Morgunblaðið - 14.12.1993, Page 72
IUOIIGUNBLAÐID, KRINGLAN I 103 REYKJA VÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNAUSTUÆTl 85
ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Karlmað-
ur kærði
nauðgnn
42 ÁRA karlmaður í Reykjavík
kærði tæplega sextugan leigusala
sinn fyrir nauðgun á sunnudags-
kvöld.
Sá sem kærði leigði herbergi í
íbúð hins og hafa mennirnir átt í
eijum. Þeir höfðu báðir verið við
drykkju en á sunnudagskvöldið
sagðist leigjandinn hafa vaknað af
svefni við það að hinn var að hafa
við hann mök. Sá neitaði áburðinum.
Kærandinn var fluttur á neyðar-
móttöku slysadeildar. RLR yfir-
heyrði hinn kærða en hann var síðan
látinn laus.
Þriggja bíla
árekstur
við Selfoss
HARÐUR þriggja bíla árekstur
varð rétt utan við Selfoss um sjö-
leytið í gærkvöldi. Stúlka, öku-
maður eins bílsins, var flutt í
Sjúkrahús Selfoss með smávægi-
lega áverka eftir atvikið.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Selfossi voru tildrög
árekstursins þau að Subaru fólks-
bifreið var ekið í átt frá Gaul-
veijabæ og gat ekki numið staðar
við vegamótin vegna hálku, með
þeim afleiðingum að hún rakst
harkalega á Volvo-fólksbíl sem var
á leið vestur. Volvoinn snerist í veg
fyrir Pajero-jeppabifreið á leið í
öndverða átt og lenti framan á hon-
um. Fólksbifreiðirnar eru báðar
mikið skemmdar en tjón á jeppabif-
reiðinni varð aðeins lítilsháttar.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Snæfinnur spjallar
INGÓLFSTORG er komið í jólabúning og lögðu stórir sem smáir
leið sína þangað á sunnudag. Glatt var á hjalla og ekki er annað
að sjá en að litla stúlkan á myndinni kunni vel við sig í félagsskap
snjókarlsins sem glaður í bragði skundaði gegnum fjöldann. A blað-
síðu 30 er sagt frá litlu jólunum á Sólheimum í Grímsnesi, á bls.
32 frá jólastemmningu á Akureyri og á bls. 70 frá því er ljósin
voru kveikt á Óslóartrénu á Austurvelli.
Á geðdeild eftir
að hafa neytt of-
skynjunarsvepps
LOGREGLA telur sig hafa áreiðanlegar upplýsingar um að
16 ára piltur sem í rúma viku hefur verið í annarlegu ástandi
og til meðferðar á geðdeild á sjúkrahúsi hafi komist í það
ástand við að neyta ofskynjunarefna úr sveppi sem hann og
félagar hans höfðu bleytt upp í áfengi.
Ofskynjunarsveppir hafa verið
nokkuð útbreiddur vímugjafi meðal
ákveðinna hópa ungmenna undan-
farin misseri að sögn þriggja rann-
sóknarlögreglumanna sem Morgun-
blaðið ræddi við í gær og er þeirra
gjarnan neytt á þann hátt að þeir
eru bleyttir upp í landa eða öðru
áfengi sem sogar í sig vímuefni
sveppanna. Lögreglan segir að sum-
ir bruggarar blandi sveppum í landa
og selji sem ofskynjunarvímugjafa.
Síðan er áfengið drukkið og
kemst neytandinn þá í ofskynjun-
arvímu, líkri þeirri sem ofskynjunar-
lyfíð LSD gefur. Að sögn lögreglu-
mannanna sem Morgunblaðið ræddi
við í gær er ekki talið að vínandinn
breyti miklu um þá vímu sem neyt-
endur komast í með þessu móti.
Ofskynjunarsveppirnir vaxa villt-
ir í náttúrunni og á grasflötum hér
á landi en styrkleiki ofskynjunarefn-
anna í þeim er mjög misjafn sam-
kvæmt upplýsingum sem lögreglu-
menn kváðust hafa aflað sér, vegna
þess að fáir sveppanna ná að þrosk-
ast vegna skammvinns sumars hér
á landi. Einn fullþroskáður sveppur
hafi margfaldan áhrifamátt á við
jafnvel tugi óþroskaðra.
Viðmælendur Morgunblaðsins í
lögreglunni sem rætt hafa við ungl-
inga sem voru með piltinum sem
ekki hefur náð sér af vímunni kváð-
ust telja líklegt að pilturinn hafi
lagt sér fullþroskaðan ofskynjunar-
svepp til munns auk þess sem
viðnámsþol manna við ofskynjunar-
efnum er sagt misjafnt.
Morgunblaðið fékk ekki upplýs-
ingar á geðdeild Landspítalans í gær
um líðan piltsins, ástæður fyrir
ástandi hans eða batahorfur.
Varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar um vsk á matvæli
Lödukaup rússn-
eskra sjómanna
Morgunblaðið/Júlíus
A hafnarbakkanum
AFSKRÁÐAR Lada-bifreiðir
í röðum á hafnarbakkanum
en fjær má sjá rússneskan
togara.
