Morgunblaðið - 28.12.1993, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 28.12.1993, Qupperneq 36
86 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1993 AÐALBANKASTJORI — Við afhendingu íslensku Fálka- orðunnar í Helsinki þann 15. desember sl. Á myndinni eru f.v. Jannik Lindbæk, aðalbankastjóri NIB, Guðmundur Magnússon, stjórnarformað- ur NIB, Þórhallur Ásgeirsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri og fyrrver- andi stjómarmaður í NIB, Tómas Ámason, seðlabankastjóri og stjómar- maður í NIB og Jón Sigurðsson, seðlabankastjóri. Viðurkenning Aðalbankastjóri NIB sæmdur fálkaorðunni FORSETI íslands, Frú Vigdís Finnbogadóttir, hefur veitt Norðmanninum Jannik Lindbæk, íslensku fálkaorðuna fyrir vel unnin störf sem aðal- bankastjóri Norræna fjárfest- ingarbankans. Jannik Lindbæk lætur af störf- um sem aðalbankastjóri NIB um áramót er hann tekur við stöðu yfirmanns International Finance Corporation í Washington. Jón Sigurðsson, seðlabankastjóri tek- ur við stöðu aðalbankastjóra NIB í apríl nk. Á stjómarfundi NIB í Helsinki þann 15. desember sl. tók Guðmundur Magnússon, prófessor við stjórnarformennsku í NIB, en ísland hefur á hendi formennsku í bankanum fram til júní 1996. Fyrirtæki IL VIÐSKIPTAMANNA IANKA OG SPARISJÓÐA y<>. jgfc:. if k- Lokun 3. janúar og eindagar víxla. Afgreiðslur banka og sparisjóða verða lokaðar mánudaginn 3. janúar 1994. Leiðbeiningar um eindaga víxla um jól og áramót liggja frammi í afgreiðslum. Reykjavík, desember 1993 Samvinnunefnd banka og sparisjóða Rafmagn ístaðolíu hjá Síldarvinnslunni hf. NÝLEGA var undirritaður samningur milli Landsvirkjunar og Rafmagnsveitna ríkisins um árleg kaup á allt að 20 GWst af ótryggðu rafmagni. Samningurinn var gerður samhliða samningi Síldarvinnslunnar í Neskaupstað við Rafmagnsveiturnar um kaup á ótryggðu rafmagni með 50% afslætti. Verður rafmagnið notað til gufuframleiðslu hjá fyrirtækinu og kemur í stað olíu. Síldar- vinnslan mun setja upp rafskautsketil en jafnframt hafa olíuketil áfram til vara eins og áskilið er fyrir ótryggt rafmagn. Gert er ráð fyrir að rafmagnsnotkun við fiskimjölsvinnslu Síldarvinnslunn- ar geti hafist á loðnuvertíð haustið 1994, að því er segir í frétta- tilkynningu. Vegna 50% afsláttar af ótryggðu rafmagni er Sfldar- vinnslunni gert fjárhagslega kleift að leggja í þann kostnað sem því fylgir að breyta úr olíubrennslu í rafmagnsnotkun. Stjórn Lands- virkjunar hafði samþykkt þennan afslátt af verði ótryggðs rafmagns til fiskimjölsverksmiðja sem vilja leggja í slíkar breytingar og gildir hann til 1. apríl árið 2000. Er þetta liður í markaðsátaki Lands- virkjunar í því skyni að auka raf- magnssölu á kostnað olíunotkunar og eru orkukaup Síldarvinnslunn- ar einn árangur þeirrar viðleitni. Með afslættinum og miðað við núverandi gjaldskrá Landsvirkj- unar er verðið á rafmagninu frá Landsvirkjun til Rafmagnsveitna ríkisins um 32 aurar á kWst en um 76 aruar kWst til Síldarvinnsl- unnar. Til að tryggja nægjanlega flutn- ingsgetu raforkukerfisins til Nes- kaupstaðar þurfa að koma til sér- stakar framkvæmdir af hálfu Raf- magnsveitnanna. Kostnaður vegna þeirra framkvæmda mun ekki koma inn í rafmagnsverð til hins almenna notanda. Víðast á landsbyggðinni þurfa að koma til verulegar fjárfestingar í flutnings- og dreifikerfum raf- magns ef gera á fiskimjölsverk- smiðjum almennt kleift að njóta fyrrnefnds afsláttar frá Lands- virkjun. Fyrr á árinu samdi Landsvirkj- un um sölu á alls 60 GWst á ári af ótryggðu rafmagni á afsláttar- kjörum í þágu Hitaveitu Akur- eyrar, Mjólkursamlags KEA; Fiskimjölsverksmiðju Krossaness hf., Viking-Bruggs hf. og Steinull- arverksmiðjunnar á Sauðárkróki. Með samningunum vegna Síldar- vinnslunnar í Neskaupstað hefur Landsvirkjun því nú þegar samið um sölu á allt að 80 GWst á ári af ótryggðu rafmagni með afslátt- arkjörum til aldamóta. Utanríkisviðskipti Afgangur á vöruskiptum 11,3 milljarðar FLUTTAR voru út vörur í nóv- embermánuði fyrir um 7,6 millj- arða og inn fyrir nær sömu fjár- hæð þannig að vöruskiptin voru í járnum í mánuðinum en í nóv- ember í fyrra voru þau hagstæð um 1,1 milljarð króna fob. á sama gengi. Fyrstu ellefu mán- uði ársins voru fluttar út vörur fyrir tæplega 85,5 milljarða króna en inn fyrir rösklega 74,1 milljarð króna fob. