Morgunblaðið - 28.12.1993, Side 52

Morgunblaðið - 28.12.1993, Side 52
52 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1993 SVONA EROPH) , m ARAMOTIN Hótel Loftleiðir Hótel Esja 28. des. til 5. jan. Opið Lokað HÓTEL ESJA HÓTEL LOFTLEIBIR Eftirlýst kort nr.: 4543 3718 0006 3233 4546 3912 3256 0090 4842 0308 1995 3028 ÖLL ERLEND KORT SEM BYRJA Á: 4506 43** 4507 46** 4543 17** 4560 08** 4560 09** 4920 07** 4938 06** 4988 31** 4506 21** kort úr umlerð og sendið VISA íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000,- fyrir að klófesta kort og visa á vágest. W54 'MMMM Höföabakka 9 • 112 Reykjavik Slmi 91-671700 Hótel Esja, S: 91-81 22 00 Hótel Loftkiðir, S: 91- 22 3 22 F lugleiðahótelin óska landsmönnum árs og friðar. TOL^U^MÐLAR TÓNLIST Gullplötur til KK EK Band er meðal þeirra sem selt hafa vel fyrir þessi jól og haft gullplötu upp úr krafsinu því til staðfestingar. Á mynd- inni sést KK ræða við nokkra unga aðdáendur sína. Hefur málað postulínsþorp Morgunblaðið/Sverrir Það liggja ótrúlega mörg handverk í jólaþorpinu. Guðlaug Wium hefur alla tíð verið mikið jólabam og haft gaman af að undirbúa jólin. Á und- anförnum sex árum hefur hún með- al annars komið sér upp heilu jóla- þorpi úr postulíni. Þarna má sjá hús af ýmsum gerðum, spiladósir, jóla- sveina í nýjum og gömlum útgáfum, kirkjur, jólatré og meira að segja ljósastaura. „Hluta jólalandsins kalla ég leik- fangalandið og þar er konungshöll- in. I henni búa kóngurinn og drottn- ingin og ég raða þessu upp þannig að allt jóladótið kemur frá leik- fangalandinu eins og maður sér í ævintýrunum," segir Guðlaug. Orð- um sínum til áréttingar bendir hún á járnbrautarlest sem er á leiðinni frá höllinni inn í þorpið. Hún setur olíu í einn vagninn og síðan stendur kveikur upp úr þannig að fólk fái tilfinningu fyrir því að þarna sé líf. Þorpið er óneitanlega svolítið mann- legt, því fjölbreytnin er mikil og má jafnvel sjá jólasveina, sem virð- ast úrvinda eftir mikið puð. Málar jólavörur svo til allt árið Guðlaug fór á fýrsta postulíns- námskeiðið árið 1985 og er enn að. „Ég er í námi hjá mæðgunum Ebbu Amgrímsdóttur og Hönnu Ebenes- ardóttur í Garðabæ. Til þeirra fer ég tvisvar í viku allan veturinn. Við sem erum á námskeiðinu málum jólavörur allt árið, það er að segja ef við erum að vinna erfið verkefni getur verið gott að grípa í léttari verk inn á milli. Þá velur maður gjaman jóladótið." Snýr öllu við innanstokks Þegar Guðlaug er spurð hvort hún hafi í upphafí hugsað sér jóla- sveinaland eða hvort það hafi orðið til fyrir tilviljun svarar hún að það sé blanda af hvoru tveggja. „Ég byijaði á fýrsta húsinu 1985, en síðan bættist hitt smám saman við. Það er svo ótrúlega gaman að mála postulínið, sjá það breytast og öðl- ast líf. Ég hef alltaf verið mikið jólabam og strax í nóvember byija ég að baka, sný öllu við innanstokks, tek mikið af munum niður og set allt rautt upp í staðinn. Þegar ég tek jóladótið niður á þrettándanum verður