífínu í kringum mig. Ég hef líka verið svo lánsamur að hafa frá bamæsku átt samneyti við fólk úr ólíkum stéttum og starfsgreinum. Ef til vill er þetta dýrmætasta vöggugjöf útkjálka- mannsins. Það er nauðsynlegt fyrir stjórn- málamann að þekkja hag þjóðarinn- ar af eigin reynd. Mér fínnst til dæmis skelfilegt að sjá í brúnni á þjóðarskútunni menn sem hafa ekki annað en erlendar hagfræðikenn- ingar að leiðarstjörnu, enga lífs- reynslu, enga upplifun á atvinnulíf- inu engin kynni af venjulegu fólki í landinu." Á öðrum stað segir Matthías: „Ég býst við að móðir mín hafí átt sinn þátt í að móta afstöðu mína til þeirra sem minna mega sín. Ég varð oft var við það að hún lét af hendi rakna til annarra. Þrátt fyrir örbirgðina var mikil samhjálp tíðk- uð í sjávarplássum í gamla daga.“ Matthías leggur á það áherslu, að hann sé einstaklingshyggjumaður og borgaralega sinnaður en vilji ekki að gengið sé fram hjá þeim sem minnst mega sín í þjóðfélag- inu. Hann bætir við: „Höfuðatriðið er þó að halda uppi grundvallar- stefnu Sjálfstæðisflokksins að gera sem flesta að sjálfstæðum einstakl- ingum með sjálfstæðan hag.“ Á sínum tíma átti sá, sem þessa umsögn ritar, kost á að fylgjast í návígi með störfum Matthíasar Bjarnasonar sem ráðherra og heyra þegar hann gerði meðráðherrum sínum grein fyrir málum á fundum. Meðal þess sem eftir situr er hve fast Matthías hélt á málum sínum og hve vel undirbúinn hann kom til funda. Þurfti enginn að fara í grafgötur um skoðanir hans, enda er honum lýst af samferðar- og samstarfsmönnum sem_ ráðríkum. Hann er skapmikill og á til að byrsta sig. Matthías tekur upp hanskann fyrir Geir heitinn Hallgrímsson. Meðal annars riíjar hann upp atvik sem gerðist, þegar Geir var í Lond- on til viðræðna um lausn landhelgis- deilunnar við Harold Wilson, for- sætisráðherra Breta. Á meðan fundir stóðu yfir í bústað breska forsætisráðherrans í Downing stræti 10 bárust þangað fréttir um að íslenskt varðskip hefði klippt á togvír bresks togara á íslandsmið- um. Varpaði atburðurinn að sjálf- sögðu skugga á viðræðumar. Með vísan til þessa og annars gagnrýnir Matthías Bjarnason Matthías einna harðast Ólaf Jó- hannesson, þáverandi dómsmála- ráðherra og formann Framsóknar- flokksins, í bók sinni. Hann lýsir Ólafí meðal annars með þessum orðum: „Mér þótti hann stundum óþjáll og erfíður, sérstaklega við Geir Hallgrímsson. Hann gat líka verið leiðinlegur og ónotalegur við Einar [Ágústsson] flokksbróður sinn frammi fyrir okkur hinum.“ Þegar Matthías lítur yfir störf sín sem ráðherra fínnst honum eðli- lega mest um vert að hafa átt ríkan þátt í því, að lýst var yfir 200 mílna efnahagslögsögu umhverfís ísland 15. október 1975 og að samningar um málið tókust við þá, sem and- mæltu útfærslunni. Matthías gaf út reglugerðina um 200 mílurnar sem sjávarútvegsráðherra 15. júlí 1975. Vegna útfærslunnar hófst þriðja og snarpasta þorskastríðið við Breta og í eina skiptið í land- helgisdeilum okkar var stjómmála- sambandi við Breta slitið. Mátti litlu muna, að ekki yrði látið undan kröf- um þeirra, sem vildu ijúfa tengsl íslands við Atlantshafsbandalagið (NATO) af þessu tilefni. Matthías kemst hins vegar réttilega að orði, þegar hann segir, að aðildin að NATO hafí verið sterkasta tak okk- ar á Bretum og hann bætir við: „Ég skal ekki segja hvort okkur hefði tekist að færa út fískveiðilögsöguna ef við hefðum ekki verið í Atlants- hafsbandalaginu, en það hefði að minnsta kosti verið miklu erfíðara.“ Af sanngimi leggur Matthías áherslu á hlut Knuts Frydenlunds, utanríkisráðherra Noregs; í samn- ingsgerðinni við Breta í Ósló í maí 1976. Enn hefur ekki verið gerð grein fyrir því sem skyldi, hve ríkan þátt Norðmenn áttu í því að miðla málum milli okkar og Breta vetur- inn 1975 til 1976. Matthías varpar ljósi á þann þátt. í deilum okkar við Norðmenn nú vegna veiða í Barentshafí er ástæðulaust að gleyma því, að haustið 1976 var útfærsla Norðmanna á fískverndar- svæðinu við Svalbarða boðuð, hún kom til framkvæmda sumarið 1977 /»■ og eftir samráð við Sovétmenn og Evrópubandalagið voru settar vemdarreglur á svæðinu 1978. Er ekki ólíklegt, að um þessi mál hafí verið rætt milli íslenskra og norskra ráðamanna á þessum árum, þegar samskiptin vom jafngóð og