Morgunblaðið - 14.12.1993, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Ljósin kveikt
LJÓS voru kveikt á jólatrénu á Ráðhústorgi á laugardag. Tréð er
gjöf frá vinabæ Akureyrar í Danmörku, Randes. Þrátt fyrir hörku-
frost mætti múgur og margmenni til að fylgjast með athöfninni
og jólasveinamir voru að sjálfsögðu á staðnum líka.
Fj órðungssj úkra-
húsið fjörutíu ára
UM ÞESSAR mundir eru 40 ár liðin frá þvi að Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri var stofnsett og 120 ár frá því sjúkra-
hússtarfsemi hófst á Akureyri.
Árið 1873 var hafín starfsemi
sjúkrahúss á Akureyri í húsi sem
Friðrik Gudmann gaf Akureyrarbæ
og voru þar 8 sjúkrarúm. Húsið var
nefnt Gudmanns minde og er nú
Aðalstræti 14. Sjúkrahúsið var ann-
Sendiferða-
bíllinn
fundinn
SENDIBÍLL sem rannsóknarlög-
reglan á Akureyri lýsti eftir fyr-
ir skömmu er komin í leitirnar,
en búið var að rífa hann allan í
sundur.
Sendibíllinn hvarf frá Skjaldarvík
fyrir nokkru og var gerð töluverð
leit að honum. Á miðvikudag í síð-
ustu viku var maður handtekinn
vegna málsins og hann úrskurðaður
í gæsluvarðhald. Bifreiðin fannst,
búið var að rífa hana alla í sundur,
en allir hlutar hennar hafa komið í
leitimar. Manninum var sleppt á
sunnudag og rannsóknarlögreglan á
Akureyri telur málið að fullu upplýst.
ar spítalinn á landinu sem búinn
var til almennrar notkunar en árið
1866 tók til starfa sjúkrahús í
Reykjavík.
170 sjúkrarúm
Önnur sjúkrahúsbygging var tek-
in í notkun árið 1899, það hús stóð
við Spítalaveg og rúmaði í upphafi
20 sjúklinga. Fjöldi rúma jókst
smám saman og var orðinn 64 þeg-
ar flutt var í nýja sjúkrahúsið 15.
desember 1953, en nú er það skráð
fyrir 170 sjúkrarúm. Handlækn-
ingadeild var fyrsta sjúkradeildin
sem tekin var í notkun.
Stjóm Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri hefur ákveðið að minnast
þessara tímamóta með kynningu á
sögu og starfsemi sjúkrahússins og
verður sérstaklega kynnt starfsemi
á handlækningadeild og röntgen-
deild. Kynningin fer fram á morg-
un, miðvikudaginn 15. desember,
frá kl. 14 til 17 í kennslustofu
sjúkrahússins, á handlækningadeild
og röntgendeild. Boðið verður upp
á veitingar í kennslustofu og setu-
stofu handlækningadeildar. Allt
heilbrigðisstarfsfólk og aðrir vel-
unnarar sjúkrahússins eru vel-
komnir.
Ný jafnréttisáætlun Akureyrarbæjar 1993-1997
Allar deildir bæjar-
ins skili starfsáætlun
FORSTÖÐUMENN allra deilda Akureyrarbæjar eiga í upphafi hver
ár að gera starfsáætlun í jafnréttismálum m.a. í samvinnu við jafn-
réttisfulltrúa . í áætluninni á að koma fram hvernig hver deild hyggst
vinna á grundvelli jafnréttisáætlunarinnar og er þá bæði átt við
starfsmannastefnu hennar og starfsemi. Þetta er nýmæli í jafnréttisá-
ætlun Akureyrarbæjar sem samþykkt hefur verið í bæjarstjórn og
var kynnt nýlega.
Hugrún Sigmundsdóttir formað-
ur jafnréttinefndar Akureyrarbæjar
sagði nýju áætlunina framsæknari
en þá fyrri sem í gildi var. Jafnrétt-
isáætlun var samþykkt á Akureyri
árið 1989 og var það fyrsta bæjarfé-
lagið sem samþykkti slíka áætlun.
Á síðasta ári hlaut bærinn viður-
kenningu jafnréttisráðs.
Aætlunin verði óþörf
Markmið áætlunarinnar er að
stuðla að jafnri stöðu kvenna og
karla á Akureyri og jöfnum mögu-
leikum kynjanna til að nýta sér það
lagalega jafnrétti sem til staðar er
og er áhersla Iögð á frumkvæði
bæjaryfirvalda til aðgerða sem
stuðla að því að slík markmið ná-
ist. Áætlunin kveður einnig á um
hvernig stofnanir og fyrirtæki á
Akureyri og bæjarbúar geti unnið
að jafnrétti og er lokamarkmiðið
að flétta jafnréttismálin þannig inn
í starfsemi bæjarkerfisins og líf
bæjarbúa að áætlunin verði að lok-
um óþörf.
Karlar eru í miklum meirihluta í
stjórnunarstörfum hjá Akur-
eyrarbæ, en athygli hefur vakið að
konur eru sérstaklega hvattar til
að sækja um þau stjómunarstörf
sem laus eru hveiju sinni.
Starfsmönnum bæjarins, bæj-
arbúum, stofnunum og fyrirtækjum
er boðin ráðgjöf í jafnréttismálum
samkvæmt nýju áætluninni og þá
er þar einnig að finna tilmæli til
menntastofnana um að vinna að
jafnrétti kynjanna. Þá em þar einn-
ig tilmæli til stjórnmálaflokka um
að jafna hlut kvenna og karla í
nefndum og ráðum.
