Morgunblaðið - 14.12.1993, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993
T /1 P* / /
Jolagjorin 1 ar
er
EKKERT MÁL!
á Uk uið ^óh 'þát
Biblía sem
bömin geta
lesið sjálf.
Fæst í næstu bókaverslun.
Skipulagsmál á höfuðborgar-
svæðinu og almaunahagsmunir «
eftir Olaf F.
Magnússon
í kosningum um sameiningu
sveitarfélaga þann 20. nóvember
sl. var tveimur tillögum umdæma-
nefndar höfuðborgarsvæðisins
hafnað með afgerandi hætti. íbúar
Seltjarnarness, Mosfellsbæjar, Kjal-
arness og Kjósar höfnuðu samein-
ingu við Reykjavík og íbúar Bessa-
staðahrepps höfnuðu sameiningu
við Garðabæ. Reykvíkingar og
Garðbæingar vildu aftur á móti
ganga til þessa samstarfs. Kópa-
vogsbúar og Hafnfirðingar voru
ekki spurðir álits í þessum kosning-
um og segir það meira en mörg orð
um vilja sveitarstjómarmanna á
höfuðborgarsvæðinu til sameining-
ar sveitarfélaganna þar.
Þvinguð sameining er
röng leið
Þó flestir séu sammála um að
sveitarfélögin níu á höfuðborgar-
svæðinu séu eitt atvinnusvæði tel
ég ekki rétt að þvinga þau til sam-
einingar. Til að sameining geti átt
sér stað þarf fyrst að eiga sér stað
hugarfarsbreyting, sem er í sjálfu
sér mikilvægari en nokkur skipu-
lagsbreyting eða formleg samein-
ing. Ef til formlegrar sameiningar
kemur á næstu árum tel ég aðrar
leiðir mun heppilegri en þær sem
umdæmanefnd höfuðborgarsvæðis-
ins gerði tillögu um. Sterk land-
fræðileg rök mæla með sameiningu
Reykjavíkur, Kópavogs og Seltjam-
amesbæjar. Hagkvæmni stærðar-
innar mælir hins vegar með samein-
ingu IVlosfelIsbæjar, Kjalamess og
Kjósarhrepps og sömu rök gilda að
„Tryggja þarf verndun
og varðveislu útivistar-
svæða með hliðsjón af
hagsmunum allra íbúa
svæðisins. Þar verða
þröngir hagsmunir og
skammtí masj ónarmið
að víkja fyrir heildar-
hagsmunum og lang-
tímasjónarmiðum. Ný-
legar deilur um vestur-
svæði Seltjarnarness og
Fossvogsdal eru skýr
dæmi um þetta.“
nokkru leyti um sameiningu Hafn-
arfjarðar, Garðabæjar og Bessa-
staðahrepps.
Sveitarfélögin á höfuðborgar-
svæðinu verða að efla samstarf sitt
í skipulagsmálum, ekki síst í ljósi
þess að sameining þeirra virðist enn
langt undan. Tryggja þarf verndun
og varðveislu útivistarsvæða með
hliðsjón af hagsmunum allra íbúa
svæðisins. Þar verða þröngir hags-
munir og skammtímasjónarmið að
víkja fyrir heildarhagsmunum og
langtímasjónarmiðum. Nýlegar
deilur um vestursvæði Seltjarnar-
ness og Fossvogsdal eru skýr dæmi
um þetta.
Deilurnar á Seltjarnarnesi og
í Fossvogsdal
Eins og kunnugt er skortir Sel-
tjarnarnesbæ nú land undir ný-
byggingar. Þessi staðreynd ásamt
fyrirsjáanlegum fjárhagslegum
ávinningi varð þess m.a. valdandi,
að á sl. ári voru uppi áætlanir um
stórtækar byggingaframkvæmdir á
vestursvæði Seltjamamess. Þessar
áætlanir leiddu til kröftugra mót-
mæla íbúanna sem urðu til þess að
verulega var dregið úr þessum
áætlunum. Þegar fornminjar fund-
ust síðan á svæðinu, má segja að
þessari sameiginlegu náttúruperlu
og útivistarsvæði íbúa höfuðborgar-
svæðisins hafi í raun verið borgið!
Á sl. sumri urðu harðar deilur
um þá hugmynd, að leggja opið
útivistarsvæði í austurhluta Foss-
vogsdals undir golfvöll. íbúar dals-
ins mótmæltu þessari fyrirætlan og
náði andstaðan við golfvallarhug-
myndina hámarki þegar um 3.500
manns tóku þátt í undirsknftasöfn-
un samtakanna „Líf í Fossvogsdal!"
gegn golfvallargerð í dalnum. Mót-
mælin hafa þegar skilað þeim
árangri, að horfíð hefur verið frá
golfvallarhugmyndinni og væntan-
lega verður leitað eftir nýjum hug-
myndum meðal almennings.