1.196 af-
skráðar
Samþykkir lækkun en
telur aðrar leiðir betri
Fulltrúar Framsóknarflokks og Kvennalista andvígir lækkuninni
STUFUR
GILJAGAUR
kom í gær
VARAFORMAÐUR efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis segir að
fulltrúar stjórnarmeirihlutans séu bundnir af samþykkt ríkisstjórnar-
innar sem gefin var í tengslum við núgildandi kjarasamninga um
lækkun virðisaukaskatts á matvælum þótt aðrar leiðir í skattamálum
séu heppilegri til að ná fram tilætlaðri tekjujöfnun. Formaður nefnd-
arinnar segir að með þessari breytingu sé í uppsiglingu stórkostlegt
slys í skattamálum og leggur fram nýjar tillögur.
Efnahags- og viðskiptanefnd hef-
ur fjallað um frumvarp fjármálaráð-
herra um breytingar í skattamálum
en þar er meðal annars lagt til að
virðisaukaskattur á matvælum verði
lækkaður úr 24,5% í 14% um ára-
mót. Vilhjálmur Egilsson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokks og varaformað-
ur efnahags- og viðskiptanefndar,
sagði að fulltrúar stjómarmeirihlut-
ans í nefndinni væra bundir af sam-
þykkt ríkisstjórnarinnar. Vilhjálmur
sagðist þó aðspurður ekki fara leynt
með þá skoðun, að hann teldi aðrar
leiðir mun heppilegri til að ná fram
þeim markmiðum sem lækkun vsk.
á matvælum er ætlað að ná. Hins
vegar stæði hann frammi fyrir sam-
DAGAR
TIL JÓLA
þykkt ríkisstjórnarinnar og líta bæri
á að með henni væri tryggður friður
á vinnumarkaði næsta árið sem
væri mjög þýðingarmikið.
Stórkostlegt slys
Halldór Ásgrímsson, þingmaður
Framsóknarflokks og formaður
efnahags- og viðskiptanefndar,
leggst gegn því að taka upp tvö
þrep í virðisaukaskattkerfinu. „Ég
tel að það sem þarna á að fara að
gera sé stórkostlegt slys í skatta-
málum sem ekki er séð fyrir endann
á,“ sagði Halldór.
Hann kynnti í gær á fundi í nefnd-
inni tillögur í skattamálum sem
hann segir miða að því að ná mun
betri árangri til jöfnunar í samfélag-
inu. Tilllögurnar eru að hætt verði
við að lækka virðisaukaskatt á mat-
vælum og breyta vörugjöldum á
sælgæti og fleiri vörum. Þess í stað
verði almenna virðisaukaskattpró-
sentan lækkuð úr 24,5% í 23%. Til
viðbótar verði dregið úr fyrirhug-
aðri skerðingu á vaxtabótum um
helming. Bamabótaauki verði
hækkaður um 10 þúsund krónur,
tekjuskattur lögaðila lækki í 35% í
stað 33% en hætt verði við að leggja
á 0,35% tryggingagjald á fyrirtæki.
Þá verði hætt við að leggja virðis-
aukaskatt á fólksflutninga og gist-
ingu, sem koma á til framkvæmda
um áramótin, en þessar greinar
greiði áfram 6% tryggingagjald.
Loks verði skattfrelsi peningalegra
eigna afnumið eða með öðrum orð-
um verði tekinn upp fjármagns-
tekjuskattur. Þessar tillögur eiga
að hafa sömu áhrif á tekjur ríkisins
og þær tillögur sem ríkisstjórnin
hefur lagt fyrir Alþingi.
Kristín Ástgeirsdóttir fulltrúi
Kvennalistans í efnahags- og við-
skiptanefnd segist vera hlynnt tillög-
um Halldórs en þingflokkur Kvenna-
listans hafi ekki tekið afstöðu til
þeirra. Steingrímur J. Sigfússon full-
trúi Alþýðubandalags leggur vænt-
anlega fram sérálit.
a annu
MIKIL aukning hefur átt sér
stað í afskráningu Lada-bif-
reiða á þessu ári og í fyrra.
Að sögn Gísla Guðmundsson-
ar, forstjóra Bifreiða & land-
búnaðarvéla hf., er líklegt
að þessi aukna afskráning
stafi að stórum hluta af mik-
illi sölu á Lödum til áhafna
rússneskra togara. Árið 1991
voru 972 Lödur afskráðar
hjá Bifreiðaskoðun íslands, á
seinasta ári voru 1.134 af-
skráðar og fyrstu tíu mánuði
þessa árs var fjöldi afskrán-
inga kominn í 1.196.
Gísli sagði ljóst að mjög
margir bílar hefðu verið seldir
rússneskum sjómönnum sem
hefðu einkum sóst eftir Lödum
sem þeir gætu flutt með sér
heim án þess að þurfa að greiða
af þeim tolla þar sem Rússland
er framleiðsluland bílanna.
Rússneskur starfsmaður um-
boðsins segir að það fari eftir
gæðum bílanna hvort sjómenn-
irnir flytji þá með sér í heilu
lagi eða í pörtum og oft virðist
sjómennirnir hafa hent bíl-
skrokknum fyrir borð á leiðinni.
Mikið var flutt inn af I/jdum
á árunum 1986 þegar fluttir
voru inn rúmlega 2.500 bílar
og árið 1987 þegar alls voru
fluttar inn 2.800 Lödur.