Morgunblaðið - 28.12.1993, Side 14

Morgunblaðið - 28.12.1993, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1993 +- Um frumsýningu á Máv- inum í Þjóðleikhúsinu Rithöfundurinn Trígorín (Jóhann Sigurðarson) rekur raunir sínar fyrir Nínu (Halldóru Björnsdóttur). eftir Nínu Rechetovu HEIMURINN man ennþá síð- ustu atburðina í hinu fjarlæga Rússlandi; endurminningar um hið brennda Hvíta hús eru enn- þá öllum í huga, en í Reykjavík var Mávurinn eftir Tsjekhov frumsýndur, en hann gerist ein- mitt í húsi, sem nýlega varð eldsvoða að bráð. En frumsýningin í Þjóðieikhús- inu átti sér stað og uppsetningin er orðin að veruleika. Tsjekhov sem var alltaf hræddur við frum- sýningar á Mávinum — sem fóru að staðaldri út um þúfur og var því hans sjúka, og þar af leiðandi elskaða barn — gæti-verið ánægð- ur. Sýningin er spennandi og í raun og veru um ást. „Og öll þessi ást... Vatnið ... Það fylgja því einhverjir galdrar." Forngrikkir höfðu líklega rétt fyrir sér, þegar þeir sögðu: Uppr- uni mannlegs anda er í vatni. Anton Tsjekhov skrifaði leikrit sitt í Melechovo. Það er sveitaset- ur í tveggja til þriggja klukkutíma fjarlægð frá Moskvu ef ekið er með jámbrautarlest. Þar var góð- ur garður, með beinum fallegum gangstígum og með dásamlegu vatni: eins og í Mávinum þar sem Tréplév (Baltasar Kormákur) sviðsetur leikrit, og þar sem voru samskonar óleysanleg ástar- vandamál... Leikstjórinn og list- rænn stjómandi hins Litla leik- húss í Vilnius, Rimas Tuminas, byggir ekki gangstíg og leikhús, þar er bara ein leikmynd sem þjónar bæði sem hús og leikhús, þar sem var einu sinni eldsvoði — og sennilega verður þar eldsvoði aftur. Arkadína (Anna Kristín Arn- grímsdóttir), ungleg, falleg kona sem lítur út næstum eins og jafn- aldra Tréplévs sonar síns hefur þreytt augu, hún talar um velmeg- un sína og kjólfatnað sinn með ánægju, en án eldmóðs. Þegar Nína (Halldóra Bjöms- dóttir) kemur til sögunnar, er eins og Arkadína verði hrædd um að tapa Trígorín, elskhuga sínum (Jóhanni Sigurðarssyni) — að minnsta kosti í bili. Og þess vegna hljómar svo eðlilega eintal hennar til Möshu (Eddu Arnljótsdóttur): „Stöndum upp. Hlið við hlið. Þér eruð tuttugu og tveggja ára, ég er hér um bil helmingi eldri. Hvor okkar er unglegri?“ Og augljóst er, af hveiju hún er svo óróleg. Leikstjóranum tókst, á stuttum tíma, að sviðsetja leikritið ná- kvæmlega og spennandi. Leikar- ar, sem eru vel samstillt hljóm- sveit, fylgjast með leikstjóranum. Nú kemur fram Nína hvítklædd. Hún er bara stelpa, en hana lang- ar að losna frá þessu sveitalífí. Þá voru í Rússlandi margar svona stúlkur. Draumur þeirra var að losna úr dapurlegum hversdags- leika, finna málstað, helga sig honum að fullu, verða hæfileika- manni að bráð sem kæmi tilfinn- ingum þeirra í uppnám. Það er erfitt að ímynda sér, að sama leik- Morgunblaðið fór þess á leit við Nínu Rechetovu, 'eiginkonu rússneska sendiherrans á íslandi, að hún skrifaði um sína skoðun á sýningu Þjóð- leikhússins á Mávinum. Frú Rechetova er leik- kona og hefur leikið á sviði bæði í Moskvu og Leníngrad, auk þess að hafa leikið í kvikmynd- um frá 11 ára aldri — og þá í verki eftir Tsjek- hov. Faðir hennar var þekktur leiksljóri í Sov- étríkjunum og er Ac- imov-leikhúsið í Len- íngrad kennt við hann. Móðir hennar starfaði einnig við leikhús, aðal- lega sem rithöfundur, og var einnig gagnrýnandi. Frú Rechetova tók erindi Morgxmblaðsins vel og eru henni færðar þakkir fyrir meðfylgjandi grein. kona sem fór í Kæru