Undirritaður var eindreginn and-
stæðingur golfvallargerðar í Foss-
vogsdal og beitti sér gegn henni,
jafnt innan borgarstjórnar sem ut-
an. í tengslum við áðurnefnda und-
irskriftasöfnun átti hann þess kost,
að ræða við á þriðja hundrað íbúa
í Fossvogsdal og fékk þar staðfest-
an grun sinn um almenna andstöðu
Fossvogsbúa við golfvallarhug-
myndina. Margir þeirra vildu að
gengið yrði skemur í skipulagi en
þegar er áætlað. Aðrir létu í ljós
þá ósk að lítilli útisundlaug yrði
komið fyrir i dalnum og er þeirri
ósk hér með komið á framfæri.
Raunar liggja þegar fyrir áætlanir
um útisundlaug við Snælandsskóla.
Þröngir hagsmunir verða ■
að víkja ®
í deilunum um útivistarsvæðið í
Fossvogsdal vakti það athygli
hversu mikinn þrýsting hafði tekist
að setja á bæjarfulltrúa Kópavogs
um að samþykja golfvallargerð í
dalnum. Það vakti einnig athygli
að formaður skipulagsnefndar
Kópavogs, Kristinn Kristinsson, er
jafnframt varaformaður Golfklúbbs
Kópavogs! Hvort Kristinn hefur
notað aðstöðu sína sem formaður
skipulagsnefndar í eigin þágu eða
félagasamtaka sinna skal ekkert
fullyrt um. Ég ætla hins vegar að
gera að umtalsefni grein um nýtt
deiliskipulag í Fossvogsdal, sem ||
Eðlisfræði á íslandi - og ís-
lenskt mál, íbætt eða dópað?
eftirPál Theodórsson
Eðlisfræðifélag íslands hefur
nýlega gefið út rit með erindum sem
voru flutt á ráðstefnu í Munaðar-
nesi fyrir rúmu ári. Þeir sem hafa
áhuga á vexti og árangri raunvís-
indarannsókna hér á landi geta
vafalítið fundið þar áhugavert les-
efni því þetta rit sýnir vel umfang
íslenskra rannsókna í eðlisfræði og
jarðeðlisfræði og hvemig þær ná
frá hreinum grunnrannsóknum til
nytjarannsókna og þróunarstarfs.
Þeim sem hafa áhuga á viðleitni
sérfræðinga að skrifa á móðurmál-
inu um fag sitt mun trúlega þykja
ritið áhugavert.
Eríndi ráðstefnunnar
Nokkur erindi fjalla um rann-
sóknir við Raunvísindastofnun Há-
skólans í þéttefnisfræði, helsta
vaxtarbrodd eðlisfræðinnar um
þessar mundir. Frá jarðeðlisfræð-
ingum Orkustofnunar eru tvö erindi
sem Iýsa tækni til að kanna efstu
lög jarðar, m.a. lög sem hylja jarð-
hitasvæði landsins. Kennilegir eðlis-
fræðingar sýna hvemig þeir beita
tölvum við lausn flókinna fræði-
legra verkefna. Erindi um stjameðl-
isfræði fjallar um eitt áhugaverð-
asta fyrirbæri geimsins, svartholin,
svæði sem draga til sín og gleypa,
í krafti yfirþyrmandi þyngdarsviðs,
efnismassa heillar sólar á ári hveiju.
Tvö erindi fjalla um söguleg efni.
Annað er reyndar á mörkum sagn-
fræði og eðlisfræði, þ.e. um nýlegar
niðurstöður erlendra aldursgrein-
inga á íslenskum fomleifum sem
benda til að.norrænir menn hafí
tekið sér bólfestu hér á Iandi þegar
skömmu eftir árið 700 og er rætt
um að koma upp mæliaðstöðu við
Háskólann til að komast til botns
í þessu mikilvæga máli.
Árangur nýyrðasmíði í
eðlisfræði
íslenskir eðlisfræðingar hafa fet-
að í fótspor þeirra verkfræðinga
sem snemma á þessari öld tóku að
vinna skipulega að nýyrðasmíði til
að þeir gætu fjallað um verkfræði-
leg efni á skiljanlegra máli. Ráð-
stefnuritið ber þessu glöggt vitni.
