Morgunblaðið - 14.12.1993, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993
19
Háskólatónleikar
í Norræna húsinu
Nýjar bækur
Jarðabréf frá 16. og 17. öld
Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM í
Norræna húsinu miðvikudaginn
15. desember koma fram Sigrún
Valgerður Gestsdóttir, sópran,
og Einar Kristján Einarsson, gít-
arleikari. Á fyrri hluta tónleik-
anna verða flutt ensk sönglög frá
16. til 17. öld ásamt útsendingum
ungverska tónskáldsins Ferenc
Farkas á fimm frönskum söngv-
um trúbadúra frá 13. öld. Tón-
leikunum lýkur svo með nokkr-
um jólalögum úr ýmsum áttum.
Tónleikarnir hefjast kl. 12.30 og
eru um hálftími að lengd.
Sigrún Valgerður Gestsdóttir hóf
söngnám hjá Guðrúnu Sveinsdóttur
og Engel Lund við Tónlistarskólann
í Reykjavík. Hún stundaði svo fram-
haldsnám við Konunglegu tónlistar-
akademíuna í Lundúnum hjá Maij-
orie Thomas, í Kalamazoo í Banda-
ríkjunum hjá Fay Smith og við
Tónlistarháskólann í Vínarborg.
Sigrún hefur sungið bæði ljóð og
óratoríó, og auk þess sungið tvö
hlutverk í íslensku óperunni: frú
Gobineu í Miðlinum eftir Menotti
og Michaelu í Carmen eftir Bizet.
Undanfarið hefur hún sungið með
sönghópnum Hljómeyki. Sigrún
kennir nú við Tónskóla Sigursveins.
Einar Kristján Einarsson lauk
burtfararprófi í gítarleik frá Tón-
skóla Sigursveins D. Kristinssonar
árið 1982. Aðalkennarar hans voru
þeir Gunnar H. Jónsson og Joseph
Fung. Einar stundaði svo fram-
haldsnám í Manchester í Englandi
árin 1982-1988. Auk tónleika á
Spáni og Englandi þá hefur Einar
komið fram við fjölda tækifæra hér
á landi. Hann kennir nú gítarleik
við Tónskóla Sigursveins og Tón-
skóla Kópavogs.
Handhöfum stúdentaskírteina er
Sigrún Valgerður Gestsdóttir.
boðinn ókeypis aðgangur, en að-
gangseyrir fyrir aðra er 300 kr.
JARÐABREF frá 16. og 17. öld.
Útdrættir eru komin út. Gunnar
G. Guðmundsson bjó til prentun-
ar.
Þetta rit er sjálfstætt framhald
af Jarðabók Árna Magnússonar og
Páls Vídalíns sem kom út ljósprent-
uð á vegum Fræðslufélagsins
ásamt tveimur viðbótarbindum á
árunum 1980-1990. Birtir eru út-
drættir úr nálægt 1700 bréfum sem
Árni og Páll söfnuðu snemma á
18. öld þegar þeir voru hér á landi
við margs konar rannsóknir í um-
boði konungs. Yngstu bréfín hafa
áður verið birt í 13. bindi Jarðabók-
arinnar.
í hinu nýja riti er efni flestra
bréfanna rakið, stundum mjög ná-
kvæmlega og er sérstaklega leitast
við að halda til haga nöfnum staða
og manna sem við sögu koma.
Einnig er þess getið í hvaða hreppi
og kirkjusókn hver jörð var ef það
kemur fram í bréfunum sjálfum.
í kynningu útgefanda segir:
„Fyrr á öldum voru jarðabréf mikil-
vægar réttarheimildir um eignir
manna, athafnir og skuldbindingar
og enn á okkar dögum kemur fyrir
að þau séu notuð sem gögn í dóms-
málum. En fyrst og síðast eru
jarðabréfin óþijótandi náma sagn-
fræðingum, ættfræðingum og öðr-
um þeim sem viija kynna sér sögu
lands og þjóðar beint úr safni frum-
heimilda."
Útgefandi er Hið íslenska fræði-
félag í Kaupmannahöfn. Bókin
er 359 bls. með staðanafna- og
mannanafnaskrám, auk inn-
gangs sem er 62 bls. Bókin kost-
ar 3.420 krónur.
N Y
t't 'i' ;' '■ ,v'r 1 ' . V '
OSTA- OG SMJÖRSALAN SF
Nýjar bækur
■ Söguþræðir, handbók fyrir
alla bóka- og barnavini er komin
út. í Söguþráðum eru lýsingar á
um 1.000 bama- og unglingabók-
um, frumsömdum og þýddum.
Hverri bók er lýst með um það bil
100 orðum þar sem rakinn er sögu-
þráður og helstu persónur nefndar.
Umsögnunum er raðað í stafrófsröð
eftir bókarheitum en einnig er í
bókinni höfundalykill og efnisorða-
skrá með 200 uppflettiorðum og
skrá yfir öll íslensk barnabókaverð-
laun. Með höfundalykli er hægt að
finna hvaða bækur eru eftir hvem
höfund, en með efnisorðalyklinum
er hægt að finna bækur sem fjalla
um ákveðið efni svo sem bækur um
sveit, skóla, vináttu, sorg, ný systk-
ini, sérstök dýr svo sem ketti, hunda
eða hesta og svona mætti lengi
telja.
í kynningu útgefanda segir:
„Kennarar, foreldrar og bókaverðir
hafa miklum skyldqm að gegna við
að fá börn til að lesa og koma þann-
ig í veg fyrir að ólæsið verði þeim
til trafala. Oft hafa menn ekki á
reiðum höndum tillögur þegar spurt
er um lestrarefni eða þegar kennar-
ar vilja velja efni sem henti ákveðn-
um lesendum eða lesendahópum.
Handbókin Söguþræðir bætir úr
brýnni þörf því þar er hægt að fletta
upp á alls kyns bókum og lesa um
þær í stuttu máli áður en farið er
á bókasafnið eða í bókabúðina."
Allar lýsingar í Söguþráðum
vann Anna Margrét Birgisdóttir,
bókasafnsfræðingur og kennari frá
Breiðdalsvík.
Útgefandi er Lindin. Bókin er
skreytt ljósmyndum úr leikritum
og kvikmyndum sem byggja á
bókum sem lýst er í Söguþráðum.
Aðrar skreytingar í bókinni eru
eftir Astrid Skaftfells sem teikn-
aði myndir af öllum stöfunum í
stafrófinu. Kápumyndin er sam-
sett af myndum úr íslenskum
barnabókum sem allir þekkja.
Bókin er um 270 blaðsíður og
kostar 2.964 krónur.
Matreiðslubók
þessi er gefin út
í tilefni af
35 ára afmæli
Osta- og
smjörsölunnar sf.
í þessa bók höfum við
valið úrval uppskrifta,
sem hafa verið marg-
reyndar í tilraunaeldhúsi
Osta- og smjörsölunnar.
Það er von okkar,
að sem flestir geti fundið
eitthvað við sitt hæfi.