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 11,3 milljörðum en á sama tíma í fyrra var vöru- skiptajöfnuðurinn hagstæður um 2,9 milljarða á föstu gengi. Er þar miðað við meðalgengi á viðskiptavog en á þann mæli- kvarða var meðalverð erlends gjaldeyris janúar til nóvember 8,4% hærra en á sama tíma árið áður. Fyrstu ellefu mánuði þessa árs var verðmæti vöruútflutningsins um 2% minna á föstu gengi en á sama tíma í fyrra. Sjávarafurðir voru 80% alls útflutningsins og var verðmæti þeirra um 1% minna en á síðasta ári. Útflutningur á áli var 8% minni en útflutningur kísiljárns 34% meiri á föstu gengi en árið áður. Útflutningsverðmæti annarrar vöru (að frátöldum skip- um og flugvélum) var 6% minna í janúar-nóvember en árið áður. Verðmæti vöruinnflutningsins fyrstu ellefu mánuði ársins var 12% minna á föstu gengi en árið áður. Innflutningur sérstakrar fjárfestingarvöru (skip, flugvélar og Landsvirkjun), innflutningur til stóriðju og olíuinnflutningur er jafnan mjög breytilegur frá einu tímabili til annars. Að þessum lið- um frátöldum reyndist annar inn- flutningur hafa orðið um 9% minni en á sama tíma í fyrra. Tölvur Bók um tölvusamskipti og staðamet BRETnVOGHt á sérstaklega hagstæðu verði Galvaniseruö stálvog á aöeins kr. 165,063,- + vsk Vog úr ryðfríu stáli á aðeins kr. 244,435,- + vsk TT Krókhálsi 6 Eigum ennþá nokkrar vogir á íager. Sími 91-671900 • Fax 91-671901 KOMIN er út hjá Iðnú bókin Staðaniet eftir Marinó G. Njáls- son. í bókinni er fjallað um tölvusamskipti og staðarnet þannig að flestir eiga að geta skilið. Ekkert íslenskt lesefni hefur verið til um þessa hlið tölvutækninnar í nokkur ár og því hafa þeir, sem áhuga hafa haft, þurft að leita fanga í er- lendum tölvubókum, sem hafa fæstar verið fáanlegar hér á landi. í bókinni er farið í grunnatriði tölvusamskipta og staðameta; skoðuð er uppbygging staðarneta með tilliti til vélbúnaðar, hugbún- aðar, netgerða, aðgangsaðferða, staðla og samskiptalíkana; Ether- net, tókahringsnet, AppleTalk og háhraðanet era útskýrð og farið er í samtengingar víðneta. Fjallað er um Novell NetWare og Micro- soft LAN Manager, almenna net- stjórnun og hvað þarf að hafa í huga þegar tölvubúnaður er val- inn. Að lokum er í bókinni íslenskt- enskt orðasafn með orðaskýring- um og enskt-íslenskt orðasafn án orðaskýringa. Marinó G. Njálsson er tölvun- arfræðingur frá Háskóla íslands. Undanfarin tvö ár hefur hann kennt við tölvubraut Iðnskólans í Reykjavík, m.a. um staðarnet og tölvusamskipti, og haft umsjón með tölvumálum skólans stóran hluta þess tíma. Hann hefur á sama tíma getið sér gott orð fyrir skrif sín um tölvumál í Morgun- blaðið. MARINð C. HjAlSSON STAÐARNET IOMÚ TOLVUR — í bókinni Staðamet er m.a. fjallað um Novell NetWare og Microsoft LAN Manager, almenna net- stjórnun og hvað þarf að hafa í huga þegar tölvubúnaður er valinn. í bókinni Staðarnet hefur hann tekið saman efni úr pistlum sínum og ógrynni erlendra tölvubóka og tímaritsgreina ásamt öðru efni úr ýmsum áttum. Bókin ætti að nýt- ast flestum sem vilja læra eitthvað um tölvunet, jafnt byrjendum sem lengra komnum. Hún er 189 bls. og prentuð hjá Prentstpfu Iðnú.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.