Eðlisfræðifélag Islands gaf út ensk-
íslenskt orðasafn í eðlisfræði um
miðjan síðasta áratug. Það hefur
nú verið ófáanlegt um árabil en ný
og mjög aukin útgáfa bfður nú
prentunar.
Oft er spurt hvort nýyrðin kom-
ist öllu lengra en í orðasöfnin. Ritið
lýsir orðaforða eðlisfræðinga. En
fara þeir ekki málfarslega í spari-
fötin þegar þeir skrifa efni sem
skal birta? Nemendur í íslenskum
framhaldsskólum og í Háskólanum
geta trúlega borið vitni um að meiri-
hluti kennaranna ræðir um eðlis-
fræði að verulegu leyti með orðum
í líkingu við þau sem er að fínna í
orðalistunum og má sjá í ráðstefnu-
ritinu.
Orðasmíðin hefur verið unnin í
nánu, daglegu sambandi við rann-
sóknir og kennslu, bæði í Háskólan-
um og framhaldsskólum. Jafnskjótt
og tillaga um nýtt orð kemur fram
er það tekið í notkun og verður þá
að sanna gildi sitt. Mörg þeirra
hafa þótt ágæt við fyrstu umræðu
í orðanefndinni en síðan verið hafn-
að í ljósi reynslunnar af notkun
þess. I þessu felst meginstyrkur
orðasafnsins í eðlisfræði.
íbætt eða dópuð íslenska?
En er þetta ekki vonlaust, er oft
spurt, nemendur verða að læra er-
lendu orðin. Þetta verður bara til
að rugla þá í ríminu. Ég ætla ekki
að reyna að svara þessum mótbár-
Páll Theodórsson
„íslenskir eðlisfræðing-
ar hafa fetað í fótspor
þeirra verkfræðinga
sem snemma á þessari
öld tóku að vinna skipu-
lega að nýyrðasmíði til
að þeir gætu fjallað um
verkfræðileg efni á
skiljanlegra máli. Ráð-
stefnuritið ber þessu
glöggt vitni.“
um, aðeins birta hér stuttan texta
sem er fenginn, með dálitlum sam-
skeytingum, úr ráðstefnuritinu.
Sé kristallinn íbættur með litíni
fást ljómunarlínur sem hliðrast
með vaxandi örvunarafli. Par-
ljómun verður vegna flutnings
rafeindar frá rafgjafa til raf-
þega. Sambærileg ljómun fæst ,
í þunnum íbættum himnum
ræktuðum með sameindaúðun
eða jónaskothríð.
Ef við vildum hlífa nemendunum
við að læra þessi íslensku orð, og
fara frekar svipaða leið og frændur
okkar á Norðurlöndum, yrði þetta
eitthvað á eftirfarandi veg:
Sé kristallinn dópaður með lit-
íum fást lúminiscenselínur sem
shiftast með vaxandi exitations-
effekti. Parlúminiscense verður
vegna flutnings elektrónu frá
dónor til akkseptors. Sambæri-
legur lúminiscence fæst í þunn-
um dópuðum fólíum ræktuðum
með diffusjón eða jónaimplant-
assjón.
Hvorn textann eigum við að
velja? Því ræður smekkur eða hag- þ
kvæmnissjónarmið hvers og eins.
Síðari textinn þykir ef til vill nokk-
uð ýkjukenndur.' En er það svo? t
Eftirfarandi (samskeyttur) texti úr
tölvumáli, var reyndar ekki ætlaður
til birtingar, sýnir hvernig stundum ■
er skrifað og þætti fyllilega eðlilegt
á Norðurlöndum.
Designer-inn er kominn upp, en
með nokkrum böggum, enda
pre-alpha útgáfa. Meginskráin
hefur verið strippuð af sumum
scriptum. Sum scriptin eru skrif-
uð með tabbi, en þá verður helst
til mikið white space. Við editer-
ingu er best að treysta á lykla-
borðs sjortkött. Öfugt gildir við
kött og peist. Vinsamlegast
kommenterið worksheetið.
Enda þótt tekist hafi að bæta
fagmálið getur daglegt mál þessara
sérfræðinga, jafnvel þeirra sem
taka þátt í nýyrðasmíði, verið býsna J
enskuskotið og svo getur virst sem 1
allt þetta málræktarstarf sé byggt
á sandi. Dæmi: „Ég agseptera ekki _
þetta orð, kategóriseringin er röng 1
og orðið meikar engan sens.“ Þá
er ekki annað en að kreppa hnefa _
undir borði. Og resignera?
Höfundur er eðlisfræðingur og
starfnr við Rnunvísindnstofnun
Háskólans.