náin varðandi hafrétt og Matthías lýsir í bók sinni. Þegar bók Matthíasar Bjamason- ar er lesin er erfítt að átta sig á því, hvert hefur verið hlutverk Örn- ólfs Árnasonar. Frásögnin ber stíl Matthíasar glöggt vitni, ekki síst gamansögurnar sem birtar eru. Virðist greinilegt, að hann hefur lesið fyrir og bókin er sögð í fyrstu persónu án þess að lesandinn verði var við skrásetjarann. Á bls. 241 segir, að Matthías hafí boðið sig fram til varaformennsku gegn Gunnari Thoroddsen á landsfundi sjálfstæðismanna 1981, þegar Gunnar var orðinn forsætisráðherra í óþökk meirihluta þingflokks sjálf- stæðismanna. Þetta er ekki rétt, því að Matthías bauð sigfram 1979, áður en Gunnar myndaði hina um- deildu stjóm sína. Undir lok bókar- innar er talað um aðild íslands að EBE (Efnahagsbandalagi Evrópu), þegar greinilega er átt við aðildina að EES, evrópska efnahagssvæð- inu. Fjölmargar myndir birtast í bókinni, er nokkuð sérstætt að sjá þar myndir af fólki, sem ekki er minnst á einu orði í meginmáli bók- arinnar. Vaknar sú spuming, hvort túlka eigi birtingu myndanna sem velþóknun Örnólfs eða Matthíasar á þeim einstaklingum. Þegar frá líður verður bókar Matthiasar Bjarnasonar ekki minnst vegna spjótalaganna í garð þeirra, sem nú eru með honum í hinum pólitíska slag. Kaldhæðni hans í garð samþingmanna, flokks- bræðra og ríkisstjómar Davíðs Oddssonar verður að skoða í ljósi þess, sem Douglas Hurd sagði um Margaret Thatcher. Bókarinnar hlýtur að verða minnst vegna lýs- inganna frá Vestfjörðum, hlutar Matthíasar sem sjávarútvegsráð- herra og samstarfs hans við Geir Hallgrímsson. Til hennar verður einnig vitnað, þegar menn vilja velta fyrir sér skoðunum og störfum áhrifamikils þingmanns og ráðherra Sjálfstæðisflokksins, sem tengir saman ólíka tíma og viðhorf í flokknum og íslensku þjóðfélagi. f i Nýjar bækur Steinn sem syngur eftir Jón Oskar NÝLEGA er komin út í Frakk- landi á frönsku, sænsku og ís- lensku bókin Steinn sem syngur með ljóðum eftir Jón Óskar og frummyndum eftir sænsku lista- konuna Maj-Siri Osterling. Bókin er prentuð á úrvalspappír í aðeins 100 tölusettum eintökum í prentverki Clémence Hiver í Sauve. Bókin er til orðin fyrir samvinnu Jóns Óskars og Maj-Siri Österling sem dvaldist um skeið í gistivinnu- stofu að Straumi og ferðaðist um landið. Hún heillaðist mjög af fjárborg- um sem eru hringlaga byggingar hlaðnar úr gijóti og voru víða hafð- ar til skjóls fyrir skepnur áður fyrr. Maj-Siri Österling málaði myndir undir áhrifum frá fjárborgunum og fékk Jón Óskar skáld til að semja Ijóð sem hæft gætu þessu efni, með bók í huga. Þannig varð til ljóða- flokkurinn: Steinn sem syngur, en í honum eru níu ljóð. Jóhann Árelíuz skáld í Stokk- hólmi þýddi ljóðin á sænsku en pró- fessor Régis Boyer á frönsku. í hveiju eintaki bókarinnar eru þijár lausar akrýlmyndir eftir lista- konuna. Maj-Siri Österling er þekkt myndlistarkona í Svíþjóð og hefur haldið margar einkasýningar þar, í Frakklandi, og víðar. Kór Langholtskirkju. Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju UNDANFARIN ár hefur Kór Langholtskirkju sungið jólasöngva í Langholtskirkju að miðnætti síðasta föstudag fyrir jól. Kórinn býður tónleikagestum upp á heitt kakó og piparkökur í hléi. Uppselt var á föstudagstónleik- ana áður en forsala hófst. Er því ákveðið að endurtaka föstudags- stemmninguna á laugardeginum. Jólasöngvarnir verða því föstudag- inn 17. desember kl. 23 og laugar- daginn 18. desember kl. 23. Einn- ig verður boðið upp á fjölskyldu- tónleika sunnudaginn 19. desem- ber kl. 16 með sömu dagskrá. Einsöngvarar á tónleikunum í ár verða Eríkur Hreinn Helgason, Halldór Torfason og Ólöf Kolbrún Harðardóttir. Hljóðfæraleikaram- ir Bernard S. Wilkinson, flauta, Hallfríður Ólafsdóttir, flauta, Monika Abendroth, harpa, Jón Sigurðsson, kontrabassi, og Gú- staf Jóhannesson, orgel. Kór Kór- skóla Lngholtskirkju syngur með Kór Langholtskirkju 'en stjórnandi er Jón Stefánsson. Miðar á laugar- dags- og sunnudagstónleikana eru til sölu í Langholtskirkju og Ey- mundsson. Jólasöngvar Kórs Langholts- kirkju eru fáanlegir á geislaplötum og snældum sem heita „Barn er oss fætt“ og fást í Langholtskirkju og hljómplötuverslunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.