Jelenu með hlutverk nútímastúlku, breytist svo óvænt í þess konar stúlku í Mávinum eftir Tsjekhov. Og loksins Trígorín sjálfur: „Veiðarfæri þurfa að vera heima- tilbúin og beygð. Hann gerir þau sjálfur með vasahníf", skrifaði Tsjekhov. En Vitautas Narbutas, sem sér um leikmynd og búninga, gefur honum nútímaveiðarfæri. Það kemur þó ekki í veg fyrir að per- sónan haldi áfram að vera raun- veruleg. Trígorín er hæfileika- maður. „Hann er frægur, en sálin í honum er ósköp venjuleg." Hann er rithöfundur og skrifar án afl- áts. „Hann hefur kynnst unaði listrænnar sköpunar." Hann telur það skyldu sína að tala um alþýðu manna, þjáningar hennar, hvers- dagsleika hennar og að tala um vísindi, mannréttindi. En honum þykir líka gaman að renna fyrir fisk. Og það undrar Nínu, „en sálin í honum er ósköp venjuleg". Trígorín skammast sín fyrir ást sína til Nínu. í lok leikritsins seg- ir hann niðurlútur og gamallegur við Arkadínu: „Taktu mig, farðu með mig burt, en gættu þess bara að sleppa mér ekki lausum eitt andartak.“ Við heyrum tónlistina sem sam- in er af alúð af tónskáldinu (Faustas Latenas). Og enn einu sinni skynjar maður ilm leikrita eftir Tsjekhov. Ja, allir eru ást- fangnir í Mávinum — „það eru bara fimm skippund af ást“. Guðrún S. Gísladóttir fer glæsi- lega með hlutverk Polínu Andrejevnu, sem er ástfangin af Dom; Masha, sem er alltaf svart- klædd (ég syrgi mitt eigið líf) er ástfangin af Tréplév. Tréplév er ungur rithöfundur sem berst gegn gömlum kenningum í listum og reynir að sigrast á hefðinni. En hann getur ekki stjórnað sjálfum sér. „Maður verður að geta borið sinn kross og trúað,“ — segir Nína við hans í lok leik- ritsins, á sama tíma og rautt tjald — tákn eldsvoða — flögrar um sviðið. Hún er orðin önnur, hún er orðin fullorðin. Hún er leikkona, eða réttara sagt skotinn mávur; efni í smásögu, sem Trígorín hef- ur aldrei skrifað. Lífið er sorglegt en skemmti- legt. Dásamlegt er, að til eru svona leikrit. Þvílík alúð við málið (Ingibjörg Haraldsdóttir), þvílíkir leikarar, sem fara bæði með smá og stór hlutverk og leika frábæran Tsjekhov innblásnir af leikstjóran- um! Höfundur ersendiherrafrú Rússlands á íslandi. TIL LEIGU í HEKLUHÚSINU LAUGAVEGI 172- 174 Mörg bílastæði - Vararafstöö - Lyfta - Einn þekktasti staöur q Reykjavíkursvæbinu. Upplýsingar gefur Sigurður Gunnarsson, sími 695500. . »„._.•* « ‘jrTÍE rj a .í? c-i =o u~ -TlJAlm o 17- Skrifstofuhúsnæöi ó 2. hæö, ca. 400 m2 auk sameiginlegs. n • • ■ * «o-- 1T ■ kxU r1 ° Jð3| tl - o ...—— H--í—+- ■agariawwi Verslunarhúsnæöi á götuhæö, ca. 276,3 m2. IHI HEKIA 1 H Hl n h H m n.iz.tr-BTE HEIÐAR Jónsson snyrtir heldur í byijun janúarmánaðar vikunám- skeið í litgreiningu. Heiðar hefur þróað sitt eigið kerfi með samþykki Firt Impressions en þaðan hefur hann kennarapróf. Mið- að er við árstíðimar íjórar en út frá því er síðan kennd „tóngreining" sem er skrásett starfsheiti annars aðila í faginu þannig að samhliða árstíðalit- greiningunni er hún nefnd „Heiðars- greining". Kennslan hefst þriðjudaginn 4. janúar um kvöldið og kennt verður á kvöldin út vikuna, en dagkennsla um helgar. Að því búnu er einn dag- ur síðar í januar eftir að nemendur hafa reynt fyrir sér sjálfir. cyl» bréfabindi Þið hringið - við sendum Múlalundur Vinnustofa SÍBS • Hátún 10c Símar: 688476 og 688459 • Fax: 28819 HUGBUNAÐUR FYRIR WINDOWS SH KERFISÞRÓUN HF. FÁKAFEN111 - SÍMI 688055 Námskeið í litgreiningu * i i It

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.