Konur og sveitarstjómarmál
Unnið verður að sérverkefnum
af ýmsu tagi þann tíma sem áætlun:
in er í gildi, eða til ársins 1997. I
janúar næstkomandi verður haldið
námskeið fyrir konur um sveitar-
stjórnarmál, þá verður námskeið
um samskipti og jöfn áhrif kynj-
anna haldið síðar á tímabilinu og
loks verða haldin sjálfsstyrking;
amámskeið fyrir konur’ en þegar
hafa fimm slík námskeið verið hald-
in og eftirspum er mikil. Slík nám-
skeið verða einnig haldin fýrir karla
og stefnt að hinu fyrsta á næsta
ári. Námskeið um samskipti og
samvinnu innan fjölskyldunnar
verður einnig haldið og þá hefur
nefndin undanfarin tvö ár veitt
styrki til jafnréttisverkefna og verð-
ur svo áfram.
Á vegum nefndarinnar liggur
einnig fyrir að vinna að gerð kann-
ana af ýmsu tagi og þegar hefur
verið ákveðið að gera könnun á
áhrifum og orsökum atvinnuleysis,
samanburðarrannsókn á launum og
störfum karla og kvenna sem starfa
hjá Akureyrarbæ, á áhrifum sjálfs-
styrkingarnámskeiða á konur og
eins um árangur og áhrif jafnrétt-
isáætlunarinnar.
Tónlistarskólinn
Nemendur
koma fram
á tvennum
tónleikum
••
NEMENDUR alþýðutónlistar-
* deildar Tónlistarskólans á Akur-
eyri efna til tónleika í Blómahús-
inu kl. 20.30 í kvöld, þriðjudags-
kvöldið 14. desember.. Annað
kvöld verða tónleikar eldri nem-
enda haldnir í Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju kl. 20.30.
Alþýðutónlistardeildin var stofnuð
haustið 1992 og nú stunda 75 nem-
endur nám við hana. Kennt er popp,
rokk og djass og nemendur læra
hljóðfæraleik auk kjarnagreina sem
tengjast þessari tónlist. Þá eru nem-
endur þjálfaðir í samspiii og á tón-
leikunum í kvöld koma fram bæði
hljómsveitir og einleikarar.
Á tónleikunum í Safnaðarheimil-
inu annað kvöld kemur fram úrval
eldri nemenda úr blásara-, gítar-,
píanó-, strengja- og söngdeildum
skólans, auk einsöngs- og einleiks-
atriða koma fram ýmsir kammertón-
listarhópar sem flytja tónlist frá
ýmsum tímum.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
----♦ ♦ ♦----
Vöruþróunar-
verkefni kynnt
IÐNTÆKNISTOFNUN á Akur-
eyri í samráði við Iðnlánasjóð
standa fyrir kynningu á nýju
vöruþróunarverkefni sem nefn-
ist Vöruþróun '94 á Hótel KEA
á morgun, miðvikudaginn 15.
desember. Gert er ráð fyrir sama
formi á því verkefni og fyrri
vöruþróunarverkefnum.
Megináhersla er lögð á faglegan
og fjárhagslegan stuðning við þróun
á tiltekinni vöru undir verkefnisstjórn
Iðntæknistofnunar. Umsóknarfrest-
ur til þátttöku í verkefninu rennur
út 17. janúar 1994.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Jólahangikjötið tekið úr reyk
ÞEIR Sigurvin og Stefán hafa átt annasama daga eins og aðrir
starfsmenn Kjarnafæðis, en áætlað er að vel yfir 100 tonn af hangi-
lqöti og öðru reyktu kjöti seljist fyrir jólin.
Jólahangikjötið tekið úr reykofnum
Áætlað að selja um
100 tonn fyrir jólin
ÞAÐ er mikill annatími hjá starfsfólki Kjarnafæðis á Akureyri, en
áætlað er að vel yfir 100 tonn af hangikjöti og öðru reyktu kjöti
verði seld fyrir þessi jól.
„Það er allt á suðupunkti þessa
dagana, unnið allar helgar og oft á
kvöldin," sagði Eiður Gunnlaugsson
framkvæmdastjóri Kjarnafæðis.
Undirbúningur vegna hangikjötssöl-
unnar hófst þegar í október og
stendur raunar fram á síðasta dag
fyrir jól, að sögn Eiðs.
Hann sagði að miklar breytingar
hefðu orðið á undanfarin ár, áður
fyrr var framboðið mun minna, eink-
um á svínakjöti og þá var ekki óal-
gengt að fólk byijaði að hamstra
strax í nóvember til að vera öruggt
um að fá eitthvað áður en allt seld-
ist upp. Nú væri nóg til að salan
dreifðist því yfir lengri tíma og allt
fram til jóla.
Kvörtum ekki
Kjarnafæði selur stærstan hluta
framleiðslu sinnar á Reykjavíkur-
markaðnum og sagði Eiður að þó
svo að samkeppni væri mikil á kjöt-
markaðnum syðra hefði fyrirtækinu
gengið vel að hasla sér það völl.
„Varan líkar vel og við kvörtum
ekki, það má reyndar segja að okkur
hafi gengið flest í haginn. Við höfum
uppskorið eins og til var sáð,“ sagði
Eiður, en nú starfa tæplega 70
manns hjá fyrirtækinu sem byijaði
fyrir örfáum árum með 2-4 starfs-
mönnum.
-------♦ ♦ •
■ NEMENDUR unglinga-
deilda Glerárskóla koma saman 1
bókasafni skólans í kvöld kl. 19.30
og lesa úr nýútkomnum íslenskum
barna- og unglingabókum. Léttar
veitingar verða á boðstólum og
ætti að gefast gott næði til að skoða
nýjar bækur og hlusta á unglingana
og ræða við þá um bókmenntir.
Nemendafélag skólans hefur staðið
að undirbúningi ásamt starfsfólki
bókasafns.