Morgunblaðið - 14.12.1993, Blaðsíða 65
ooi.'r •rp.wa-.-'íí'f rt 'JMDAnMiniqff atnA im/'TriíToi/
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993
LÍI
65
RKÍ#HlllL1
ÁLFABAKKA 8, SÍMI 78 900
BICECE^
SNORRABRAUT 37, S(MI 26211 OG 11384
5/CC/C
ÁLFABAKKA 8, SÍMI 78 900
ÁVALLT I FARARBRODDI MEÐ AÐAL MYNDIRNAR
JÓLAMYNDIN 1993
AFTUR A VAKTINNI
Aðalhlutverk: Richard Dreyfuss, Emilio Estevez, Rosie O’Donnell og
Dennis carina. Framleiðandi og handrit: Jim Kouf.
Leikstjóri: John Badham.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10. B.i, 12 ára.
FYRIRTÆKIÐ
Sýnd kl. 9.
FLOTTAMAÐURINN
Sýnd kl. 5 og 9.
Sýnd kl. 5,7,9
og 11.
LIKAMS-
ÞJOFAR
JÓLAMYNDIN 1993
AFTUR A VAKTINNI
JÓLAMYNDIN 1993
Ein fyndnasta, skrýtnasta og skemmtilegasta fjölskylda hvfta tjalds-
ins er komin aftur. Hjá Addams fjölskyldunni eiga uppátækin sér
engin takmörk. Myndin er nú ein aðal jólamyndin í Bandaríkjunum.
Aðalhlutverk: Anjelica Huston, Raul Julia, Christopher Lloyd og Joan
Cusack. Framleiðandi: Scott Rudin.
joiuwwQiijiin ST^v%3 □nDOLBYSTEREO
D 1 6 1 T A L
—L-i,.) „i
Sýnd 5, 7, 9 og 11 í THX.
MYND SEM NYTUR SIN FRABÆRLEGAITHX ■ DIGITAL
Hver man ekki eftir þeim félögum Richard Dreyfuss og Emilio
Estevez í jólamyndinni „Stakeout" fyrir nokkrum árum. Nú eru þeir
mættir aftur og enn eru þeir á vaktinni og í banastuði.
„Another Stakeout" er grín-spennumynd eins og þær gerast bestar.
„ANOTHER STAKEOUT" - EIN ALVEG ÓTRÚLEGA GÓÐ!
Aðalhlutverk: Richard Dreyfuss, Emiiio Estevez, Rosie O'Donnell og
Dennis Farina. Framleiðandi og handrit: Jim Kouf.
Leikstjóri: John Badham.
D AVE
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 6,7,9 og 11.
IIIIIIIIIIIIIIIIIII III II II III
□JUILL
RISANDISOL
C8HNERY SHIPES
,4"
Sýnd kl. 4.45,9
og 11.15.
1 v j
lll tlll WÍlll i1 '
- * * Al MBL.
★ * * AI. MBL.
Sýnd kl. 7.
Bönnuð i. 12 ára.
Siðustu sýningar.
iii iiii ii iiiiiiirrmTi
mn
■ FYRIRLESTUR á
vegum Minja og sögu
verður haldinn í Norræna
húsinu þriðjudaginn 14.
desember og hefst kl. 17.
Fyrirlesarar eru Arni
Björnsson þjóðháttafræð-
ingur og Símon Jón Jó-
hannsson þjóðfræðing-
ur.
■ DREGW hefur verið í
Raymond Weil-getraun-
inni. Rétt svar er að Raym-
onds Weirl-úrin eru ódýrust
á íslandi. Á myndinni sést
vinningshafínn Guðbrandur
Kjartansson taka við RW-
úri af Garðari Ólafssyni,
úrsmið, Lækjartorgi.
ÚR ffflBBftK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
10. -13. desember
Athvarfið var opið um helgina,
en unglingar sáust ekki í eða í ná-
lægð miðborgarinnar. Þeir voru ekki
heldur á ferli í hverfunum að nætur-
lagi. Vonandi er að svo verði áfram.
Athvarfíð verður opið áfram um
helgar eftir því sem ástæða þykir
til. Þá virtist lítið sem ekkeri brugg
vera í umferð á starfssvæði lögregl-
unnar í Reykjavík, en af fréttum
að dæma virðist vera mun meira
um það í nágrannasveitarfélögun-
um. Lögreglan lagði hald á afkasta-
mikil bruggtæki í fullri vinnslu í
nágrenni borgarinnar á laugardag.