að vísu allt grátt aftur." Guðlaug Wium segist snúa öllu heimilinu við á aðventunni og fylla húsið af jólamunum. Heiðraður fyrir að bjarga íslensku stöfunum Hjálmar W. Hannes- son, sendiherra ís- lands í Þýskalandi af- henti fyrir skömmu Wil- helm Friedrich Bohn riddarakross hinnar ís- lensku fálkaorðu. Fór afhendingin fram á heimili ræðismanns Is- lands í Stuttgart en ridd- arakrossinn fékk Bohn fyrir að semja og kynna tillögu um alþjóðlegan stafatöflustaðal í upp- lýsingatækni þar sem fullt tillit er tekið til ís- lenska stafrófsins. Eftir að sendiherra íslands hafði flutt ávarp hélt Bohn smá tölu og bað um að þakklæti sínu yrði komið á framfæri við forseta íslands. Einnig tók til máls aðstoðarrektor Tækniháskólans í Stuttgart. Bohn starfaði um langt skeið sem kerfisfræðingur hjá IBM í Þýska- landi og sérhæfði sig fljótlega í gerð stafataflna. Prentarar og tölvuskjáir geta einmitt birt takmarkað magn tölvutákna og hafa því verið hannað- ar staðlaðar stafatöflur. Hefur Bohn unnið að samræmingu stafataflna jafnt fyrir IBM sem og hjá alþjóða- samtökum. Afhending Riddarakrossins vakti nokkra at- hygli blaða og hér má sjá frétt Sindelfingen Zeitung um málið. Bjargvætturinn hefur komið oft til Islands Bohn hefur nokkrum sinnum komið til íslands og þekkti því vel til stafanna ð,þ og ý, sem ekki eru notaðir annars staðar í Vestur-Evr- ópu. Sá hann til þess að þessir staf- ir fengu sæti í stafatöflu þeirri, sem hann lagði til og fékk samþykkta og gengur undir nafninu „Bohn- Code“. Hefur þessi stafatafla náð fótfestu í tölvuiðnaðinum og er grunnstafróf í öllum Unix-stýrikerf- um og flestum einmenningstölvum og prenturum. Alþjóðlegur staðall, sem samþykktur var á þessu ári, grundvallast einnig á Bohn-Code. Var sá staðall töluvert í fréttum á sínum tíma vegna óvissu um hvort íslensku stafirnir yrðu þar með. 28. 12. 1993 Nr 363 VÁKORT | AUGLÝSING Jafnréttisnefnd Reykjavíkur hefur ákveðið að efna til sam- keppni um gerð stuttmyndar. Fyrirhugað er að senda verðlaunamyndina á NORDISK FORUM Abo í Finnlandi í byrjun ágúst 1994 sem framlag á stuttmyndahátíð, er þar verður. Efni handrits verði Reykjavíkursaga. Lengd stuttmyndar 15 til 25 mínútur. Fyrir þrjú bestu handritin verða veitt verðlaun: 1. verðlaun 150 þúsund kr. 2. verólaun 30 þúsund kr. 3. verðlaun 20 þúsund kr. Framleiðslustyrkur til verðlaunahafa mun nema allt að 700 þús. kr. Styrkþegi skuldbindur sig til að skila myndinni til sýningar á NORDISK FORUM í Ábo í Finnlandi næsta sum- ar. Stuttmyndin skal vera fullgerð til sýningar eigi síðar en I. júlí 1994. Handrit og fjármögnunaráætlun skal skila vel innpökkuðu, merkt kennitölu (fimm tölustöfum), ásamt umslagi, merktu sömu kennitölu, þar sem getið er höfundar, framleiðsluað- ila og stjórnanda, til Olafs Jónssonar, fulltrúa, Ráðhúsi Reykjavíkur, fyrir kl. 16.00 24. janúar 1994. félk f fréttum HEIMILI Vkterkur og k-/ hagkvæmur auglýsingamiöill!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.