Morgunblaðið - 28.12.1993, Síða 27

Morgunblaðið - 28.12.1993, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1993 27 Markaðsrannsókn IM Gallup 87% hlynnt átaki í virkjun orkulinda til raforkuframleiðslu MIKILL vilji er fyrir átaki í virkjun íslenskra orkulinda til raf- orkuframleiðslu ef orkusölusamningur hefur verið tryggður, seg- ir í niðurstöðu markaðsrannsóknar sem ÍM Gallup hefur gert fyrir ICENET-verkefnið sem Reykjavíkurborg og þrjú hollensk fyrirtæki standa að. 87% þeirra sem svöruðu sögðust vera mjög eða frekar hlynnt átakinu. Ennfremur var spurt um afstöðu til útflutnings á raforku og voru rúmlega 86% ýmist mjög eða frek- ar hlynntir útflutningi. Fram kemur að markmið rann- sóknarinnar er að kanna afstöðu íslendinga til virkjunarfram- kvæmda og útflutnings á raforku. Valið var tilviljunarkennt 1.090 manna úrtak einstaklinga af öllu landinu á aldrinum 18 til 69 ára og af þeim náðist til 760. Eins og fyrr segir eru 87% mjög eða frekar hlynntir því að stórátak verði gert í virkjun íslenskra orku- linda til raforkuframleiðslu en 10,3% eru frekar eða mjög andvíg- ir. 2,6% eru hvorki með eða á móti. Þá eru 86,2% mjög eða frekar hlynntir útflutningi á raforku en 11,7% voru mjög eða frekar and- vígir. 2,2% eru hvorki með eða á móti útflutningi. Séu þessar tvær spurningar bornar saman kemur fram að tæplega 84% þeirra sem eru mjög hlynntir stórátaki í virkj- un eru einnig mjög hlynntir út- flutningi á raforku. Loks voru þeir sem eru á móti eða tóku ekki afstöðu til síðari spurningarinnar beðnir um að svara til um afstöðu til útflutnings á raforku ef slíkur útflutningur skapaði framtíðarstörf í iðnaði og þá dæmi tekið af kapalframleiðslu sem möguleika. Reyndust þá rúm- lega 61% þeirra vera hlynntir út- flutningin. Ef spurningar tvö og þrjú eru teknar saman kemur í ljós að ef raforkuútflutningur skapar framtíðarstöf þá eru 92% landsmanna hlynntir útflutningi. Erfiðleikar á verðbréfamarkaði í Japan Sölutregða á ís- lenskum æðardúni ÚTFLUTNINGUR æðardúns hefur gengið treglega í ár og hefur sölutregðan nú varað á þriðja ár. A aðalfundi Æðarræktarfélags íslands voru sölumálin í brennidepli og leitað að ástæðum og leið- um til úrbóta. Fram kom sú skoðun útflytjenda að erfiðleikarnir stöfuðu af því að hátekjufólk í Japan, þar sem stærsti markaður æðardúns er, hefði orðið fyrir áfalli á verðbréfamarkaðnum og minnkaði kaup á munaðarvöru eins og æðardúnssængum. Rætt var um að hefja sölu- og kynningarátak erlendis og fékk stjóm félagsins heimild til að leggja á allt að 5% tímabundið gjald á útfluttan dún til að standa straum af því. Jákvætt er við sölu- málin að umtalsverð dúnsala á sér nú stað innanlands og er það bót í máli fyrir æðarræktendur. Sex meiddust í árekstri SEX voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur á Vestur- landsvegi móts við Skálatúns- heimilið að kvöldi jóladags. Meiðslin voru ekki hættuleg, að sögn lögreglu. Tildrög slyssins vom þau að bíl á leið í átt að Mosfellsbæ var ekið inn í skafl sem skafið hafði í á veginum og snerist við það og sner- ist við það og þeyttist inn á gagn- stæðan vegarhelming, í veg fyrir fólksbíl á leið til Reykjavíkur. Þar var fjögurra manna fjölskylda á ferð en í bílnum sem slysinu olli tveir menn. Allt fólkið var flutt á slysadeild til aðhlynningar. Að sögn lögreglu hafði fólkið hlotið skurði og högg en meiðsli þess voru ekki talin hættuleg. Á aðfangadagskvöld var bíl bakkað á dreng á fjórða ári fyrir utan hús í Fossvogi. Drengurinn meiddist á baki og fæti og var gert að sárum hans á sjúkrahúsi. 