Á staðnum voru um 1.200 lítrar af
framleiðslunni. Möguleikar voru á
að leggja í 4.000 lítra. Þá var þama
talsvert af ónotuðum plastumbúð-
um, stæður af sykri og tvöhundruð
lítra eimingart'æki. Talið er að fram-
leitt hafí verið í verksmiðjunni um
500 lítrar af landa í viku hverri.
Um næstu helgi má búast við því
að reynt verði að koma talsverðu
magni af bruggi á unglingamarkað-
inn. Það er full ástæða fyrir for-
eldra og böm þeirra að vera sérstak-
lega á varðbergi næstu daga. Sumt
af þessari vöru er þess eðlis að hún
er í meira lagi varasöm og dæmi
eru um að einstaklingar hafi veikst
af neyslunni. Þá er og aldrei að vita
hvað er verið að bjóða fólki. Það
gæti alveg eins verið tréspíritus, en
afleiðingar af drykkju þess vökva
er blinda og jafnvel dauði. Það er
því eindregin hvatning til allra að
hvorki kaupa eða drekka neitt það
sem ekki er vitað hvað er. Þeir, sem
áhuga hafa á að gefa lögreglunni
upplýsingar um söluaðila, dreifing-
araðila eða framleiðendur ólöglegs
áfengis, em jafnframt hvattir til að
hafa samband við næstu lögreglu-
stöð.
Lögreglumenn þurftu að hafa
afskipti af nokkrum sendibílstjómm,
sem voru að flytja farþega að kvöld-
og næturlagi um helgina. Viður-
kenndu þeir flestir að hafa verið að
aka farþegum gegn gjaldi þrátt fyr-
ir að það sé þeim óheimilt. Þeir verða
sektaðir. Þá var eitthvað um það
að bifreiðar í afgreiðslu á sendibíla-
stöðum væru rangt skráðar og koma
forsvarsmenn sföðvanna til með að
þurfa að svara fyrir það á réttum
vettvangi. Eftirliti með þessum þátt-
um verður haldið áfram.
Fátt fólk var i miðborginni fram
til kl. 3.00 aðfaranætur laugardags
og sunnudags. Þegar fólk streymdi
út af vínveitingahúsunum fjölgaði
mjög, en það var almennt ekki til
teljandi vandræða.
Um helgina voru 6 einstaklingar
staðnir að hnupli. Þegar nær dregur
hátíð kærleikans má búast við af
fenginni reynslu að fólk reyni að
nálgast hin veraldlegu gæði með
þessum ólögmæta hætti. Þannig var
einn staðinn að því að reyna að
hnupla þremur hangikjötslærum í
verslun við Laugaveg sl. föstudag.
Það var þó ekki Kjötkrókur, enda
ekki enn kominn til byggða.
Á föstudagskvöld varð 11 ára
drengur fyrir bifreið í Hólmgarði.
Hann kvartaði yfir eymslum í höfði
og í fæti. Hann var fluttur með
sjúkrabifreið á slysadeild. Fyrr um
daginn hafði annar gangandi veg-
farandi orðið fyrir bifreið á Lauga-
vegi við Snorrabraut. Meiðsli hans
urðu minniháttar.
Á laugardag var tilkynnt um
lausan eld í vélarrúmi togarans Við-
eyjar, sem liggur við Norðurgarð.
Allt tiltækt lið slökkviliðsins var
sent á vettvang, en kviknað hafði í
rafli ljósavélar. Greiðlega tókst að
slökkva eldinn og urðu einungis
skernmdir á raflinum.
Á sunnudagsmorgun var tilkynnt
um mikinn reyk frá kjallaraíbúð við
Hverfisgötu. Slökkviliðið kom á
vettvang, en pottur hafði gleymst
þar á straumtengdri eldavél. Hlaust
af því mikill reykur, en skemmdir
urðu litlar. Á fáum dögum hefur
a.m.k. þrisvar sinnum komið upp
eldur í heimahúsum snemma morg-
uns vegna þess að fólk hefur gleymt
potti á heitri eldavél.
Snemma á sunnudagsmorgun var
fólk vart við mannaferðir á þaki
Hressingarskálans við Austurstræti.
Þar var maður handtekinn á staðn-
um. Sá var með áfengi, sem hann
hafði stolið frá veitingastað í ná-
grenninu.