22 umferðaróhöpp vora tilkynnt Reykjavíkurlögreglunni um hátíð- imar, í þremur þeirra slasaðist fólk. Á fundi Æðarræktarfélagsins flutti Zophonias Þorvaldsson bóndi á Læk erindi um dúnþvott. Hann hefur hannað og smíðað dún- þvottavél og gert tilraunir með hana. Benti hann á nauðsyn þess að þvo og fullvinna dúninn innan- lands og flytja út sem fullunna vöru, það er dúnsængur. MÓTORVINDINGAR og aðrar rafvélaviðgerðir á vel búnu verkstæði. RAFLAGNANÓNUSTA í skipum, verksmiðjum og hjá einstaklingum. VANIR MENN vönduð vinna, áratuga reynsla. Vatnagöröum 10 • Reykjavík ‘Er 685854 / 685855 • Fax: 689974 Ný þjónusta við sjómenn Stormfregn- ir sendar frá loftskeyta- stöðvum Á NÆSTU dögum tekur Veður- stofa Islands upp nýja öryggis- þjónustu við sjómenn. Á þriggja stunda fresti munu loftskeyta- stöðvar landsímans láta vita af því á kallbylgju sinni, ef spáð er stormi (9 vindstigum) eða meira á einhveiju þeirra miða eða djúpa sem eru næst þeirri stöð. Strax á eftir verður gildandi spá fyrir viðkomandi spásvæði lesin á vinnubylgju stöðvarinnar. Loðnuaflinn varð 467 þúsund tonn RÚMLEGA 467 þúsund tonn af loðnu bárust á land á sumar- og haustvertíð sem lauk 20. desember. Eftirstöðvar loðnukvótans eru 522.214 tonn. Hólmaborg var aflahæst loðnuskipa með 27.542 þúsund tonn. Loðnuveiðar hefjast á ný 2. janúar ef ekki verður af sjómannaverkfalli. Afli íslenskra skipa á vertíðinni var um 453 þúsund tonn en erlend fiskiskip lönduðu hér rúmlega 14 þúsund tonnum. Verksmiðja SR- mjöls á Siglufírði tók á móti mestu magni, um 95 þúsund tonnum. Hjá SR-mjöli á Seyðisfirði var tek- ið á móti rúmlega 60 þúsund tonn- um og hjá SR-mjöli á Raufarhöfn um 59 þúsund tonnum. Loðnuganga Undir lok loðnuvertíðar fannst töluvert af vænni loðnu úti fyrir Norð-Austurlandi og var talið hugsanlegt að stór loðnuganga væri þar á ferð. Rysjótt verðurfar varð þess valdandi að bátunum tókst ekki að leita nema takmark- að og er því óvíst hversu stór loðnuganga er á ferðinni. Þetta stormfregnaútvarp verður alltaf kl. rúmlega 2, 5, 8 og 11 fyrir og eftir hádegi (kl. 3 eða 6 mínútur yfír) en einungis þegar stormfregnir liggja fyrir. Stöðvarn- ar sem annast þessa þjónustu eru Reykjavík, ísafjörður, Siglufjörður, Neskaupstaður, Hornafjörður og V estmannaeyj ar. Jafnframt verða allar veðurspár og skeyti frá veðurstöðvum og skip- um ávallt fyrirliggjandi á loft- skeytastöðvunum og þangað geta skipstjómarmenn því snúið sér til að fá nánari upplýsingar en þær sem stormfregnirnar veita. Þess er vænst að þessi nýja þjón- usta auki öryggi skipa nálægt land- inu en auk þess mun þetta útvarp ná mun betur en sendingar Ríkisút- varpsins til farskipa og skipa á fjar- lægum miðum, segir í frétt sem Páll Bergþórsson, veðurstofustjóri hefur sent Morgunblaðinu. Jólaskraut, jólakerti, jólatréskúlur, jólapappír, jólaskreytingaefni o.fl. (á meðan birgðir endast).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.